Tíminn - 02.12.1973, Blaðsíða 4

Tíminn - 02.12.1973, Blaðsíða 4
4 TÍMINN Sunnudagur 25. nóvember 1972 Rdðagóður farþegi Þetta geröist i járnbrautarklefa I Sviþjóð — nánar tiltekið i Smá- löndum. Þar sat Smálendingur nokkur rólegur i klefanum með ööru fólki. Þá kom umsjónar- maöurinn inn i klefann til þess aö lita á farseölana, og sat þá Smálendingurinn meö farmiða sinn i munninum -- en engu að stður fór hann að leita að honum, fyrst i öðrum vestis- vasanum, svo i hinum, svo i ----------☆----------- buxnavösunum, veskinu sinu, frakkavösunum og alls staðar á sér og varð þvi órórra, sem lengur leið. Hinir farþegarnir gátu ekki stillt sig um að hlæja og loks sagði umsjónar- maðurinn manninum hvar far- miði hans væri og tók við honum, en hann var þá orðinn talsvert tugginn i annan endann. Umsjónarmaðurinn fór út og einn farþeganna hafði þá orð á þvi við Smálendinginn, að það gæti verið óþægilegt að vera svona utan við sig. — Æ, nei, það gerir minnst til með það. Ég er ekki svo slæmur, sagði sveitamaðurinn rólega. Farmiðinn minn var bara of gamall og þess vegna fannst mér vissara að tyggja af honum dagsetninguna! Ætlar að verða leikari eins og mamma Cipi Ponti, sonur Sophiu Loren, sem bráðum verður fimm ára gamall, hefur ákveðið, hvað hann ætlar að leggja fyrir sig i framtiðinni. Hann hefur til- kynnt, að hann vilji verða leik- ari eins og móðir hans. — Hann hefur svo gaman af að ieika seg- ir móðirin stolt, — og ég er viss um að hann getur orðið góður gamanleikari. Hann hefur greinilega mikla hæfileika. — En áöur en af þvi verður, fer hann i Eton skólann i Englandi, segir Carlo Ponti, faðir hins væntanlega leikara, — þvi að ekki veitir drengnum af góðri undirstöðumenntun. >■ Félagsheimili stúdenta Lokið hefur verið við byggingu fyrsta félagsheimilis stúdenta i Dnepropetrovsk i sovétlýðveld- inu Úkraina. Félagsheimili þetta er fyrir alla stúdenta borgarinnar. t Dnepropetrovsk eru sjö háskólastofnanir, há- skóli og fjölmargar sérhæfðar miðskólastoínanir. t félagsheimilinu starfa ýmsir klúbbar, og er heildartala með- lima þeirra 800 stúdentar. þ.á.m. eru balletthópur, Ijós- mynda- og kvikmyndaklúbbur og fl. Fólk með sérmenntun á viðkomandi sviði veitir klúbbunum forstöðu. Þeir hóp- ar, sem skara fram úr, koma fram á sýningum i nágranna- þorpunum, á stöðum, þar sem ungir meðlimir Komsomol vinna að húsbyggingum, eða hjá sovézka hernum. Listahátiðir hafa verið haldnar i félagsheim- ilinu. t lok hvers skólaárs fer þar fram inntaka nýstúdenta. t félagsheimilinu er rekinn eins konar almenningslistaháskóli, sem 500 manns sækja. A náms- skrá eru helztu vandamál Marx- Leniniskrar fagurfræði og nú- timalistir. Nemendurnir kynn- ast sögu innlendra og erlendra listamanna og framförum á sviði menningar. Myndin er af tveim stúdentum og kennara þeirra, sem ræðir málverk, sem þeir vinna að i félagsheim ilinu. DENNI DÆMALAUSI Blessuð farðu nú ekki að hæla henni fyrir það, hvað hún litur vel út og svoleiðis.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.