Tíminn - 17.08.1973, Blaðsíða 3

Tíminn - 17.08.1973, Blaðsíða 3
Föstudagur 17. ágúst 1973. TÍMINN 3 GROSKA UAA LAND ALLT Bygging handa ein stæðum foreldrum MIKIL gróska er nú i atvinnulifi um land allt. Það er sama, hvar borið er niður, allir hafa söniu sögu að segja i þvi efni. Atvinna er svo mikil, að ekki hefst undan þótt unnið sé myrkranna á milli og vel það, helga daga sem virka. Ingimundur Hjálmarsson, fréttaritari á Seyðisfirði, sagði, að þar vantaði fólk i flestar at- Samninga- nefnd skipuð vegna kjara ríkisstarfs- manna TIL UNDIRBÚNINGS væntan- legum saningum á komandi hausti um kjör rikisstarfsmanna skv. lögum nr. 46/1973 hefur fjár- málaráðherra skipað nýja samninganefnd til að annast samninga af sinni hendi. t nefndinni eiga sæti: Brynjólf- ur Ingólfsson, ráðuneytisstjóri, Hallgrimur Sigurðsson fram- kvæmdastjóri, Indriði H. Þor- láksson deildarstjóri, Jakob Björnsson, orkumálastjóri, og Jón Sigurðsson, ráðuneytisstjóri, sem jafnframt er formaður nefndarinnar. Skipaður varamaður i nefndinni er Baldur Möller, ráðu- neytisstjóri, en ritari nefndar- innar er Þorsteinn Geirsson, deildarstjóri launadeildar fjár- málaráðuneytisins. MIKIL ásókn er I vinveitinga- leyfi. Voru tvær slikar umsóknir til umræðu á siðasta fundi borgarráðs — önnur frá Leikhús- kjaliaranum, en hin frá veitinga- húsinu Útgarði. Nýir yfirkennar BORGARRAÐ hefur samþykkt ráðningu þriggja nýrra yfirkenn- ara í skólum Reykjavikur. Þessir menn eru Arnfinnur Jónsson i Ármúlaskóla, Þorsteinn Ólafsson, I Laugarnesskóla og Aslaug Brynjólfsdóttir i Foss- vogsskóla. vinnugreinar, þótt mikið sé af skólafólki i sumarvinnu. Oftast nær eru menn að fram undir mið- nætti og sums staðar er unnið alla laugardaga. Afli hefur verið góð- ur að undanförnu, sérstaklega hefur togaranum Gullver gengið vel. Um þessar mundir er unnið að undirbúningi að lagningu oliu- malar á aðalgötu bæjarins og er búizt við að hafizt verði handa i þessum mánuði. Ein átta ibúöa blokk er i byggingu auk nokkurra ibúðarhúsa. Fólki fjölgar á Seyð- isfirði, þótt hægt fari. Óli Halldórsson á Gunnarsstöð- um sagði, að heyskap væri að verða lokið og heyfengur væri góður. Afli báta hefur verið frem- ur rýr að undanförnu, en nóg er samt að gera og vantar reyndar fólk til framkvæmda. Verið er að ganga frá viðlegukanti á hafnar- garðinn og töluvert er af húsum i smiðum. Laxveiði er með bezta móti. Þannig fékk einn maður 22 laxa á einum degi i Hamralónsá á laugardaginn var. Jón Alfreðsson á Hólmavik sagði tið hafa verið rysjótta sið- ustu daga, en heyskapur hefði samt gengið vel. Hins vegar hefði spretta verið svo mikil og góð, að enn væri ekki allt komið i hús. Súrheysturnar væru fullir og þá yrðu menn að þurrka það sem umfram væri. Gæftir hafa verið góðar og afli sæmilegur og at- vinna nóg. Stundum hefur jafnvel verið svo mikið að gera að ekki hefur verið hægt að taka við öll- um fiski og bátar hafa orðið aö sigla austur til Siglufjarðar með aflann og landa þar. Töluvert er byggt af ibúðarhúsum og verið er að endurbyggja