Tíminn - 28.08.1973, Síða 19
Þriöjudagur 28. ágúst 1973.
TÍMINN
19
O íþróttir
20. mín. Liðin voru þannig skipuð
i leiknum:
Derby: Boulton, Webster, Nish,
Powell, McFarland, Todd,
McGovern, Gerhmill, Davis,
Hector, Hinton, O’Hare kom inn
á, sem varamaður.
Chelsea: Bonetti, Hollis,
McCreadie, Boyle, Webb, Harris,
Garland, Kember, Osgood,
Hutchinson, Housemann. Hudson
kom inn á, sem varamaður.
Leeds átti auðveldan
dag
Leikmenn Leeds áttu frekar
auðveldan dag gegn Everton.
Billy Bremner, fyrirliöi Leeds,
átti stórleik og það voru aðeins
liðnar tvær minútur af leiknum,
þegarhann sendi knöttinn i netið.
f siðari hálfleik bættu þeir Mick
Jones og Eddie Gray við mörkum
fyrir Leeds. Mark Everton
skoraði Skotinn Harper.
Það hefur verið talað um það,
að Bremner sé orðinn of gamall
fyrir Leeds-liðið. Hann sannaði
það á laugardaginn, að hann er
ennþá i fullu f jöri og á mikið éftir.
Enda var hann brosandi fyrsta
hálftlmann. Gordon McQueen er
nú kominn i stöðuna hans Jackie
Charlton og átti hann prýðisgóðan
leik. Liðin voru skipuð þannig:
Leeds: Harvey, Reaney,
McQueen, Hunter, Madeley,
Bremnir, Giles, Lorimer, Clark,
Jones og Gray.
Everton: Lawson, McLaughlin,
Kenyon, Lyons, Darracott,
Kendall, Buckley, Harvey, Harp-
ar, Royle og Connolly.
Grimsby
yrði? Ætluðu þeir kannski bara að
sanna íslendingum, að fólkið i
Grimsby vildi ekki ræða þorska-
striðið?”
A einum stað er að finna upp-
lýsingar um samtökin og hljóða
þær þannig I lauslegri þýðingu:
„Hvaða menn standa eiginlega
að samtökum Islandsvina, sem
án árangurs hafa reynt að standa
fyrir fundi um landhelgidsdeiluna
I Grimsby?
Þessi samtök eru ekki rekin af
islenzka sendiráðinu, eða islenzk-
um yfirvöldum, hpldur tveim
ungum Bretum, sem eru sölu-
menn að atvinnu og búa á
iðnaðarsvæðunum i Mið-Eng-
landi.
Menn þessir, David Jarvis og
Derek Smith, segja, að i sam-
tökunum séu nú um 3600 menn,
þeirra á meðal lávarðurinn Ted
Willis, sem landsþekktur er.
Þótt þeir stundi landkrabbaat-
vinnu, segjast þeir vita um hvað
þeir eru að tala. „Við höfum báðir
unnið sem fiskimenn bæði á fs-
landi og I Bretlandi,” segir David
Jarvis. „Við erum ekki hugsjóna-
menn eöa stjórnmálalega bundn-
ir. í samtökunum má finna fólk
meö skoðanir, sem eru langt til
vinstri og langt til hægri.”
Þeir eru greinilega óánægðir
með synjun bæjaryfirvalda f
Grimsby, en segja, að það muni
ekki hindra þá i að finna fundin-
um annan vettvang.
Einn ötulasti talsmaður sam-
takanna er Jónas Árnason,
vinstri sinnaður þingmaöur á
fslandi, sem hefur fengið það
hlutverk að útbreiða málstað fs-
lands erlendis.
„Viö þekkjumst vegna þess, að
Jónas Arnason var fyrsti maður-
inn, sem við komumst i samband
viö á tslandi,” bætti Jarvis við.
„En við erum ekki málpipur
neinna nema sjálfra okkar,”
sagði hann að lokum.
íslandsvinirnir viröast nú hafa
fengiö lausn á sinum vanda hvað
varöar fundarstað i Grimsby, þvi
samkvæmt síðustu fréttum er
ákveðið, að fundurinn verði hald-
inn þar þann niunda september.
Ekki vitum við ennþá hver
fundarstaðurinn veröur.
