Tíminn - 06.06.1973, Qupperneq 15
Miövikudagur 6. júni 1973.
TÍMINN
15
o Fischer
skák. Hann gat hagnazt miklu
meira eftir að heim kom, án
þess að fórna nema fáeinum
klukkustundum Hann virtist
þá ekki andvigur þvi að láta
taka af sér kvikmynd við
skák, en þegar til kom, vék
hann sér undan sliku.
Fischer er alveg óút-
reiknanlegur. Stundum hring-
ir hann fjórum sinnum á nóttu
til þessara fáu kunningja, sem
hann á, en stundum heyrist
ekki til hans mánuðum sam-
an. Hann er afskaplega tor-
trygginn og mannfælinn og
fyrtist af litlu. Og nú hefur það
bætzt við, að hann hirðir ekki
lengur að fylgjast með skák-
um, sem telfdar eru á meiri
háttar taflmótum.
„Það lofar ekki góöu”, segja
þeir, sem þekkja hann.
0 Kvikmyndir
engan skilning aflögu. Pollack
og menn hans hafa skapað
mjög góða mynd, sem einnig
er likleg til að „blifa”, vegna
þess hve efni hennar er sigilt.
bað er einn veikur punktur i
henni, það er þegar svarti
gæðingurinn er felldur. Það er
aldrei gefin nein viðhlitandi
skýring á þvi, hvers vegna er
verið aö fella þennan glæsi-
lega stóðhest, þegar Robert er
litill drengur, þvi að hann seg-
ist ekki hafa flutt fyrr en
seinna til borgarinnar. En allt
um það er sá hlekkur nauð-
synlegur til þess að atvika-
keðjan rofni ekki, þegar hann i
upphafi danskeppninnar
minnist folans og i lokin þegar
hann hann drepur Gloriu af
sömu grundvallarlögmálum
og skepnur eru felldar, séu
þær meiddar eöa særðar svo
áframhaldandi lif væri óbæri-
leg kvöl. Einu sinni leyfir
Pollack sér nokkuð augljóst
tákn, þegar hann lætur vesa-
lings óléttu konuna syngja um
„það bezta, sem lifið hefur að
bjóöa, er ókeypis”, en það er
svo vel leikið af Belindu, að
það skaðar ekki mikiö. Gig
Young var vel að sinum verð
launum kominn, hann leikur
þennan harðsviraða mann,
sem hefur lært aö fljóta mitt i
spillingunni. Jane Fonda er
eins og venjulega, ákaflega
vandvirk leikkona, og Micheal
Zarazin skilar hinu erfiða
hlutverki — Robert — með
sóma. Þetta er mynd, sem er
vel þess virði að sjá.
P.L.
o Landsbankinn
völlum, en veitir auk þess alla
venjulega bankaþjónustu.
Otibúið heyrir undir aðalbankann
íReykjavik. Landsbankinn hefur
þvi i dag starfsemi á alls 24 stöð-
um i höfuöborginni og dti á landi.
Starfsmenn Landsbankans
voru i árslok 1972 alls 520 og hafði
fjölgað um 12 á árinu.
Aukning innlána meö
minna móti
Þá er vikið að rekstri Lands-
bankans árið 1972. Starfsemi
bankans jókst mjög á árinu, t.d.
urðu afgreiðslur 5.6 millj. talsins,
sem svarar til 11% aukningar frá
fyrra ári. Otlán jukust meira en
oftast nær áður, en aukning inn-
lána varð hins vegar með minna
móti. Þetta leiddi aftur til óvenju
óhagstæðrar lausaf járstöðu
bankans um áramót 1972-3.
Innlán Landsbankans jukust
um 920millj. kr. á árinu 1972, eða
13,5%. Sparinnlán hækkuðu um
619 millj. kr. i 5.567 millj. kr., eða
um 12,5%. Var þetta mun minni
aukning en árið áður, þegar hún
nam 21%. Veltiinnlán hækkuðu
um 300 millj. kr. eöa 16%. Var
þetta 40 millj. kr. minni aukning
en á siðastliðnu ári, en þá nam
hún 22%.
I septembermánuði var tekin
upp sú nýjung i sparisjóðsdeild-
um bankans, að viðskiptamönn
um er gefinn kostur á að leggja
sparifé mánaðarlega inn á bækur
um ákveðið timabil. Að þvi tima-
bili loknu fá þeir rétt til lántöku
eftir föstum reglum. Þessi nýj
ung, sem gengur undir nafninu
Sparilán, var m.a. ákveöin til aö
efla persónulegt samband við-
skiptamannanna og bankans.
Kemur það bætta samband af
bankans hálfu fram i þvi, að ekki
er talin þörf trygginga eða
ábyrgðarmanna fyrir þessum
lánum. Mikils áhuga varö strax
vart fyrir þessari nýjung. Um
áramótin höfðu verið opnaðir
2.200 sparisjóðsreikningar af
þessu tagi, og var heildar-
innstæða þeirra 18 millj. kr. en
31. marz 1973 voru reikningarnir
orðnir 3.227 og innistæða 44 millj.
kr.
