Tíminn - 09.08.1973, Síða 5
Fimmtudagur 9. ágúst 1973.
TÍMINN
5
Enskur
golfkennari
á vegum
G.R.
Þann 7. ágúst n.k. er væntan-
legur til landsins golfkennari —
professional - -P.A. Stubbs. Hann
kemur á vegum golfklúbbs
ReyKjavikur og mun dvelja hér i
átta daga og kenna dagana 8.
—14. ágúst frá kl. 9 til 12 og 15 til
19.
Kylfingum i öllum klúbbum er
heimilt að panta tima, einnig
byrjendum þótt þeir séu utan-
félags.
Þar sem þetta er stuttur timi
sem mr. Stubbs verður hér, er
þeim sem ætla að fá tima ráðlagt
að hafa samband við afgreiðsluna
i Golfskálanum i Grafarholti sem
fyrst.
I 1 IJh* É
i
Þannig er innan dyra i Casanova viö Bankastræti
CASANOVA
tízkuverzlun
— ungu kaupmennirnir biða viðskiptavinanna.
— Timamynd: Gunnar.
heitir nýjasta
unga fólksins
P.A. Stubbs er fastráðinn golf-
kennari við Leek Golfclub, sem er
skammt frá London.
Kapp-
reiðar
Loga
GH.Aratungu — Hesta-
mannafélagið Logi i Bisk-
upstungum heldur sinar ár-
legu kappreiðar á skeiðvelli
félagsins i Hrisholti sunnu-
daginn 12. ágúst n.k. og hefj-
ast þær klukkan 15. Þetta
verða einar siðustu kapp-
reiðarnar á Suöurlandi á
þessu sumri.
Keppt verður i 250 metra'
skeiði, 300 metra stökki og
250 metra folahlaupi. Einnig
verður góðhestasýning.
Casanova opnar verzlun í Bankastræti 9
Ný tizkuverzlun fyrir ungt fólk
opnaði i siðustu viku að Banka-
stræti 9, Reykjavik. Nefnist
verzlunin CASANOVA og er
frumlcg að gerð. Hefur verzlunin
allt húsnæðið Bankastræti 9 undir
starfsemi sina, en eftir er að ljúka
innréttingu efri hæðarinnar.
Timinn hitti að máli verzlunar-
stjóra CASANOVA, en það eru
þeir Stefán A. Magnússon og
Finnbjörn Finnbjörnsson, en þeir
eru báðir kunnir afgreiðslumenn i
tizkuverzlunum og herrafatabúð-
um hér i borg.
Innréttingar verzlunarinnar
eru mjög óvenjulegar og frum-
legar og hannaði teiknistofan
Akro búðina, en Auglýsingastofan
Dekor vann hluta af loft-
skreytingu. Hljómburður er frá
The Fisher, sem er heimskunnt
ameriskt hljómtækjafyrirtæki.
Tizkan frjálslegri
1 stuttu spjalli við blaðamann
Tlmans kváðust verzlunar-
stjórarnir leggja áherzlu á að
kynna og selja frjálslegri tizku-
fatnað. Hin heföbundnu „jakka-
föt” karlmanna væru á undan-
haldi, og svo væri meö allan
annan fatnað. Þessa breytingu
mætti sjá viöa núna i klæðaburði
fólks, sem nú klæddist hentugri,
fallegri og þægilegri fatnaði en
áður.
Fatnaðurinn kemur frá heims-
kunnum fataframleiðendum, sem
ekki hafa áður selt til Islands.
T.d. skyrtur og föt frá Mr. Harry
og Melvin Perry, herraföt, svo
eitthvað sé nefnt, og skófatnaður
kemur frá FOX og EMMA.
Verzlunin selur bæði dömu- og
herrafatnað.
Hjá Casanova vinna fimm
manns, en starfsliði verður
fjölgað, þegar efri hæð verzlunar-
innar hefur verið tekin i notkun,
en núna er verið að vinna að inn-
réttingum þar.
Mjög mikið hefur verið að gera
i Casanóva frá þvi að opnað var,
og mörgum verður auk þess held-
ur starsýnt á þessa nýju verzlun.
Húsnæðið hefur verið málað svart
og gullbronsað og skreytingar
eru smekklegar. Er sýnilegt að
unga fólkið kann að meta hina
nýju tizkuverzlun. -JG.
