Tíminn - 14.08.1973, Page 9

Tíminn - 14.08.1973, Page 9
'Pt r .: )G’ ' 1>- Þriöjudagur 14. ágúst 1973. (Jtgefandi: Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þór- arinn Þórarinsson (ábm.), Jón Helgason, Tómas Karlsson, Auglýsingastjóri: Stéingrimur Gisiason. Ritstjórnarskrif- stofur i Edduhúsinu við Lindargötu, simar 18300-18306. Skrif- stofur i Aðalstræti 7, simi 26500 — afgreiöslusími 12323 — aug- lýsingasimi 19523. Askriftagjald 300 kr. á mánuði innan lands, i lausasölu 18 kr. eintakið. Biaðaprent h.f Skemmtilegt „bréf" Siðasta Reykjavikurbréf er skemmtilegt. Þar er að visu haldið fram hinum fáránlegustu firrum, en höfundur ber sjálfur jafnharðan allar firrurnar til baka svo bréfið verður að hreinu skopi. Skulu hér tilfærð nokkur sýnishorn um þennan broslega málflutning, en megin-til- gangur bréfritarans virðist vera sá, að reyna að telja fólki trú um að núverandi rikisstjórn vinni markvisst að þvi að drepa niður fram- takssemi og framtak fólksins i landinu. Höfundur Reykjavikurbréfs fullyrðir, „að markvisst er stefnt að þvi af vinstri stjórninni að koma i veg fyrir að einkaframtaksmenn fái aðstöðu til að byggja upp atvinnufyrirtæki” Og þvi riði á að fólkið i landinu snúist til varnar ,,gegn þeirri sókn, sem nú er hafin gegn fram- taki athafnamannanna i atvinnulifinu”. í bland við þessar fullyrðingar koma svo þær staðreyndir, sem alls staðar blasa við augum manna eins og þessar: „Hvarvetna er unnið að þvi að endurbæta og byggja upp fiskvinnslustöðvar til að taka á móti þeim mikla afla,sem hinir nýju og glæsi- legu skuttogarar flytja að landi”. Og nokkru siðarsegir: ,,.... er ekki hægt annað en dást og gleðjast yfir þeim mikla framkvæmdahug, sem hvarvetna rikir”. Og svo koma dæmin um forystumenn i at- vinnulifinu, sem rikisstjórnin er „markvisst” að reyna að koma á kné: „í Breiðdalsvik er Svanur Sigurðsson, skip- stjóri, traustur forystumaður i atvinnulifi staðarins. Slikir menn skipta sköpum ótrúlega viða i sjávarplássum út um landið”. — Já ótrúlega viða er slika athafnamenn að finna og þeir eru i þeim „framkvæmdahug, sem hvarvetna rikir”. En hver var þá drepinn? Og hver er ástæðan fyrir ákærunni á hendur rikisstjórninni, þvert ofan i játningarnar um hina blómlegu uppbyggingu i atvinnulifinu og athafnamennina, sem er að finna „ótrúlega viða i sjávarplássunum út um landið”? Ástæðan virðist sú, að höfundur Reykjavik- urbréfsins þolir ekki, að við hlið einkafram- taksins standa samvinnufélögin nú að mikil- vægri uppbyggingu til að tryggja afkomu fólksins i byggðarlögunum, þvi að bréfritarinn fullyrðir „að opinber lánafyrirgreiðsla fæst tæpast til frystihúsa nema kaupfélagið á staðn- um standi fyrir byggingunni”. Hér er auðvitað farið með staðlausa stafi. Engin mismunun hefur átt sér stað og i áætlun sem lokið er við um uppbyggingu frysti- húsanna á þessu ári hafa eigendur frystihúsa setið við sama borð og áætlunin gerð i sam- ræmi við áform þeirra og óskir og i samráði við viðskiptabanka viðkomandi. Og svo segir höfundur Reykjavikurbréfs frá einum stað, þar sem kaupfélagið er að byggja upp frystihús og kemst svo að orði: „Þó er þessi blómlega byggð talandi tákn um það, hverju hreiðarlegt samstarf samvinnufyrir- tækis og einkaaðila getur fengið áorkað”. Þarna kemst höfundur Reykjavikurbréfs að kjarna málsins. Mættum við fá fleiri slik Reykjavikurbréf. —TK TÍMINN 9 L. Brekhovskikh, meðlimur í sovézku vísindaakademíunni: Samvinna um haffræði- rannsóknir er nauðsyn Haffræðivísindi í heiminum standa nú frammi fyrir mjög mikilvægum verkefnum Með ári