sláturhúsið. tbú- um á Hólmavik fór fækkandi þar til i fyrra, en þá fór fólki að fjölga, þótt enn skorti vinnuafl. Borgarráð samþykkti að mæla ekki gegn umsókn Svans Agústs- sonar til vinveitinga i Leikhús- kjallaranum, en um umsókn Halldórs Júliussonar á fram- lengingu vinveitingaleyfis i Út- garði var samþykkt að æskja um- sagnar lögreglustjóra. Sigurjón Pétursson bar fram þá hugmynd, að leitað yrði álits fólks i nálægum húsum um erindi og fengna reynslu af vinveitingum i Útgarði. En Albert Guðmundsson taldi sjálfsagt að veitingahúsið fengi leyfið án sérstakrar rann- sóknar á rekstri þess eftir venju- lega umsögn löggæzlu, og heil- brigðisyfirvalda. FÉLAG einstæðra foreldra er aö undirbúa byggingu fbúöablokkar, sem i eiga að vera fjörutiu til fimmtiu íbúöir, tveggja til þriggja herbergja, i tengslum viö nauðsynlegar dagvistunarstofn- anir. Er liklegt, aö lóö fáist á Eiðsgranda. I félaginu eru nú 2300 manns, og á margt af þessu fólki viö örðug- leika að etja, einkum varðandi húsnæði og barnagæzlu. Þar á meðal er fólk frá heimilum, sem splundrazt hafa vegna hjóna- skilnaðar. Klp-Reykja vík. Tveir ungir menn, sem ekið hafa um Norður- land undanfarna daga á bifreið með E-númeri gerðu sér i fyrri- nótt ferð inn á lögrcglustöðina á liúsavik, þegar þeir vissu að þar var ekki nokkurn mann að finna. Þeir félagar brutu upp glugga og komust þar með inn i stöðina. Ekki höfðu þeir neinn sérstakan áhuga á að finna þar verði lag- anna, heldur að finna eitthvað fé- mætt, sem þeir gætu haft á brott með sér. Það gerðu þeir, þvi þar komust þeir m.a. yfir einar fjórar byssur, sem sumar hverjar voru þó orðnar heldur litilfjörlegar, labb-rabb tæki, hluta úr frosk- mannsbúningi og fl. og loks um 4000 krónur i peningum, sem lög- reglan var með i geymslu. Með þennan feng fóru félagarn- ir út i bifreiðina og komu sér sið- an sem hraðast á brott úr bænum. Þegar lögregluþjónarnir komu á vakt, en ekki er höfð vakt á stöð- inni yfir nóttina, féll grunur þeirra strax á ákveðna menn, sem fyrr um kvöldið höfðu komið til þeirra, og spurt um hvar þeir gætu tjaldað. Þegar þeir fundust Markmiö félagsins er að leigja ibúðirnar á sanngjörnu verði og veita félagslega þjónustu á með- an fólk er að átta sig á breyttum högum og koma undir sig fótun- um á ný. Væntir það til opinberr- ar aðstoðar, en snýr sér einnig til almennings i þeirri von, að ófáir vilji stuðla að þvi með nokkru framlagi, að hin fyrirhugaða bygging geti risið fyrr en ella. Mun það þvi senda ýmsum bækl- ing og giróseðli til útfyllingar, og munu bankar veita framlögum móttöku, ef fólk vill láta eitthvað af hendi rakna. ekki á tjaldstæðinu, var hringt i allar nálægar stöðvar og lýst eftir bilnum, sem þeir óku. Hann fannst siðar um daginn á tjaldstæðinu á Akureyri og þeir félagar þar rétt hjá. I fórum þeirra fannst allur fengurinn — nema hlutirnir úr froskmanns- búningnum, og er nú allt komið á sinn stað aftur á lögreglustöðinni á Húsavik. Félagarnir fengu aftur á móti gistingu hjá lögreglunni á Akur- eyri, og er nú ferðalagi