Tíminn - 14.07.1973, Page 8

Tíminn - 14.07.1973, Page 8
8 TÍMINN Laugardagur 14. júli 1973. Dr. W. Gifford Jones frá Kanada leikið en frjálsar fóstureyðingar. I bók sinni leitast hann við aö eyða ótta úr hugum kvenna. Þar fjallar hann m.a. um pilluna, fóstureyðingar, breytingatima- bilið, ófrjósemi og ýmiss konar móðurlifsaðgerðir. Láta konurnar um varnaraðgerðirnar „Læknar hafa ýkt skaðsemi og aukaverkanir pillunnar”, segir hann. „Það er ekki meiri hætta fyrir allanobbann af konum af að taka getnaðarvarnartöflur, en að ganga yfir götu. Og eitt barn um of getur valdið þvi/ aö hún fái hjartasjúkdóm eða brjósklos i hrygginn, sem er alvarlegra en áhrifin af pillunni.” „En pillan hefur fleira en kosti i för með sér”, segir Gifford Jones kvensjúkdómalæknir. Hún hefur veitt konum kynferðislegt frelsi, en gert þær varnarlausari gagn- vart kynsjúkdómum. Nú eru þaö ekki lengur vændiskonur fyrst og fremst, sem bera út kynsjúk- dóma, heldur ósköp venjulegar kvenlæknirinn,” er breytinga- skeið konunnar. „Min skoðun er sú, að allar konur, sem hættar eru að hafa tiðir, eigi aö taka estrogen (östrogen, hormónalyf) daglega. Og ekki aðeins meðan erfiðasti timinn vegna breytingarinnar stendur yfir heldur framvegis, það sem þær eiga eftir ólifað, vilji þær lifa kyn- lifi. Það eru skiptar skoðanir meðal lækna um notkun estrogens. Sumir vilja láta nátúruna hafa sinn gang og ekki beita lyfjagjöf. En erfiðleikar i sambandi við breytingaskeiðið fylgja hækkandi aldri fólks, og þvi eigum við ekki að hjálpa fólki til að geta lifað eðlilegu kynlifi fram á efri ár, eins og við reynum að bæta sjón þess, þegar hún fer aö deprast. Samfarir verða mörgum konum mjög sársauka- fullar á efri árum og estrogengjöf bætir þar um Það kann að koma leikmönnum spánskt fyrir sjónir.að þetta sé nauðsynlpgt, en þeir skyldu at- huga það, að til skamms tima var „ALDRAÐIR ÞURFA HORMÓNALYF ENGU SÍÐUR EN GLERAUGU" „Ég tel lækna og stjórn- málamenn ábyrgðarlausa, ef þeir nú á tímum taka af- stöðu gegn frjálsum fóstur- eyðingum. Mikið af mengun,offjölgun, hungri, eiturlyf janeyzlu, glæpum og öðru böli í heiminum nú stafar af því. að of mörg óvelkomin börn fæðast, sem lítillar eða engrar ástar verða aðnjótandi. Við eigum að leggja meiri áherzlu á gæði en magn í framtíðinni, Mannkynið hefur þegar sannað, að það getur aukið kyn sitt eins og kanínur, og nú er komið að því að sýna fram á, að við getum átt fá börn og búið þeim mannsæmandi líf ." Svo fórust kanadiskum lækni, Dr. W. Gifford Jones, orð i viðtali við Timann, þegar talið barst að þvi, aö frjálsari fóstureyðinga- löggjöf væri nú á dagskrá hér á landi. Óskaði hann okkur þess að hún kæmist á, en sjálfur er hann mjög fylgjandi þvi, aö konur fái fóstureyðingar allt að 16 fyrstu vikum meðgöngu óski þær ekki að ala börn. • „Löggjöf Kanada um fóstur- eyðingar er óréttlát”, sagði Dr. Gifford Jones. „Nefndir á hinum ýmsu sjúkrahúsum taka ákvörðun um hvort heimila skuli fóstureyðingu i hverju einstöku tilfelli. Það getur þvi verið mjög mismunandi eftir landshlutum. hvernig konum gengur að fá þessa aögerð, og eins er titt að þær fái fyrst synjun á einum stað, en siðan samþykkt á öðrum.” Virðing fyrir lífi? „Skoðanir eru mjög skiptar i Kanada, eins og viðast annars staðar um réttmæti fóstur- eyðinga. Trúarástæður hafa þar nokkuð að segja, en um helmingur ibúanna eru kaþólskir, þ.