Tíminn - 28.08.1973, Blaðsíða 2

Tíminn - 28.08.1973, Blaðsíða 2
2 TÍMINN Þriðjudagur 28. ágúst 1973. 1 14444 ? VM//M 25555 BÍLALEIGA CAR RENTAL BORGARTUM Lausar stöður Lögreglustjóraembættið óskar að ráða tvær skrifstofustúlkur. Vélritunarkunnátta nauðsynleg. Laun , samkvæmt launakerfi rikisins. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist fyrir 3. september nk. Lögreglustjórinn i Reykjavik. 27. ágúst 1973. Útboð Keflavikurbær óskar eftir tilboði i sölu á 400 þús. stk. af sorppokum fyrir sorp- hreinsun bæjarins. Stærð pokanna skal vera sem hér segir: 75x115x0,07 cm Áætlað er að ofan greint magn sé þriggja ára notkun og skal seljandi miða við að afhenda pokana á þvi timabili i vörugeymslu kaupanda, Vestur- braut 10, Keflavik, ca 25 þús. stk. i einu og skal fyrsta afhending fara fram 10. október 1973. Verðtilboð sem miðað er við ofan greinda lýsingu ásamt fyrirkomulagi um verð- bætur sem seljandi býður skal sent bæjar- stjóranum i Keflavik, Hafnargötu 12, Keflavik. Tilboðin verða opnuð á skrif- stofu bæjarstjóra mánudaginn 10. september 1973 kl. 11 f.h. af þeim bjóð- endum viðstöddum er þess óska. Keflavik 27/8 1973 Bæjarstjórinn i Keflavik. Æt - - - SKIPAUTGCRB RIKISINS AA/s Baldur fer frá Reykjavik miðviku- dag 29/8 til Snæfellsnes- og Breiðafjarðahafna. Vörumóttaka daglega. SKIPAtiTGCRÐ RÍKISINS AA/s Esja fer frá Reykjavik mánudaginn 3. september vestur um land i hringferð. Vörumóttaka miðvikudag, fimmtudag og föstudag til Vestfjarða- hafna.^Norðurfjarðar, Siglu- fjarðar, Ólafsfjarðar, Akur- eyrar, Húsavikur, Raufar- hafnar, Þórshafnar, Bakka- fjarðar, Vop na f ja rða r, Borgarfjarðar eystra Seyðisfjarðar, Norðfjarðar, Eskifjarðar og Reyðar-' fjarðar. VIPPU - BllSKÚRSHURÐIN Lagerstærðir miðað við múrop: Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm 210 - x - 270 sm Aðrar stærðir. smíSaðar eftir beiðni. GLUGGAS MIÐJAN Siðumúla 12 • Sími 38220 VORUBILSTJORAR Nýtt mynsfur Slitmikið mynstur Mynstrið sem gefur beztu endinguna,| ásamt mjög góðum spyrnueiginleikum || Sólum stærðir: 1100x20 — 1000x20 — 900x20 — 825 x 20 — 750x16 SÓLNING H.F. Reykjavik — Höfðatúni 8 — Simi 1-12-20 Kópavogi — Nýbýlavegi 4 — Simi 43988. Hákon ólafsson, verkfræðingur, skýrir fyrir freítamönnum hvernig unnið er að rannsóknum á jarðvegsefnum. Vinstra megin við hann standa Gunnlaugur Pálsson, arkitekt og Óttar P. Halldórsson, verk- fræðingur, settur yfirmaður rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins i Keidnahoiti. Timamynd: Róbert. Hvernig á ab byggja? Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins gefur út handhægar uppiýsingar BRATT GETUR bóndi, sem ætlar að steypa upp nýja hlöðu hjá sér, eða borgarbúi sem vill ráðast i að steypa upp einhvers konar mann- virki sjálfur, tekið sér eitt litið blað i hönd og fundið þar allar nauðsynlegar upplýsingar um hvernig bezt er að standa að verkinu. Verður þá ekki lengur nauðsynlegt að leita til sér- fræðings til að spyrja um beztu steypublöndunina eða annað þess háttar, þvi að það kemur allt fram á þessu litla blaði. Rannsóknarstofnun byggingar- iðnaöarins i Keldnaholti hefur undanfarið unnið að undirbúningi á útgáfu tæknilegra upplýsinga fyrir byggingariðnaðinn i landinu. Árangur þessa undir- búnings hefur nú litið dagsins ljós með útgáfu svonefndra Rb-blaða, en það eru lausblöð, sem fjalla um tæknilegar upplýsingar fyrir byggingariðnaðinn og er þessum lausblöðum siðan safnað i möppur, sem stofnunin hefur látið gera i þessum tilgangi. Lausablöðunum er skipt í flokka og eru meginflokkarnir þrir: 1. flokkur 1 fjallar um byggingar- hluta, Þar er um að ræða tækni- legar upplýsingar varðandi meginhluta bygginga, t.d. upp- lýsingar um lóð, veggi, þök, glugga, hurðir, klæðningu, loft- ræstingu, raflagnir, innréttingu, o.s.frv. 2. Flokkur 2/3 fjallar um tæknilegar upplýsingar varðandi byggingarvörurog notkun þeirra, t.d. steypugerðir, verk- smiðjunnar einingar o.s.frv. 3. flokkur 4 fjallar um fræðileg efni svo og lög og reglugerðir, sem snerta byggingariðnaðinn auk staðla. Fyrsta lausablað útgáfunnar er yfirlit yfir flokkana og gefur það til kynna að hverju er stefnt með útgáfu Rb-blaðanna. í þessari út- gáfu, sem komin er út eru aðeins sjö verkefni, en þau sýna þver- skurö af þvi, sem stofnunin leitast við að gera með útgafu RB-blaðanna. Þau sjö verkefni, sem litið hafa dagsins ljós eru um jarðvatnslagnir við hús, þök, hlutverk, gerðir og vandamál, fúguefni, eiginleika og efnisval, fúguþétting, byggingasamþykkt fyrir skipulagsskyld svæði utan Reykjavikur, skipulagslög og loks gólfeiningar. Aætlað er að gefa lausablöð út að jafnaði tvisvar sinnum á ári og eru nú I vinnslu eftirfarandi verkefni: gerð steinsteypu, einangrunar- gler, gerðir og eiginleikar, Isetn- ing á tvöföldu gleri, útveggja- klæðning, loftræst klæðning. Allir þeir sem sinna byggingar- málum geta gerzt áskrifendur að Rb-blöðunum. Aætlað söluverð hvers blaðs er 100 til 200 krónur, eftir stærð verkefnisins. Rb-blöð um byggingarvörur verða send ákrifendum ókeypis, enda kostuð af framleiðendum og inn- flytjendum byggingarvara. Fyrsta mappan með sjö verk- efnum kostar 1200 krónur, en það er langt undir kostnaðarverði, enda er útgafan styrkt af opin- beru fé. Væntanlegir áskrifendur geta snúið sér til Rann- sóknarstofnunar Byggingariðn- aðarins i Keldnaholti eða Byggingaþjónustu A.l að Grensásvegi 11. Mestan þátt i undirbúning þess- arar útgafu átti Gunnlaugur Pálsson, arkitekt. « -gj Ivw bílaleigah% I JmiiisaiiV* I^Hsl I ARMULA 28 KS I ISÍMI 81315 CAR RENTAL • ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.