Tíminn - 12.10.1973, Qupperneq 9
Föstudagur 12. október 1973
TÍMINN
9
Kosningar á Alþingi:
r
Asgeir Bjarnason
efri deildar
Eysteinn Jónsson endurkjörinn
forseti sameinaðs þings
KOSNINGAR forseta og skrifara
fóru fram í sameinuðu þingi og
báðum deildum i gær. Eysteinn
Jónsson (F) var endurkjörinn
forseti sameinaðs þings með 43
atkvæöum, en 14 seðlar voru auð-
ir. Asgeir Bjarnason (F) var
kjörinn forseti efri deildar, en
Björn Jónsson ráðherra, var for-
Asgeir Bjarnason
seti deildarinnar í fyrra. Helgi
Seljan (AB) var kjörinn 2. vara-
forseti efri deildar, en Asgeir
Bjarnason var i þvi sæti i fyrra. 1.
varaforseti sameinaðs þings var
kjörinn Friðjón Þórðarson, i stað
Gunnars Thoroddsen, en að öðru
leyti urðu ekki breytingar frá þvi
i fyrra.
Fundur i sameinuðu þingi hófst
kl. 14 i gær, en var frestað til kl.
14.30. Þá var gengið til kosninga,
og urðu úrslit sem hér segir:
Sameinað Alþingi: Forseti Ey-
steinn Jónsson (43 atkv., 14 auð-
ir), 1. varaforseti Friðjón Þórðar-
son (54 atkv., 3 auðir), 2. varafor-
seti Eðvarð Sigurðsson (44 atkv:,
Hannibal Valdimarsson 1 atkv.,
Bjarni Guðnason 1 atkv., auðir
11), skrifarar Bjarni Guðbjörns-
son og Lárus Jónsson.
Efri deild: Forseti Asgeir Bjarna-
son (16 atkv., 4 auðir), 1. varaior-
seti Eggert G. Þorsteinsson (19
atkv., 1 auður), 2. varaforseti
Helgi Seljan (17 atkv., 3 auðir)
skrifarar Páll Þorsteinsson og
Steinþór Gestsson.
Neðri deild: Forseti Gils
Guðmundsson (26 atkv., 10 auð-
ir), 1. varaforseti Gunnar Gisla-
son (36 atkv., 1 auður), 2. vara-
forseti Bjarni Guðnason (21 atkv.,
Hannibal Valdimarsson 1 atkv.,
12 auðir), skrifarar Ingvar Gisla-
son og Ellert B. Schram.
Að þvi loknu voru þingmönnum
úthlutuð sæti, og lauk fundum i
báöum deildum laust eftir kl.
15.30. Þingfundir hefjast aftur i
báðum deildum á mánudag.
Auk fjárlagafrumvarpsins voru
tvö önnur frumvörp lögð fyrir
Alþingi i gær. Frumvarp til stað-
festingar á bráðabirgðalögum,
sem sett voru 4. mai i sumar um
húsbyggingar á vegum Viðlaga-
sjóðs eða Vestmannaeyja-
kaupstaðar og frumvarp til laga
um Hagrannsóknastofnun og
breytingu á lögum nr. 93/1971 um
Framkvæmdastofnun rikisins.
Hiöfyrrnefnda er um heimild fyr-
ir Félagsmálaráðuneytið til að
setja reglugerð um nauðsynleg
Gils Guðmundsson.
frávik frá ákvæðum laga, reglu-
gerða og samþykkta, er snerta
byggingarmálefni, enda taki sú
reglugerð aðeins til verksmiðju-
framleiddra timburhúsa, er reist
verða á vegum Viðlagasjóðs eða
Vestmannaeyjakaupstaðar, sbr.
lög nr. 4/1973 og reglugerð nr.
62/1973.
t 1. grein siðarnefnda frum-
varpsins segir svo: „Fela skal
sérstakri stofnun að fylgjast með
árferði og afkomu þjóðarbúsins,
vinna að hagrannsóknum og
veröa rikisstjórninni til ráðuneyt-
is i efnahagsmálum. Stofnunin
nefnist Hagrannsóknastofnun og
Helgafellsbók:
SJÁLFSÆVISAGA SÉRA
JÓNS STEINGRÍMSSONAR
OG ÖNNUR RIT
Út er komin hjá Helgafelli i út-
gáfu Kristjáns Albertssonar ævi-
saga séra Jóns Steingrimssonar
og önnur rit.