hverju vex fjöldi þeirra bóka, sem um hafiö fjalla, enda hafa viðfangsefni haffræðinnar orðið æ fleiri og fjölbreyttari. Til að finna á- stæðurnar fyrir þessum aukna áhuga er rétt að gera sér nokkra grein fyrir þvi hlut- verki, sem hafið gegnir á þessari plánetu nú á dögum. I fyrsta lagi er hafið mikil fæðulind. Fiskveiðar leggja til sjötta hlutann af öllu próteini úr dýrarikinu, sem mannkyn- ið neytir i dag. Arið 1970 voru framleidd meir en 20 kg. af sjávarafuröum á hvert mannsbarn í heiminum. Þá er miklar auðlindir að finna i hafsbotninum. Fimmti hluti af oliu- og gasframleiðslu heims er nú unninn á botni landgrunns. I ýmsum löndum er nú verið að gera athuganir á þeim möguleika, að nýta einnig úthafshallann, sem tek- ur við af landgrunninu, og jafnvel botn sjálfs úthafsins. Sérstaklega væri freistandi að geta nýtt járn- og manganlög, sem eru dreifð yfir stór svæði á botni úthafsins. Hafið er mikilvæg sam- gönguleið. Arleg farmgjöld þeirra tugþúsunda af flutn- ingaskipum, sem höfin rista, nema sem svarar samanlögðu verðmæti þeirrar fæðu og ann- arra náttúruauðæfa, sem i sjó- inn eru sótt. Með áreiðanlegri veðurspám og spám um sigl- ingaskilyrði ættu vöruflutn- ingar á sjó aö geta orðiö mikl- um mun ódýrari. Höfin eru „lungu” jarðarinn ar. Plöntusvifið i sjónum fram leiðir með kolsýrutillifun um helming alls þess súrefnis, sem i andrúmslofti jarðarinn- ar er að finna. Hafið býr yfir mikilli orku, bæði „mekaniskri” og hita- orku, sem færist til milli þess og gufuhvolfsins. Þess vegna er veörið á meginlöndunum mjög háð þeim breytingum, sem verða i hafinu og loft- hjúpnum yfir þvi. Jafnframt þessu gegnir haf- ið svo enn einu hiutverki. Gif- urlegu magni af iðnaðarúr- gangi og sorpi er fleygt i sjó- inn, eða berst i hann með ám og fljótum. Hafsvæði þau, er aö iönþróuðum rikjum liggja, eru menguð af kvikasilfri, blýi, skordýraeitri (t.d. DDT) og oliuefnum I miklu meira magni, en lög leyfa. Mengun- arsvæðið nær hundruð kiló- metra út frá ströndinni. Verði haldið áfram að fleygja úr- gangi I sjóinn i sama mæli og nú (og magnið mun satt að segja fara vaxandi, ef róttæk- ar ráöstafanir eru ekki gerð- ar, þó ekki væri nema af þeirri ástæðu einni, aö oliu- og gas- vinnsla á landgrunninu hlýtur að aukast), kann það að valda óviðráðanlegum breytingum á vistfræðikerfi hafsins, og get- ur það haft mjög alvarlegar afleiðingar I för með sér. VISINDAMENN um heim allan reyna að skyggnast bet- ur inn i leyndardóma hafsins, bæði til að nýta auðæfi þess til hins ýtrasta og um leið til að valda ekki óbætanlegum spjöllum á þvi. Sovézkir vis- indamenn taka virkan þátt i rannsóknum á úthafinu. Af störfum þeirra á siðustu árum má nefna eftirfarandi: Nákvæmar rannsóknir á hreyfingum Atlanzhafsins leiddu til þess, að uppgötvaðir voru tveir nýir neðansjávar- straumar. Annar þeirra, Lom- onsov-straumurinn liggur eins og mjótt band meðfram mið- Sovézkt hafrannsóknaskip flöggum prýtt. baug. Hinn, sem er þekktur undir nafninu Antillo-Guiana, teygir sig yfir þúsundir kiló- metra meðfram noröaustur- strönd Suður-Ameriku. Sovézkir visindamenn urðu fyrstir til að skipuleggja meiri háttar svæðisrannsóknir á At- lanzhafi. Samtima mælingum á straumum og hitastigi á mismunandi dýpi var haldið áfram i sex mánuði samfleytt á 17 stöðum. Þessar rannsókn- ir leiddu i ljós athyglisverða uppgötvun. Svo virðist sem fyrirbæri er minna á hvirfil- bylji I gufuhvolfinu geti átt sér stað i hafinu. Visindamenn frá Sovétrikj- unum taka einnig þátt i mörg- um alþjóðlegum áætlunum um hafrannsóknir. Þeir hafa t.d. lagt fram sinn skerf til rann- sókna á Indlandshafi, á Kuro- shio-svæðinu, á Karibahafi og Miðjarðarhafi i samvinnu við aörar þjóðir. HAFFRÆÐIVISINDI i heiminum standa nú frammi fyrir mjög mikilvægum verk- efnum. Lausn þeirra er undir þróun rannsóknartækni komin ásamt samstilltum átökum og skipulagðri samvinnu visinda- manna frá ýmsum löndum. 