Tíminn - 28.08.1973, Síða 15
Þriftjudagur 28. ágúst 1973.
TÍÍVIINlSí.
15
Halldór sigraði þekkta
menn í 1500 metrum
íslendingar voru sigursælir í Odda. Bjarni setti íslandsmet í 100 m innanhúss
íslenzku frjálsiþrótta-
mennirnir fjórir, sem
tóku þátt í Odda-leikun-
um i Noregi um helgina,
stóðu sig með miklum á-
gætum.
Anægjulegastur var árangur-
inn i 1500 metra hlaupinu, en þar
kepptu Halldór Guðbjörnss. og
Agúst Asgeirsson fyrir Islands
hönd. Halldór keppti i A-riðli og
Agúst i B-riðli. Baráttan var
geysihörð i A-riðlinum, en auk
Halldórs kepptu þar bæði Norð-
menn og Englendingar. Má þar
nefna Norðmanninn Sverre
Sörnes, sem um skeið átti norska
metið i 300 m hindrunarhlaupi.
Einn enskur keppandi átti bezta
timann i 800 metra hlaupi, 1:48,8
min. Brautin i Odda.var ekki upp
á það bezta. Fjórir keppendur
voru mjög svipaðir, þegar 100
metrar voru i mark, en Halldór
var sterkastur og vann á sinum
bezta tima, 3:54,7 min. Sverre
Sörnes var i öðru sæti á 3:54,9
min. útlendingarnir brostu van-
trúaðir, er þeim var sagt, að þetta
væri bezti timi Halldórs. Agúst
háði harða baráttu i B-riðlinum,
en varð að sætta sig við annað
sætið, náði þó einnig sinum bezta
tima, 3:57,7 min. Þátttaka var
gifurleg i þessu hlaupi, eða 42
keppendur!
Þetta mót var öðrum þræði
vigslumót fyrir nýja iþróttahöll,
sem vigð var við þetta tækifæri,
en hún er byggð inn i fjall við
Odda. Þar tok Bjarni Stefánsson
þátt i 100 m hlaupi og setti innan-
hússmet, hljóp á 10.8 sek.!
Hreinn Halldórsson keppti i
kúluvarpi og sigraði með 17,47
metra kasti. Hann tók einnig þátt
ikúluvarpi fyrri daginn, en var
ekki vel upplagður og sætti sig við
annað sætið, varpaði 16.62 m.
Bjarni Stefánsson var meðal
keppenda bæði i 100 og 200 m
hlaupi á Odda leikunum og
sigraði i báðum greinum, hljóp
100 m á 11,2 sek. og 200 m á 22,6
sek. hvort tveggja i mótvindi.
Loks var Halldór meft i 5 km
hlaupi siftari daginn, en var
þreyttur eftir 1500 m
hlaupiö daginn áður og lét sér
nægja 10. sætið á 15:49.0 min.
Noregsför frjálsiþróttamanna
er lokið að þessu sinni og tókst
með ágætum.
Meistaramót
Suðurlands
Meistaramót Sufturlands i frjáls-
um iþróttum verftur á Selfossi 1.
og 2. september n.k. og hefst kl.
16.00 á laugardag og kl. 14.00 á
sunnudag. Rétt til þátttöku i mót-
inu eiga: USVS, HSK, UMSK,
ÍBH, ÍBK, ÍBS, og ÍBV. Þátttöku-
tilkynningar þurfa aft hafa borizt
til skrifstofu HSK, simi 99-1189,
eða til Leifs Österby, Selfossi,
fyrir kl. 12.00 á hádegi fimmtu-
daginn 30. ágúst.
JÓHANNA IIALLDÓRSDÓTTIR..sést hér skora I leik gegn Val. Hún tók Björgu Guftmundsdóttur úr
umferft i úrslitaleiknum.
Framstúlkur bundu endi
á 9 ára sigurgöngu Vals
Fram varft á sunnudaginn
islandsmeistari i útihand-
knattleik kvenna i sögulegu
móti, sem háö var á Húsavík,
en þegar til kom reyndust þrjú
lift af sjö, sem þátt tóku i mót-
inu, vera ólögleg. Fram og
Valur léku til úrslita og lauk
leiknum, sem var mjög tvi-
sýnn og skemmtilegur, meft
eins marks sigri Fram, 11:10.