Formála að bókinni ritar
Kristján Albertsson. Auk ævisög-
unnar, sem er rúmar 300 blaðsið-
ur, er I bókinni birt „Eldritið” og
tvær ritgerðir, „Kötlugjá” og
„Um að ýta og lenda i brimsjó
fyrir ströndum”. Þá fylgir og
nafnaskrá, en samtals er bókin
438 bls. i vönduðu bandi, prentuð i
Vikingsprenti.
A kápusiðu segir svo um bók-
ina:
Sjálfsævisaga séra Jóns Stein-
grimssonar er islenzkt höfuðrit og
skipar sess meðal hinna merki-
legustu og einkennilegustu bóka
um lif okkar, siðu og hugsunar-
hátt gegnum aldirnar. Frá þvi að
Islendingasögur voru skrifaðar
og fram á siðustu öld að minnsta
kosti stendur þessi ævisaga ein
sér i bókmenntum okkar: yfir-
gripsmikil, raunsæ, en um leið
ákaflega persónuleg frásögn úr
daglegu lifi. „Ekki verður til neitt
annað rit um fimm alda skeið þar
sem vér komumst i viðlika nánd
við fólkið i landinu, svipi þess og
alla ásýnd, hugsun og liðan, i
dagsins önn, hamingju og þraut-
um.” (Kristján Albertsson, for-
máli).
Séra Jón Steingrimsson (1728-
1791) var Skagfirðingur að upp-
runa og gekk i Hólaskóla (þaðan
eru sumar af allra skemmtileg-
ustu sögum hans), gerðist djákni
á Reynistað, fór siðar búferlum
suður I Skaftafellssýslu og
eignaðist þar mikla sögu. Hann
gerðist mikill guðsmaður, en lika
hugvitssamur búandi og sjósókn-
ari, læknir, skáld, þýðari og rit-
höfundur, en endaði ævi sína
harmkvælamaður, snauður og
þrotinn að heilsu. Þvi verður saga
hans margbreytileg og snertir
þjóðlifið allt.
Með þessari nýju útgáfu ævisög-
unnar hefur Kristján Albertsson
tekið til viðbótar þrjár ritgerðir
séra Jóns: Eldritið (hina mikil-
fenglegu frásögn um Skaftár-
elda), Um að ýta og lenda i brim-
sjó fyrir söndum, Um Kötlugjá.
Eru þá meginrit séra Jóns komin
saman á einn stað.
Enginn islenzkur rithöfundur á
undan séra Jóni hefur lýst tilfinn-
ingalifi sinu jafn-bersögult (og
raunar ékki margir siðan). 1 þeim
skilningi má hann með réttu kall-
ast okkar fyrsti nútimahöfundur.
forseti
Eysteinn Jónsson
heyrir undir forsætisráðherra,
sem skipar forstjóra hennar”.
Gert er ráð fyrir að lögin öðlist
gildi 1. janúar 1974, sbr. 8. gr.
frumvarpsins.
1 athugasemdum við frumvarp-
iö segir:
„Með lögum nr. 93/1971 um
Framkvæmdastofnun rikisins
var hagrannsóknade i 1 d
stofnunarinnar ákveðin sérstaða,
að þvi leyti sem segir i 6. gr. lag-
anna, að hún „heyrir beint undir
rikisstjórnina”. Astæðurnar til
þess að marka deildinni þessa
sérstöðu eru einkum tvær. Ann-
ars vegar er talið æskilegt, að al-
menn hagrannsóknastarfsemi
hafi svo óháða stöðu sem kostur
er. Hins vegar er nú staðreynd að
verkefni deildarinnar, einkum
þaö að fylgjast með árferði og af-
komu þjóðarbúsins, ráðuneyti við
rikisstjórnina i efnahagsmálum
og almenn upplýsingaþjónusta á
sviði efnahagsmála, eru afar um-
fangsmikil og falla að miklu leyti
isjálfstæðan farveg, sem er óháð-
ur annarri starfsemi Fram-
kvæmdastofnunarinnar. Reynsl-
an, sem fengizt hefur á þeim
tima, sem Framkvæmdastofnun-
in hefur starfað, hefur staðfest
nauðsyn sjálfstæðrar stöðu starfs
hagrannsóknadeildar. Þvi virðist
nú eðlilegt að halda lengra i þá
átt, sem mörkuð var fyrir stöðu
deildarinnar i lögum um Fram-
kvæmdastofnun. 1 þeim tilgangi
er þetta frumvarp um sérstaka
Hagrannsóknastofnun flutt”.
