Tíminn - 06.06.1973, Síða 11
Miðvikudagur 6. júni 1973.
TÍMINN
11
Úms/ón: Alfreð Þorsteinsson
KR-INGAR
RÁÐA INGÓLF
SEAA ÞJÁLFARA
Enda þótt handknatt-
leikur liggi aö mestu
niðri á þessum árs-
tíma, eru félögin þegar
farin að hyggja að
þjálfunarmálum fyrir
næsta vetur. Sum
félög eru þegar búin að
gera ráðstafanir eins
og t.d. Víkingur og
Fram, en Víkingur
réði Karl Benediktsson
og. Fram Sigurð
Einarsson.
Þriðji Framarinn,
Ingólfur óskarsson,
hefur einnig ráðið sig
til starfa, en hann mun
þjálfa KR á næsta
keppnistimabili. KR-
ingar þekkja Ingólf
vel síðan hann þjálfaði
meistaraflokkslið
þeirra, en undir hans
leiðsögn öðlaðist liðið
sæti i 1. deild á ný.
Ingólfur óskarsson.
Áríðandi, að
unglingaliðinu
verði sköpuð
verkefni á
næstu árum
íslenzka unglinga-
Á þessari mynd, sem tekin var i fyrrakvöld frá leik Fram og Breiðabliks, sést Asgeir Eliasosn skora fyrra mark Fram.
(Tlmamynd (iunnar)
íslenzkir judómenn standa
sig vel í Tékkóslóvakíu
HÓPUR átta júdómanna úr Júdó-
félagi Reykjavikur er um þessar
mundir i keppnisferðalagi i
Tékkóslóvakíu. Júdómennirnir
eru að endurgjalda heimsókn
tékkneska judóliðsins „Slavia
Prag”, sem hingað kom i nóvem-
bermánuði s.l. og keppti hér við
góðan orðsti.
Nú hafa fyrstu fréttir borizt af
islenzku júdómönnunum, og hafa
þeir staðið sig með hinni mestu
prýði gegn Tékkum, sem eru
meðal sterkustu júdóþjóða i
Evrópu.
tsveitakeppniviðSlavia tapaði
J.R. með 3:5. Þeir sem fengu
vinninga fyrir J.R. voru:
Sigurður Kr. Jóhannsson,
Rannver Sveinsson og Jóhannes
Haraldsson.
Þá keppti flokkurinn við lið
Landbúnaðarháskólans, og
sigruöu Islendingarnir með 5:3.
Þeir sem öfluðu vinninganna
voru: Sigurjón Kristjánsson,
Rannver Sveinsson, Stefán Þ.
Jónsson og Bjarni Björnsson.
Einnig kepptu islenzku judó-
mennirnir á almennu móti i
Prag, þar sem keppendur voru
milli 40 og 50. Keppendum var
skipt i aðeins tvo þyngdarflokka,
annars vegar þungavigt og létt-
þungavigt og hins vegar léttari
flokkar. Sigurður Kr. Jóhannsson
sigraði i þyngri flokknum og
Rannver Sveinsson varð fjórði. I
léttari flokknum varð Sigurjón
Kristjánsson þriðji á eftir tveim
tékkneskum landsliðsmönnum.
t bréfi frá fararstjóra ts-
lendinganna, Sigurði H. Jöhanns-
syni varaform. JSt, segir að mót-
tökur allar og viðurgerningur sé
með miklum ágætum af hálfu
Tékka. Hópurinn er væntanlegur
heim hinn 14. þ.m.
800 m hlaup karla
og 400 m hlaup kv.
í leikhléi 13. júní
landsliðið i knatt-
spyrnu hafnaði i
neösta sæti i sinum
riðli i Evrópukeppni
unglinga, sem háð
hefur verið undan-
farna daga á italiu.
Töpuðu islenzku
piltarnir siðasta leik
siiium, gegn Sviss,
ineð 2 mörkum gegn
1.
Svisslendingar náðu forustu
strax i byrjun leiksins og var
staðan 1:0 i hálfleik. í byrjun sið-
ari hálfleiks skoruðu Svisslend-
ingar annað mark, en skömmu
siðar skoraði islenzka liðið sitt
eina mark. Að sögn fararstjóra
liðsins voru islenzku piltarnir
óheppnir að skora ekki fleiri
mörk. Þeir áttu m.a. stangarskot
og Svisslendingar björguðu á
linu.
Frammistaða islenzku piltanna
er góð. Þeir töpuðu með litlum
mun fyrir Sviss og Englandi og
gerðu jafntefti við Belgiu.
Áriðandi sýnist, aö þessu liði
verði haldið saman næstu ár og
þvi sköpuð áframhaldandi verk-
efni, eins og KSt mun hafa i
hyggju.
Forföll í
landsliðinu
Fyrirsjáanlegt er, að nokkur
forföll veröa i landsliðshópn-
um i knattspyrnu, sem held-
ur til Færeyja á morgun.
Sigurður Dagsson, mark-
vörður Vals, slasaðist það
illa i leiknum gegn KR á
dögunum, að hann verður
frá keppni næstu vikur.
Diðrik Ólafsson, Viking, mun
leika i hans staö. Þá verður
aö telja óliklegt, aö Asgeir
Eliasson, Fram, fari meö
liðinu, þar sem nú standa
yfir próf i tþróttakennara-
skólanum, en Ásgeir er
nemandi þar.
KEPPT verður i 800 m. hlaupi
karla og 400 m. hlaupi kvenna i
leikhléi leiks KR og Fram á
Laugardalsvelli 13. júni kl. 20.45.
Eftirtöldum hlaupurum er boðin
þátttaka i 800 m. hlaupinu : Ágúst
Ásgeirssyni, 1R, Halldóri
Guðbjörnssyni, KR, Sigfúsi Jóns-
syni, ÍR, Einari Óskarssyni,
UMSK, Viðari Halldórss., FH,
Sigurði Sigmundssyni, FH,
Gunnari Páli Jóakimssyni, 1R og
Markúsi Einarssyni, UMSK.
BEZTI TÍMI ÁRSINS í 400
METRA HLAUPI
Eftirtöldum stúlkum er boðin
þátttaka i 400 m. hlaupinu:
Ingunni Einarsdóttur, IR, Lilju
Guðmundsdóttur, tR, önnu
Haraldsdóttur, FH, ÞÓrdisi
Rúnarsdóttur,HSK, Ástu B.
Gunnlaugsdóttur, 1R og Ragn-
hildi Pálsdóttur, UMSK.
Ef eitthvað af nefndu iþrótta-
fólki getur ekki tekið þátt i hlaup-
inu er það beðið að tilkynna
stjórn FRt um það hið fyrsta.
BEZTI timi ársins náðist i 400 m.
hlaupi karla og kvenna, sem fram
fór i leikhléi i leik Fram og
Breiðabliks á mánudaginn. Lilja
Guðmundsdóttir, lR, sigraði
i kvennahlaupinu á 61,5 sek, sem
er hennar bezti timi. Anna
Haraldsdóttir, FH, náði einnig
sinum bezta tima 66,6 sek. Björk
Eiriksdóttir, tR hljóp á 69,5 sek.
Vilmundur Vilhjálmsson, KR
hljóp 400 m. á 52. sek., Gunnar
Páll Jóakimsson, tR, jafnaði
sinn bezta tima 54,2 sek. og
Sigurður Sigmundsson, FH hljóp
á 57,7 sek. Veður var óhagstætt,
suðaustan strekkingur. -OE.