Tíminn - 12.10.1973, Blaðsíða 6

Tíminn - 12.10.1973, Blaðsíða 6
6 TÍMINN Föstudagur 12. október 1973 Samkeppni um Ijóð, tón- verk ogleikrit Þjóðhátiðarnefndin i Austur- Skaftafellssýslu tilkynnir, að hún efni til samkeppni um ljóð, tón- verk og leikrit, er gætu orðið vel hæfir dagskrárliðir á hátiðar- samkomu vegna afmælis lands- byggðar og hefðu menningarlegt gildi. Ljóð þurfa helzt að snerta héraðið og sögu þess. Það er mikilsvert, að tónverk séu tengd tilteknum ljóðum. Leikrit þarf að vera sögulegt að efni og þannig, að Hornafjarðarhérað komi þar við sögu. Ljóð þurfa að hafa borizt þjóð- hátiðarnefndinni i Austur-Skafta- fellssýslu fyrir 15. janúar 1974 og tónverk og leikrit eigi siðar en 1. marz 1974. Skátaþing 1973 um næstu helgi Nýr skátabúningur tekinn upp Skátaþing 1973 verður haldið dag- ana 13. og 14. okt. Þingiö verður haldiðilðnskóla Keflavikur i boði Heiðarbúa, en svo nefnist skáta- félagið i Keflavik. Mörg mál verða til umræðu á þinginu. Má þar nefna undirbúning að lands- móti skáta, sem verður haldið að Olfljótsvatni næsta ár, einnig skátamótið i Jamboree i Noregi árið 1975, en islenzkir skátar eru undirbúningsaðilar að þvi móti. Einnig verða fjármál skáta- hreyfingarinnar rædd og nýr skátabúningur verður kynntur. Þessi nýi búningur er miklu frjálslegri en sá gamli, og hverfur nú algerlega það hermennskusnið á búningnum, sem margir hafa talað um, og búningurinn verður nú sá sami fyrir drengi og stúlkur á öllum aldri. Skátaþing sem þetta er haldið annað hvert ár. Aætlaö er að um 100 skátar muni sækja þingið, en nú eru um 5000 skátar á öllu land- inu. A sunnudaginn verður svo merkjasöludagur skáta, og hvetja skátar fólk til að taka vel á móti sölubörnum. —gbk. Nýtt frystihús rís á Djúpavogi ÞP.—Iljúpavogi. Kalt veður er á Djúpavogi, frost en þó bjart yfir. Gamalt frystihús er á staðnum og er Búlandstindur h.f. að byggja nýtt frystihús á staðnum. Gamla frystihúsið verður þó notað áfram undir vélar. Ekki er tekið á móti fiski núna meðan slátrun stendur yfir, og fiskar Hafnarnes fyrir siglingu. Slátrað er 400 f jár á dag, og i allt verður slátrað um 10 þús- und kindum. Er það Kaupfélag Berufjarðar á Djúpavogi sem sér um slátrunina. Slátrar það fyrir Beruneshrepp, Búlandshrepp og Geithellnahrepp. Félagslif er i lágmarki á Djúpavogi enda aðstaða til félagslifs mjög léleg. Stendur til að byggt verði nýtt félagsheimili á staðnum, til að bæta úr ástand- inu. Á meðan verða karlmennirn- ir að láta sér nægja fundi hjá Lyonsklúbbnum og kvenfólkið saumaklúbbana. Barnaskóli og miðskóli er á staðnum, en erfitt hefur verið að koma þeim börnum i gagnfræða- skóla sem vilja, og eru það alltaf einhverjir nemendur á hverju ári sem verða að hætta við nám vegna þess að þeir komast hvergi að i heimavist. Var skólinn settur sunnudaginn 30. sept. og skölastjóri er Ingi- mundur Sveinsson. Oliumalarframkvæmdirnar eru i fullum gangi og eru staðar- búar að vonum hæstánægðir með þær. kris. Misstu peningana á flóttanum Klp-Reykjavik. Lögreglan i Reykjavik leitar nú að ungum manni, sem grunaður er um að hafa stolið, ásamt öðrum manni, umslagi með liðlega 10 þúsund krónum i. Mennirnir voru staddir við pylsubarinn við Nýja bió fyrir nokkru og voru að fá sér að snæða. Afgreiðslustúlkan hafði nóg að gera, en hafði þó auga með öllu, sem um var að vera. Hún sá, er annar mannanna teygði höndina inn um glugga og tók tvö umslög, er i voru um 20 þúsund krónur, eða um 10 þús. krónur i hvoru. Hún