Tíminn - 12.10.1973, Blaðsíða 4
4
TÍMINN
Föstudagur 12. október 1973
James Bond í klípu
Roger Moore (James Bond)
lenti i hálfgerðum vandræðum
með þessa ungu stúlku, sem var
svo hrifin þegar hún sá hann, að
hún missti stjórn á sér. Hún
ætlaði aðeins að fá eiginhandar-
áritun hans i bókina sina, en
þegar hún kom nær honum, þá
var um að gera, fannst henni, að
nota tækifærið, — og það gerði
hún eftir beztu getu. Roger
Moore var að fara á frumsýn-
ingu á myndinni „Lifðu en láttu
deyja” (Live and let die) og var
timabundinn svo eina úrræðið
hjá honum vað að drifa sig i að
kyssa stúlkuna, og það ku hann
hafa gert með prýði!
Fyrsta konan í Svíþjóð
dómari í boxkeppni
Margareta Backman frá Lands-
krona er 22 ára gömul og mjög
lagleg sænsk stúlka, og svo er
hún áræðin og hugrökk lika,
sem m.a. séstbezt á þvi, að hún
hefur ákveðið að gerast dómari
á boxi, og dæma i boxkeppnum.
Ein önnur kona i Sviþjóð
Margareta Sjölin, hafði réttindi
sem box-dómari, en hún kom
aldrei i keppnishringinn. Hún
var gift boxaranum Stig Sjölin.
Hin Margaretan, Backmann
frá Landskrona, er einnig gift
boxara. Hann heitir Christer
Backman (i milliþungavigt) og
er 24 ára. Frú Backman verður
dómari hjá boxklúbb á Skáni i
Suður-Sviþjóð, og segist hún
hlakka til að byrja starfið. Box
hefur alltaf verið mitt áhuga-
mál, segir hún.
Það hafa heyrzt fréttir um það,
að Olga Korbut, litla, sæta
sovézka fimleikastjarnan hafi
skaddazt i baki i Olympiu-leik-
unum, en sem betur fer þá
virðist sá orörómur hafi ekki
við rök að styðjast, að minnsta
kosti stundar hún iþrótt sina af
fullum krafti núna. Þessi
mynd, sem hér fylgir, er tekin i
háskóla-iþróttakeppni i Moskvu
fyrir stuttu. Þar sýndi Olga yfir-
burði sina og fékk hún þrenn
gullverðlaún i þessari keppni.
Hérna sjáum við hana að sýna
stökk á slá.
DENN!
DÆMALAUSI
Þvi miður er allur bjór búinn i
dag. Þá ætla ég að fá glas af
tómatsósu.