Tíminn - 19.05.1973, Síða 23

Tíminn - 19.05.1973, Síða 23
Laugardagur 19. maí 1973 TÍMINN 23 Frá vinstri: Guðmundur Björnsson yfirlaeknir augndeildar Landakotsspftala, Systir Hildegarde, prior- inna, Bjarni Jónsson yfirlæknir Landakotsspitala, Einvarður Hallvarðsson gamalkunnur Lionsmaður, Hjalti Þórarinsson læ'knir, formaður Lfknarnefndar Lionssamtakanna, og loks Þorvaldur Þorsteinsson Lionsmaður. A myndinni sést örlitill hluti hinna nýju augntækja. (Tfmamynd: Hóbert) FRAMTAK ER MARKAR ÞÁTTASKIL í SÖGU SJÓN VERNDARMÁLA Á ÍSLANDI Lionssamtökin afhenda augndeild Landakotsspítala 5 milljónir að gjöf til kaupa á augnlækningatækjum — ÞETTA framtak mun óefað marka þáttaskil i sögu sjónvernd- armála hér á landi. Ekki ein- göngu vegna bættrar aðstöðu til að lækna augnmein og rannsaka þau, miklu fremur vegna þeirrar stefnubreytingar i sjónverndar- málum, sem hrundið var af stað fyrir ykkar tilstilli. — Þetta sagði Guðmundur Björnsson dr. med., yfirlæknir augndeildar Landa- kotsspitala (St. Jósefsspitala) i ræðu, sem hann flutti við það tækifæri, er Lionssamtökin á Islandi afhentu spitalanum augn- skoðunartæki að gjöf i gær Augndeild Landakotsspitala, sem er sú eina sinnar tegundar hér á landi, var stofnuð fyrir fjór- um árum. Hefur fjárhagur hennar alla tib verið mjög þröng- ur og hefur þvi verið erfitt um tækjakaup. En gjafir hafa borizt allviða að, og þá helzt frá Lions- mönnum. I gær afhentu þeir augndeildinni enn eina gjöfina, og i þetta sinn sannkallaða stórgjöf. Landssöfnun fór fram til öflunar fjár til þessarar gjafar 15. og 16. april i fyrra, með sölu „Rauðu fjaðrarinnar”. Alls söfnuðust milli 5 og 5,5 milljónir króna. Augntæki þau, er keypt voru fyrirþetta fé, eru flest komin og verða öll væntanlega komin i notkun eftir nokkra mánuði. Meginhluti tækjanna fer til augn- deildar Landakotsspitala, en hitt til sjónverndarstöðva úti á landi — á eina fimm staði. Segja má, að hér sé aðallega um tvenns konar tæki að ræða: Tæki til augn- skurðar og augnrannsóknatæki. Sá Guðmundur Björnsson yfir- læknir um val þeirra, en Arni Arnason, forstjóri Austurbakka Útvarpsskákin milli Noregs og íslands Keppendur: Terje Vibe (hvitt) og Gunnar Gunnars- son (svart). Fyrstu fimm leikirnir: 1. e2-e4 c7-c5 2. Rgl-f3 d7-d6 3. d2-d4 c5-xd4 4. Rf3xd4 Rg8-f6 5. Rbl-c3 a7-a6 h.f., sá um að panta þau. Af- hendingarfrestur á augnrann- sóknartækjum er venjulega mjög langur, eða allt að þrjú ár, en fyrir einstakan velvilja framleið- enda tókst að stytta hann i þessu tilfelli niður i 1-1 1/2 ár. Þetta eru afar vönduð tæki og koma m.a. frá Haag-Streit verksmiðjunum i Sviss (völdundarsmið), frá Bret- landi (einkum augnskurðtæki), augnþjálfunartæki frá Þýzka- landi (til að þjálfa saman augu rangeygðra barna) og glákupróf- unartæki frá Bandarikjunum Þá má nefna frystitæki til meirihátt- ar