Aukning útlána minni hjá
Landsbankanum en öðrum
viðskiptabönkum
Heildarútlán Landsbankans
námu 8.855 millj. kr. i árslok 1972
og höfðu aukizt um 1.482 millj. kr.
á árinu, eða 20%. Var þetta hlut-
fallslega nokkru minni aukning
en á árinu 1971, sem var 1.375
millj. kr. eöa 23%. Séu lán endur-
seld Seðlabankanum hins vegar
undanskilin, nam útlánaaukning
bankans árið 1972 17%, á móti
23% árið 1971.
Heildarútlán bankans eru, eins
og fyrr, tiltölulega mikið og jafnt
dreifð á milli atvinnugreina. Er
Landsbankinn i sérstöðu meðal
islenzkra banka i þessu tilliti. 1
árslok ’72 voru .23% allra útlána
bundin i sjávarútvegi, 18% i
verzlun, 13% i iönaði og 12% i
landbúnaði 7% höfðu gengið til
ibúðabygginga, 7% til fjár-
festingarlánastofnana og 7% til
rikis og sveitarfélaga.
Þá kom og fram á frétta-
mannafundinum, að útlána-
aukningin hjá Landsbankanum
er nokkru minni en hjá öðrum
viðskiptabönkum.
Afkoma Landsbankans árið
1972 var litið eitt betri en árið
áður. Tekjuafgangur, þegar frá
eru teknir vextir af eigin fé, varö
55 millj. kr. (50 millj. kr. árið
1971) Eigiö fé bankans nam 993
millj. kr. i árslok 1972 og er eigin-
fjárstaða hans þvi ailgóö. T.d.
nemur eigið fé allra islenzkra
viöskiptabanka liklega ekki nema
12-1300 millj. kr.
Lokið við 2 útibúshús 1972
og önnur 2 árið 1973
Landsbankinn lauk við
byggingu tveggja nýrra húsa
undir útibú sin á fyrra ári, þ.e. i
Grindavik og á Hvolsvelli. Þá
flytur bankinn i nýtt húsnæði á
þessu ári, bæði á Húsavik og
Akranesi.
Þessi hús láta fremur litiö yfir
sér, a.m.k. miðað við aðrar
bankabyggingar, enda lögðu
bankastjórarnir áherzlu á, að
gætt hefði verið sparnaðar og
hagsýni við byggingu húsanna.
A þessu ári hefur aukning
innlán sem útlána verið mikil hjá
Landsbankanum, en ekki vildu
bankastjórarnir spá neinu um út-
komu bankans á yfirstandandi
ári, þar eö útlitið væri nokkuð
óvist, ekki sizt eftir
vaxtahækkunina i byrjun
maimánaðar.
Góð afkoma Scandinavian
Bank Ltd.
Landsbanki Islands rekur i
samvinnu við banka á hinum
Norðurlöndunum viðskiptabanka
i London, Scandinavian Bank Ltd.
Hagur þess banka hefur veriö
góður, siöan hann hóf starfsemi
sina. Agóði af reksti bankans nám
á s.l. ári rúmum 200 millj. isl. kr.,
en tæpur þriðjungur hans var
greiddur hluthöfum i arð.
(Landsbankinn á 3.2% af hlutafé
bankans)
Jónas Haralz, sem á sætij
stjórn þessa banka, kvaö Lands-
bankann þ.e. viðskiptamenn
hans, hagnast á þátttöku i þessari
starfsemi einkum á tvo vegu.
Annars vegar kæmi það is-
lenzkum útflytjendum, sérstak-
lega á sviði iðnaðar, að góðum
notum, þar eð hægt væri að afla
hagstæðra lána hjá norræna
bankanum. Framleiðendur
fengju verð vörunnar þvi strax i
sinar hendur, vegna þess að er-
lendum kaupendum væri venju-
lega veittur nokkra mánaða
greiðslufrestur. Hins vegar
fengju innflytjendur véla og
tækja lán, svo að þeir gætu greitt
verð vörunnar strax, en með þvi
móti fengist verulegur afsláttur
af vöruverði, auk annars hag-
ræðis, sem þetta hefði i för með
sér
Um 7000 manns í Lands-
bankann á dag
A s.l. hausti framkvæmdi
Landsbankinn könnum á þeim
fjölda fólks, er til hans leitaði á
degi hverjum. Niðurstöður
þeirrar könnunar eru þær, að
um.þ.b. 7000 manns að meðaltali
koma á einhvern afgreiðslustað
bankans á dag. t aðalbankann
einn koma um.þb. 2600 manns að
meðaltali daglega, til aö sinna
einhverjum erindum. Slikur
straumur almennings i banka er
með öllu óþekktur erlendis. Virð-
ist svo sem Islendingar notfæri
bankaþjónustu i meiri mæli en
aðrar þjóðir. Orsakirnar eru ef-
laust fjölmargar.en þó má benda
á, að mun algengara er, að fólk
búi i eigin húsnæði hér, en
gerist og gengur erlendis. En
það, að eiga ibúð útheimtir, oft
margar ferðir i banka og aðrar
lánastofnanir eins og margir
tslendingar geta borið vitni um.
