Tíminn - 28.08.1973, Side 1
IGNIS
FRYSTIKISTUR
RAFTORG SÍMI: 26660
RAFIÐJAN SÍMI: 19294
Hálfnað
erverk
þá hafið er
sparnaður
skapar
verðmæti
Samvinnubankinn
Viðtal við Þórarin Þórarinsson um fund hafsbotnsnefndar:
BLÖNDUOSi
».J!hrtíimt
MÚNAFJÖBDVR
Mjaitai'.
'Brumilxoik
ssjidpr.
£#t3ÍJW%'
Lýsir ráðstefnan í Santiago
fylgi við 200 mílurnar?
Tímabært að setja lög um efnahagslögsögu íslands
SLYSAFLUGVEL KOSTAÐI
KAFARANN LÍFIÐ
Þórarinn Þórarinsson.
— Ti'namynd: Gunnar.
Um þessar mundir eru forsetahjónin á ferö um Vestfirði. Á laugardag-
inn komu þau til ísafjarðar með flugvél Landhelgisgæzlunnar og var
vel fagnaö og lögðust þar allir á eitt, tsfiröingar og veðurguðirnir, þvf
að þeim fagnaði mikill mannfjöldi, og veðrið var eins og þaö getur bezt
orðið.
Leið þeirra mun siðan liggja suður eftir Vestfjörðum með viðkomu á
öllum helztu stöðum og heimsókninni lýkur fimmtudaginn 30. ágúst.
Forsetafrúin, Halldóra Ingólfsdóttir, er ættuð frá tsafirði eins og kunn-
ugt er. Hér á myndinni brosir hún við æskustöðvum sfnum á tsafirði, og
æskufólkið isfirzka brosir við henni.
Klp-Reykjavlk. Eins og áður hef-
ur komið fram I fréttum,nauðlenti
litil flugvél, sem var að koma frá
Nýfundnalandi, í sjónum eina 4 til
6 kilómetra út af Sandgerði á
laugardagsmorgun. Flugmannin-
um tókst að komast i gúmmibát,
en flugvélin sökk nokkru siöar.
í gær voru fengnir menn til að
reyna að ná flugvélinni upp. Var
Báturinn hvarf með
tveimur mönnum
A LAUGARDAGSMORGUNINN
var drukknuðu tveir menn f Hópi f
Þingi. Höfðu þeir farið á einföld-
um plastbáti frá Leysingjastöð-
um á milli klukkan fjögur og sex
um morguninn, og spurðist siðan
ekkert til þeirra. Um miðjan dag I
gær komu Ioks menn i landhelgis-
þyrlunni Gná auga á bátinn, þar
sem hann lá á vatnsbotninum, og
reyndist annað lfkið einnig vera
þar.
Mennirnir, sem fórust, voru
Jónas Halldórsson, bóndi á
Leysingjastöðum, og Ari Her-
mannsson, bankagjaldkeri á
Blönduósi.
Allt er ókunnugt um ferðir
þeirra Jónasar og Ara, en talið er,
að þeir hafi ætlað að veiða silung
eða skjóta gæsir. Nokkru áður
höfðu þeir haft við orð að skreppa
á bátnum yfir að Gottorp, þar
sem gamall sýslungi þeirra,
Steinþór Asgeirsson, fram-
kvæmdastjóri i Reykjavik,dvelst
annað veifið á sumrin, en þangað
mun um átta kilómetra leið frá
Leysingjastöðum.
Þegar kom fram á laugardag-
inn, fór fólk á Leysingjastöðum
að undrast um þá félaga,var þá
simað á bæi við Hópið, en enginn
kunni af þeim að segja, og bátur-
inn sást hvergi. Varö brátt ljóst,
að hann hefði sokkiö.
Þegar bátshvarfið spurðist,
dreif að fólk til leitar, bæöi úr
sveitum f grennd við Hópið og
kauptúnunum i sýslunni. A vett-
vang komu björgunarsveitirnar á
Blönduósi og Hvammstanga og
hjálparsveit skáta á Blönduósi,
og trillur og bátar með utan-
borðsvélum voru fluttar að vatn-
inu á bilum. Munu sjö eða átta
bátarhafa verið við leitina, þegar
flest var. A sunnudaginn kom
þyrla Landhelgisgæzlunnar á
vettvang, og froskmenn, sem eiga
heima nyrðra, Karl Berndtsen i
Höfðakaupstaö og Sævar Jóna-
tansson, voru fengnir til aöstoöar.