skurðaðgerða og rafsegultæki til að ná flisum úr auga. Mörg tækjanna hafa þegar verið tekin i notkun á skurðstofunni. Einnig kom fram i ræðu Guð- mundar Björnssonar, að nú er unnið að þvi að færa út starfsemi augndeildar Landakotsspitala og koma á fót göngudeild eða sjón- verndarstöð fyrir augnsjúklinga. Húsnæði er þegar fengið i ná- grenni spitalans og undirbúning- ur hafinn að starfrækslu. Eitt- hvað af hinum nýju tækjum verða notuð á þessari hliðardeild augn- deildarinnar. Verkefni hennar verður margþætt m.a. að fylgjast með augnsjúklingum eftir að þeir útskrifast af spitalanum. En hún á ekki siður að vera rannsóknar- stöð augnsjúkdóma fyrir fólk hvaðanæva að af landinu, og þá ekki sizt glákuleitar- og lækn- ingastöð. 1 stöðinni á og að vera augnþjálfun fyrir rangeygð börn. Nú mun vera hægt, - með þeim tækjabúnaði, sem hér er i dag, — að hefta hinn alræmda glákusjúk- dóm að koma i veg fyrir að fólk missi sjónina af völdum hans. Þetta mun vera fyrsta verk- efnið, sem Lionssamtökin á tslandi beita sér fyrir, en verkefni þetta var ákvebið á Landsþingi Lionsklúbbanna i landinu (sem nú eru yfir 60) árið 1971. Fyrstu Lionsklúbbarnir voru stofnaðir 1923, og hefur það ætið verið meginhlutverk þeirra að þjóna sjúkum og bækluðum, og þá sér- staklega blindum, eða þeim, er þjást af augnsjúkdómum. — Stp O Herskip veg fyrir veiðar brezku tog- aranna, sigldu þeir út fyrir hið umdeilda svæði snemma á fimmtudagsmorgun. Skip- stjórarnir töldu ekki öruggt að halda veiðum áfram án herskipa- verndar. 1 gærkvöldi (þ.e. fimmtudagskvöld) fór Josep Goddard til Hull, þar sem hann átti fund með samvinnunefnd brezka fiskiðnaðarins. Eftir þann fund var gefin út yfirlýsing þar sem segir m.a. að útgeröarmenn togaranna muni gera allt,sem i þeirra valdi standi, til að fá togaraskipstjórana til að fara á miðin við Island á ný. Ef til alvarlegra árekstra komi á al- þjóðlegu hafsvæði njóti brezka stjórnin algjörs stuðnings brezka fiskiðnaðarins í hvaða að- gerðum sem hún telur að gripa þurfi til. 0 Ricky Madrid 15.-16. september og i þá ferð fara væntanlega 4-5 beztu frjálsiþróttamenn okkar og keppa i aukagreinum i sambandi við tugþrautarkeppnina. Unglingalandsliöið keppir við Dani i Kaupmannahöfn 28.-29. ágúst og tilkynnt hefur verið þátt- taka i Evrópumeistaramóti ungl- inga i Duisburg i V.-Þýzkalandi dagana 23.-26. ágúst. Lágmörk hafa verið sett og ekki er gott að segja nú, hve margir fara þangað, en viö vonumst til að það verði a.m.k. 4-6 keppendur. 1 fyrra tók islenzka landsliðið i fyrsta sinn þátt i keppni, sem nefnd er Kalott-keppnin og það eru Norður-Noregur, Norður- Sviþjóð og N.