Annar fundur verður haldinn i
Fleetwood einum eða tveimur
dögum siðar. '81-
Tíminn er 40 siður
alla laugardaga og
sunnudaga. —
Askriftarsíminn er
1-23-23
Santiago
Að sumra dómi hefur störfum
nefndarinnar ekki miðað eins vel
áfram á þessu ári og vænta mátti,
og hefur því komið fram sú hug-
mynd, sem studd er af rikjum
Suöur-Ameriku, að ráðstefnan
haldi eins konar vinnufund i
marzmánuði næstkomandi og
myndi þá sjálf aðalráðstefnan
ekki hefjast i Santiagó fyrr en i
júli. Vegna fundarhalda hjá rikj-
um Afriku og Asiu, mun tæplega
verða hægt að halda undir-
búningsfund ráðstefnunnar i
janúar eða febrúar. Mörg riki
telja slikan undirbúningsfund
vafasaman og vilja byrja ráð-
stefnuna i Santiagó á tilsettum
tima. 1 þeim hópi eru flest
Vestur-Evrópurikin. Aðeins örfá
riki með Sovétrikin i fararbroddi,
munu vilja lengri frestun en fram
i júli. Það mun ráðast af afstöðu
Afriku- og Asiurikja, hvort ráð-
stefnan hefst á tilsettum tima,
þ.e.a.s. i april, eða dregst fram i
júli.
Yfirleitt er það álitið, að haf-
réttarráðstefnan muni ekki ljúka
störfum i Santiagó, heldur geti
þurft 1-2 fundi til viðbótar, sem
yrðu þá haldnir á árunum 1975 og
1976. Það væri ekki óeðlilegt
miðað viö fyrri reynslu, þótt ráð-
stefnan stæði i 2-3 ár, þegar tillit
er tekið til þess, hve margþætt og
flókin mál hennar eru, og hve
marga ólika hagsmuni þarf að
sætta, ef samkomulag á að nást.
Vegna þess, að ekki er búizt við
endanlegri niðurstöðu i Santiagó,
hefur komið til orða, að ráðstefn-
an samþykki þar eins konar
stefnuyfirlýsingu, sem yrði mót-
andi fyrir siðari störf hennar. Ef
til kæmi, myndi það verða eitt
aöalefni slikrar yfirlýsingar, að
lýsa fylgi við 200 mila efnahags-
lögsögu.
Þótt störfum hafsbotnsnefndar-
innar hafi miðað hægt, hefur það
einkennt þau, að fylgið viö 200
milna efnahagslögsögu hefur si-
felltaukizt. Frá fundi nefndarinn-
ar, sem haldinn var i Genf i fyrra,
hafði t.d. oröið sú breyting, aö riki
eins og Noregur, Kanada, Nýja-
Sjáland og Ástralia hafa bætzt 1
hóp 200 milna ríkja, en segja má,
að þau hafi verið að færast i þessa
átti fyrra. Nú er vitað um nokkur
riki, sem virðast örugglega á
þessari leið. Þess vegna bendir
allt til, að 200 milurnar sigri á
ráðstefnunni, en það getur hins
vegar tekið sinn tima, að fullt
samkomulag náist um þær. Þar
stendur m.a. i veginum, aö 200
milna rikin eru sjálf ekki nægi-
lega sammála. Sum þeirra vilja
fá meira en 200 milur, eða land-
grunnið, sem er utan við 200 mil-
umar. Meöal þeirra eru Astralia,
Kanada og Noregur. Ágreining-
urinn um þetta varð þess vald-
andi, að ekki náðist samkomulag
um, eins og Island og fleiri riki
beittu sér fyrir, að lögð yrðu fram
i hafsbotnsnefndinni sameiginleg
tillaga frá flestum eða öllum 200
milna rikjunum. Afrikurikin vilja
ekki fallast á meira en 200 milur
og er sú afstaöa þeirra skiljanleg.
Fyrir ráðstefnuna i Santiagó
verður reynd að samræma þessi
sjónarmið.
Ef nægileg samstaða næst með
rikjunum, sem vilja 200 milna
efnahagslögsögu verður sókn
þeirra ekki stöðvuð. Þau hafa lika
valdið I sinum höndum. Þau þurfa
ekki annað en að segja, að þau
muni taka sér 200 milna efna-
hagslögsögu, ef ráðstefnan fer út
urri þúfur vegna andstööu vissra
stórvelda og fylgifiska þeirra. Þá
verða 200 milurnar alþjóðalög
hvort eð er.