Valsstúlkurnar höföu forustu i
hálfleik, 6:5, en i síftari hálf-
leik brá svo vift, aft þær skor-
uftu ckki nema lmark fyrstu 16
minúturnar. A santa tima
náftu Framstúlkurnar sér á
strik og náftu þriggja marka
forskoti, 10:7, sem Val tókst
ekki að vinna upp.
Sigur Fram i þessu móti er
merkilegur fyrir þá sök, að
Valur hefur sigrað i útimótum
kvenna s.l. 9 ár, og var búizt
við, að Valur sigraði i mótinu i
10. sinn i röð. Siðast sigraði
Fram i útimóti kvenna árið
1950, en innanhúss varð Fram
siðast islandsmeistari árið
1970.
Úrslitaleikurinn á sunnu-
daginn var spennandi. Fram
tókstað taka sterkasta spilara
Vals, Björgu Guðmundsdótt-
ur, úr sambandi með þvi að
láta Jóhönnu ' Halldórsdóttur
elta hana á röndum allan leik-
timann. Þá stóð 15 ára gamall
markvörður Fram, Kolbrún
Jóhannsdóttir, sig mjög vel i
leiknum, ásamt Helgu
Magnúsdóttur, Oddnýju Sig-
steinsdóttur, Halldóru Guð-
mundsdóttur og Arnþrúði
Karlsdóttur, sem visað var af
•leikvelli rétt fyrir leikslok
Hjá Val stóðu sig bezt Björg
Jónsdóttir, Harpa Guftmunds-
dóttir og Sigurbjörg Péturs-
dóttir, markvörður.
Þetta tsla.idsmót kvenna á
Húsavik varft sögulegt, þvi aft
þegar að var gáð, reyndust
þrjú félög af sjö, sem þátt tóku
i þvi, vera ólögleg, þ.e. þau
voru skipuð of ungum leik-
mönnum. Þetta voru lið Hér-
aðssambands Vestur-tsa-
fjarðarsýslu, Völsungs og KA.
Framkvæmd mótsins var i
höndum Völsungs. Tókst hún
vel, og fylgdist fjöldi manns
með mótinu. I mótslok bauð
bæjarstjórn Húsavikur þátt-
takendum og starfsfólki móts-
ins til borðhalds i hinu glæsi-
lega félagsheimiii Húsvik-
inga.
Vilmundur hljóp 200 m
á 22,37 sek.
„Stórmót"
í golfinu
í kvöld
t dag — þriðjudag — fer fram
mikil golfkeppni á velli Golf-
klúbbs Ness. Er það hin árlega
golfkeppni handknattleiksmanna,
eða þeirra, sem leikið hafa með 1.
og 2. deildarliðunum,og annarra,
sem tengdir eru handknattleikn-
um.
Leiknar verða u.þ.b. 18 holur,
en þó fá þeir, sem eru byrjendur i
golfinu, ekki að glima við fleiri en
9 holur að þessu sinni. Er það gert
vegna kvöldmyrkurs en nú er ekki
hægt að leika golf lengur en til
klukkan tiu á kvöldin. Keppnin i
dag hefst klukkan fimm.
