Tíminn - 17.08.1973, Side 10
10
TÍMINN
Föstudagur 17. ágúst 1973. Föstudagur 17. ágúst 1973.
TÍMINN
11
NÁTTÚRUHAMFARIRNAR í VESTMANNAEYJUM
hvarflar stundum hitt og
þctta aft mér hcr á Laugarvatni,
þar sem ég hefi hér stundum
dvaliö um tima hin siðustu ár.
M.a. kemur mér nú i hug spjall
okkar Kögnvalds Ólafssonar
arkitekts, en honum kynnist ég
ögn norður á llólum I 11 jaltada 1
sumarið 1911. !>að vildi þá svo til,
að ég gerðist þar verkstjóri við
heyskap, en hann vann við
athugun og aðgerð við húsnæði
bændaskólans.
Ég hafði heyrt Rögnvalds getið
sem frábærs kunnáttumanns i
húsagerðarlist, lærðan vel og
mikils metinn. Hann hafði m.a.
teiknað Vifilsstaðahælið, sem
þótti þá mikið til koma, og enn
vitnar um þekkingu hans og list-
feng vinnubrögð. Og Húsavikur-
kirkja hefir þó ekki siður þótt
bera honum slikt vitni.
Þarna á Hólum hafði hann
stjórn á verki, en vann litið
sjálfur, enda ékki heill heilsu,
þótt ekki bæri mikið á, og hygg ég
að hann hafi fremur skoðað þessa
Hólavist sem hvildartima, sem
hann gæti þó notað til gagns lika.
Hann var þvi oft á stjái og
blandaði geði við fólk, hafði af þvi
sjáanlega ánægju, jafnan broshýr
I viðmóti og elskulegur i allri um-
gengni. Og þótt ég væri önnum
kafinn, þótti mér slikur fengur i
rabbi við þennan menntaða
öðlingsmann, að ég notaði hvert
tækifæri til þess að hlusta á þaö
sem hann hafði að segja, og það
var býsna margt, og var hann þó
engin skrafskjóða, sem svo er
kallað. En mér þótti þvi meira til
hans koma, sem ég kynntist
honum betur, þótt aldrei yröu úr
þvi náin kynni að sjálfsögðu.
Rögnvaldur var mikill Is-
lendingur, var stöðugt umræöu-
efni hans margt og mikið, sem
veröa mætti landi og þjóð til
heilla. Hann vakti fyrstur manna
athygli mina á þvi, hvilik nauðsyn
það væri þjóðinni, að eignast sem
fyrst vel menntaða húsagerðar-
menn. Framundan væri þaö stór-
kostlega verkefni, að koma upp
húsakosti yfir alla þjóðina. Þetta
væri viðfangsefni margra ára-
tuga, og i raun og veru mætti
segja allra tima. En hér væri sér-
staklega ástatt, þar sem segja
mætti að allan húsakost vantaði.
Og úr þvi þyrfti að bæta, og sem
fyrst hefjast handa. En það væri
ekki sama hvernig það yrði gert.
Og svo að vel yrði treysti hann
bezt kunnáttumönnum. Ekki sizt
þótti Rögnvaldi nauðsynlegt að
bændur fengju leiðbeiningu um,
hvernig sveitunum yrði sem bezt
séð fyrir hentugum og varan-
legum húsakosti, sem vel færi þar
og ekki yrði f járhag þeirra ofviða.
Má segja að þessi hugmynd
kæmist að nokkru i framkvæmd
siðar með lögunum um Bygginga
og landnámssjóð og leiðbeininga-
starfi Jóhanns Fr. Kristjánssonar
arkitekts, sem óefað varð að
miklu gagni.
Þvi miður man ég nú ekki svo
vel samræður okkar Rögnvaldar,
sem um æðimargt snerust, að ég
þori aö hafa eftir honum
ákveðnar orðræður. En það man
ég vel, hversu oft hann ræddi um
notagildi og endingu húsanna. Og
um ris á þaki, vegna veðurfars-
ins, þykir mér nú að um væri
talað sem sjálfsagðan hlut. Og
það er vissulega verðugt að
minnast Rögnvalds nú, þegar hiö
stilhreina og virðulega verk hans,
Vifilsstaðahælið, sem lengi hefir
ágætlega dugað, er nú að skipta
að nokkru um hlutverk i þjón-
ustunni við þá sjúku og særðu, en
lætur hvergi á sjá um traustleik
og notagildi, þótt sumu sé breytt
þar með nýjum tlma.
