Tíminn - 14.08.1973, Qupperneq 15
Þriðjudagur 14. ágúst 1973.
TÍMINN
15
FÁTT GETUR BJARGAÐ
BLIKUNUM FRÁ FALLI
íslandsmeistarar Fram unnu þd á AAelavellinum 2:1 og tryggðu þar með
stöðu sína í 1. deild. Staða Breiðabliks er nær vonlaus
islandsmeistarar Fram i knatt-
spyrnu eru nú komnir i örugga
höfn i 1. deildarkeppninni, eftir aö
þeir lögðu Breiðablik að velli á
laugardaginn. Vegna tapsins get-
ur ekkert nema kraftaverk bjarg-
að Breiðabliki frá falli niður i 2.
deild. Blikarnir hafa aðeins hlotið
tvö stig i 1. deildinni, eða fimm
stigum minna en næsta lið. Leik-
ur Fram og Breiðabliks, sem fór
fram á Melavellinum, var leiðin-
legur á að horfa, enda aldrei
skemmtilegir leikir leiknir I 1.
deild á Melavellinum. Framarar
voru mun betri í leiknum, þeir
voru óheppnir að skora ekki
meira en tvö mörk.
Framarar náðu forustunni á 25.
min fyrri hálfleiks, þegar Asgeir
Eliasson skoraði eftir fyrirgjöf
frá Guðgeiri Leifssyni. Guðgeir
tók aukaspyrnu fyrir utan vita-
teig — sendi knöttinn til Asgeirs,
sem spyrnti með utanfótarsnún-
ingi i hliðarnetið. Eftir markið
náðu Framarar tökum á leiknum
og sóttu meira. Breiðabliki tókst
að jafna 1:1 á siðustu sek. fyrri
hálfleiks. Hreiðar Breiðfjörð átti
þá gott skot frá vitateigshorni —
knötturinn lenti uppi undir
þverslá og söng i netinu.
Breiðabliksmenn komu tviefld-
ir til leiks i siðari hálfleik og náðu
tökum á leiknum. Þeir sóttu mun
meira og voru liflegri. A 18. min.
gerðist atvik, sem braut niður
Breiðabliksliðið. Eggert Stein-
grimsson skoraði þá mark fyrir
Framliðið, en hann var greinilega
rangstæður, þegar hann fékk
knöttinn frá Jóni Péturssyni.
Markið var dæmt gilt. Við þetta
brotnuðu Blikarnir og Framarar
náðu aftur tökum á leiknum og
sóttu stift, en þeim tókst ekki að
skora fleiri mörk, þrátt fyrir-
mörg góð marktækifæri.
Blikarnir fengu gott tækifæri til
að jafna undir lokin, þegar Guð-
mundur Þórðarson (greinilega
rangstæður) komst með knöttinn
upp að markteig og spyrnti að
marki. Knötturinn var á leiðinni i
netið — á siðustu stundu bjargaði
Þorbergur Atlason, snilldarlega,
með þvi að kasta sér og slá knött-
inn I horn. Stórkostleg tilþrif hjá
Þorbergi.
Með þessu tapi er nær öruggt,
að Blikarnir falli niður i 2. deild.
Breiðabliksliðið, eins og það er i
dag, á ekkert erindi i 1. deild.
Framliðið náði ekki að sýna sitt
bezta i þessum leik, það var
greinilegt, að liðið, eins og önnur
1. deildarlið, eiga ekki heima á
malarvöllum. Það er allt annað
að leika á möl, en á grasi. Knött-
urinn hoppar meira á malarvelli
og leikmenn liðanna áttu oft erfitt
með að reikna knöttinn út. Beztu
menn hjá Fram voru þeir Ömar
Arason, Marteinn Geirsson og
Sigurbergur Sigsteinsson,— SOS.
EGGERT STEINGRIMSSON....sést hér spyrna að marki Breiðabliks. Hann skoraði úrslitamarkiö fyrir Fram. (Timamynd Róbert)
ÞORSTEINN VARÐI
VÍTASPYRNU Á SÍÐ-
USTU STUNDU .“.v; "’"
Um 2500 áhorfendur héldu niðri i
sér andanum á Akureyri á laug-
ardaginn, þegar Sævar Jónatans-
son undirbjó sig til að taka vita-
spyrnu gegn Kefiavik rétt fyrir
leikslok, en þá var staöan 0:0. Nú
er sigurganga Keflvikinga stöðv-
uð, sögðu menn. En Sævari brást
bogalistin, Þorsteinn ólafsson,
landsliðsmarkvörður náði aö
spyrna i knöttinn með fætinum,
eftir að hann hafði hent sér i öfugt
horn — knötturinn skoppaöi eftir
marklinunni, i stöng og þaöan út á
völlinn, þar sem Kefivikingar
voru ekki lengi að koma honum af
hættusvæðinu.