þeirra um sveitir Norðurlands lokið i bili a.m.k. Ný brú d Langd i SUMAR hefur ný brú verið gerö á Langá á Mýrum, og er smiöi hennar lokiö. Um þessár mundir er verið að gera vegarspotta báðum megin brúarinnar, og er það verk einnig komið langt á leið. FJALLA UM VÍN- VEITINGALEYFI Rændu lögreglu- stöðina á Húsavík Kekkonen er hin mesta aflakló Kekkonen Finnlandsforseti gerir það ekki endasleppt. A hádegi i gær, þegar við höfð- um samband við veiðihúsið við Viðidalsá hafði karlinn þegar fengið 22 laxa á tveimur og hálfum degi og var afla- hæstursinna samferðamanna, en þeir eru sjö að tölu. Finn- landsforseti fékk 8 laxa fyrsta daginn 9 laxa þann næsta og fram að hádegi i gær hafði hann krækt sér i fimm i viðbót og ekkert lát virtist ætla að verða á veiðinni hjá honum. Stærsti laxinn, sem hann hefur dregið ennþá var 17 pund. Hann hafði sett í fleiri stóra, m.a. einn fimmtán punda og annan fjórtán punda. Sagði Gunnlaug Hannesdóttir, ráðskona í veiðihúsinu í viðtali við Veiðihornið, að flestir lax- arnir, sem forsetinn hefur fengið, hafi verið vel vænir og væri auðséð á Kekkonen að hann vær-i mjög ánægður með veiðina. Kekkonen hefur verið mjög heppinn með veiðiveður. Sæmilega hlýtt hefur verið, að mestu sólarlaust, en rigningar hefur gert öðru hverju, sem sagt úrvals veiðiveður. Áin er vatnsmikil og nóg af laxi er i henni. Við veiðarnar hefur Finn- landsforseti notað spón og flugu jöfnum höndum, en flesta fiskana hefur hann fengið á fluguna. Finnarnir eru að sögn Gunnlaugar ákaf- lega iðnir við veiðarnar, enda hefur þeim flestum gengið vel, þótt enginn jafnist á við sjálf- an forsetann hvað veiðiheppni snertir. Einn Islendingur hef- ur verið með Finnunum við veiðarnar, en það er Ingi- mundur Sigfússon i Heklu. Kekkonen hefur sýnt það og sannað i Viðidalsá að hann er mikill laxveiðimaður, en þetta er ekki eini veiðiskapurinn, sem hann fæst við. öllu þekkt- ari er hann fyrir veiðitúrana sem hann skreppur i öðru hverju til Sovétrikjanna, en þar fer hann oft i veiðitúra með ráðamönnum þess mikla stórveldis. Er sagt að oft séu stærstu stjórnmálaákvarðanir Finnlands teknar, þegar Kekkonen er á bjarnarveiðum með ráðamönnum Ráðstjórn- arrikjanna. 841 lax kominn úr Viðidalsá Gunnlaug Hannesdóttir tjáði Veiðihorninu að nú væru komnir 841 laxarúr Viðidalsá. Er það heldur betri veiði en var á sama tima i fyrra. Átta stangir eru leyfðar i ánni og hafa útlendingar mest verið við veiðarnar og verða út ágúst. Þá taka Islendingarnir við ánni og verða til loka veiði- timans hinn 15. september. Ágætt í Andakilsá Benedikt Jónmundsson, hjá Stangaveiðifélagi Akraness, sagði Veiðihorninu að veiðin hefði gengið vel það sem af er i Andakilsá. 