Tíminn - 21.09.1973, Qupperneq 5
Föstudagur 21. september 1973
TÍMINN
5
REGLURNAR í FYRRA
ÞORSKASTRÍÐINU UAA
SJÚKA MENN OG SLASAÐA
DÓMS- og kirkjumálaráöuneytiö
hefur sent blaöinu svolátandi
greinarg. um viötöku sjúkra
manna og slasaöra af brezkum
togurum:
Vegna ummæla, sem orðið hafa
um reglur þær umviðtöku sjúkra
og slasaðra manna af brezkum
skipum hér við land, er dóms-
málaráðherra setti hinn 6. þ.m.
þykir dómsmálaráðuneytinu rétt
að benda á, hverjar reglur giltu
um það efni i hinni fyrri land-
helgisdeilu við Breta á árunum
1958-1961. Þær reglur voru settar
af þáverandi forsætis- og dóms-
málaráðherra, Hermanni Jónas-
syni, og koma fram i bréfi til
sendiherra Breta á Islandi, sem
afhent var 30. september 1958.
Fer bréfið hér á eftir i islenzkri
þýðingu:
tslenzk stjórnvöld hafa nú á
skömmum tima tvisvar verið
beðin um leyfi fyrir herskip til
þess að koma með sjúkling til is-
lenzkrar hafnar. Annar var sjó-
maður af tundurspillinum Diana,
hinn sjómaður af togaranum
Paynter, sem hafði veriö fluttur
um borö i tundurspillinn og var
talinn of veikur til þess að vera
fluttur aftur yfir i togarann, svo
togarinn gæti flutt hann til hafn-
ar.
I báðum þessum tilfellum veitti
ráðuneyti mitt leyfi fyrir herskip-
iðtil þess að flytja veika manninn
til hafnar. En vegna þessara at-
vika tel ég rétt að taka fram, að
enda þótt leyfi hafi verið veitt
fyrir þvi að herskip flytti veikan
mann frá togara til fslenzkrar
hafnar, þá var þetta gert vegna
þess, að islenzkum stjórnvöldum
var gefiö til kynna, að maðurinn
væri of veikur til þess að þola
flutning yfir i togarann aftur, og
við þessar aðstæður vildi ráðu-
neytið ekki, af mannúðlegum
ástæðum, neita manninum um
læknishjálp. En ég tel rétt að
skýra yður frá þvi nú, þegar eng-
in slik tilfelli eru i athugun, að
framvegis. mun herskipum verða
veitt leyfi til þess að flytja veika
menn frá brezkum togurum til is-
lenzkra hafna á meðan núverandi
ástand rikir óbreytt varðandi
ágreininginn um islenzku fisk-
veiðilandhelgina. íslendingar eru
á hinn bóginn reiðubúnir nú eins
og áður til þess að veita sjúkum
sjómönnum læknishjálp", ef þeirra
eigin skip flytja þá til hafnar.
Akveðið mun verða i hverju
einstöku tilfelli, ef og hvenær her-
skipum skuli veitt leyfi til þess að
koma til hafnar með veika menn
af þeirra eigin áhöfn, og ef leyfi
verður veitt mun þess krafizt, að
sannað verði fyrir islenzkum
SKEKKJAN
LÍTIL, OG
ÞÓ LEIÐRÉTT
VEGNA auglýsingar i útvarpi um
aö skekkja væri i gjaldskrám
leigubifreiöastjóra i Heykjavik,
vill Bifreiðastjórafélagiö Frami
gefa þá skýringu, aö viö nánari
athugun kom I ljós aö á nokkrum
stööum haföi 1 krónu skekkja til
eöa frá, auk einnar prentvillu.
Hefur Frami þvi gefið út nýja
gjaldskrá fyrir félagsmenn sina,
gjaldskráin verður til afgreiðslu á
skrifstofu félagsins og á af-
greiðslum bifreiöastöðvanna
endurgjaldslaust. Er gjaldskrá
þessi staðfest af verðlagsstjóra.