Keflvikingar voru svo sannar-
lega með meistaraheppnina með
sér á Akureyri — það er ekki á
hverjum degi, sem markverðir
ná að verja vitaspyrnu. Með
þessu jafntefli er draumur Kefl-
vikinga um fullt hús stiga búinn.
Hinn langþráði draumur varð að
engu á Akureyri. Akureyrarliðið
hefur tekið miklum framförum i
sumar, liðið leikur nú allt aðra
knattspyrnu, en i byrjun Islands-
mótsins. Vörnin er mjög góð, og
þeir Jóhannes Atlason og Gunnar
Austfjörð verða sterkari með
hverjum leik. Þessir dugnaðar-
menn hafa svo sannarlega smitað
út frá sér, Akureyrarliðið er nú
fullt af leikgleði og baráttuvilja.
Keflavikurliðið lék með svipuð-
um styrkleika og fyrr i mótinu.
Mótstaðan á Akureyri kom leik-
mönnum liðsins svo sannarlega á
óvart. Nú er kannski hætta á, að
Keflavikurliðið fari að slappa af
— þvi að nú er ekkert til að keppa
að fyrir liðið. Draumurinn var
fullt hús stiga — sá draumur varð
að martröð á Akureyri. Islands-
meistaratitillinn er i öruggri höfn
i Keflavik. Nú verða leikmenn
Keflavikurliðsins að keppa að þvi
að vinna bikarkeppnina, og þar
0:0 jafntefli við
Keflvíkinga
og gerðu
draum þeirra um
fullt hús stiga í
1. deild að engu
með að vinna öll mót, sem liðið
hefur tekið þátt i, i sumar.
BR.
Heppnin
var ekki
með
Eyjo
mönnum
Þeir voru ekki á
skotskónum uppi
á Skaga og
töpuðu 0:1
Eyjamenn voru svo sannarlega
ekki á skotskónum uppi á Skaga á
laugardaginn. Þeir töpuðu fyrir
Skagamönnum 0:1 i ieik, sem þeir
hefðu átt að vinna með þriggja til
fjögurra marka mun. Eyjamenn
sóttu nær stöðugt í fyrri háifleik,
en þeir voru ekki á skotskónum.
Þá sýndi Davið Kristjánssson
stórgóða inarkvörzlu og bjargaði
tvisvar sinnum hreint snilldar-
lega.
Þegar Eyjamenn sóttu sem
mest, náðu Skagamenn skyndi-
upphlaupi. Jón Alfreðsson og
Matthias Hallgrimsson brunuðu
upp völlinn á 42. min. og Matthias
renndi knettinum i netið, framhjá
úthlaupandi markverði.
Leikurinn jafnaðist nokkuð i
siðari hálfleik, þá misnotaði
Björn Lárusson vitaspyrnu fyrir
Skagamenn. Þá visaði dómari
leiksins, Hinrik Lárusson, Tóm-
asi Pálssyni, Vestmannaeyjum,
útaf leikvelli. Undir lok leiksins
sóttu Eyjamenn meira, en þeim
tókst ekki að jafna og töpuðu þar
með tveimur dýrmætum stigum, i
baráttunni um UEFA-sætið næsta
ár.
Ekkert
óvænt í
2. deild
Þrir lcikir voru lciknir I 2.
deildarkcppninni um helgina.
Ekkcrt varð um óvænt úrslit,
Völsungar. FH og Þróttur frá
Reykjavik unnu sina leiki, en þcir
fóru þannig:
Völsungar-Armann 1:0
Selfoss-F'H 0:2
Þróttur R.-Þróttur N 2:1
•
West Ham
tapaði í
vítaspyrnu
keppni
Bæði Bristolliðin eru komin i
fjögurra-liða úrslitin i Watney
Cup keppninni i Englandi. Bristol
Rovers sló Lundúnaliðið West
Ham út úr keppninni á laugar-
daginn i vitaspyrnukeppni. Leik-
menn Rovers skoruðu úr öllum
vitunum fimm, en leikmenn West
Ham misnotuðu eitt, og lauk þvi
vitaspyrnukeppninni 5:4.
Urslitin i keppninni urðu þessi:
Bristol R,—West Ham 1:1 (5:4).
Plymouth—Stoke 0:1.
Petersborough—Bristol C. 1:2.
Mansfield—Hull 0:3.
A morgun verður leikið i 4-liða
úrslitunum, þá mætast Bristol
Rovers og Hull og Bristol City og
Stoke.