Tíminn - 28.08.1973, Blaðsíða 17

Tíminn - 28.08.1973, Blaðsíða 17
Þriðjudagur 28. ágúst 1973. TlMINN 17 RAY KENNEDY....sést hér skora fyrsta mark Arsenal. Stepney átti ekki tök á að verja gott vinstrifótarskot frá honum. Fögnuðurinn var geysilegur þegar Ray Kennedy skoraði Ramsey sá Shilton verja stórkost- lega Ipswich og Leicester gerðu jafntefli 1:1 á Filbert Street ALF Ramsey, enski landsliðsein- valdurinn, var ánægður á laugar- daginn, þegar hann sá leik ipswich og Leicester á Kilbert Street. llann varð vitni að stór- kostlegri markvörzlu Peter Shilton, sem varði hvað eftir annað frábærlega i Leicester- inarkinu. bó þurl'ti hann að ná i knöttinn einu sinni i netið — en þá skoraði Munro sjálfsmark. bað skeði strax á 7. min. Joe Sammels skoraði siðan fyrir Leicester i siðari hálfleik. Shilton sýndi það i leiknum, að hann er bezti markvörður Englands i dag, og hann verður örugglega fastur landsliðsmark- vörður i framtiðinni. Arsenal og Leeds Markið kom strax ó 2. mínútu og þar með fór Arsenal í gang. Liðið lék stórkostlega knattspyrnu og það lék sér að United STEMMNINGIN á á- horfendapöllunum á Highbury var geysileg á laugardaginn, þegar stórliðin Arsenal og Manchester United léku. Strax á annarri minútu ætlaði allt um koll að keyra — þá sendi markaskorarinn Ray Kennedy, knöttinn i netið og kom heima- mönnum á bragðið. Og hvílík knattspyrna sem Arsenal lék — liðið hefði unnið hvaða lið sem var i Englandi. Arsenal tók strax tökin á miðjunni, þar sem Alan Ball, George Arm- strong, og hinn 18 ára unglingalandsliðsmaður David Price sýndu frá- bæran leik. írarnir Gerry Daly, Mick Martin og fyrirliðinn George Graham hjá Meistararnir höfðu heppnina með sér gegn Stoke á Anfield Unnu ó marki, sem þeir skoruðu strax í byrjun. Burnley tilkynnti komu sína ALEC LINDSEY sýndi mjög góðan leik, þegar Liverpool vann Stoke 1:0 á Anfieid. Hann var beztur hjá Engiands- meisturunum, sem höfðu heppn- ina með sér gegn Stoke. 53. þús. áhorfendur fengu aðeins að sjá eitt mark i leiknum og þeir voru greinilega ekki ánægðir með það, þvi að þeir vildu sjá fleiri mörk. Það var Steve Heighway, sem skoraði markið á 6 min. bar með er vörn Liverpools- liðsins á meistaratitlinum hafi og tvödýrmæt stig komin til Anfield. Liðin vor skipuð þannig: LIVERPOOL: Clemence, I.awler, Huges, Lloyd, Lindsey, Callaghan, Cormack, Thompson, Keegan, Boersma og Heighway. STOKE: Farmer, Lees, Smith, Bloor, Pejic, Mahoney, Conroy, Haslegrave, Robertson, Green- hoff, Hurst. Burnley byrjar vel Burnley-liðið tilkynnti komu sina i 1. deild með þvi að vinna Sheffield United á Bramall Lane, 2:0. Leikmenn Burnley voru iengi að átta sig á hlutunum, það tók þá 20. min. til að skilja það, að þeir eru komnir i 1. deild. bann tima lék liðið eins og 2. deildarlið. En svo skipti það um, og sýndi, að það verður ekki auðunnið i vetur. Fyrsta mark. liðsins skoraði Doug Collins á 32. min. og tiu min. siðar bætti Martin Dobson öðru marki við. QPR byrjaði á jafntefli Lundúnarliðið Queens Park Rangers gerði jafntefli gegn Southampton á heimaveili sinum Loftus Road. Markakóngur 2. deildar sl. keppnistimabil