Stjórn Bifreiðafélagsins Frama
væntir þess, að farþegar i leigu-
bifreiðum hafi ekki orðið fyrir
neinum óþægindum vegna ofan-
greindra mistaka.
stjórnvöldum, að sjúklingurinn
tilheyri áhöfn viðkomandi her-
skips.
Ég óskaði að veita yður, herra
sendiherra, upplýsingar um þetta
i tæka tið.
Ég hef heiður af þvi að votta
yöur virðingu mina”.
Þessum reglum var hvorki
breytt af rikisstjórn Emils
Jónssonar né Ólafs Thors, og giltu
þvi óbreyttar til loka deilunnar.
Skrifstofustarf
Óskum eftir að ráða skrifstofustúlku til
starfa hálfan daginn á skrifstofu upplýs-
inga- og framkvæmdastofnunar miðbæjar
Kópavogs.
Upplýsingar veitir undirritaður i sima
4-15-70 milli kl. 11 og 12, mánudag 24.
september.
Bæjarritarinn Kópavogi.
Iðnaðarhúsnæði
\
150-200 fermetra iðnaðarhúsnæði óskast
strax i Kópavogi.
Pipulagnir s/f
Simi 4-05-06.
Laus staða
Staða vélgæzlumanns við Grimsárvirkjun
i Suður-Múlasýslu er laus til umsóknar.
Æskilegt er, að umsækjendur hafi
vélstjóra- eða rafvirkjapróf með fram-
haldsmenntun.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
rikisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf, svo og fjölskyldu-
stærð sendist starfsmannadeild fyrir 5.
október 1973.
Rafmagnsveitur rikisins
Laugavegi 116
Reykjavik.
Auglýsing um dlestur
ökumæla
Athygli hlutaðeigandi bifreiðaeigenda, er
hér með vakin á þvi, að álestur ökumæla
fyrir 3. ársfjórðung 1973, fer fram hjá Bif-
reiðaeftirliti rikisins dagana 20. septem-
ber til 10. október.
Sé ökumælisskyld bifreið ekki i ökufæru ástandi ber eig-
anda hennar að tilkynna það til Bifreiðaeftirlits rikisins
eða Skrifstofu tollstjóra.
Komi eigandi eða umráðamaður ökumælisskyldrar bif-
reiðar ekki með hana til álesturs eða fullriægi framan-
greindri tilkynningarskyldu, fyrir 11. október næstkom-
andi, verður þungaskattur áætlaður lögum samkvæmt og
frekari viðurlögum beitt.
Tollstjórinn i Reykjavik,
20. september 1973.
Skoðið hina nýju
verzlið á 5 hæðum 7j Tijúsinu
DEILD
ö annarri
hæð
Næg
bílastæði
ATON-HÚSGÖGN
eru sérstæð
glæsileg og
AL-ISLENSK
Skoðið rennd vegghúsgögn
skápa og skatthoí
Engir víxlar — heldur mánaðargreiðslur
með póstgíróseðlum — sem greiða md
í næsta banka, pósthúsi eða sparisjóði.
Opið til 10
kvöld
i
og til kl. 12 á hádegi
laugardag
JON LOFTSSON HF.
Hringbraut 121 . Sími 10-600
Bátur
Til sölu er rúmlega 10 tonna aftur byggður
eikarbátur.
Smíðaður 1972. Báturinn er búinn öllum nýtizku tækjum
og er smiðaður hjá Jóhannesi Gislasyni, Hafnarfirði, og er
með 82 hestafla Lister-diselvél.
Veiðarfæri fylgja og er báturinn jlbúinn tií allra helztu
veiða. — Bátur i sérflokki.
Upplýsingar hjá Geir Egilssyni, sími
99-4290, Hveragerði.
Fyrirlestur
DANSKI sálfræðingurinn Hans
Weltzer frá Árósarháskóla flytur
opinberan fyrirlestur I boði
Háskóla Islands mánudaginn 24.
september nk. kl. 17.15 i I.
kennslustofu Háskólans.
Fyrirlesturinn nefnist „En
profetbevægelse i psykologisk
belysning”.