Tíminn - 28.08.1973, Qupperneq 11

Tíminn - 28.08.1973, Qupperneq 11
10 TÍMINN Þriöjudagur 28. ágúst 1973. Bjarni Th. Rögnvaldsson kennari segir frá: MIKLAR FRAMKVÆMDIR OG MIKIL BJARTSÝNI Vestmannaeyjar geta orðið heimsfrægur ferðamannastaður BJARNI Th. Rögnvaldsson er ekki innfæddur Vest- mannaeyingur, en hann var kennari þar frá| 1959- 1968 og er flestum hnútum kunnugur í Eyjum og ber Vestmannaeyinga mjög fyrir brjósti. Hann tók þátt i björgunarstörfum í Eyjum á fyrstu dögum gossins og er nú nýkominn þaðan úr kynnisferð. Hér segir hann lesendum Tímans frá því sem er að gerast í Eyjum um þessar mundir. — Hvað er þér hugstæðast i sambandi við upphaf gossins, Bjarni? — Mér er minnisstæðast hversu vel tókst til um björgun fólk. Það var sérlega gott veður nóttina, sem gosið hófst og sjór var að detta niöur og ég tel það alveg tvi- mælalaust að ekki hefði farið eins vel og raun varö á, ef gosiö hefði hafizt svo sem tveim timum siöar, þvi að bátarnir voru að búast til brottferðar eftir land- leguna. Heföu þeir verið farnir úr höfn, hefði fólkið staðið ráðþrota. Þaö er röskleika og lipurö skips- hafnanna á fiskiskipaflotanum aö þakka, hversu mildilega tókst lil um fólksflutninga til megin- landsins. Þá var það iika mikil mildi að vindátt hagstæð — vindur stóð al' vestri, svo að gosmökkinn lagði frá bænum. Yfirvöld staðarins brugðust lika röggsamlega við þessum vov- eiflegu tiðindum og sáu um að allir kæmu sér um borð i bátana og héldu á brott — aðrir en björgunarmenn. Ráða- menn i Vestmannaeyjum unnu mikið og gott verk viö skipulagn- ingu björgunarstarfa. Þessir menn og þeir, sem i björgunar- sveitunum voru, unnu sér ekki hvildar langtimum saman og fóru ekki úr fötum, þvi að þeir lögðu nótt viö dag til þess aö geta bjargað sem mestu. Starf þessa fólks verður seint fullþakkað, ekki sizt þegar haft er I huga hversu erfiöar aðstæðurnar voru. Þetta gerðist allt meö svo skjótum hætti og menn uggðu ekki að sér, þótt þess væru dæmi að fólk hefði dreymt fyrir gosinu. Breytingarnar á gosinu voru lika svo örar, að skipuleggjendur björgunarstarfsins höfðu varla undan. Ég man t.d. eftir þvi, að viö urðum aö brjótast meö heilar búslóðir út um þakglugga húsanna austast i bænum, þvi að askan var búin að loka öðrum út- gönguleiöum. Þetta varð að gerast með miklum flýti, þvi aö þegar ekki var lengur hægt aö koma fiutningabilum að húsunum var miklu erfiöara um vik. Þessi hús stóöu viö Grænuhliöina austast i bænum og núna er 17-20 feta jafnþykk jafnfallin aska yfir öllu þessu svæöi. —• Var mönnum ekki hætt i öskufallinu? — Þegar öskufallið var sem mest, féllu logandi steinhnull- ungar hnefastórir og stærri, yfir kaupstaðinn og þá urðu menn að halda sig innan dyra til þess að hætta ekki lifi sinu. Þetta grjót var um það bil þúsund stiga heitt. 1 öskubyljunum var bráðnauðsynlegt aö vera með hlifðargleraugu og öryggis- hjálma og helzt góða hanzka, þvi að annars rispuðust menn til blóös á handarbökunum vegna öskufallsins. Það, sem bjargaði kaupstaðnum undan þvi að grafast meö öllu I vikur, var vestanáttin, sem var rikjandi flesta þá daga, sem örkuregnið var I hámarki og bar öskuna frá bænum. En það var nátturulega hraunflóðið, sem rann yfir austustu byggðina, sem olli mestu tjóni. Hins vegar hefur þaö stækkað Heimaey um tvo ferkiló- metra, að þvi er Þorbjörn Sigur- björnsson prófessor sagöi mér. Vel gengur að hreinsa bæinn — Hvað liöur öskuhreinsun- inni? — Það er ekki Eyjamönnum likt aö leggja árar I bát, þótt á móti blaái og þeir hófust þegar handa um að grafa bæinn upp úr