Tíminn - 02.06.1973, Side 23
Laugardagur 2. júnl 1973.
TÍMINN
23
Hin
10 boðorð
kylfings-
ins
I TILEFNI af að golf-
vertíðin er byrjuð af fullum
krafti og flestir kylfingar
landsins komnir á kreik,
ætlum við að birta hér 10
siðareglur í golfi, en allir
kylfingar eiga að kunna
þær utanbókar — og ekki
nóg með það— heldur eiga
að fara eftir þeim, hvar
sem þeir leika (þó ekki
þegar þeir æfa sig i
stofunni heima hjá sér).-
1. Enginn á að hreyfa sig, tala
eða standa nálægt eða beint
fyrir aftan boltann, eða
holuna, þegar leikmaður
stendur að boltanum, eða slær.
2. Enginn leikmaður á að leika
fyrr en leikmenn á undan eru
úr skotfæri.
3. Leikmenn eiga að leika án
tafa, öðrum leikendum til hag-
ræðis.
4. Leikmenn, sem eru aö leita að
bolta, eiga að leyfa öðrum leik-
mönnum sem á eftir eru, aö
fara framúr. Þeir eiga að gefa
þeim merki um að fara fram
hjá, og eiga ekki að hefja leik
sinn að nýju, fyrren hinir leik-
mennirnir eru úr skotfæri.
5. Áður en skilið er við sand-
gildru, á leikmaður að slétta úr
öllum misjöfnum, sem eftir
hann eru i sandgildrunni.
6. 1 „leik að flöt”, á leikmaður að
sjá um, að torfusneplar, sem
hann slær upp, eða raskar, séu
strax settir i far aftur og þrýst
niður. Þegar leik er lokið á flöt,
á leikmaður að lagfæra
skemmdir er boltinn eða leik-
maöurinn kynnu að hafa valdið
á flötinni.
7. Leikmenn verða að forðast
aðleggja poka á flatirnar. Þeir
eiga að ganga kringum flötina
með kerrurnar og gæta þess að
valda ekki skemmdum á
holunni.
8. Þegar leik er lokið á hverri
holu, eiga leikmenn aö yfirgefa
flötina án tafar.
9. Það er bannað að leika saman
fleiri en 4 i hóp, nema fátt sé
um leikendur á vellinum, eins
er bannað fyrir tvo að leika
með sömu áhöldunum, ef það
veldur töfum á leik annarra á
vellinum.
10. Það er bannað að hefja leik
milli annarra leikmanna, með
þvi að byrja annars staðar en á
fyrsta teig (Tee),ef margt er á
vellinum.
Hver er
staða
þjálfarans?
Knattspyrnuþjálfarafélag .
tslands efnir til fundar að Hótel
Loftleiðum þriðjudaginn 5. júni
kl. 20.00
Efni fundarins er:
1. Hver er lagaleg staða knatt-
spyrnuþjálfarans i samskiptum
við knattspyrnudómara?
2. Fulltrúar Knattspyrnudóm-
stóls K.S.Í. og aganefndar skýra
lög og reglugerðir,
3. Almennar umræður,
Allir áhugamenn um þessi mál-
efni velkomnir.
Stjórn K.Þ.l.
Þessi mynd var tekin i leik KR og Vais i fyrra. A morgun mætast liðin á Laugardalsveliinum.
Keflvíkingar mæta
Akureyringum í dag
Tekst Árna Stefónssyni markverði Akureyrarliðsins, að stöðva
hinar hættulegu hornspyrnur Keflvíkinga?
ÞRÍR leikir verða leiknir í
1. deildarkeppninni í knatt-
spyrnu nú um helgina. Á
morgun fara fram tveir
leikir. Á grasvellinum í
Keflavík, mæta heima-
menn Akureyrarliðinu, og
á Laugardalsvellinum
leika KR og Valur. Einn
leikur fer fram á Laugar-
dalsvellinum á mánudags-
kvöldið. Þá leika islands-
meistararnir Fram gegn
Breiðabliki.
Leikurinn i Keflavik verður
erfiður fyrir Akureyrarliðið.
Keflvikingar eru i miklum ham,
um þessar mundir, og það er
erfitt að stöðva hættulegar sóknir
liðsins. Þvi verða Akureyringar
að leika sterkan varnarleik og
vera vakandi fyrir hinum hættu-
legu hornspyrnum Ólafs Július-
sonar. Leikurinn hefst kl. 16.00 á
morgun.
Það verður örugglega hart
barizt á Laugardalsvellinum
annað kvöld kl. 20.00, þegar
Vesturbæjarliðið KR leikur gegn
Valsmönnum. KR hefur ekki
tapað leik i 1. deildarkeppninni,
og leikmenn liðsins eru ákveðnir
i að halda áfram að vera tap-
lausir. I liðinu eru margir góðir
knattspyrnumenn, sem leika oft á
tiðum skemmtilega knattspyrnu.
Valsliðiö hefur sýnt misjafna leiki
nú i sumar. Hinn rússneski
þjálfari liðsins var ekki ánægöur
með frammistööu Valsmanna,
gegn Keflvikingum, um siðustu
helgi. Það veröur þvi öruggt, að
leikmenn Vals reyna að gera
hann ánægðan á morgun.
lslandsmeistarar Fram eiga i
erfiðleikum um þessar mundir.
