Tíminn - 02.12.1973, Page 10

Tíminn - 02.12.1973, Page 10
1C TÍMINN Sunnudagur 2. desember 1973. Draumurinn um hjónaband kostaði hana lífið Kkkjan Mildred Mowry, sjöunda og siöasta eiginkona Campells. i KYKSTU dagsskimu hinn 23. fcbrúar 1929 var lögreglustjórinn James llennessy rifinn út úr volgu rúminu beint inn i eitl um- fangsmcsta glæpainúl á öllum starfsferli sinum. I>eir, sem voru á vakt, liöl'öu liringl til hans meö öndina i liálsinum og talaö eitt- livaö samhengislaust um mann- eskju, sem slæöi i logum i ná- grenni Cranford golfklúbbsins. Hennessy ók gegnum snjófokið eins hratt og hann gat, þar til hann sá eldtungur i nágrenni golf- klúbbsins. t>að var hræðileg sjón, sem birtist við skinið frá bílljósum lögreglustjórans. Ennþá logaði i bensinvættum fötum og likama mannveru, sem var svo brennd- ur, að hann var óþekkjanlegur. Hennessy slökkti eldinn með ný- föllnum snjó, og fékk við það að- stoð tveggja lögregluþjóna, sem voru komnir á staðinn. Hennessy fullyrti,, að likið var, af sterklegri, miðaldra konu. Af sporunum i nýföllnum snjónum — það voru engin nema hans og lögregluþjónanna — gat hann séð, að morðinginn hafði meira en klukkutima forskot. — Þangað til búið er að bera kennsl á likið, getum við ekki gert annað en að rannsaka umferð á vegunum og stöðva grunsamlega náunga, sagði lögreglustjórinn. Meðan læknir var á leiðinni, rannsakaði Hennessy föt liksins. Þau höfðu verið úr vönduðum efnum, en voru nú gjörónýt. Það var ekki hægt að sjá, hvaða teg- und af efni hefði verið i þeim. Aft- ur á móti voru skórnir, — þeim hafði verið hlift með skóhlifum — aflveg heilir. Hennessy athugaði skóna nán- ar. Þeir reyndust vera frá skó- verksmiðju i Missouri. Hennessy tók eftir þvi,að skórnir voru ný- sólaðir og hælarnir voru styrktir með málmplötu. Læknirinn staðfesti, að sú látna hefði verið skorin i hvirfilinn, svo að skotið hafði komið að ofan. Kúlan hafði smogið gegnum höf- uð, háls og brjóstkassa og stöðv- azt bak við sjötta rifbein. Skotið reyndist vera úr 32' kalibera skammbyssu. — Konan hefur látizt samstund- is, sagði læknirinn. Vegna brun- ans verður erfitt að bera kennsl á líkið. Skórnir visuðu á sporið En Hennessy lögreglustjóri missti ekki kjarkinn. Hann aug- lýsti eftir fólki, sem gæti borið kennsl á hina látnu. Það dugði ekki. Og skór af þeirri gerð, sem konan var i, voru seldir um öll Bandarikin og gerði það að verk- um, að ómögulegt reyndist að finna verzlunina, sem einmitt þessir skór voru keyptir i. Þá lét Hennessy ljósmynda skóna og sendi myndina i þús- undatali til skókaupmanna i New Jersey og nágrannarikjum, á- samt lýsingu af skónum og kring- umstæðum, þegar þeir fundust. Einnig lét lögreglan sérfræðing rannsaka andlitsdrætti liksins með hliðsjón af hinum brenndu leifum. Það reyndist vera árangurslaust erfiði. Það leit út fyrir,að morðinginn myndi aldrei finnast... En það ótrúlega gerðist. Skó- kaupmaður i smábænum Green- ville i Pensylvaniu kannaðist við myndina af skónum. Hann sagði lögreglunni á staðnum, að hann þekkti þetta par með vissu og hann hefði selt það frú Mildred Mowry, ekkju, sem vann sem hjúkrunarkona i heimahúsum. Hennessy tók fyrstu lest til Greenville.Hann hafði samband við þá, sem höfðu umgengizt frú Mowry, og fékk strax að vita að hún var horfin. Það var samdóma álit þeirra, sem til þekktu, að dularfullur náungi, dr. Campell, stæði á bak við hvarf hennar. Einnig gaf fjöldi bréfa, sem fannst á heimili hinnar horfnu konu, nokkurn veginn heillega mynd af þvi, sem hafði gerzt. Leitaði til hjónamiðlunarskrifstofu Þetta var hin sigilda saga um miðaldra. einmana konu, sem lagði allt sparifé sitt i að finna sér mann. Frú Mowry varð ekkja ár- iö 1919 og hafði eftir það stundað hjúkrunarstörf i heimahúsum og fengið góða dóma hjá læknum héraðsins. Hún var dugleg og vin- gjarnleg og féll vel inn i starf sitt sem hjúkrunarkona. Hún hafði oft sagt við vini sina og kunningja, að nú þegar hún nálgaðist fimmtugt, gæti hún vel hugsað sér að giftast aftur og stofna nýtt heimili. Þess vegna sneri hún sér, eins og margar aðrar konur á hennar aldri, til hjónamiðlunarskrifstofu, þar sem hún framar öllu öðru lét i það skina, að sparifé hennar væri talsvert, eða um 4000 dollarar. Hún