Mjög ánægjulegt var aö fá þær
fréttir að heiman, að ýmsir for-
ustumenn höfðu skorað á rikis-
stjórnina að fylgja fast fram 200
milunum, enda þótt rikisstjórnin
væri búin aö láta flytja tillögu um
þetta i hafsbotnsnefndinni. Mjög
er athugandi, hvort Island á ekki
að fylgja þessu eftir með þvi, að
setja fljótlega lög um 200 milna
efnahagslögsögu, enda þótt þau
kæmu ekki strax til fram-
kvæmda. Slikt gæti haft jákvæö
áhrif á þróunina. Augljóst er, að
útfærsla islenzku fiskveiðilögsög-
unnar i 50 mllur hefur viða haft
mikil áhrif, t.d. i Noregi og Kan-
ada. Hún hefur lika orðiö þróun-
arrikjunum i Afriku og Asiu tvi-
mælalaus hvatning. En 50 mil-
urnar eru aðeins áfangi, en ekki
sjálft lokamarkið.
o Bjartsýni
björg Vestmannaeyingar hafa
dregið i þjóðarbúið? Er þessu
fólki ekki kunnugt um það, að
þjóöin öll stendur og fellur með
þeim fiskafla, sem Vestmannaey-
ingar og þeirra likar viðs vegar
um landið, draga úr sjó?
Er þetta fólk svo skyni skropp-
ið, að það viti ekki hverjir það
eru, sem afla þess gjaldeyris,
sem við þurfum til þess að geta
lifað i þessu landi? Það er óhætt
að slá þvi föstu, að Island getur
ekki án Vestmannaeyja og Vest-
mannaeyinga verið.
Ég veit lika, að mörgum Vest-
mannaeyingum finnst, að þeir
ættu sjálfir að fá að hafa meiri
áhrif á úthlutanir úr Viðlagasjóði,
og að ekki ætti að stýra þvi öllu
frá Reykjavik. Það þarf að gera
margt i Eyjum. Þar þarf að risa
dvalarheimili fyrir aldraða
sjómenn og efla þarf Stýrimanna-
og vélstjóraskólann. Það þarf lika
að græða upp Heimaey sem fyrst,
til þess að binda hina fingerðari
ösku. — Við skulum vera minnug
þess, að augu heimsins hvila á
okkur, þegar uppbyggingin i
Eyjum er annars vegar. — HHJ
O Slys
vélina ef hann fyndi hana.
Skömmu siöar flaut linan upp
og loftbólur hættu að myndast á
haffletinum. Mennirnir höfðu þá
þegar samband við Flugturninn á
Keflavikurflugvelli, sem sendi
þyrlu á vettvang og einnig þrjá
forskmenn. Einnig komu menn á
bátiog voru þar fjórir froskmenn
um borð.
Þeir hófu leit að Gunnari,og
stóö hún allt fram til myrkurs.en
var siðan haldið áfram i birtingu i
gær, en án árangurs.
1 gærkvöldi var leit hætt, en
fyrirhugað var að ganga fjörur á
flóðinu seint i gærkvöldi.
Þar sem slysið átti sér staö, er
talið að sé um 10 metra dýpi á
flóöi. Staðurinn er skammt út af
Sandgerði, og er þar straumþungt
og mikill þari i sjónum.
Gunnar var vanur forskmaður,
hafði meðal annars unnið við
hafnarframkvæmdir i Njarðvik-
um og einnig kafað mikið i sjón-
um út af Sandgerði á undanförn-
um árum, þar sem hann hefur
leitað að flakinu af E.S. Goða-
fossi, sem skotinn var niður á
striðsárunum.
Talið er, að eitthvað hafi borið
snöggt að, þar sem hann var að
kafa. Þegar froskmenn fara nið-
ur, eru þeir með ól um mittið,og
leysa þeir hana með einu hand-
taki,ef eitthvaö kemur fyrir. Þá
skýtur manninum upp á yfirborö-
ið á skömmum tima.
Búningur Gunnars, svo og allur
útbúnaður, var i bezta ásigkomu-
lagi, þegar hann hélt af stað, en
samt hefur honum ekki unnizt
timi til að leysa ólina.
Gunnar Kristinsson var rétt lið-
lega þritugur og lætur hann eftir
sig konu og tvö ung börn.
0 Hundar
öðru sæti meöal Islenzkra hunda.
Að lokum var valinn bezti og
næstbezti hundurinn, sem ekki
hafði hlotið 1., 2. eða 3. verðlaun,
og þar komust fremst Titi og
Lotta.
öllum sigurvegurum og þeim,
sem komust I 2. og 3. sæti i
flokkunum, voru veitt verðlaun.
Hafði dýravinurinn Mark Watson
lagt til flest verðlaunin, þrjár
postulinsstyttur og mikið af bók-
um. Þá voru veittir i verðlaun
bikarar, hálsbönd og minnis-
peningar.