Leikmenn liðsins eru ekki enn
komnir á skotskóna. Leikurinn
gegn Breiðabliki verður tvimæla-
laust erfiður fyrir Framara, en
nokkrir fastir leikmenn eru á
sjúkralista. Breiðabliksliðinu fer
nú fram með hverjum leik, og
leikmenn liösins hafa gott auga
fyrir góðri knattspyrnu. Það
veröur þvi fróðlegt að vita
hvernig leikur liöanna fer, en
hann fer fram á Laguardalsvell-
inum á mánudagskvöldið kl. 20.00.
Um helgina verða leiknir tveir
leikir i annari deild. FH mætir
Haukum i dag kl. 14.00 og
Völsungar leika gegn Þrótti frá
Neskaupstað kl. 16. 00, á vellinum
i Neskaupstað.
íslenzku piltarnlr töpuðu
með tveggja marka mun
fyrir Englendingum
ENSKA unglingalands-
liðið sigraði hið íslenzka,
með tveimur mörkum
gegn engu, í fyrsta
leiknum í riðlakeppninni
i Evrópukeppni
unglinga, sem háð er á
ítalíu þessa dagana. I
hálfleik var staðan jöfn,
hvorugu liðinu hafði
tekizt að skora mark.
1 siðari hálfleik tókst Eng-
lendingum hins vegar að
skora tvö mörk og voru þar að
verki leikmenn frá Arsenal og
Burnley. Leikurinn fór fram i
borginni Viareggio.
Albert Guðmundsson, for-
maður KSl, hafði samband við
fararstjórnina eftir leikinn, og
voru fararstjórarnir eftir at-
vikum ánægðir með leikinn,
ekki sizt, þegar á það er litið,
að Englendingar hafa löngum
átt sterk unglingalið og eru
t.d. núverandi Evrópu-
meistarar. Allir leikmenn
enska liðsins eru verðandi at-
vinnumenn og á samningum
við ensku félögin.
Næsti leikur islenzka ung-
lingalandsliðsins verður i dag,
laugardag, og leikur það þá
gegn Belgiumönnum. Fer
leikurinn fram i borginni
Massa og hefst kl. 17.30 að
staðartima. Dómari i leiknum
verður austurriskur.
Tveir
með
„holu
höggi"
I
IIANN FÓR ekki neina fýluferð á
golfvöllinn, maðurinn, sem kom i
fyrsta sinn á þessu ári, á Garða-
völl á Akranesi, s.i. miðvikudags-
kvöid. Ilann var búinn að leika
fjórar brautir og hafði spilað vel
fram að þvi. Ekki versnaði heldur
skorið hjá honum á 5. brautinni,
þvi þar fór hann brautina, sem er
par 3 og 125 metrar að lengd I einu
höggi.
Sá sem þetta gerði var meistari
þeirra Akurnesinga I golfi og
jafnframt einn úr unglingalands-
liðshópnum i iþróttinni, Hannes
Þorsteinsson. Hann hefur verið
kennari á Laugum i Þingeyjar-
sýslu i vetur og kom heim á
þriðjudaginn og fór út á völl
kvöldið eftir, þar sem hann vann
þetta afrek, sem er óskadraumur
allra kylfinga. Hannes notaði járn
nr. 8 i þetta högg og hann lék
völlinn, sem er par 35 á 36 högg-
um.
Þetta er i annað sinn á þessu
ári, sem einhver fer holu i höggi á
golfvelli hér á landi. Fyrstur til
þess i ár, var ungur kylfingur i
Golfklúbbi Ness, Eggert Isfeld,
sem fór holu i höggi á 9. braut á
Nesvellinum fyrir nokkrum vik-
um.
Sú braut er 130 metra löng og
einnig par 3, en þegar talað er um
par i sambandi við golf, er þar átt
við, að góður kylfingur geti leikið
brautina þrem höggum. Þetta er i
fjórða sinn, sem farin er hola i
höggi á Garðavelli (en i sjötta
sinn á Nesvellinum?) Þar hafa
flestir farið holu i höggi á þessari
sömu braut og Eggert sló á, en nú
er hver aö verða siðastur til þess,
þvi hún verður lögð niður ein-
hvern næstu daga, vegna
breytinga, sem gerðar hafa verið
á vellinum.
Ánægður
með
samningana
,,Ég get ekki neitað þvi, aö ég
er ánægður með þá samninga,
sem tekizthafa milli KSl og sjón-
varpsins”, sagði Albert Guð-
mundsson, formaður KSÍ, i stuttu
viðtali við iþróttasiðuna i gær.
,,Ég er ekki sizt ánægður með
það, að lSf virðist nú gera sér
grein fyrir, að sérsamböndin,
ekki aðeins KSt, heldur önnur
sérsambönd, þurfa að fá að ráöa
sérmálum sinum sjálf. Eins er ég
ánægður meö þaö, að sjónvarpið
skuli hafa komið til móts viö
okkur. Þessir.peningar renna
allir til uppbyggingastarfs og
skila sér þannig aftur”, sagði
Albert.
Aðspurður um það, hvort hann
tæki ekki við störfum formanns
KSI aftur á mánudaginn, svaraöi
hann: ,,Jú, aðsjálfsögðu”.