1. DEILD
ARSENAL (1) . ...3 MAN. UTD. (O.i . O
Kcnncdy. Radford, bl.bUl
BíiII
C0VEN1RY (1) ...1 T0TTENHAM (0; O
CuúIj \y
DERBY •}) 1 CHELSEA '0; O
Nu.Guvc:n JO.bob
IPSWICH i'n 1 LEICESTER .0) ...1
Mumo io&.i Saminclii-ÍUjZU/
LEEDS (i) 3 EVERT0N (0) 1
Bicmncr, Gilcs, Harpjr—J9.320
lOIIC'ö
LIVERP00L (1) ...1 ST0KE (0) O
Hci}>hwiiy bí'.'Kb
MAN. CITY (1) .. 3 BIR.VilNGHAM 1) 1
Law ?, Bcll H.tl lon-■■3AJ78
Q.P.R. (0) 1 S0UTHAMPT0N 'O) 1
Given^ Bonneit 18.602
SHEFF. UTD. (0) O BURNLEY rj) 2
X5.K03 ColíiiVo. Uobson
WEST HAM (1) ...1 NEWCASTLE U. . 2
Rohson Mauflonain /-2h.lbB
W0LVES (•> . 3 N0RWICH '!) 1
Dougciii 2, McCalliOR Suegclt —22.744
2. DEILD
AST0N VILLA ÍQ; 2 PREST0N (0) O
AilkCil, H0Lr,,y ?K.8bl
BLACKP001 0; .. 2 WEST BR0M (1) 3
Alt.ock, Suddaby H'O'.vfi,- Sliaw,
jb Glove.r
BRIST0L CITY (1) 1 B0LT0N (0) O
liould 13.288
CARLISLE ;i; 1 CAROIFF (0' . ...1
f'larl r; Bell (ficn)--b.8bi
C PALACE ;! ...1 N0TTS C0. íl) ...4
RogOio—íjO.tíA i Stubbo. Vinter,
Randall 2
FULHAM •: 2 MILLWALL (0) ...O
Ba.rrcU. Cunway 12.072
HULL 'Uj O OXFORD (0) .... o
1 721
N0TTM F0R ■?) 4 LUT0N (0) O
J.iií'i.oii •: fi-iij, fji:,r|,n f*, Kí'uzií. • 10.793
i.iit. 1111. i,.lr\i.ii/11: PURTSM0UTH 10 O MIDDLESBR0 (]) 1
10.73:1 Fouf'.on
SU'IOERLSNO .0, 1 0RIENT í(ji 1
Huííhr s Quccn--?B,i', i
SWINOON, (?) . 3 SHEFF WED 1) ..1
Mo .. ífeacy Sunlcy—8,267
iv.uGovcfn
ISLAND —
í DAG OG
Unglingalands
keppnin í frjdlsum
íþróttum
islendingar og Danir þreyta ung-
lingalandskeppni í frjálsum
iþróttum i Kaupmannahöfn i dag
og á ntorgun. Þetta er i annaft
sinn, sent þjóftirnar heyja ung-
lingalandskcppni, sú fyrsta fór
DANMORK
MORGUN
fram i Reykjavik i fyrra, og þá
sigruftu Danir meft 120 stigum
gegn 81. Fjórir af beztu unglinga-
landsliðsmönnunt islands frá í
fyrra eru nú gengnir upp i flokk
fullorðinna, en flestir beztu Dan-
irnir eru enn i unglingaflokki,
þannig að telja má gott ef munur-
inn verftur ekki meiri aft þessu
sinni.
isienzka unglingaliöið á
framtiftina fyrir sér, og þvi fylgja
beztu óskir héðan aft heiman.
islenzku unglingarnir, sem
kepptu á EM i Duisburg, voru
yfirleitt nálægt sinum bezta
árangri i hverri grein, en og sum-
ir náftu betri árangri en þeir hafa
gcrt áftur! óheppnin elti Láru
Sveinsdóttur i fimmtarþrautinni,
hún hyrjafti glæsilega meft 15,08
sek, i 100 m grindahlaupi, en síft-
an gerfti hún öll köst ógild i kúlu-
varpi og varft aft hætta. Vilntund-
ur Vilhjálmsson hljóp 200 metra á
laugardaginn og hljóp á 22,37
sek., sem cr hans bezti timi.
Ingunn Einarsdóttir hljóp 200 m á
26,3 sek, og Ragnhildur Pálsdótt-
ir 800 m á 2:20,2 min. Loks kastaði
Guftni Iialidórsson kringlu 41,16
metra. Þátttakendur i EM hcldu
til Kaupmannahafnar i gær,
piltarnir taka þátt i unglinga-
landskeppninni vift Dani, og
stúlkurnar keppa þar i auka-
greinum.
GUÐRUN SETTI
GLÆSILEGT
ÍSLANDSAAET
í KÚLUVARPI
G uðrún I ngólfsdóttir setti glæsi-
legt Islandsmet i kúluvarpi á
héraðsmóti úlfljóts á sunnudag-
inn. Hún varpaði 12,61 metra, en
gamla metið sem hún átti sjálf,
var 11,97 m. Guðrún er búin að
margbæta fslandsmetið i sumar,
en bezti árangur hennar i fyrra
var 11,48 m, svo að hér er um
miklar framfarir aö ræða.
Guðrún er aðeins 15 ára gömul, og
með góðri æfingu i vetur ætti hún
að geta bætt þennan árangur
verulega.