En úr þvi að ég hefi nú mao
það, að sjá enn i góðu gengi slika
smíð gamals kunningja og
fremdarmanns á sviði húsa-
gerðar, horfi enn til gamalla stór-
hýsa sem likt er ástatt um, og sé
þau enn svara kalli nýs tima,
verður mér að lita um öxl til
hinna mörgu áratuga siðan við
Rögnvaldur Ólafsson hittumst og
ræddum framtiðina. Og siðan er
margs að minnast og mörgu að
fagna, sem gerzt hefir á þessu
sviði. Við urðum lengi að sætta
okkur við smátt, litið húsnæði og
nauman skammt launa, þvi aö
klipa varð af einu til að koma
ööru fram, sem enn sterkari átti
réttinn, að okkur fannst, meðan
lánamöguleikar voru fáir og
smáir. En við lifðum i voninni,
unnum og unnum og fögnuöum
hverri úrbót. Þær komu lika
smátt og smátt. Og má þá nærri
geta hversu umhugað okkur var
um þaö, að þessar byggingar
kæmu aö sem beztum notum og
entust lengi. og þar stend ég
enn, gamall og reyndur
áhorfandi, fagnandi þvi að sjá
þær risa, og óskandi þess að þær
dugi sem bezt komandi tiö.
Hér á Laugarvatni veröur mér
svo að lita til þeirra stórbygginga
sem hér hafa risið á s.l. rúmiega
fjórum áratugum og allt tengt
skólum, og má vist um það segja
svipurinn sé harla ólikur, og að
hiö nýjasta skeri sig þar úr.
Hin fyrsta skólabygging, sjálfs
Héraðsskólans, rismikil og
tiguleg, hefir jafnan sett svip sinn
á staðinn og og gerir raunar enn.
Þetta minnir á landið, sem við
byggjum, og jafnframt á þá
reynslu ára og alda, að hýbýlin
okkar, stór og smá, þurfi ris, þótt
minna gæti dugaö en hér, til þess
að steypa af sér regnflóði og
krapaelg, sem lsl. veðráttu
fylgir. Og á þetta minnir lika hús
barnaskólans, iþróttaskólans og
menntaskólans. Þaö er mikið og
virðulegt hús enda sjáanlega
mikiö hlutverk ætlað, sem þessi
rúmmikla bygging hefir lika rækt
með prýði, þótt vaxandi vegur
skólans, og ekki sizt þörf sumar-
hótelsins fyrir aukiö gistirými,
kallaði á fleiri byggingar.
Og þær hafa ekki svo mjög látiö
á sérstanda hin siðustu ár. Svefn-
skálar (ef svo mætti nefna þá)
hafa verið reistir i nýjum stil,
llkir kössum i lögun, hinir
snotrustu og vafalaust um sumt
hentugir, en hafa ekki enn fengið
yfir sig hið rétta islenzka þak. Og
á meðan má alltaf búast viö lek-
anum, enda hefir hans þegar
oröið vart.
Þá skal næst nefna byggingu
Húsmæðraskóla Suðurlands, sem
nú mun vera lokið, en unnið hefir
verið að mörg hin siðari ár.
Þessari byggingu er raunar örð-
ugt að lýsa. Hún er hálfgert furðu
srhið, og ekki svo mjög lik skóla,
sem við hóf er reistur og eitthvað
þurft að spara til. Enda mun
þetta hús hafa jafnframt verið
Framhald á bls. 19
Veðurfarið og flötu þökin
Út er komin á ensku á vegum Iceland Review
myndabókin „Volcano — ordeal by fire in Iceland’s
Westmann Islands”.
Er hér um ljómandi fallega og eigulega bók að
ræða, sem lýsir Vestmannaeyjum og náttúruham-
förunum þar. Er gosinu lýst i máli og myndum.
Texti er eftir Árna Gunnarsson en uppsetningu hef-
ur Auglýsingastofa Gisla Björnssonar annazt.
Mynda i bókina hefur verið aflað hjá rúmlega tutt
ugu ljósmyndurum og eru i bókinni margar allra
beztu litmyndir, sem teknar voru i Vestmannaeyj-
um á meðan gosið stóð yfir, en einnig eru myndir
frá Vestmannaeyjum og mannlifi þar, er teknar
voru áður en gosið hófst.
Timinn hefur fengið leyfi útgefenda til að birta
hér tvær af litmyndunum i bókinni og sýnir önnur
Vestmannaeyjar fyrir eldsumbrotin og hin hver
umskiptin urðu er gosið stóð sem hæst.
VOLCANO
ORDEAJ. BY FIRE
INICELANDS WESTMANN ISLANDS
i
I
I
I
1