öskunni. Þetta starf er komið mjög vel á veg og þvi lýkur sennilega i september. Núna er verið aö hreinsa hverfið austan Kirkjuvegar. Ég held, að um 400 manns vinni aö þvi að hreinsa ösku, skipta um gler i gluggum og öðru þess háttar til þess aö verja húsin skemmdum. Mest er þetta ungt fólk og það er haldiö vel áfram, þvi að yfirleitt er unniö ailan sólarhringinn á vöktum. Miklar framkvæmdir — Hvað er gert við gjalliö? — Vikurinn er nýttur til ýmissa hluta. Sumpart er honum ekið inn á hraunið sunnan Herjólfsdals, þar sem búiö er aö skipuleggja nýtt ibúðarhverfi. 1 ööru lagi er hann notaður til þess að lengja og breikka flugbrautirnar. Búið er að breikka og lengja suöur-noröur brautina i báða enda og verið að lengja austur-vestur brautina i vesturátt og mun hún eiga að ná aö veginum út I Stórhöföa og ég held aö eftir séu þetta 100-150 metrar. Það hefur verið töluvert af útlendingum við sjálfboða- vinnu I Eyjum, sérstaklega námsfólki. Hreinsun gatna og upphitun húsa er kostuð af Við- lagasjóði að miklum hiuta. Ekki hef ég heyrt neinar kostnaðar- tölur og liklega veit enginn ennþá hvaö þetta kostar endanlega. — Það hefur töluvert verið rætt um útflutning á gosefnum, en getur ekki svo farið, að þeirra sé fuíl þörf til framkvæmda i Vest- mannaeyjum sjálfum? — Margir Vestmannaeyingar telja, að svo sé, og að ekki eigi að selja vikurinn til útlanda. — Hvað er af öðrum fram- kvæmdum að segja, en þeim, sem þú hefur nefnt? — Framkvæmdir Rafmagns- veitu Vestmannaeyja ganga vel. Hraunið sleit strenginn, sem lá úr landi til Eyja, eins ogkunnugter. Hann var tekinn i land i Yztakletti og lá þaðan yfir i Heimaklett og loks upp á Skansinn og þar slitn- aði hann. Nú er búiö að strengja á milli Heimakletts og Skansins og veriö aö ganga frá tengingu raf- magns inn á bæjarkerfið. Hins vegar mun sennilega taka alllangan tima að koma sima- málunum I sæmilegt horf. Mikill hluti af kerfinu skemmdist og auk þess var simstöðin flutt til lands og dreift þar. Vatn er af skornum skammti, þar aö hraunið skaddaöi vatns- leiðslur úr landi svo að önnur þeirra er ekki i sambandi og ekki fullur þrýstingur á hinni. En þaö vatn sem kemur er gott. Það bagalegasta er kannski, að þjónusta er varla nóg, en úr þessu er veriö að bæta. Núna er Björn Bjarnason læknir að búa sig undir að flytja út til Eyja, aö þvi er ég heyrði. — Fer fólki ekki fjölgandi? — Núna eru um 600-700 manns i Eyjum og þar af er töluvert af fjölskyldum, þótt sumir hafi ekki treyst sér til þess að vera þar meö börn. Von er á fleira fólki eftir aö rafmagnið er komið og þjónusta farin að batna. Það er auðvitaö ekki nema von, aö kaupmenn t.d. treystist ekki til þess að opna verzlanir fyrr en nægilega margt fólk er komið. Kaupfélagið er þó opið og fáeinar aðrar verzlanir. Akveöið mun vera að halda uppi kennslu á barna- og gagn- fræöaskólastiginu, og áætlað er að um 1000-1200 manns veröi bú- settir i Eyjum i vetur, en eða um það bil fimmtungur af þvi sem var fyrir gos. — Um tima óttuðust menn að höfnin mundi lokast, en það varð sem betur fór ekki. Er höfnin ekki bara betri eftir en áður? — Hún er kyrrari en áður af þvi aö nýja landiö skýlir henni. Núna er lika verið að sprengja upp hrauniö viö Isfélagiö og nota mulninginn til uppfyllingar á Eiðinu. Þegar þessu er lokiö verður höfnin mun skjólsælli en áður. Þó veröa varla full not af henni næsta áriö, eða vel það, þvi að mikiö af gosefnum þarf að fjarlægja úr henni og dýpka inn- siglinguna. Það er lika bráðnauð- synlegt að flytja skólpleiðslur fiskvinnslustöðvanna og bæjar- ins út fyrir