Don Givens skoraði mark heima- manna á 60. min. en aðeins átta min. siðar tókst Bennett aö jafna fyrir Dýrlingana. Áhorfendur ruddust inn á völlinn ■ 1000 áhoríendur ruddust inn á heimavöll Derby, Baseball Ground, eftir leik heimamanna gegn Chelsea. Lögreglan þurfti að skerast i leikinn og voru átta unglingar fluttir á brott. bað var greinilegt, að leikmenn Derby eru ákveðnir i aö endur- heimta meistaratitilinn, sem þeir fengu árið 1972. Leikur þeirra var mjög góður og þeir unnu Chelsea 1:0, markið skoraði McGovern á Framhald á bls. 19 United réðu ekki við hina snjöllu leikmenn Arsenal. Ball, Armstrong og Prive léku vörn United sundur og saman og Charlie George átti stórleik i framlinunni. bað var Ray Kennedy, sem skoraði stórkost- legt mark á 2. min. Peter Simpson tók aukaspyrnu og sendi góðan bolta fyrir markið. bar kom Charlie George aðvifandi og þóttist skjóta — lét knöttinn fara áfram til Kennedy, sem skaut viðstöðulausu skoti. Knötturinn hrökk i S. James og þaðan aft- ur út til Kennedy, sem stökk upp og spvrnti knettinum með vinstri fæti — knötturinn söng i netinu. 1 siðari hálfleik bættu svo leik- menn Arsenal við tveimur mörkum. Fyrst hinn marka- skorarinn hjá Arsenal, John Radford og siðan Alan Ball. bað er greinilegt að Arsenal verður sterkt lið i vetur — liðið hefur nóg af góðum leikmönnum. Peter Storey lék ekki með að þessu sinni vegna keppnisbann. 1 hans stað kom hinn 18 ára gamli David Price, sem sýndi það, að hann á framtið fyrir sér.Armstrong var góður i sinni nýju stöðu, en hann leikur nú sem tengiliður. Tommy Docherty, fram- kvæmdastjóri Manchester United var ekki ánægður eftir leikinn — hann sagði: „Leikurinn hefði eins getað endað 8-9: núll. Vörnin er höfuðverkur hjá United og Jim Holton þorði ekki að beita sér að ráði, þvi að hann var hræddur við bókun. Domararnir eru orðnir svo harðir á „tæklingum”. Liðin voru þannig skipuð á laugardaginn: ARSENAL: Wilson, Rice, McNab, Price, Blockley, Simpson, Armstrong, Ball, Radford, Kennedy og George. Hornsby kom inn á sem vara- •maður. MANCHESTER UNITED: Stepney, Young, Bucham, Daly, Holton, James, Morgan, Anderson, Macari, Graham, Martin og Mcllroy, sem kom inná sem varamaður. Alan Stepney sýndi frábæra markvörzlu, hann bjargaði þvi, sem bjargað varð hjá United. í kvöld EINN stórleikur verður i 1. deild- inni ensku i kvöld, en þá niætast Arsenal og Leeds á Iligbbury — héimavclli Arscnal. Fimm aðrir ieikir verða leiknir í deildinni. Þessir leikir fara fram i kvöld: Arsenal — Leeds Birmingham — Tottenham Burnley — Chelsea Coventry — Liverpool Everton — Leicester Wolves — Sheff. Utd. Banks heiðr- aður Gordon Banks, hinn frægi markvörður, var heiðraður fyrir leik Liverpool og Stoke á Anfield á laugardaginn. Leik- menn Liverpool afhentu hon- um fagran silfurskjöld, sem á var letrað „Frá vinum þinum á Anfield”. Eins og menn muna, þá meiddist Gordon Banks i fyrra I bilslysi. Hann skaddaðist á auga og getur ekki leikið knattspyrnu framar. Siðasti leikur hans, áður en hann lenti I slysinu, var einmitt gegn Liverpool á Anfield.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.