Tíminn - 06.06.1973, Side 13

Tíminn - 06.06.1973, Side 13
Miðvikudagur 6. júni 1973. TÍMINN 13 VEIÐIFELAG SKJALFANDAFLJOTS Rætt við Hlöðver Þ. Hlöðversson - Leitum eftir tilboðum til Staðaruppbót eins órs, en þó nónast í tilraunaskyni Ýmislegt hefur verið á döfinni i veiðimálum landsins, upp á sfð- kastið, eins og skýrt hefur veriö frá hér J blaðinu. Nokkur ný veiði- félög hafa verið stofnuð á siöustu mánuðum og árum. Meðal þeirra er Veiðifélag Skjáifandafljóts, en þaö Skjáifandafljót rennur um endiiangan Báröardal i S-Þing- eyjarsýslu, og um Köldukinn til sjávar. Samþykktir þessa félags voru staðfestar af landbúnaðar- ráðherra 4. júli i fyrra og birtar i Stjórnartiðindum B. 20 1972. Við höfðum nýlega samband við Hlöðver Þ. Hlöðversson, bónda á Björgum, Ljósavatns- hreppi, og báðum hann að gefa nánari upplýsingar um félagið, eðli þess, framkvæmdir þess og framtiðarhugmyndir. — Félagið starfar i 2 deildum og eru mörk þeirra við Þingey. Sumarið 1972 var unnið að stiga- gerð upp i Djúpá, sem er affall Ljósavatns, og rýmkuð vatnsrás i Fossselskvisl austan bingeyjar. Þessum áfanga mannvirkja, sem ætluð er til að gera laxgengt um vatnasvæði veiöifélagsins, á að ljúka nú i sumar, og á þá aö verða fær fiskvegur upp að Goðafossi og upp i Ljósavatn. Stangarveiði hefur verið stunduð ofanvert á svæði neöri deildarinnar, — A- deildar, — um árabil. Sumarið 1972 veiddust á annað hundrað laxar og nokkuð af silungi á þessu veiðisvæði. Neðar i fljótinu hefur nær ekkert veiðzt af laxi á stöng, en nokkuð af silungi. Kynni þetta að breytast við ræktun fljótsins. — Hins vegar hefur netaveiði verið stunduð svo lengi, sem menn muna. Aðallega hefur veiðzt silungur, en einnig lax i sumar lagnir. Að frumkvæði nokkurra einstaklinga var dálitlu af gönguseiðum sleppt i fljotið, sumarið 1970, og i fyrrasumar var á vegum veiðifélagsins sleppt nokkrum tugum þúsunda af laxa- seiðum, bæði sumaröldum og af gönguseiðastærð. — Samkvæmt samþykkt aðal- fundar A-deildar veiðifélagsins 2/5 1972, — og með vitund for- manns veiðimálanefndar, voru i fyrrasumar fengnir 2 valinkunnir Q Verzlunarnóm Ráðgert er að hafa verzlunardeild i þriðja bekk gagnfræðadeildar Mýrarhúsaskóla næsta vetur, ef næg þátttaka fæst. Innrit- unfer fram fimmtudaginn7. júni kl. 20-21 i skólanum. Skólanefnd. menn til að skipta fljótinu á deild- arsvæðinu i stangveiðisvæði til bráöabirgða. Mun deildarstjórn tilkynna veiðirétthöfum skipting- una með dreifibréfi fljótlega. Þá rakti Hlöðver litillega reglur félagsins og tilboðaumleitanir þess. — Eins og ég nefndi áðan starf- ar félagið i 2 deildum, A- og B- deild. í 10. grein samþykkta fé- lagsins segir m.a.: „Sérmál deilda samkvæmt 3. gr. skulu vera: a) Ráðstöfun veiöiréttar og umráð veiðiaðferða.” t 12,gr. seg- ir: „011 veiði, er samþykkt þessi nær til, er óheimil á félagssvæð- inu, nema með skriflegu leyfi deildarstjórnar sbr. 10. gr. a). 1 leyfinu skal tekið fram um veiði- tima og veiðitæki og með hvaða kjörum leyfið er veitt.” — 1 samræmi við það, sem að framan greinir, var svo sam- þykkt á aðalfundi A-deildar, 29. april siðastliðinn, að leita tilboða i stangaveiði á deildarsvæðinu, þ.e. i Skjálfandafljóti neðan fossa við Þingey. Væri um að ræða fljótið frá ósi upp að Ullarfossi og Barnafossi við Þingey að frá- dregnum þeim netlögnum, sem heimilar eru i fljótinu norðan brú- ar austur af öfeigsstöðum. Komið gætu til álita sértilboð i svæöiö sunnanbrúar. Hér er um allmikið svæði að ræða og vissulega all- sundurleitt, en samtals bakka- lengd, — landbakkar og hólmar, — er nær 80 km. Frá gætu dregizt 10-12 km vegna netlagna. Hlöðver sagði að lokum, að til- boða væri nú leitað til eins árs og væri endanlegur frágangur samninga háður samþykkt auka- deildarfundar. En nánast væri til- boðanna leitað i tilraunaskyni. Hins vegar gæti reynsla af leigu i sumar leitt til framhaldssamn- inga um leigu á stóru vatnasvæði, sem raunar væri óráðin gáta, en gæti orðið allstórbrotið, ef vel tækist til um ræktun og stundun veiöi. Hlöðver kvað bjartsýni rikja með bændum þar nyrðra, hvað snerti þetta nýja veiðifélag, og væri mikils vænzt af þvi. Þess skal getið að lokum, að Hlöðver tekur sjálfur við tilboðum, fram til mánaðamóta mai-júni. Sagði hann, að ef tilboð bæruzt timan- lega, kynnu samningar að hafa .tekizt fyrir 10. júni n.k., en fyrr væri sjaldan genginn lax i fljótið. —STP Tvo kennara vantar að Mýrarhúsaskóla, Seltjarnarnesi, við gagnfræðastigið. Kennslugreinar eru 1) íslenzka og 2) saga og landafræði. í boði er staðaruppbót allt að 54.000 krónum á ári, miðað við að kennarinn hafi full réttindi eða langa og góða starfsreynslu. Kennt er 5 daga vikunnar og kennslu er yfirleitt lokið kl. 14.00. Upplýsingar gefa Aðalsteinn Sigurðsson, formaður skólanefndar, sima 23163, og Páll Guðmundsson skólastjóri, sima 14791. Skólanefnd. Bifvélavirkjar Velvirkjar óskast strax. Fæði og húsnæði á staðnum. Upplýsingar i simum 11790, Reykjavik og 92-1575, Keflavikurflugvelli. íslenzkir Aðalverktakar sf., Keflavikurflugvelli. iVllíylwC Auglýsingastofa Tímans er í J Aðalstræti 7 enmirsímar 19523 & 20-500 Frá Verzlunarskóla íslands Umsóknir landsprófsnemenda Landsprófsnemendur,sem ætla að sækja um skólavist i Verzlunarskóla íslands næsta vetur, verða að skila umsóknum sem allra fyrst og eigi siðar en 15. júni n.k. Umsóknareyðublöð eru fáanleg i viðkomandi landsprófs- skólum svo og á skrifstofu Verzlunarskóla Islands. Skólastjóri. RAFGEYMAR Öruggastl FRAMLEIÐSLA _ OO \ RAFGEYMIRINN á markaðnum P0LAR H.F. :::i:Í!::iií::ii:!ii:!:. Fást í öllum kaupfélögum og bifreiðavöruverzlunum NOTIÐ AÐEINS ÞAÐ BEZTA

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.