Eiöiö, en eins og nú er, fer mest af skólpinu i höfnina. Það er auðvitað óviðunandi og þvi veröur aö breyta til þess að mengun vaxi ekki i höfninni sjálfri Útgerð að hefjast — Hvað er að frétta af út- geröaráformum? — Það stendur til að gera út þá báta, sem leggja upp hjá Vinnslu- stööinni og eitthvaö af þeim, sem leggja upp hjá Fiskiðjunni og Isfélaginu. Búið er aö senda öll- um föstum starfsmönnum Fisk- iöjunnar og tsfélagsins fyrirspurn um það, hvort þeir ætli að starfa hjá fyrirtækjunum i vetur. Þá er lika veriö að undirbúa starf- semina hjá FES, þ.e. Fiskbræðsl Einars Sigurössonar og verið að koma fyrir vélum, sem fluttar voru til lands. É held mér sé óhætt að segja, aö menn séu bjartsýnir á að vel gangi i vetur. Ferðamenn og náttúruvernd — Það er náttúr.lega geysimikill ferðamannastraumur út til Eyja? — Já, það er mikill straumur ferðafólks þangað út. Þegar Herjólfur kemur til Eyja biður svo rúta á bryggjunni og fer með r 170—310 lítra, tra (210+170) Vörumarkaöurinnhf ARMULA 1A, SÍMI 86112, REVKJAVÍK. Þriöjudagur 28. ágúst 1973. TÍMINN 11 Sjómannaminnis merki á Isafirði fólkið I skoðunarferðir. Þaö er búið að leggja, eða öllu heldur ryðja, vegi um hraunið. Þó er eitt i þessu sambandi sem mér lizt ekki á og finnst að við- komandi yfirvöld, þ.e. Náttúru- verndarráð ættu að taka til gaumgæfilegrar athugunar. Þarna eru ákaflega fallegar hraunmyndanir, hæðir og hólar, sem skarta mikilli form- og lita- fegurð og eiga varla sinn lika i veröldinni og ætti þvi að varð- veita. En nálægt þessum ruddu vegum eru ferðamenn farnir áö brjóta og skemma. Ég skil það vel, að fólk langi til þess að hafa með sér heim hraunhnullunga til minja um komuna til Vestmanna- eyja og sjálfsagt skreytir grjót þaðan nú þegar hillur I hibýlum manna viöa um heim. Hins vegar er of langt fengið, þegar menn láta sér ekki nægja aö hiröa það sem liggur laust og eru farnir að brjóta og bramla. Hraungrýtið þarna er mjög fallegt og ljómar i öllum regnbogans litum, svo að ekki sé minnzt á kletta og hraun- hella, en þetta verður allt hreinsað i burtu og eyðilagt, ef ekki verða settar strangar reglur um varðveizlu þess. Eins og er virðist öllum frjálst aö fara um hrauniö að vild og taka það sem þeir girnast og jafnvel brjóta niður ómetanlegar hraunmynd- anir. Vestmannaeyjar hafa alla möguleika til þess að veröa fyrsta flokks ferðamannastaöur. þangað sem fólk kæmi hvaðanæva aö úr veröldinni, en ef þetta verður látið óátalið og ekki aö gert, er þar með verið að spilla hluta af þeim náttúruundrum, sem laðað gætu feröamenn til Eyja. Til marks um þá athygli, sem þessar hraunmyndanir hafa vakið get ég nefnt, aö um þessar mundir er einn ljósmyndarinn i Eyjum að taka myndir af þessu handa hinu heimsfræga timariti Newsweek og mér skilst, að þeir ætli að láta mynd úr Eyjum skreyta forsiðuna hjá sér. Vestmannaeyjar paradis ferðamanna Svo er auðvitað margt fleira að sjá I Eyjum, sem ekki á sér nokk- urn lika i heiminum. Sólarhellir úti I svonefndum Smáeyjum er til dæmis engu siðri en Blái hellirinn á Kapri. Surtsey er lika eitt af þessum náttúruundrum, sem eiga sér fáa eða enga jafningja i heim- inum. Vestmannaeyjar gætu án nokk- urs efa oröið víöfrægur feröa- mannastaður ef rétt er á málum haldið, en þá þarf að taka þessi mál föstum tökum svo að ekki verði fyrir handvömm og athuga- leysi spillt þvi, sem gæti lokkaö feröamenn út þangaö. — Hvaö viltu segja, að lokum, Bjarni? — Mestu skiptir aö allir Islendingar standi einhuga með Vestmannaeyingum i drengilegri viðleitni þeirra og baráttu fyrir þvi aö reisa