Asgeir Jónsson, stöðvarstjóri á
Blönduósi, sem hafði talstöö til
umráða, annaöist samband við
leitarflokkana, og um miðjan dag
i gær, er landhelgisþyrlan Gná,
sem farið hafði til Akureyrar til
þess að sækja eldsneyti til fram-
haldsflugs, kom aftur vestur yfir
Hóp, sáu flugmennirnir bátinn i
vatninu eins og áður segir, suð-
vestan til i þvi við svonefnt
Skollanes, um fimm hundruð
metra frá landi, á sjö til átta
metra dýpi.
Tókst að ná bátnum upp, og
reyndist það lik Jónasar, er i hon-
um var. Af silungi, sem þar var i
kjölsoginu, er augljóst, að þeir
hafa eitthvað fengizt við veiði-
skap.
Lik Ara var ekki fundið i gær-
kvöldi, er Timinn frétti siðast, en
þá var von þriggja kafara úr
Reykjavik og eins frá Akureyri,
er staddur var á Sauðárkróki.
Atti að leita i nótt, og var i gær-
kvöldi unnið að þvi að setja ljósa-
vél i plastbát og koma fyrir ljós-
kösturum i honum.
Þeir Jónas og Ari voru báöir
menn á miðjum aldri. Lætur
Jónas eftir sig aldraða foreldra
og fjögur börn, en Ari aldraða
móöur og fimm börn. Báturinn,
sem þeir voru á. var einfaldur
plastbátur, og var það sérstak-
lega tekið fram I fréttum af slys-
inu, að báturinn hefði ekki verið
smiðaður á Blönduósi, og væri
flotholti öllum plastbátum þaðan.
ÖRUGGT má nú telja, að næsta
allsherjarþing Sameinuðu þjóð-
anna muni ákveða endanlega, að
hafréttarráðstefnan komi saman
i Santiago i Chile á næsta ári, en
svo getur hins vegar farið, að ráð-
stefnan hefjist ekki fyrr en I júli,
en gert hefur veriö ráð fyrir að
hún hæfist I aprll. Um þetta rikti
nokkur meiningarmunur, þegar
hafsbotnsnefndin, sem hefur
undirbúið ráðstefnuna, lauk
Vestfjarðaför
forsetahjónanna
störfum I Genf siðastliðinn föstu-
dag.
Timinn hefur átt viðtal við
Þórarinn Þórarinsson alþingis-
mann, en hann var einn af fulltrú-
um Islands á fundum, hafsbotns-
nefndarinnar. Honum sagðist svo
frá:
— A siðasta allsherjarþingi S.Þ.
var ákveðið, að hafsbotnsnefndin
héldi tvo fundi á þessu ári, hinn
fyrri i New York I marz og hinn
siðari i Genf i júli-ágúst. Þingið
ákvað, að þetta yrðu lokafundir
nefndarinnar, og að hafréttar-
ráðstefnan sjálf kæmi saman i
Santiagó i april 1974 og stæði i
átta vikur.
Til þess að flýta fyrir störfum
ráðstefnunnar, var ákveðið, að
hún kæmi saman til undir-
búningsfundar i New York i
desember 1973 og yrðuþar kjörnir
forsetar og nefndaformenn og
fundarsköp ákveðin. Að öðru leyti
byrjaði ráðstefnan ekki störf sin
fyrr en i Santiagó.
Framhald á bls. 19
fenginn til þess ungur maður úr
Njarðvikum, Gunnar Kristinsson
að nafni. Fór hann til Sandgerðis
ásamt öðrum manni, en þar fékk
hann i lið með sér menn, sem sáu
hvar flugvélin lenti á sjónum, og
einnig fékk hann léðan bát og
mannskap meö honum.
Þeir héldu út rétt eftir klukkan
fjögur. Um klukkan 16,20 fór
Gunnar i froskmannsbúning sinn
og battlinu um mitti sér og hóf aö
leita að flugvélinni.
Hann tjáði félögum sinum, aö
hann hefði súrefni til rúmlega
þriggja klukkustunda köfunar, en
hann myndi binda linuna i flug-
Framhald á bls. 19 Gunnar Kristinsson.
Kortiö sýnir Hópið, þar sem slysið varö, og er kross dreginn viö
Leysingjastaði á austurströnd vatnsins og annar, þar sem báturinn
fannst út af Skollanesi.