vildi gjarna stofna til bréfa- skipta við ógiftan mann á hennar aldri. Henni bárust mörg tilboð. Og meðal mörg hundruð bréfa valdi frú Mowry eitt, sem eftir inni- haldinu að dæma virtist skrifað af sérstaklega kurteisum manni. Undirskriftin var dr. Richard M. Campell, og hann visaði á lög- heimili i Baltimore. Það leikur enginn vafi á þvi, að hið vel orð- aða bréf hafði mikil áhrif á ekkj- una. Það fundust yfir tuttugu bréf i hirzlum frú Mowry, sem sýndu að hún hafði skrifazt á við ,,dr. Campell” i 3 mánuði,áður en þau hittust. Einn góðan veðurdag lagði frú Mowry af stað frá Greenville án þess að geta þess við nokkurn mann. Þegar hún kom til baka, var hún full af stolti. Hún hafði hitt dr. Campell i Washington. Hann átti og veitti forstöðu elliheimili i Baltimore, sagði hún, og var margorð um alla hina góðu eiginleika hans. Hún var sérstaklega töfruð af fágaðri framkomu hans og at- hyglinni, sem hann veitti henni. Frá þessari stundu sveif frú Mowry á ljósrauðu skýi. — Ég ætla að giftast dr. Camp- ell i Baltimore,um leið og hann er búinn að innrétta nýtt hús handa okkur þar, sagði hún við vini sina. — Það verður tilbúið eftir nokkra mánuði. Hún sagði aftur á móti ekki frá þvi, að doktorinn, unnusti hennar, hafði fengið lánaða hjá henni 1000 dollara — nauðsynlegt til að full- gera nýja heimilið okkar, sagði hann. 1 bréfi, skrifuðu eftir fyrsta fund þeirra, sagði dr. Campell: — Þú ert óvenjuleg kona, — kona, sem er óvenjuleg heppni fyrir dauðlegan mann eins og mig að hitta. Ég trúi þvi, að ást þin sé mér allt, þýðingarmikil fyrir bæði lif mitt og atvinnu. Ég þrái að komast til Greenville, þvi ég brenn af löngun eftir að sjá þig, en vinnan tekur allan tima minn. Ég vona, að þú sért eins eftir- væntingarfull og ég, ástin... Nokkur þúsund dollara „lán” 1 næsta bréfi bað hann ekkjun" um að koma til Philadelp.a. i bað doktorinn hennar, sögðu vin hennar síðar. Þau giftust sama dag i Elkton, Maryland. Nýgiftu hjónin óku frá Mary- land til New Brunswick, New Jersey, þar sem þau eyddu brúð- kaupsnóttinni. Næsta morgun opn uðu þau, samkvæmt ósk brúð- gumans, reikning i New Jersey National Bank, og nokkrum dög- um siðar bað Campell konu sina að leggja inn 1000 dollara, þvi hann væri í augnabliks vandræð um. Hann fullvissaði hana um, að hann myndi borga aftur eftir nokkra daga. En allt i einu til- kynnti hann konu sinni, að hann væri kallaður til New York i árið- andi erindagjörðum. Hin nýgifta frú Campell fór heim til Greenville og ætlaði að dveljast þar, þangað til doktorinn kæmi aftur. Siðan ætluðu þau að leggja af stað i langa brúðkaups- ferð. Frú Campell grunaði ekkert illt, þegar hún sneri heim með af- ganginn af sparifénu sinu og gift- ingarvottorð, sem hafði nú þegar kostað hana 2000 dollara. Hún sýndi giftingarvottorðið stolt og sagði frá þvi, hversu upptekinn Sjómanna 1 'kinlSEB bóra Blá sýnir stílsnilld nokkurra hinna eldri sjómanna okkar. Meðal efnis hennar eru greinar eftir: Ásgeir Sigurðsson, skipstjóra, Guðmund Jónsson, skipstjóra, Reykjum, Hallgrím Jónsson, vélstjóra, Guðmund Guðmundsson frá Ofeigsfirði, Þorberg Steinsson, Þingeyri, Jóhann Eyfirðing, skipstjóra, Harald Böðvarsson, útgerðarm., Akranesi, Þórð Jónsson, Látrum, Halldór Kristjánsson, Kirkjubóli, Vilhjálm J. Sveinsson, rithöfund, Sveinbjörn Kristjánsson, skipstjóra. I frásögnum þessara manna er að finna lifandi íslenzkt mál, sem nálgast hreina stílsnilld. „Hinn siðasti róður“ Odds sterka af Skaganum, verður hverjum manni ógleymanlegur. ,,Saltari“ Jóhannesar Helga, er ein af frum- smíðum hans. Smásögur Einars Braga og Astrid Vik Brekkan eru sérstseðar og ógleymanlegar. Bára blá er að lang mestu leyti skrifuð af sjómönnum og er hún úrval af greinum og sögum úr Sjómannablaðinu Vikingi á ár- unum 1939—1944. Fæst hjá bóksölum um allt land og hjá for- laginu. Sendum gegn póstkröfu. Sjómannablaðið Víkingur Bárugötu 11 — Simi 1-56-53 — Reykjavik Dairu pueen Tilkynning fró Dairy Queen Vegna flutnings i næsta hús verður isbúðin að Hjarðarhaga 47 lokuð nú um skamman tima. Á meðan bendum við viðskiptavinum okkar á hinar Dairy Queen isbúðirnar á eftirtöldum stöðum: Aðalstrœti 4 Bankastrœti 10 Álfheimum 6

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.