1 fyrsta lagi þarf að búa til hitavatnsaflsfræðilegt likan (thermohydrodynamic mod- el) af heimshöfunum. Slikt lik- an á að gera okkur kleift að lýsa aflfræöilegum fyrirbær- um i sjónum, allt frá strauma- kerfi alls knattarins til ör- smárra gára á yfirborði hafs- ins. Með aðstoð sliks likans ætti að reynast unnt að segja fyrir um þessi fyrirbrigði með nokkrum fyrirvara. Þetta er nauðsynlegt, bæði fyrir flutn- inga á sjó og eins fyrir ýmsar aðrar greinar haffræöinnar, sérstaklega hafliffræði og haf- efnafræði til að ganga úr skugga um tilflutning næring- arefna, kemiskra efna og mengunarvalda. Ekki er siður aðkallandi að útbúa heilsteypt likan af hringrás i hafi og gufuhvolfi og gagnverkanir þeirra. Lausn þessa vanda er óhjá- kvæmileg forsenda fyrir þvi, aö unnt verði að finna aðferðir til aö gera langtima veðurspár fyrirhnöttinn. Ekki þarf að út- skýra þá miklu þýðingu, sem slikar spár myndu hafa fyrir atvinnulif og þjóðarbúskap, einkum þó uppskeru. Fyrsta stóra skrefið i þessa átt verður alþjóðleg áætlun um rann- sóknir á hegðun gufuhvolfsins. Samkvæmt henni verða fram- kvæmdar viðfeðmar rann- sóknir á hitabeltissvæði At- lanzhafsins 1974, og mun fjöldi skipa og flugvéla frá mörgum löndum taka þátt i þeim. Þá er og nauðsyn að byggja llffræðillkan sjávarins. 1 þvi skyni þarf að athuga hlutverk og hátterni hverrar lifandi veru, allt frá smásæjum lif- verum til spendýra. Liffræði- likan sjávarins er nauðsynlegt til að veita nánari vitneskju um lifforða hafsins og til að skapa visindalegar forsendur fyrir skynsamlegri hagnýt- ingu hans. Aframhaldandi skipulagslaus rányrkja á lifi hafsins gæti rýrt geysilega ýmsa mikilvæga hlekki i lif- kerfi sjávarins og að lokum leitt til mikillar skerðingar á lifforða hans. ENN eitt takmarkið er efna- fræöilegt likan hafsins, en það krefst rannsókna á efnasam- setningu sjávarins og botn- falls I honum og þekkingar á orsökum breytinga á efna- samsetningu i hafdjúpunum. Visindamenn hafa einkum áhuga á efnaskiptum milli sjávar og hafsbotns annars vegar og sjávar og lofthjúps hins vegar. Sé efnafræðilegt likan ekki fyrir hendi, er ógjörningur að búa til liffræði- legt likan og ráða margar helztu gátur sögu sjávarins og þróunar hans nú á timum. Enn fremur þarf að útbúa jarðfræðilegt likan af jarð- skorpunni undir heims- höfunum. Þetta er nauðsyn- legt til að gera sér grein fyrir hnattrænum myndunarferlum og til að finna nýtileg jarðefni. Þá eru veðurspár óhugsan- legar á jörðinni án þess að til- lit sé tekið til hinna viðáttu- miklu svæöa, sem hafið þekur: það er ógjörningur að ski[ja jarðfræðisögu hnattarins á þess að rannsaka jarðfræði hafsbotnsins. I jarð- fræðilikan verður einnig að fella jarðeðlisfræðilega þætti sjávarins, svo sein þyngdar aflssviö, segullsvið og hita- streymi frá jarðskorpunni. Siðast en ekki sizt er það verkefni að rannsaka hafiö sem dvalarstað fyrir mann- inn. An þess verður ókleift að rannsaka sjóinn sjálfan að öðru leyti, nýta auðlindir hans og koma tæknibúnaði fyrir á botni hafdjúpanna og starf- rækja hann þar. Bygging framangreindra iikama er ótrúlega erfið við- fangs vegna fjölbreytni Framhald á bls. 19

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.