Tíminn - 14.07.1973, Síða 18
18
TÍMINN
Laugardagur 14. júli 1973.
Hans Fallada:
Hvaðnú,ungi maður?
Þýðing AAagnúsar Ásgeirssonar
ið flökurt að horfa á hvað snjáldr-
ið á henni er málað”.
Pinneberg ris upp og litur út um
gluggann. A götunni fyrir utan
gengur Emma Pinneberg með
bögglanetið sitt i hendinni. Það er
Pússer háns og engin önnur.
Yndislegust af öllu i heimi. Hann
horfir á eftir henni alla leið að
horninu á Bahnhofstræti og snýr
sér siöan að Mariu Kleinholz.
Andlitið er náfölt og ennið hrukk-
að, en það liggur við, að það
brenni eldur úr augum hans. Og
honum finnst vissara að stinga
höndunum i buxnavasana aftur.
,,Ef þér vogið yður að segja
annað eins og þetta aftur, rétti ég
yður einn utan undir. — Já, haldið
yður bara saman, ef þér viljið
ekki verra af hafa! Þetta er kon-
an min — skiljið þér það? — skilj-
ið þér það!!! Og hann otar hend-
inni með glóandi giftingarhringn-
um upp að nefinu á Mariu. ,,Og
þér megið þakka guði almáttug-
um fyrir, ef þer komizt nokkurn
tima þangað með tærnar, sem
hún hefur hælana! ”
Pinnei)erg sezt aftur i slólinn
sinn. Ilann hefur sagl allt, sem
hann þurfti að segja, og honum
hefur létt eitthvað svo dásamlega
við það. Og afleiðingarnar? Nú er
hann ekki að hugsa um neinar af-
leiðingar. Komi það sem koma
vill!
Dálitla stund er allt hljótt.
Hann rennir til hennar hornauga,
en hún litur ekki til hans. Hún
þrýstir litla hænuhöl'ðinu með
öskubleika strýinu að rúðunni,
sezt siðan niður, grúfir sig ofan á
borðið og fer að háskæla.
,,Herra minn trúr, ég ætlaði þó
ekki að fara að græta yður, fröken
Kleinholz”, segir Pinneberg.
Hann skammaðist sin dálitið fyrir
hvað hann hefur verið grófur við
hana —(en heldur ekki nema dá
litið). En Maria heldur bara
áfram að gráta og stynur þvi upp
á milli hviðanna, að hún geti ekki
gert að þvi, þó að hún sé eins og
hún er, og hafi alltaf haldið að
hann væri heiðarlegur piltur, sem
bæri af hinum skrifstofuþjónun-
um. Er hann i raun og veru
kvæntur? Hún skal ekki minnast
einu orði á það við föður sinn.
Hann skal ekki vera hræddur um
það. Er hún héðan? Ekki litur hún
út fyrir það. Hún hafði ekkert
meint með þvi sem hún sagði um
hana, þvi að þetta er bara lagleg-
asta stúlka. Hún sagði þetta bara
til að striða honum. . .
Svona heldur hún áfram lengi
vel, og hefði vist ekki hætt strax,
ef frú Kleinholz, móðir hennar,
hefði ekki kallaö til hennar i höst-
um og hvellum rómi: „Hvað lið-
ur þvottinum, Maria? Það er
kominn timi til að fara að valta
hann! ”
Þá rýkur Maria Kleinholz upp
með ósköpum og irafári og er öll á
bak og burt. En Pinneberg situr
eftir og er eiginlega hinn ánægð-
asti yfir öllu saman með sjálfurr.
sér. Hann hlistrar iag, reiknar af
kappi og gægist öðru hvoru út um
gluggan tii að gæta að hvort
Pússer gangi ekki framhjá aft-
ur. ()g klukkan verður ellefu, hún
verður hálftólf og þrjú kortér i
tólf. Pinneberg fer að fagna i
hjarta sinu og lofa sinn sæla fyrir
að vera nú öruggur i einn mánuð
til. En klukkan aðeins fimm min-
útum fyrir tólf skálmar húsbónd-
inn Kleinholz inn i skrifstofuna,
virðir bókarann sinn fyrir sér og
segir ósköp blátt áfram og altil-
lega eftir að hann hefir gengið
fram og aftur um gólfiö nokkrum
sinnum:
,,.Ja, ég veit ekki hvað gera
skal, Pinneberg. Helzt hefði ég
kosið að hafa yður áfram og láta
hina róa. En ég get ekki fyrirgefið
yður að þér ætluðuð að neyða mig
sjálfan til að sjá um fóðrið i gær
bara vegna þess, að þér þurftuð
að skemmta yður með þessari
stelpu, sem þér voruð með. Nei,
það get ég ekki gert mér að góðu,
og þess vegna segi ég yður hér
með upp.”
„Kleinholz—” Pinneberg reyn-
ir að herða sig upp og koma með
karlmannlegar og óhrekjandi
röksemdir, sem geti enzt fram yf-
ir klukkan tólf — en þá er upp-
sagnarfresturinn úti. „Kleinholz,
mig langar til-----”
„Ja, hve djöfullinn, kemur þar
ekki stelpuskepnan aftur. Ég segi
yður upp frá og með 31. október.
Jæja, Pinneberg, þá er það bú-
ið! ”
Aður en Pinneberg kemur orði
út úr sér, er hann rokinn út úr
dyrunum og hurðin skellur á hæla
honum. Og i sama bili hverfur
Pússer einmitt fyrir hornið á
Marktplatz.
Hann litur á klukkuna. Hana
vantar þrjár minútur i tólf.