Gunnlaugur Skúlason, formað-
ur Hundaræktarfélags íslands,
sagði i stuttu viðtali við Timann,
að hann væri mjög ánægður með
þessa fyrstu hundasýningu. Hún
hefði fariö vel fram og fólk virzt
vera ánægt meö þaö, sem þarna
gerðist. Hann sagði einnig, að
Jane Lanning dómari, sem hefur
dæmt á fjöldamörgum sýningum
I mörgum löndum, hefði verið
ánægð með sýninguna og
framgang hennar, þó hún ætti,
sennilega betri aðstæðum að
venjast frá sýningum i löndum,
þar sem slfkar sýningar stæðu á
gömlum merg.
ALFNAÐ ER VERK
ÞÁ HAFIÐ ER
§ SAMVINNUBANKINN
Nýju togarar ÚA að koma:
Þd verða þartveir
Svalbakar d sjó
SB-Reykjavik. Skuttogararnir
tveir hinir nýju, sem Útgerðar-
félag Akureyringa hf. keypti frá
Færeyjum, verða afhentir ein-
hvern fyrstu dagana i september.
Upphaflega munu hafa staðið
vonir til, að skipin gætu komið
heim á 111. afmælisdegi Akur-
eyrarbæjar, sem er á morgun, en
af þvi gat ekki orðið.
Togurunum veröa gefin hin
nýju nöfn sin, áður en þeir leggja
úr höfn i Klakksvík. Þeir eiga að
heita Svalbakur og Sléttbakur.
Útgeröarfélagið á fyrir tvo togara
með þessum nöfnum. Sléttbakur
hefur að visu ekki farið út siöan
eftir verkfall i vetur.og liggur lik-
lega ekki annað fyrir honum en
að fara i brotajárn. Svalbakur
gamli verður hins vegar gerður
út eins lengi og hægt er, og verða
þá tveir Svalbakar. Annar heitir
Svalbakur EA 2, en hinn Sval-
bakur EA eitthvað annað númer,
þegar þar að kemur. Auk þessara
togara á Útgerðarféiag Akur-
eyringa skuttogarann Sólbak og
gömlu siðutogarana Kaldbak og
Harðbak. Að sögn Vilhelms
Þorsteinssonar, forstjór ÚA, er
erfitt að manna togarana, og
þegar skólarnir hefjast, er
viöbúið að það verði enn erfiðara.
Hann kvað ekki óliklegt, aö með
haustinu verði að leggja einhverj-
um togaranna vegna mannskorts.
Aflinn hefur verið fremur tregur
undanfarið hjá Akureyrar-
togurunum.
I IGNIS
ÞVOTTAVÉLAR
RAFIÐJAN — VESTURGÖTU 11 19294
RAFTORG V/AUSTURVÖLL 26660
r \
y ilílf Íni HS
r~ 7
Concordia
18 daga ferð til Mallorca
Lagt af stað 8. september
Framsóknarfélögin í Reykjavik gangast fyrir hópferð til Mall-
orca i september. Lagt verður af stað frá Keflavik kl. 8:50 ár-
degis 8. september og komið til Kaupmannahafnar kl. 12:40.
Dvalizt verður i Kaupmannahöfn eina nótt og farið þaðan til
Mallorca 9. september kl. 8 árdegis. Dvalið verður á hótelum eða
i ibúðum eftir vali fólks i 15 daga. Flogið verður aftur til Kaup-
mannahafnar 23. september og staðið þar við i tvo daga.
Hótelin, sem um er að velja eru Obelisco og Concordia á Arenal-
ströndinni.
ibúðirnar eru á Trianon á Magaluf-ströndinni.
Allar upplýsingar veittar á skrifstofu Framsóknarflokksins,
Hringbraut 30, simi 24480. Nauðsynlegt er að fólk hafi samband
við skrifstofuna sem allra fyrst.
Upplýsingar um aðrar ferðir á vegum Framsóknarfélaganna
svo sem til London i kringum 25. ágúst, og Kaupmannahafnar
um 4. september.
Héraðsmót ó Hvolsvelli
8. september
Framsóknarfélögin i Rangárvallasýslu halda héraðsmót að
Hvoli laugardaginn 8. sept kl. 21. Ómar Ragnarsson skemmtir.
Hljómsveit Gissurs Geirs leikur. Nánar auglýst siðar.
Kjördæmisþing
framsóknarmann í Norður
landskjördæmi vestra
Kjördæmisþingið verður haldið að Húnavöllum laugardaginn 8.
september og hefst kl. 10 árdegis.