dauöan bæ úr rústum og vekja hann til lifs á ný. Þótt mikið sé búið að gera er fásinna að ætla að það taki minna en 5-8 ár að koma öllu i samt lag. Ég veit þess dæmi aö Vestmannaey- ingarhafa fengiðþaðframan i sig i Reykjavik, að þeir væru snikju- dýr á þjóðinni. Manni hitnar i hamsi, þegar manni verður hugs- að til þess að til skuli vera fólk, sem getur látið annað eins út úr sér. Veit þetta fólk, hversu mikla Framhald á bls. 19 FYRIR NOKKRU fór Sturla Halldórsson, hafnarvöruður á tsafirði, út i Hnifsdai með ný- stárlegan bilfarm: Þrjár tiliögur að minhismerki sjómanna, sem Ragnar Kjartansson myndhöggv- ari hefur gert. Eru frumgcrðir þessar úr svokölluöu epozy og eirblöndu. Sjómannasamtökin á Isafirði og bæjaryfirvöld þar hafa haft um það samstarf að koma sjó- mannaminnismerki upp á tsa- firði, og kom Ragnar Kjartansson vestur til þess að kynna hug- myndir sinar nú fyrir fáum dögum. Er nú raunar afráðið að velja um þriggja metra hátt minnismerki af sjómönnum með net og fisk. — Út i Hnifsdal fór ég til þess að leita eftir þvi, að Hnifsdælingar eigi hlut að þessu meö okkur, úr þvi að Hnifsdalur og Isafjörður eru nú sama sveitarfélagið. Ég varð að fara þetta einn, þvi að samnefndarmenn, sem að þessu hafa unnið, voru allir úti á sjó að draga björg i bú. Epozy er efni, sem fáir kannast við, en það er nú notað i málningu og er eitilhart og endingargott, og litur minnismerkið út eins og úr eir sé. — Það hefur veriö rætt um það, sagði Sturla ennfremur, að minn- ismerkið verði reist framan við sjúkrahúsið á útivistarsvæðinu ofan við kirkjugarðinn. Þar er hóll, þar sem það nyti sin, vel, en ÞESSA dagana er haldin á tsa- firði mikil listsýning aö forgöngu My ndhöggvarafélagsins i Revkjavik. Þetta þykir allmikil nýlunda vestra, þvi aö siðast liöin fimm ár munu aöeins þrlr málarar hafa efnt þar til list- sýningar. A myndlistarsýningunni á Isa- firði eru tuttugu og tvær högg- myndir og fjöldi málverka. Þeir, sem sýna eru, Barbara'Arnason, Benedikt Gunnarsson, Björgvin- Sigurgeir Haraldsson, Eirikur G. Baldvinsson, Guðmundur Bene- diktsson, Hringur Jóhannesson, Hörður Agústsson, Hreinn hann er friðlýstur, og þyrfti þvi samþykki þjóðminjavarðar til þess, að það stæði þar. En um það er allt óráðið enn sem komið er. —JH Eliasson, Jóhannes Geir, Jón Gunnar Arnason, Magnús A. Arnason, Niels Hafstein, Ragnar Kjartansson, Sigrún Guðmunds- dóttir, Sigurður Steinsson og Þor- björg Pálsdóttir. A lsafiröi er listasafn með fimmtiu málverkum og högg- myndum, er er það að mestu leyti geymt í byggðasafninu, en sumt þó i skólum og skrifstofum bæjarfélagsins vegna þrengsla. Keypti það á sýningunni eitt verk, höggmyndina Mæðgin eftir Ragnar Kjartansson, á hundraö þúsund krónur. _____ —JH. /Skll&lfwC: 'Auglýsingastofa Tímans er í Aðalstræti 7 Símar 1-95-23 & 26-500 . auðvitað þarf málningin á þaki hðss yðar ekkí að þola eins mikið og gðð skjpamálnmg en betra þó, að hún geri það Rex-skipamálning er framleidd sérstaklega með tilliti til siglinga í norðurhöfum og umhverfis ísland í misjöfnum veðrum: Vetrarstormum, stórhríðum, ísingu, rigningu og i sumarsól. í þessum veðrum hefur Rex-skipamálningin ótvirætt sannað hið mikla slitþol sitt, og þetta getið þér með góðum árangri hagnýtt yður á þaki húss yðar. Notið Rex-skipamálningu og þakið verður fallegra og endingin betri. Skoðið nýja Rex-litakortið með 30 glæsilegum litum, - þér fáið hvergi meira litaúrval. RGX SKIPAMAUVIING á skipin - á þökin m AAæðgin Ragnars orðín eign ísfirðinga

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.