-Finnland, sem keppt hafa, en i fyrra bættust Is- lendingar i hópinn. Þessi keppni verður i Finnlandi i sumar. Þátt- taka i henni er dýr og enn er ekki endanlega ákveöið hvort verður af islenzkri þátttöku. Loks munu islenzk börn taka þátt i Andrésar Andar-leikjunum eins og undanfarin sumur, en þeir fara fram i Kóngsberg i Noregi 1,- 2. sept. 1 fyrra voru send 4 börn, sem stóðu sig með mikilli prýöi, hlutu þrenn gullverðlaun. © AAilan leikmenn Leeds, eins og sigur- vegara. A.C. Milan hefur sigrað i Evrópukeppni bikarhafa tvisvar sinnum, árið 1968 og nú i ár. Þá hefur AC. Milan unnið Evrópu- keppni meistaraliöa, árið 1963 og 1969. Liðið er heimsfrægt og i þvi leika margir landsliðsmenn. Frægastir eru V.-Þjóðverjinn Schellinger og italski landsliös- maðurinn Rivera, sem er talinn einn bezti knattspvrnumaður i I heimi. © Slökkvistöðín Hinsvegar er það ömurleg stað- reynd, að Reykjavikurborg skuli alltaf standa fyrir dýrustu bygg- ingunum, sem hér eru reistar. Ég held að enginn einstaklingur i þessari borg myndi leyfa sér að fara á þennan hátt með eigið fé, ográðamennborgarinnar verða að gera sér grein fyrir þvi, að þeir BARNALEIKTÆKI * ÍÞRÓTTATÆKl VélavarkctaSI BERNHARDS HANNESS.. Suðurlandtbraut 12. Sbni 35810. Trúlofunar- HRINGIR Fljótafgreiðsla Sent i póstkröfu GUDMUNDUR ÞORSTEINSSON gullsmiöur Bankastræti 12 eru að fara með fé þessara sömu einstaklinga, þótt komið sé í sam- eiginlegan sjóð. Svo sem að framan var sagt, þá greiddu aðeins borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins atkvæði með þvi að semja um smiði þessa mannvirkis á tvöföldum bygg- ingakostnaði venjulegrar ibúðar. Má þvi segja að þeir beri ábyrgð á þvi, að hjáleigan er orðin dýrari en höfuðbólið. jg ftl Fyrirligg jandi og væntanlegt Nýjar birgðir teknar heim vikulega Sponaplötur 8-25 mm Plasthúðafiar spóna- plötur 12-19 mm Harðplast Hörplötur 9-26 mm Hampplötur 9-20 mm Birki-Gabon 16-25 mm Beyki-Gabonló 22 mm Krossviöur: Birki 3-6 mm, Beyki 3-6 mm, Fura 4-12 mm Harðtex með rakaheldu Itmi 1/8' '4x9' Harðviður: Eik' (japönsk, amerisk, áströlsk), Beyki (júgóslavneskt, danskt), Teak, Afromosia, Iroko, Maghony, Palisander, Oregon Pine, Gullálmur, Ramin, Abakki, Amerisk hnota, Birki 1 og 1/2" til 3", Wenge Spónn: Eik, Teak, Pine, Oregon Pine, Fura, Gullálmur, Álmur, Beyki, Abakki, Askur, Afromosia, Koto, Amerisk hnota, Maghony, Palisander, Wenge Verzlið þar sem úrvalið er mest og kjörin bezt JÓN LOFTSSON HF Hringbraut 121 fS110 600 Reykjavík - Álftanes Frá og með 19. mai verða ferðir sem hér segir: Þriðjudaga og fimmtudaga frá Reykjavik kl. 13.30 og kl. 18.30. Frá Landakoti kl. 14. og kl. 19.00. Landleiðir. Hestamannafélagið Máni heldur sina árlegu firmakeppni laugar- daginn 19. mai 1973 á Mánagrund við Garðveg. Hefst hún kl. 14.00. / Dagskrá: 1. Hópreið Mánafélaga. 2. Keppni i A-flokki um Kaupfélagsbikarinn. 3. Keppni i B-flokki um Sörlabikarinn. 4. Keppni unglinga innan 16 ára, verðlaunapeningar. Fjáröflunarnefnd Mána.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.