Tíminn - 17.08.1973, Síða 2

Tíminn - 17.08.1973, Síða 2
2 TÍMINN Föstudagur 17. ágúst 1973. Amerísk bogaskemma til sölu, tilbúin til uppsetningar. Stærð 12,75x ca. 28 m. Upplýsingar á kvöldin i sima 4-02-63. Horfinn hestur Aðfaranótt 30. mai s.l. hvarf hestur, venjulega kallaður „Fóstri” úr heima- högum i Höfða, Biskupstungum. Hesturinn er ljósjarpur að lit, sérlega spakur og heimakær. Mark sneitt aftan hægra og biti framan bæði. Frekar litið fax. — Nánari uppl. veita Magnús Vig- lundsson, Austurstræti 17, simar 13057 og 41523, og Ómar Guðjónsson, Höfða, simi um Aratungu. FORD BRONCO Allar gerðir af Ford Bronco, árgerð 1073 eru nú uppseldar Næsta sending af Ford Bronco, árgerð 1074, vænt- anleg i október. í nóvember n.k. munum við fá sendingu af 1974 árgerð Ford Bronco, 6 cyl. með stærri vél, krómlistum, hjólkoppum, klæðningu i toppi, varahjólsfestingu og framdrifslokum. Verð kr. 625.000,00 Ford Bronco, 8. cyl. með vökvastýri og sama útbúnaði. Verð kr. 665.000,00 Athugið, að við getum boðið Ford Bronco, árgerð 1974 án aukabúnaðar, fyrir kr. 585.000,00 Bílar þessir verða til afgreiðslu í nóvember/desember n.k. FORD SVEINN EGILSSON HF FORD HÚSINU SKEIFUNN117 SÍMI 85100 Er hugmyndin ný? Hr. ritstjóri: 1 blaði yðar snemma i sumar og aftur miðvikudaginn 18. júli sl., er sagt frá „nýrri” gerð af súrheys- turnum, sem verið sé að reisa austur i Árnessýslu. t tilefni þess- arar „nýjungar” vil ég benda á eftirfarandi: Sumarið 1971 teiknaði ég og smiðaði módel af súrheysturni, sem ég hugsaði mér að smiðaður yrði úr járni eða áli. Hugmynd þessa sýndi ég m.a. bændum og framámönnum i landbúnaði hér i Borgarfirði til að fá umsögn þeirra um slika turna. Það furðu- lega skeði, að þessir góðu menn sáu ekkert merkilegt við þessa hugmynd og töldu henni flest til foráttu. Þá súrheysturna, sem byggðir hafa verið á Islandi á liðnum ár- um og eins þá, sem byggðir eru þessa dagana austur i Árnes- sýslu tel ég vera misheppnaða að mörgu leyti. Þegar farið er um ýmsar sveitir þessa lands, þá verða á vegi manns mörg bænda- býlin, sem farið hafa i eyði. Á mörgum þeirra bæja er allvel, byggt, þar á meðal peningshús og súrheysturnar. Væri nú ekki heillavænlegri þróun i byggingamálum sveita, að byggja súrheysturnana og peningshúsin þannig, að bóndi, sem hættir búskap eða breytir bú- skaparháttum, geti tekið nefndar byggingar i sundur og komið þeim i fé, i stað þess að láta þær grotna niður eða ryðga i sundur, landinu og bændum sjálfum til skammar? Það er furðulegt, að þau sam- tök, sem eiga að sjá um hagsmuni bændastéttarinnar og hafa á sin- um snærum sprenglærða ráðu- nauta, skuli ekki vera fyrir löngu búin að koma auga á þá vitleysu, sem einkennir þessi mál öll. Það er engin nýjung að byggja súrheysturna úr járni eða áli, en það er löngu úrelt að sjóða þá saman eins og venjulega oliu- tanka. Við höfum fyrir nóg af minnisvörðum um þær misfellur, sem orðið hafa á i byggingamál- um sveitanna, þótt þessu sé ekki haldið áfram. Borgarnesi, 7. ág. 1973. Magnús Thorvaldsson. Lokað eftir hádegi i dag vegna jarðarfarar Mariu Niels- dóttur. Belgjagerðin. IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK Nemendum, sem stunda eiga nám i 2. bekk á fyrstu námsönn, en hafa ekki lokið 1. bekkjar prófum með fullnægjandi árangri gefst kostur á að endurtaka próf dagana 23.-27. ágúst. Innritun fer fram i skrifstofu skólans 20.-22. ágúst. Skólastjóri. SOLIIM með djúpum slitmiklum munstrum. Tökum fulla óbyrgð á sólningunni. Hjólbarðaviðgerðir. Vörubílamunstur — Fóklsbílamunstur — Snjómunstur — Jeppamunstur. BARÐINNf ÁRMÚLA 7 SÍMI 30501 VORUBILSTJORAR Nýtt mynstur Slitmikið mynstur Mynstrið sem gefur beztu endinguna, ásamt mjög góðum spyrnueiginleikum Sólum stærðir: 1100 x 20 —1000 x 20 — 900 x 20 — 825 x 20 750x16 SOLNING H.F. Reykjavik — Höfðatúni 8 — Simi 1-12-20 Kópavogi — Nýbýlavegi 4 — Simi 43988.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.