Sænski herinn í
baráttu við
„hættulegan óvin
IV
Athugasemdir vegna greinar
um hegningarhúsið við
Skólavörðustíg
VEGNA greinar minnar um
hegningarhúsið við Skóla-
vörðustig, sem birtisti blaðinu
þann 8. ág. og valdið hefur
nokkrum misskilningi, vil ég
koma eftirfarandi athuga-
semdum á framfæri:
Ætlun mín með þessari
grein var að sjálfsögðu ekki að
veitast að starfsfólki að Skóla-
vörðustig 11, enda er þaö ekki
þess sök, þótt starfsaðstæður
þess séu þannig, að það megi
ekki lita upp án þess að fang-
elsisgarðurinn blasi við, eins
og Friðjón Skarphéðinsson
yfirborgarfógeti tók fram,
þegar ég kynnti mér aðstæður
ihúsinu. Ætlun min var sú ein,
að benda á þá annmarka, sem
eru á þvi að geyma fanga á
þessum stað. Hitt er svo annað
mál, að fyrirsögn greinarinn-
ar er óheppilegra orðuð, sem
og hliðstætt orðalag i sjálfri
greininni. Það verður hvort
tveggja að skrifast á minn
reikning, en orsökin er auðvit-
að löngun blaðamannsins til
þess að orða skrif sin á þann
hátt, að athygli veki, enda
veröur það tæpast talið óeðli-
legt eins og starfi okkar er
háttað, en þvi fyrir náttúrlega
sú hætta, að við tökum of djúpt
I árinni, eða högum orðum
okkar á þann veg, aö misskiln-
ingi valdi, eins og hér hefur
orðið. — HHJ.
í FRAMHALDI af þessu birt-
ist hér athugasemd frá Valdi-
mar Guðmundssyni yfir-
fangaverði:
Ég kannast ekki við að hafa
sagt, að það væri verkfall á
skrifstofum borgarfógeta,
þegar fangar væru úti i
garöinum, en hins vegar sagði
ég, að Starfsfólkið hlyti að sjá
til þeirra og geta þekkt þá.
Vegna ummæla um, að ég
legði til að bankahúsið yrði
rifið, vil ég taka fram, að þau
orð voru svar við spurningu
um, hvernig ætti að forða
hegningarhúsinu frá þvi að
vlkja fyrir Grettisgötunni.
Valdimar Guðmundsson
yfirfangavörður
Sænski herinn hefur sent út að-
vörun til allra herstöðva i landinu
gegn 1500 „óvinum”, sem ganga
lausir — eöa svo til — á
herstöðvunum. Þetta eru 1500 pör
af sokkum, sem sendir voru frá
þvottahúsi hersins til herstöðv-
Úr þessum sokkum hefur
gleymzt að skola þvottaefnið,
sem notað er I þvottahúsinu.
Þegar hafa um 60 hermenn veriö
lagðir inn á sjúkrahús með ann-
ars gráðu bruna á fótunum eftir
að þeir höfðu farið i þessa sokka.
Óttazt er að enn fleiri verði lagðir
inn næstu daga ef „óvinurinn”
finnst ekki.
Sænsk blöð gera mikið úr þessu
máli — flest i heldur gamansöm-
um tón — og segja að þarna hafi
herinn óvart fundið nýtt vopn,
sem geti komið sér vel I striði.
Til minningar um
dr. Victor Urbancic
hinn 9. ógúst 1973
í banalegunni sagði dr. Victor
Urbancic hvað eftir annað:
„Þegar ég er ekki lengur veikur,
þá safnið fé til sérnáms fyrir is-
lenzka lækna i útlöndum, svo að
enginn islendingur þurfi i
framtiöinni að liða hjálparlaus
hérlendis, eða verða sendur til út-
landa til lækningar i slikum
tilfelium”.
Mix.ningarspjöld
minningarsjóös dr. Victors
Urbancic fást á eftirtöldum
stöðum:
Bókaverzlun ísafoldar,
Austurstræti, Bókaverzlun
Snæbjarnar Jónssonar,
Hafnarstræti 4, og Lands-
banka Islands, Ingólfshvoli, 2.
hæð.
