Tíminn - 02.12.1973, Page 5

Tíminn - 02.12.1973, Page 5
Sunnudagur 2. desember 1973. TÍMINN 5 Giftast þau á ný? Nina von Pallandt hefur að lok- um hlotið viöurkenningu sem nokkuð góð leikkona. Er það fyrir leik hennar i myndinni The Long Goodbye en þar fer Eliot Gould með aðalhlutverkið á móti henni. Robert Altman kvikmyndaframleiðandi rakst á mynd af Ninu i blaði, þegar hvað mest var skrifaö um hlut- deild hennar i ævisöguhneyksl- inu um Howard Hughes, og var Altman samstundis viss um, að þarna væri rétta mannsekjan i áðurnefnda kvikmynd. baö reyndist rétt. Annars er nú bjart yfir framtið Ninu, þvi að nú bendir allt til þess, að hún og fyrrum maöur hennar Friðrik ☆ (Ninu og Friörik þekkja allir) taki saman aftur. bau hafa dvalizt með börn sin þrjú i húsi þeirra á Ibiza. Hvorki Nina, Friðrik né börnin gátu hugsaö sér að fara aftur frá Ibiza, svo ánægð voru þau öll með sam- verustundirnar þar, en börnin þurftu að komast i skóia i London og Nina aftur til kvik- myndaleiksins. Nina segir, að ekki muni koma til þess.að þau hjónin fari að syngja aftur saman, þvi Friðrik sé mjög ánægöur með núverandi starf sitt, en hann framleiðir hljóm- plötur og selur. bau hafa komizt að þeirri niðurstöðu, að þau geti vel hugsað sér aö taka saman aft ur, enda hvorugt i nokkru ásta- sambandi viö aðra, svo ekkert bindur þau. Sennilega veröur næsta fréttin um hjónaband þeirra Ninu og Friðriks. ☆ Enginn fangavörður fékkst, en fangarnir fengu að æfa hnefaleika! Yfirvöldin i Mexikó gáfu fyrir nokkrum árum leyfi til þess, að fangar i hengingarhúsum landsins mættu læra hnefaleika. betta var leyft um leið og gefin voru leyfi fyrir meiri iþrótta- iökunum fanga. Hnefaleika- leyfið var þó fljótt afturkallað. bað hefur sem sé komið á daginn, að fangarnir urðu svo til óviðráanlegir i fangelsunum, og nú er orðinn hörgull á eftir- litsmönnum, sem geta ráðið við þá.Liklega fara þeiraðstunda golf i fangelsunum i staðinn! 50 óra leikarafrétt! Pola Negri fór i haust til Evrópu og var aðalerindið það, að ganga endanlega frá skilnaði við manninn sinn. Hafa þau ver- ið skilin nær heilt ár. bau hittust svo fyrir hjúskaparréttinum i Paris og fyrsta spurning dómárans var sú, hvort þau elskuðust ennþá. Og bæði svör- uöu þvi játandi. Taldi dómarinn þvi réttast að láta þau talast við undir fjögur augu dálitla stund, áður en hann ræki smiðshöggið á skilnaðinn. Eftir þetta viðtal báðu þau dómarann að hætta við skilnaðarathöfnina, þvi þau ætluðu að reyna einu sinni enn, hvort þau gætu ekki lifað sam- an. Skældu þau þá bæði eins og krakkar og voru hin óburðug- ustu. — En nú hefir Banarikja- stjórn gert Polu boð að koma vestur sem allra fyrst. Henni hefir nfl. verið stefnt fyrir van- goldið útsvar, sem nemur 68.980 dollurum. Strókur eða stelpa? Nú á dögum er oft erfitt að segja i fljótu bragði, hvort það er strákur eöa stelpa, sem maður sér á götu eða i strætisvagni. Klæðnaðurinn og hártizkan er svipuð hjá báðum kynjum, og þess vegna erfitt að skilgreina hvað er hvað. Jafnvel tölvurnar geta gert mistök i þessum efn- um, og þá er langt gengið! Frá Larvik i Noregi kemur frétt um tviburasystkinin Lisu og Per Boye Karlsen. Nýlega kom bréf frá hernaðaryfirvöldum um kvaðningu i herinn, og hélt Per auðvitað að það væri til sin, en viti menn, það var ekki hann, sem kallaður var i herinn heldur Lisa. Hún segist ætlað að mæta alveg galvösk, — jafnréttið lifi! Fegurðin sem hvarf Faye Dunaway var lengi talin ein fallegasta kona i kvik- myndaheiminum, og það má sjá, að hefur verið á rökum reist, ef litið er á myndina af ljóshærðu konunni hérá siðunni. Litið svo á hina myndina, sem hér er einnig, og er af konu með snarhrokkið svart hár. bað er tæpast hægt að trúa þvi, að þctla sé sama manneskjan. Faye er nú i tygjum við popp- söngvarann Peter Wolf, og sagt er, að hann hafi haft þessi undarlegu áhrif á Faye, sem orðið hafi þess valdandi, að hún hel'ur svo gjörsamlega tekið upp nýja hætti. ☆ Undirheimar suðurpólsins Meðlimir sovézks rannsóknar- leiðangurs, sem fór til suður- heimskautsins undir stjórn J. Gruzov, eyddu 2000 klukku stundum undir is suðurheim- skautsins. Árið 1970 settu hal'- fræðingar upp stöð á einni al Haswell Arehipelago-eyjunum nálægt sovézku stöðinni Mirny. Með aðstoð köfunartækja rann sökuðu þeir sjávarlifið við suðurheimskautið i 18 mánuði. Visindamennirnir söfnuðu ákaflega miklu efni um dýralií- ið við strendur issins. 1 nágrenni Mirny fundust um 400 dýra tegundir, og mestur hluti þeirra finnst aðeins við suðurheim- skautið. barna uppgötvuðu vis- indamennirnir einstætt sam- félag dýra og plantna. bað kom i Ijós, að undir hinu tveggja metra þykka islagi var ákaflega mikið af kisilþörungum. Meðan á hinni löngu heimskautanótt stendur, vaxa þörungarnir ekki, og neðansjávarlifið er i eins konar dái, en á sumrin vaknr allt og dafnar. Efni það, sem visindamenn- irnir hafa safnað, hefur verið gefið út i margra binda útgáfu, sem nefnistí „Árangur liffræði- legra rannsókna sovézkra heimskautaleiðangra.” I

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.