kallaði þegar upp, og brá manninum þá svo við, að hann missti annað umslagið, en siðan tók hann á rás ásamt fé- laga sinum með hitt umslagið. Þessi maður var handtekinn siðar um kvöldið, og var hann þá ekki með neina peninga á sér. Hinn ma'ðurinn fannst ekki, en talið er að hann hafi stungið af með umslagið. Sá sem handtekinn var, var þegar settur inn, og er nú búið að dæma hann, en ,,syndaregistur” hans var orðið ærið langt, og þótti þvi timi til kominn að setja hann undir lás og slá. VERÐLAUNAGARÐUR AÐ LINDARFLÖT 24 A undanförnum árum hefir Rótarýklúbburinn Görðum veitt viðurkenningu fyrir fagran og vel hirtan garð á félagssvæöi klúbbs- ins. Á þessu ári veitti klúbburinn þeim hjónunum Onnu og Sigurði Haukdal viðurkenningu fyrir fagran og velhirtan garð við hús þeirra hjóna að Lindarflöt 24 Garðahreppi. ' ;ií5í:j: |5í: Guðmundur G. Hagal hálfáttræður tregað hund sinn af einlægari huga? Sjóferðalysingar Hagalins koma islenzkum sæ- farendum vafalaust kunnug- lega fyrir sjónir, og hitt er alveg áreiðanlegt, að hver sá maður, sem ratað hefur í þá raun að verða að yfirgefa allar sinar skepnur — sumar dauðar og aðrar lifandi — hann mun skiija og skynja til- finningalifið i dýralýsingum Ilagalins. Þessar fáu Ilnur, sem skrifaðar eru i flýti inn á milli annarra aðkallandi starfa, mega að sjálfsögðu ekki skoðast sem nein fræðileg skilgreining á ritstörfum Guðmundar Gislasonar Hagalins — ekki einu sinni til- raun til slfks. Iljalta, séu þau verk Guð- mundar Ilagalins, sem lengst muni halda nafni hans á Iofti. t báðum þeim bókum er okkur gefin sýn inn i fortiðina, áður en hagvöxturinn varð okkar æðsti guð og hugsjón hvers fá- tæklings varð að eignast bil. Sæmundur Sæmundsson og Hjalti Jónsson voru að sönnu ólikir einstaklingar á margan hátt, en báðir höfðu þeir til að bera þann ódrepandi kjark og seiglu tslendingsins, sem aldrei bregzt, hversu sem viðrar i henni veröld. Og eitt er vist: Saga okkar væri miklum mun fátæklegri ef við ættum ekki ævisögur þeirra á bók. Þvi hefur verið haldið fram, að Guðmundur Hagalin sé rit- höfundur islenzkrar sjó- mannastéttar. Gott og vel. En sé svo, sem ekki skal I efa dregið, þá er hitt engu siður rétt, að hann hefur lýst sam- skiptum manns og skepnu betur en margur annar. Hvaða islenzkur smali hefur Guðmundur Gislason Haga- lin rithöfundur hefur hálfnað áttunda tuginn. Hann fæddist að Lokinhömrum i Arnarfirði 10. okt. 1898. Ilagalin varð snemma þjóð- kunnur rithöfundur, enda hefur hann verið mjög mikil- virkur um dagana. Hér stendur ekki til að telja upp rit hans, en frumsamdar bækur frá hans hendi skipta mörgum tugum, auk fjölmargra þýðinga. Það hefur verið sagt, að fá- nýtt sé að deila um fegurð á fjöllum, kvæðum og konum, þvi að það, sem einn hrifst af, láti annan ósnortinn með öllu. Og rétt er það: Bækur hafa sina kosti og galla, eins og aðrir hlutir, og oft getur verið erfitt að dæma um, hvað „bezt” er. Þrátt fyrir þetta og hinn alkunna fyrirvara um persónulegan smekk, þá hefur mér einhvern veginn alltaf fundizt, að Virkir dagar, einkum þó fyrri hluti þeirrar bókar, og Saga Eldeyjar-- Tilgangurinn var fyrst og fremst sá að flytja rithöfund- inum innilegar heillaóskir á þessum timamótum á langri og starfssamri ævi hans —VS Fjallfoss i Arnarfirði. Já, hann leynir sér ekki, stórleikur landskaparins á æskustöövum Guö mundar Hagalins, enda hafa Vestfiröingar lengi veriö mikiö kjarnafólk.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.