Tíminn - 02.12.1973, Side 9
Sunnudagur 2. desember 1973.
TÍMINN
9.
Sextán vikna fóstur
Sautján vikna fóstur
reglum lækna almennt, og sé ekki
um að ræða læknisfræðilega
ástæðu til fóstureyðingar, getur
slik aðgerð af öðrum ástæðum
naumast talizt læknisverk.
Læknirinn getur hins vegar
Atján vikna fóstur
ustu i slikum tilvikum heldur en
að stuðla að þvi, að móðirin fái
fóstri sinu eytt.
Hvað snertir þriðja aðilann,
það er að segja lækninn, þá brýt-
ur slik eyðing á lifi á móti siða-
ekki kastað frá sér þessu máli
sem einhverju, er honum komi
ekki við. Það er vegna þess, að
fóstureyðing er tiltölulega auð-
veld aðgerð. sem leikmenn geta
aflað sér þekkingar um. og hafa
reyndar alltaf gert. bað er vitað
mál. að á öllum timum hafa leik-
menn fengizt við að eyða fóstrum.
Haldi læknar að sér höndum og
neiti að eiga aðild að þessum mál-
um, stuðlar það að þvi, að fóstur-
eyðingar verði framkvæmdar af
ólærðum mönnum, en þvi fylgir
mjög aukin lifshætta. Þetta er.
frá almennu læknisfræðilegu
sjónarmiði, miklu meiri hætta en
svo, að læknar geti látið sér það
vera óviðkomandi.
Eins og þetta liggur nú fyrir —
ef að lögum verður — hefur
læknirinn mjög litil tök á þvi að
fylgja eigin sannfæringu og sam-
vizku. Hann er nánast tilneyddur
að framkvæma aðgerðina, sé
þess krafizt.
Enn er einn aðili, sem oft er að
litlu getið, þegar þessi mál eru
rædd. Það er faðir fóstursins.
Hann ætti lika að hafa rétt á að
segja sitt álit varðandi eyðingu
sins eigin afkvæmis, þótt að visu
sé hans skoðun léttari á vogar-
skálinni en móðurinnar, þvi
óneitanlega er það hún, sem ber
hita og þunga meðgöngu og
fæðingar, og oft lika meginhluta
uppeldisins.
1 öllum ræðum og ritum um
þetta mál, er gengið út frá þvi, að
fóstureyðing sé algert neyðarúr-
ræði. Verði nú fóstureyðingar
gefnar frjálsar að þvi marki, sem
gerter ráð fyrir i þessum nýju til-
lögum, má búast við þvi, að
merking hugtaksins neyðarúr-
ræði breytist mjög, áður en lagt
um liður, og það, sem allir eru
sammála um nú, að sé neyðarúr-
ræði, verði talið sjálfsagður hlut-
ur eftir nokkur ár.
Þegar alls er gætt, finnast mér
þessar tillögur of mikið sniðnar
eftir óskum móðurinnar einnar,
en réttur fóstursins sem einstak-
lings litils metinn.
Almenn velmegun er nú meiri
hér á landi en nokkru sinni fyrr,
og ef sú þróun heldur áfram, sem
við að sjálfsögðu vonum, er ekki
ástæða til að efast um, að verð-
andi mæður njóti batnandi lifs-
kjara eins og aðrir þegnar þjóð-
félagsins. Og offjölgunarvanda-
málið, sem margar þjóðir stynja
undir, er ekki til hjá okkur, og
ekki neinar likur til þess, að það
geri vart við sig hér i náinni
framtið.
Nýtt útlit
á AAido úrum
MULTI#STAR
Vönduð úr í
sérflokki
MAGNÚS
ÁSMUNDSSON
Skartgripaverzlun
Ingólfsstræti 3.
Sími 17884.
Einsog
blómabreiða
Gefið svefnherberginu
nýjan, ferskan blæ með
blómaleppinu
fní Gefjun
Þau fást í fjölda lita
og mynztra.
Stærð 2.10 x 2.40 m.
Stoppuð með
dralon kembu.
Nylon í ytra borði.
Fást með
pífum eða án.
dralon
, BAYER
Úrvals trefjaefni
GEFJUN AKUREYRl <^m
VW BILALEIGAl
JónasariVliaiis
ARMULA 28
SÍMI 81315
©
CAR RENTAL*