Tveimur minútum fyrir tólf
stekkur hann upp stigann, sem
liggur upp i útsæðisgeymsluna,
rýkur að Lauterbach og stynur
upp úr sér með andköfum:
„Lauterbach! Upp með þig til
Kleinholz og segðu upp stöðunni.
Mundu hverju þú lofaðir upp á
æru og samvizku! Hann er búinn
að reka mig!”
Lauterbach sleppir handfang-
inu á kornsáldinu hægt og sein-
lega, glápir á Pinneberg og segir
að lokum:
„f fyrsta lagi vantar klukkuna
ekki nema eina minútu i tólf, og i
öðru lagi verö ég fyrst að tala við
Schulz — og i þriðja lagi er Maria
nýbúin að segja að þú sért giftur,
og ef það er satt hefir þú alveg
farið á bak við okkur félaga þina.
Og i fjórða lagi —
Hvað það var i fjórða lagi, fékk
Pinneberg aldrei að vita. Kirkju-
klukkan sló tólf hæg og hljóm-
dimm slög. Nú var allt um seinan,
það var búið að reka hann úr vist-
inni og það var komið sem komið
var.
Kriedrichs deildarforseti, laxinn
og Hergmann kaupmaöur. Pinne-
berg gripur alls staðar i tómt.
Þrem vikum seinna, dapurleg-
an, kaldan og regnþungan sept-
emberdag, gengur Pinneberg
hægum skrefum út úr skrifstofu
Ducherow-deildar Verzlunar- og
skrifstofu-mannafélagsins. Hann
staðnæmist eitt augnablik á dyra-
pallinum og les i hugsunarleysi að
þvi er virðist, ávarp til allra með-
lima félagsins um það, að sýna
samheldni og samábyrgðatilfinn-
ingu i verkinu. Hann andvarpar
og gengur siðan hægt niður tröpp-
urnar.
Skrifstofustjóri félagsdeilar-
innar sem er feitur og þriflegur
maður með glóandi gulltennur i
munninum, hefir sýnt honum og
sannað að ekkert er hægt að gera
fyrir hann. Það eina, sem Pinne-
berg getur gert, er að vera at-
vinnulaus. í!
„Þér vitið nú sjálfur, hvernig
það er með vefnaðarvöruverzlan-
irnar hérna i Ducherow, Pinne-
berg. Þar er ekkert laust, og losn-
ar heldur ekkert”, bætir hann við
og leggur áherzlu á orðin. Og i
öðrum atvinnugreinum hafið þér
ekkert gagn af neinum meðmæl-
um, hvað góð sem þau eru. Ef
eitthvert pláss losnar, sem ekki
kemur til, þvi að allir sitja sem
fastast þar sem þeir eru komnir, Sj
þá eru tiu fyrir hvern einn af vön- ^
um mönnum, sem sitja um þau.
Og bókari eruð þér eiginlega
■
lí 'I
Ifllllllllllllllll
F
1
heppilegt, að fólk, sem ekki er vel N
að sér, hlaupi úr einni grein i S
aðra. Það getur spillt áliti stéttar- S
innar.” ^
„Guð m
Pinneberg
svo segir hann kaldur og ákveð- §5
inn: „En þér verðið bara að út- S$
vega mér eitthvað
íinn góður”, stynur
með sjálfum sér. En SJ
iann kalrlnr nP ákvnft- ^
að gera,
Friedrichs. Ég er giftur maður! ^
----Og við eigum meira að segja ^
bætir hann við og §
von á barni’
lækkar nú drjúgum róminn.
Friedrichs deildarstjóri gýtur S
augum til hans og segir svo i X
hressilegum og alúðlegum hugg- §
unarrómi:
„Já, einmitt það. Blessun
fylgir barni hverju, segir máltæk-
7.00 Morgunútvarp. Veöur-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (úr for-
ustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgumbæn kl. 7.45.
Morgunleikfimi kl. 7.50.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Arnhildur Jónsdóttir
les söguna „Ævintýri mús-
anna” eftir K.J. With i þýð-
ingu Guðmundar M. Þor-
lákssonar (6). Tilkynningar
kl. 9.30. Létt lög milli liöa.
Tónleikar kl. 10.25. Morgun-
kaffið kl. 10.50:Þorsteinn
Hannesson og gestir hans
ræða um útvarpsdag-
skrána.
12.00 Sagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Óskarlög sjúklinga.
Kristin Sveinbjörnsdóttir
kynnir.
14.30 A iþróttavellinum, Jón
Ásgeirsson segir frá.
15.00 Vikan, sem var. Um-
sjónarmaður: Páll Heiðar
Jónsson.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir. Tiu á
toppnum. örn Petersen sér
um dægurlagaþátt.
17.20 i umferðinni, Jón B.
Gunnlaugsson sér um þátt
með blönduðu efni.
18.00 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.20 Matthildur.
19.35 Franskt kvöld a. Lan d
og þjóð, Emil Eyjólfsson
flytur erindi. b. „Stúlkan frá
Arles”. Svita nr. 1 fyrir
hljómsveit eftir Bizet.
Lamoureux hljómsveitin
leikur, Antal Dorati stjórn-
ar. c. Þögn hafsins. Þórunn
Magnea Magnúsdóttir leik-
kona les úr bókinni „Þögn
hafsins” eftir Vercors. d.
,,Gleðieyjan”.Fjórar prelú-
diur eftir Debussy. Samson
Francois leikur á pianó.
21.05 Hljómplöturabb. Guð-
mundur Jónsson bregður
plötum á fóninn.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Eyjapist-
ill.
22.35 Danslög.
23.55 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
HVELL
I afskekktum fjalíadal i
Eþiópiu, hefur timinn
staðið i stað..