Eftir lát hans, á föstudaginn
langa, 1958 stofnaöi kór hans,
Þjóðleikhúskórinn, minningar-
sjóö i þeim tilgangi að uppfylla
hinztu ósk söngstjóra sins. Eins
og kunnugt er, hefur það nú þegar
rætzt að þvi marki, að tveir ágæt-
ir heilaskurðlæknar, þeir Bjarni
Hannesson og Kristinn Guð-
mundsson, eru komnir heim frá
sérnámi og hafa ærinn starfa frá
morgni til kvölds i sérgrein sinni.
Samt vantar, sem við má búast,
enn ýmislegt til þess að full-
komna starfsaðstöðu þeirra, og er
þvi öllum, sem ætla i dag, — á
sjötugasta fæðingardegi dr.
Victors Urbancic — að minnast
starfs hans hérlendis með þakk-
læti, bent á minningarsjóðinn til
að uppfylla enn hinztu ósk hans.
Dr. Melitta Urbancic.
Frá
Máli
°g
menningu
Mál og menning gefur út á
þessu ári átta bækur, sem
rélagsnienn geta valið úr, og
auk þess Tlmarit Máls og
ineiiningar. Kélagsmenn sem
greiða la-gsta árgjald, kr.
1.500.-, geta valið sér tvær
ba*kur auk Timaritsins. Þeir
sem greiða 2.200,- króna
árgjald eiga kost á fjórum
bókiim. og bæsta árgjald, kr.
2.700,- veitir rétt til sex bóka
auk Timarits. Að auki er inn-
lieimt sérslakt gjald fyrir
band, uokkuð inismunandi
eftir sta-rð hókanna. Af
þessuni átta bókum eru fjórar
pappirskiljur.
Nú þegar eru komnar úl
þr j á r félagsbækur:
KKANSKA BYLTINGIN, sið-
ara bindi, eftir Albert
Mathiez, en fyrra liindiö kom
út á síðasta ári. Loftur
Giittormsson þýddi liókina,.
sem er prýdil myndum, tekn-
iiiii eltir friinskum samtima-
teikningiini. Þá er
MAN N KYNSSAGA. forniildin.
eftir Asgeir lljartarson,
nýkomin. Þetla er iiniiur
prentun hinnar vinsælu hókar,
sem segja má að sé þegar orð-
in eitt af liinum fáu klassisku
sagnfræðiritum islenzkra bók-
niennta. Kiinfreiiiur er
kouiin út ein pappirskilja, UM
USTÞOKKINA, eftir Krnst
Kischer i þýðingu Þorgeirs
Þorgeirssouar. — Aðrar
félagsbækur áætlaðar á þessu
ári eru Pétursborgarsögur
eftir Nikolai Gogol, þýddar
úr rússnesku af Geir
Kristjánssyni; hók uin mynd-
list eftir Bjiirn Th. Bjiirnsson,
og þrjár pappirskiljur;
ri tger ða ú r v a I Brynjólfs
Bjarnasonar i tveim bókum og
Umhverfi mannsins eftir
lljörlcif Guttormsson.
Mál og menning hefur
undanfarin ár unnið að þvi aö
koma úl ritsafni Þórbergs
Þóröarsonar, og er verið að
undirhúa næstu bindi, sem þó
koma vænlanlega ekki út fyrr
en á árinu 1974. Ilinsvcgar er i
ráði að gefa út á þessu ári
cndurprcntun af Ofvitanum,
en útgáfa Máls og menningar
af þessari bók frá árinu 1964 er
nú gcrsamlega uppscld.
Mál og menning býður
félagsmönnum sinum upp á
hetri kjör en nú tiðkast á
islcnzkum bókamarkaði, og
þurfa menn aðeins að lita á
siiluverð nýrra bóka til að
sannfærast um það.
Kyrir nokkrum árum hóf
Mál og menning að gefa út
pappirskiljur á islenzku, enda
þótt þá væri álitið að slík
utgáfa væri naumast möguleg
hér á landi. Kaunin hcfur oröiö
sú, að vinsældir þessarar
útgáfu hafa aukizt jafnt og
þétt, og cru nú sumar þessara
bóka nær uppseldar, og verið
að undirbúa cndurprentun.
(Auglýsing)