Tíminn - 19.05.1973, Blaðsíða 7
Laugardagur 19. mai 1973
TÍMINN
7
Ásatrúarmenn öðlast
réttindi sem trúfélag
Á siðasta dag vetrar, á eins árs
afmæli Asatrúarfélagsins, var
haldið vorblót, fyrsta opinbera
blót á íslandi i méira en 900 ár.
Voru þá Freyr og Freyja blótuð
til árs og friðar, i nývigðu hofi
ásatrúarmanna. Fór blótið fram
á hefðbundinn hátt.
1 vetur hefur starf félagsins
verið blómlegt, og hafa ásatrúar-
menn sótt heim Háskóla Islands,
Kennaraháskólann og fleiri skóla
i boði þeirra og kynnt þar sjónar-
mið sin á likan hátt og gert var á
hinum almenna kynningarfundi
að Hótel Esju, siðastliðinn vetur,
en frá þeim fundi var skýrt ýtar-
lega i fjölmiðlum. Þó hefur mest
verið unnið að þvi að fá löggild-
ingu Dóms- og kirkjumálaráðu-
neytisins. Þann 3. mai löggilti
ráðuneytið svo Sveinbjörn Bein-
teinsson allsherjargoða. Þar með
öðlast ásatrúarmennjn a. rétt til
að framkvæma nafngjöf, ungl-
ingavigslur, hjónavigslur og
greftranir. 1 framhaldi af þessu
hefur félagið nú farið þess á leit
við borgarráð að athugað verði
hvar hentugast sé að reisa hof
ásatrúarmannaien hofið þarf að
standa á opnu svæði,þar sem við-
sýnt er og fagurt,en hof það^em
félagið hefur yfir að ráða er nú
þegar alltof litið. Einnig hefur fé-
lagið óskað eftir.að þvi verði út-
hlutað svæði fyrir grafreit, eins
og skylt er að lögum.
Félagsmönnum fjölgaði mikið
á siðastliðnum vetri, og hafa
mörgum félagsmanna úti á
landsbyggðinni borizt óskir um að
kynningarfundir verði haldnir
þar. Mun félagið reyna að verða
við þeim óskum eftir þvi sem að-
stæður leyfa.
Þá er að geta þess að aðalfund-
ur félagsins verður haldinn að
Hótel Esju laugardaginn 19. mai
kl. 2.30.
K/ELISKÁPAR
KAPP-
REIÐAR
Gusts í
Kópavogi
verða á Kjóavöllum á morgun, sunnudag, kl. 14.00. Mótið
hefst með hópreið og góðhestasýningu félagsmanna. Siðan
verður m .a. keppt i skeiði, hraðtölti og 2000 m brokki.
Góðhestadómarnir eru i dag kl. 14.00
Komið og sjáið skemmtilega keppni.
AUGLVSINGASTOFA KRISTINAR 26.25
á vinnuvélum ?
Hefurðu gaman af samanburði á kreppu-
seilingu-, hámarks grafdýpt, brotkrafti-, lyfti-
hæð eða lyftigetu?
Þá áttu sálufélaga hjá DRÁTTAR-
VÉLUM hf.
Þar eru náungar, sem lifa
og hrærast í þessum heimi og
geta vart um annað talað.
Hrifning þeirra beinist mest
að nýju MF 50B vélinni. Þeir
ræða um stærri strokka, stærri
og afkastameiri dælu, aukna
orku og lúxus stjórnklefa.
”Ergonomics“ kalla þeir
það, sem lýtur að bættum aðbún-
aði stjórnanda slíkra tækja og eykur
afköst hans.
MF
V
Þetta segja þeir.
Stórfín hljóðeinangrun,
upphitun, tvær rúðuþurrkur,
öryggishús með stálþaki o.fl. o.fl.
Þetta er þeim þó ekki
nóg. Þeir tala um sjálfvirka,
lárétta stöðu skóflu og eitthvað
sem heitir ”roll back“, vökva-
skiptingu og stillanlega hliðartil-
færslu.
Upp í skýin komast þeir, þegar
1 . TORQUE COHVERTER
(Þeir rita það einvörðungu með feitu,' stóru letri.)
Það er einhver vökva— skiptifetill með
þrem stillingum. Hann einfaldar vinnuganginn og
stóreykur afköstin.
Sem sagt.
Hafirðu áhuga á sliku umræðu-
efni, þá blessaður líttu til þeirra
á Suðurlandsbraut 32.
Þeir verða himinlifandi
glaðir aö sjá þig og skiptast
á skoðunum.
MP
Massey Ferguson
Eigirðu erfitt með að koma, þá hringdu eða
skrifaðu. Hver veit nema þú háfir hka bæði gagn
og gaman af.
SUÐURLANDSBRAUT 32 • REYKJAVlK • SlMI 86500 • SlMNEFNI ICETRACTORS