á.m. forsætisráðherrann Trudeau. En margir aðrir en kaþólskir eru mjög andvigir fóstureyðingum og á svo að heita, að sú sannfæring þeirra byggist á mikilli virðingu fyrir kviknuðu lifi. En ég sé ekki að þeir hinir sömu beri mikla virðingu fyrir mannsæmandi lifi. Ég ber ekki mikla virðingu fyrir 10 vikna gömlu fóstri, ef örþreytt móðir og fimm börn hennar þurfa að gjalda fyrir. Svo virðist sem þeir sem mest meta lifið i sambandi við fóstureyðingar, séu búnir að gleyma þvi, þegar börnin eru fædd kannski til ömurlegrar til- veru. Læknar i Kanada þurfi lika að temja sér skoðanir betur við hæfi nútimalifs. Leigubilstjórar eru kunnugri félagslegum vandamál- um heldur en læknarnir, sem eru lokaðir inni á sinum vinnustöðum og búa við tiltölulega örugga af- komu. Mjög margir þeirra verð- skulda Viktoriukrossinn að laun- um fyrir góð störf i læknisfræði en eiga engu að siður skilið að vera skotnir fyrir þjóðfélagsskoðanir sinar.” Áfengisvandamálið hafið þið. Dr. Gifford Jones kvaðst hafa heyrt, að við ættum ekki við mengunarvandamál aö striða á tslandi. „Hversvegna ekki að koma i veg fyrir að það verði nokkurn tima”, sagði hann, með þvi að koma i veg fyrir offjölgun i tæka tið. „önnur vandamál hafið þið vissulega þegar, svo sem of- drykkju, aö þvi er mér virðist eftir tvær heimsóknir á veitinga- hús i höfuðborginni, — og þar var mér lika boðiö hass til kaups eitt kvöldið”, bætti hann við. Dr. Gifford Jones kom hingað vegna áhuga á landinu, en ræddi jafnframt við tvo bókaútgefendur um hugsanlega útgáfu á bók sinni „On Being a Woman” i islenzkri þýðingu. Bókin hefur komið út i Kanada, Bandarikjunum og Englandi, og er i þann veginn að koma út á spænsku i Mexikó og á Spáni. Bók þessi hefur vakið athygli og m.a. verið dreift af fimm bóka- klúbbum i Kanada og annars staðar. Dr. Gifford Jones er fleira hug- ungar stúlkur. Og karlmenn virðast ábyrgðarlausari en áður. Gúmmiverjur eru komnar úr tizku. Sjálfsagt þykir, að konur taki pilluna. En sannleikurinn er sá, að auk þess að vera góð getnaðarvörn er gúmmiverja bezta verndin gegn kynsjúk- dómum. Og ef karlmenn eru ekki þvi vandfýsnari á rekkjufélaga ættu þeir að nota hana.” „Ég vona að bók min eyði ónauðsynlegum ótta kvenna vegna svo ótal margs, og geri þær tilfinningalega öruggari. Ég fjalla meðal annars um,þegar fjarlægja þarf leg konu, en ótal kerlingabækur eru á kreiki um afleiðingar þess, eins og um svo margt annað, sem tengt er þeim málum, sem ég skrifa um i bók minni”. „Aö vissu leyti eru nú færri for- dómar rikjandi en áður i kyn- ferðismálum og ýmsu þvi, er snertir barneignir o.sv.frv. En þótt margar kerlingabækur séu nú úr sögunni virðast hafa orðið til nýjar gróusögur, eins og t.d. um pilluna og sitthvað fleira, sem þörf er á að ryðja úr vegi og veita réttari og betri fræðslu”. Mest spurður um breytingaskeiðið. „Það sem ég er oftast spurður um á fyrirlestraferðum”, sagði þetta vandamál ekki til, vegna þess að fæstar konur náðu svo háum aldri að þær lifðu lengi eftir breytingaskeiðið.” Fræðslan einskis virði í tunglskini. Dr. Gifford Jones virðist ekki telja einlifi eða meinlæti i kynlifi æskilegt, hvorki fyrir aldraða né fullorðið fólk yfirleitt. „Eina slæma getnaðarvörnin er kynbindindi”, sagði hann fyrr i viðtali okkar. Margar góðar getnaðarvarnir eru til, en það þarf aðeins að nota þær rétt, en ekki geyma þær i náttborðs- skúffunni. Og svo virðist sem fræðsla dugi ekki til að koma i veg fyrir ósæskilega þungun, t.d. eru hjúkrunarkonur um 5% þeirra kvenna, sem ég framkævmi á fóstureyðingu og ættu þær þó að kunna á þessum málum skil. Það virðist nefnilega enn vera svo, að á tunglskinskvöldum þá gleymist pillan eöa hvað* varnarráðstöfun annar.s ætlunin var að viðhafa. Þvi er ég hræddur um.að fræðsla leysi seint fóstureyðingu af hólmi, þótt ég sé siður en svo að mæla með að hún sé notuð, sem getnaðarvörn”. SJ („On Being a Woman” er gefin út i Kanada hjá McClelland and Stewart Limited. Dr. Clifford Jones er höfundarnafn, en réttu nafni heitir viðmælandi okkar Ken Walker, en vildi halda sér að höfundarnafninu i viðtalinu til að forðast rugling.) „Ábyrgðarleysi að berjast gegn frjálsum fóstureyðingum", segir kanadískur kvenlæknir og rithöfundur

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.