237 laxar eru nú komnir á land og er það nokk- uð betriveiðien á sama tima i fyrra. Veiðitiminn hefst ekki fyrr en 1. júli og eru tvær stangir leyföar i ánni. Andakilsá er fremur litil og veiðisvæðið er stutt, þannig að veiðin hlýtur að teljast góð. Spónn er ekki leyfður i ánni, þannig að öll veiðin hefur fengizt á flugu og maðk. Lax- inn i ánni hefur ætið verið fremur smár, meðalþyngdin sjö pund. Veiðitimanum i Andakilsá lýkur 15. september. Framhald á 5. siöu. Útgerð Vísls- manna á Alþýðublaðinu Eins og kunnugt er tóku út- gefendur Visis að sér útgerö og rckstur Alþýöublaðsins. Það var Gylfi Þ. Gislason, sem aö þessuin samningum stóð fyrir hönd Alþýðuhlaös- ins. Vlsis-menn settu inarg- vislcg skilvrði og in.a. þaö, að Alþýöublaöiö liætti aö vcra siðdegisblað og yrði árdegis- blað eins og Timinn, Þjóövilj- inn og Mbl., þannig að V'isir gæti setið einn aö siödegis- markaönum. Aöilar að Blaða- prenti létu þessa breytingu á útgáfutima Alþýöublaösins óátalda, þrátt fyrir að i stofn- samningi Blaöaprents um samstarf fjögurra dagblaöa um rekstur prentsmiöju væri tekið fram aö Alþýöublaöiö skyldi vera siðdcgisblað eins og það var, er samningur er geröur. Gylfaginning Vísismanna Eftirþvi sem spurzt hefur hafa samningar Visismanna um að koma samkeppnisaö- ilanuni á síödegismarkaönum út af markaönum verið æöi hagstæöir Visi. Alþýöublaðiö liefur verið gcfið út að undan- förnu i „sensasjón-stil” cn slik útgáfa hæfir lielzt til sölu á siðdegismarkaöi. Margvisleg- ir árekstrar eru þvi i uppsigl- ingu. Uin þetta „sanistarf” Visis og Alþýöublaðsins fjallar „úþ” i Þjóöviljanum i fyrra- dag og segir m.a.: „Eitlhvaö mun krötum þykja sem þcir ráði litlu um málgagn sitt, þvi á dögunuin leit dagsins Ijós blað, sein nefnt var Neytandinn og Alþýðuflokkurinn skráður út- gefandi. Ætluðu Alþýðuflokksmenn- irnir, sem að útgáfunni stóðu að dreifa blaöinu með Alþýðu- blaöinu. Þvi neituðu útgáfu- stjórar Alþýöublaðsins, Visis- mennirnir. Stóð svo þar til doktorGylfi skarst i leikinn og lékk útgálustjóra Alþýðu- blaðsins til að drcifa málgagni Alþýðuf lokksins. Þótti það karlmannlega gert af doktornum. En Visismenn scldu sig dýrt eins og lyrri daginn. Við Nóatún stendur veitingahúsið Röðull. i þvi húsi er til sölu ein hæð. Hana lofaöi doktorinn að kaupa á nafni Alþýöuflokksins og gaf það loforð út i vor. Vísismenn áttu siöan að eignast hæöina smátt og smátt, cn liaida þess i stað áfram að sjá um útgáfu Alþýðublaösins. En áform doktorsins komust upp i tima, og gifurleg óánægjualda rcis innan Alþýðuflokksins, og varð ekki lægð með öðru en Gylfi sagði heila málið klára lygi. Fyrir að fá að dreifa Ncy tandanum , málgangi Alþýðuflokksins, varð Gylfi að endurnýja loforð sitt við Visis- menn um húsakaupin. Og til að sýna doktornum aö full al- vara væri á bak við húsa- kaupahugmyndina, h ó t a Visismcnn aö hætta að annast útgáfu Alþýðublaðsins um næstu mánaöamót, verði lof- orðið ekki orðið að verulcika þá • Það cr aldeilis gott að vera prófessor og doktor i viöskipt- um þegar við slika menn er að eiga sem Visismenn, enda eru yfirburðir Gylfa greinilegir i þessum viðskiptum, eins og sjá má. En nú gctur vcl farið svo aö Gylfi þurfi alis ekki aö standa við loforðið. Alþýðublaðið verði síðdegisblað Þannig er málunum nefni- lega liáttað að ritstjórn Framhald á bls. 19

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.