Meðal verkefna Hag-
rannsóknastofnunar er: að færa
þjóðhagsreikninga, semja þjóð-
hagsspár og áætlanir, semja og
birta opinberlega tvisvar á ári
yfirlitsskýrslur um þróun þjóðar-
búskaparins og horfur i þeim efn-
um, að annast hagfræðilegar
athuganir og skýrslugerð fyrir
rikisstjórnina og alþj.stofnanir
á sviði efnahagsmála, og að veita
aðilum vinnumarkaðarins
upplýsingar um efnahagsmál og
annast fyrir þá hagfræðilegar at-
huganir eftir þvi sem um semst.
1 5. grein frumvarpsins er gert
ráð fyrir að kostnaður af rekstri
stofnunarinnar verði borinn sam-
eiginlega af Rikissjóði og Seðla-
banka Islands. Til samræmingar
er lagt til i frumvarpinu, að II.
kafli 1. nr. 93/1971 um
Framkvæmdastofnun rikisins
falli. niður svo og önnur ákvæði er
varða hagrannsóknadeild og
starfsemi hennar.
— hs —
Fjármálaráðuneytið
10. október 1973.
Tilkynning til
söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á
þvi að gjalddagi söluskatts fyrir septem-
ber mánuð er 15. október.
Ber þá að skila skattinum til innheimtu-
manna rikissjóðs ásamt söluskatts-
skýrslu i þririti.
Brunahanar
Vatnsveita Reykjavikur vill, að gefnu til-
efni benda á að öllum öðrum en Slökkviliði
Reykjavikur við skyldustörf og starfs-
mönnum vatnsveitunnar er stranglega
bannað að taka vatn úr brunahönum.
Vegna frosthættu hafa brunahanar verið
vatnstæmdir fyrir veturinn. Vatnsveitan
vill benda á að hver sá sem notar bruna-
hana án leyfis getur orðið valdur að
eignatjóni og skapað margvislegar
hættur.
Vatnsveita Reykjavikur.
kx
i'S
,r>
Birgðavarzla
Borgarspitalinn óskar eftir að ráða
mann til aðstoðar við birgðavörzlu.
Nánari upplýsingar veittar n.k. mánu-
dag og þriðjudag i Borgarspitalanum
hjá Kristjáni Reykdal, birgðaverði,
sem jafnframt tekur á móti umsóknum ý
um starfið. \X
Reykjavik, 11. okt. 1973. ;
Borgarspitalinn ^
&
'7./
V ‘f
■t.
TUDOR
7t>P
EIN ÞEKKTUSTU
AAERKI
NORÐURLANDA \SVJNNaK\
O
BATTERBI
RAF-
GEYMAR
6 og 12 volta Sönnak og Tudor
Rafgeymar jafnan fyrirliggjandi
77
ARMULA 7 - SIMI 84450
Tíminn er peningar
[h@g(§irii b@né
allra þeirra er þurfa að lesa fyrir bréf, eða koma skilaboðum eða
hugmyndum áleiðis.
Kassettan í tækið, þrýst á hnapp, og þér getið talað inn bréf eða
skilaboð I allt að 11/2 klst.
Jafn auðvelt er fyrir einkaritara eða vélritunarstúlku að taka
á móti boðunum.
Tækinu er hægt að stjórna með fótstigi, og hægt er að hafa
það með sér hvert sem er, þar sem það gengur einnig fyrir rafhlöðum.
Verð aðeins um kr. 18.000.00.
Klapparstig 26, sími 19800, Rvk.
og Brekkugötu 9, Akureyri, sími 21630.