Tíminn - 19.05.1973, Side 17
Laugardagur 19. mai 1973
TÍMINN
17
Mynd þessi birtist nýiega i norsku vikubiaði og segir með henni, að nú hafi i fyrsta sinn verið farið á
liestum upp á Glittertind, sem er 2470 metra hár. Ekki kæmi okkur þetta mikið við, cf hcstarnir væru
ekki islenzkir. Þeir heita Kula og Gramur, en nánari deili eru ekki sögð á þeim, en tekið fram, að þeir
heföu verið furðu fljótir i förum upp og staðið sig með afbrigðum.
Ólafsfjörður allur fánum
við komu nýja skuttogarans Ólafs bekks
skrýddur
BS. Ólafsfirði, mánudaginn 14.
mai’73. — Þriðjudagurinn 8. mai
var stór dagur i lifi okkar Ólafs-
firðinga, en þann dag klukkan
rúmlega 12 sigldi hinn ný i skut-
togari, ólafur bekkur ÓF 2,
eign Útgerðafélags Ólafsfjarðar
Erlendir
Soroptimistar
styðja Vest
mannaeyinga
Soroptimistaklúbb Reykjavik-
ur hefur borizt fé til styrktar
þeim, sem illa hafa orðið úti af
völdum náttúruhamfaranna i
Vestmannaeyjum.
Eftirtaldir Soroptimistaklúbb-
ar hafa sent fé:
Samband þýzkra Soroptimista:
D.M 1000,00
Samband brezkra og irskra Sor-
optimista 300,00 pund
Soroptimistaklúbbar Helsing-
forsborgar: S. kr. 3.850,00
Soroptimistaklúbbar Gautaborg-
ar: S. kr. 1000,00
Uddevalla Soroptimistklubb: S.
kr. 1500,00
Birkeröd Soroptimistklub: D. kr.
500,00
Bergens Soroptimistklubb: N. kr.
1000,00
1 samráði við gefendur hefur fé
þessu verið ráðstafað til aldraðra
og öryrkja frá Vestmannaeyjum.
h.f., hér inn á fjörðinn i blið-
skaparveðri, eftir 50 daga sigl-
ingu frá Japan. Var bærinn allur
fánum skrýddur i tilefni komu
skipsins, fánaborg reist á hafnar-
garðinum og komið fyrir stórum,
bláum borða með áletruninni:
„Velkominn ólafur bekkur” beint
á móti þar sem skipinu var ætlað
að leggjast að bryggju.
Tollskoðun fór fram úti á
firðinum, og dróst þvi nokkuð, að
skipið kæmi upp að.Mikill mann-
fjöldi safnaðist saman á hafnar-
garðinum strax upp úr klukkan
tvö, en klukkan tæplega þrjú
sigldi hið fagra fley inn á höfnina.
Strax og gengið hafði verið frá
landfestum, var skipshöfn og
skipi fagnað með kröftugu, fer-
földu húrrahrópi. Siðan söng
Karlakór Ólafsfjarðar með að-
stoð blásara, „Heyrið morgun-
söng á sænum”, undir stjórn
Frank Herlufsen, söngstjóra. Þá
tók Ásgrimur Hartmannsson,
bæjarstjóri, og formaður út-
gerðarfélagsins til máls og flutti
skörulega ræðu. Bauð hann skips-
höfn og skip velkomið til Ólafs-
fjarðar og kvaðst vonast til þess,
að Ólafur bekkur mætti verða at-
vinnulifi Ólafsfjarðarbæjar
traustur hornsteinn og mikil
lyftistöng. Færði hann öllum
þakkir, er greitt höfðu fyrir þvi, á
einn eða annan hátt,að þessi
óskadraumur okkar Ólafsfirðinga
mátti rætast svo fljótt. Afhenti
hann að lokum framkvæmda-
stjóra útgerðarfélagsins skipið.
Tók þá Haraldur Þórðarson
framkvæmdastjóri til máls. Bauð
hann skipshöfn og skip velkomið i
höfn og þakkaði sérlega öllum
þeim, er greitt höfðu fyrir smiði
skipsins, á allan mögulegan hátt.
Næstur tók Kjartan Jóhanns-
son, forstjóri Asiufélagsins, til
máls. Rakti hann byggingarsögu
skipsins i aðalatriðum og færði
Ólafsfirðingum sérstakar þakkir
fyrir ánægjulegt og gott sam-
starf. Að lokum flutti séra Úlfar
Guðmundsson hugvekju og bað
bæði skipshöfn og skipi blessunar
á komandi timum. Að ræðum
loknum söng karlakórinn aftur.
Framkvæmdastjóri, Haraldur
Þórðarson, bauð öllum við-
stöddum úpp á að skoða skipið
daginneftir, og þá um kvöldið til
kaffidrykkju i félagsheimilinu
Tjarnarborg.
Skipstjóri á Ólafi bekk er
Ólafur Sæmundsson, fyrsti stýri-
maður Magnús Ólafsson og fyrsti
vélstjóri Jóhann Már Jóhannsson
frá Reykjavik. Ólafur bekkur er
búinn öllum fullkomnustu fisk-
leitar- og siglingartækjum. Þau
eru öll japönsk, af Fuano-gerð, en
talstöðin er dönsk. Aðalvél skips-
ins er af gerðinni Nugata, 2.000
hestöfl, og ennfremur eru i
skipinu tvær ljósavélar af sömu
gerð, 300 hestöfl hvor. Skipið
reyndist i alla staði vel á heim-
siglingunni, sem tók eins og áður
segir 50 daga.