ET.
Vatns-
HITA-
lagnir
og síminn er
2-67-48
VIÐ
SMÍDUM
HRINGANA
SÍMI 24910
Sjötugur
í dag
Einar Pálsson, fyrrverandi úti-
bússtjóri Landsbanka isiands á
Selfossi, er sjötugur i dag, mið-
vikudaginn 6. júni. Einar og kona
hans eru stödd um borð i Guiifossi
á leið til Norðurlanda.
Finnskur lektor
í handavinnu
í heimsókn
IIERLENDIS er nú stödd Ruth
Ilenriksson, lektor i handavinnu
við Laguska menntaskólann i
Ilelsingfors. Ilún er bér á vegum
Norræna hússins og flytur þar
fyrirlestur á fimmtudagskvöldið
kl. 20.30. Þá hefur hún haldið
náinskeið fyrir islenzka handa-
vinnukennara hér og var það vel
sótt. Námskeiðið stóð i tvo daga
og var fyrri daginn fjallað um
menntuu liaiulavinnukennara, en
uin tilraunakeunslu þann siðari.
t fyrirlestrinum mun frúin
fjalla um austræn og vestræn
áhrif á hina fornu handavinnu og
klæöagerð og hvernig þau endur-
speglast i nútima framleiðslu. Þá
mun hún sýna skuggamyndir og
kvikmynd.
Námskeiðið varhaldiö á vegum
Handavinnukennarasambands
tslands, en i þvi eru um 100
meðlimir. Formaður þess er
Auður Hallsdóttir.
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
‘E 21190 21188
VIPPU - BllSKÚRSHURÐIN
Lagerstærðir miðað við múrop:
Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm
210 - x - 270 sm
Aðrar stærðir.smíSaðar'eftir beiðni.
GLUGGASMIÐJAN
Síðumúla 12 - Sími 38220
Þakkarbréf
fró Nixon
Forsætisráðherra hefur borizt
bréf frá Richard Nixon, forseta
Bandarikjanna á þessa leið:
„Ég fullvissa yður um þakklæti
mitt til yðar og rikisstjórnar yðar
fyrir aö tsland gat tekiö að sér að
leggja til stað fyrir fund okkar
Pompidous forseta.
Afburða undirbúningur fundar-
ins og gestrisni stuðlaði að góðum
árangri hans. Það er mikils met-
ið”.
Bekkjarbræður
Sigurkarls gófu,
Benedikt málaði
— ÞAÐ var mishermt i blöðun-
um, að ég hefði verið meðal
þeirra, sem gáfu málverk af
Sigurkarli Stefánssyni, fyrrver-
andi menntaskólakennara, nú á
dögunum, þegar stúdentar úr
Menntaskóla Reykjavikur út-
skrifuðust, sagði Benedikt Gunn-
arsson listmálari i gær. Ég mál-
aði myndina að ósk þeirra, sem
luku námi samtimis og Sigurkarl
fyrir fimmtiu árum, og það voru
bekkjarbræður hans, sem gáfu
hana.
Við athöfnina, sem fram fór i
hátiöasal skólans um morguninn,
hafði Karl S. Jónasson, læknir,
orð fyrir 50 ára stúdentum.
allir kaupa
hringana hjá
HALLDÓRI
Skólavörðustíg 2
IMúmer
i gestahappdrætti sýningarinnar
17/5—Fim. 562 Matur f. 12 á Hótel Holt
18/5—Fös. 23(16 Blóm út árið
19/5—Lau. 9892 Heilsulindin
20/5—Sun. 16109 Reiðskóli Ragnheiðar
21/5—Mán. 16902 Málning á 100 ferm ibúð
22/5—Þri. 3189 Leikhúsmiðar
23/5—Mið. 7106 Dvöl á Laugarvatni
24/5—Fim. 19372' Kalt borð f. 20 frá Óðal
25/5—Fös. 30534 Gisli Rúnar og Július,
kvöldstund
26/5—Lau. 23196 Gluggatjöld f. 20.000 frá
Gluggatjöld h.f.
*
27/5—Sun.
28/5—Mán.
29/5—Þri.
30/5—Mið.
31/5—Fim.
1/6 —Fös.
2/6 —Lau.
3/6 —Sun.
25118 Vestmannaeyjaflug
31883 Hárgreiðsla út árið
35731 Bón og bilaþvottur út árið
36936 Skiðaskólinn i
Kerlingafjöllum
40231 Rya-teppi
44162 Fjölskyldubill i viku
46127 Bátsferð um sundin blá
30677 Aðalvinningur, Chicagoferð
f. tvo.
Orslit I getraun um, hversu margir gestir yrðu
komnir þriðjudagskvöld 29. mai:
Gestafjöldi: 36.496
Talan, sem komst næst var: 36.462. Vinningshafi
var:
Helga Björnsdóttir, Vesturbergi 138, Reykjavik.
SHEIMIUB70