Vonir standa til, að Ólafur
bekkur geti farið i sina fyrstu
veiðiferð seint i þessari viku.
Prestkosning nýafstaðin
Læknisleysi i nokkrar
vikur
lgær fór hér fram prestkosning
i Ólafsfjarðarkirkju, og hófst
kjörfundur klukkan 10 árdegis.
Umsækjandi var einn, séra Úlfar
Guðmundsson, settur sóknar-
prestur hér, frá þvi á siðasta
vori. Kjörsókn var mjög góð. Á
kjörskrá voru 607 kjósendur og
432 kusu, eða rösklega 71%.
Unnið hefur verið i báðum
frystihúsunum frá þvi á fimmtu-
dagsmorgun, en þá landaði
Stigandi hér 49 smálestum, sem
hann kom með af Suðurlands-
miðum. Og fyrr i vikunni, hafði
Sigurbjörg landað 36 smálestum,
sem hún kom einhig með að
sunnan.
Á laugardaginn var hér norð-
austan stórhrið og lokaðist Múla-
vegurinn algjörlega. Var hann
opnaður i gær, og yfirgaf Jón
Alfreðsson, læknir, okkur, en
hann var búinn að vera hjá okkur
siðan um páska. Útlit er fyrir, að
við fáum að þreyja læknislausir
fram til 1. júni, en þá er von á
Einari Helgasyni lækni.
Áfengisvarnaráð Noregs
býður til
kennaranámskeiða
Afengisvarnaráðið norska býð-
ur islenzkum skólamönnum að
taka þátt i þremur námskeiðum i
júnimánuði n.k. Boðið er 3 þátt-
takendum á hvert námskeið.
Námskeiðstimi er ein vika. Uppi-
hald er ókeypis. Auk þess fá þátt-
takendur 200 norskar krónur i
ferðakostnað.
Námskeiðin eru þessi:
1. Lýðháskólinn og fíknilyfja-
vandamálin. Mótsstaður: Buske-
rud Folkehögskole, Darbu
tskammt frá Kóngsbergi). Nám-
skeiðiðstenduryfirdagana 17.-23.
júni.
2. Kcnnsla um fiknilyf á skyldu-
námsstigi. Mótsstaðúr: Drottn-
ingborg handelsskole, Grimstad.
Námskeiðið stendur yfir dagana
24. júni-1. júli.
3. Menntaskólinn og fiknilyfja-
vandamálin.Mótsstaður: Drottn-
ingholm hanIde 1 s s ko1e ,
Grimstad. Námskeiðið stendur
yfir dagana 24. júni-1. júli.
Vinnuform á öllum nám-
skeiðunum: Fvrirlestrar, sam-
ræður, flokkavinna og kynning á
kennslutækjum.
Afengisvarnaráðið sænska býð-
ur einnig einum islenzkum
kennara sams konar kjör á
þriggja daga bindindisfræðslu-
námskeiði, sem haldið verður i
Stensunds folkhögskola, 150 14,
Vagnhá'rad, Sviþjóð, dagaa 18.-20.
júni n.k.
Þeir skólamenn, sem hug•• hafa
á að sækja námskeið þessi, til-
kynni þátttöku sina eigi siðar en
26. mai n.k. til skriístofu áfengis-
varnaráðs, Eiriksgötu 5,
Reykjavik, simi: 19405.
(Frá Bindisfélagi isl. kennara)
HÚSEIGNIN GARÐASTRÆTI 42
Kauptilboð óskast i húseignina Garðastræti 42, Reykja-
vík, ásamt tilheyrandi leigulóð.
Lágmarkssöluverð samkvæmt lögum nr. 27 1968, er
ákveðið af seljanda kr. 7.500.000.-
Húsið verður til sýnis væntanlegum kaupendum mánu-
daginn 21. og þriðjudaginn 22. mai n.k. kl. 16-18 báða dag-
ana og tilboðseyðublöð afhent á staðnum.
Kauptilboð þurfa að berast skrifstofu vorri fyrir kl. 11.00
f.h. fimmtudaginn 23. mai 1973.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844
Dráttarvél
Mjög litið notuð, er til sölu með hagstæðu
verði.
Hún hefur 30 hestafla orku.
Upplýsingar veitir Gisli Kristjánsson, Búnaðarfélagi
Islands, simi 19-200.
Plastumbúðir — Hvað
er Fanntóform?
Það eru ótrúlega ódýrar umbúðirúr harð-
plasti — sem er að hef jast framleiðsla á
hér á landi.
Framleiðum lika allar stærðir af plastpokum.
Biðjið um tiiboð i umbúðir, sem henta yður.
Fanntó — Hveragerði -Sími 99-4287
Hjúkrunarkonur
óskast til starfa nú þegar við hinar ýmsu
deildir Landspitalans.
Barnagæzla er fyrir hendi fyrir börn 1-6 ára.
Nánari upplýsingar veitir forstöðukonan,
simi 24160.
Skrifstofa ríkisspitalanna.
OKKAR I LAUGARDALSHOLl
RAFIDJAN VESTURGÖTU 11 SÍM119294
RAFTORG V/AUSTURVÖLi SÍMI 26660