Tíminn - 02.12.1973, Page 15
Sunnudagur 2. desember 1973.
TÍMINN
15
sem er fyrir menntaða starfs-
krafta. Hann sagði að það hefði
mjög mikið gildi, að kennararnir
væru sérfróðir menn á sinu sviði
og visindamenn þar að auki
margir. I sambandi við frystihús-
in almennt, sagði hann, að mjög
miklar endurbætur hefðu farið
fram varðandi hreinlætisaðstöð-
una, sérstaklega eftir að hrein-
lætis- og búnaðardeild Fiskmats-
ins tók til starfa fyrir um tveim
árum siðan. en henni veitir for-
stöðu, Sturlaugur Daðason, verk-
fræðingur.
Starfsmenn deildarinnar heim-
sóttu á sinum tima öll frystihús i
landinu og gerðu heildarúttekt.
Góð samvinna hefur verið með
Fiskmatinu og ráðamönnum
frystihúsanna, en i nokkrum til-
fellum hefur þurft að loka húsum
vegna óviðunandi ástands. Þá
hafa verið gerðar endurbætur og
hefur ástandið batnað mjög þegar
á heildina er litið.
Það nýmæli verður tekið upp i
vetur, að menn frá hreinlætis- og
búnaðardeildinni verða sendir út
um allt land og munu þeir halda
fyrirlestra i frystihúsunum sjálf-
um. Vona menn að góður árangur
verði af þvi starfi.
Námskeiðið stendur yfir frá kl.
9 á morgnana til kl. 8 á kvöldin
flesta daga, en þá á eftir að þrifa
og vill það einatt dragast nokkuð
á langinn. Einn af nemendunum
sagði við blaðamanninn að lok-
um, að hann mætti til með að láta
það koma skýrt fram, að nám-
skeiðinu væri aldrei lokið fyrr en
um miðnætti, en það segði hann
konunni sinni alltaf, og lýsir það
vel hinu góða og skemmtilega
andrúmslofti, sem þarna rikir.
—hs-
Mjólkur-
flutn-
ingar í
Eyjafirði
á tank-
bílum
ganga
vel
LAUGARDAGINN 6. okt. s.l. hóf-
ust flutningar á mjólk með sér-
stökum tankbilum til Mjólkur-
samlags KEA, sem keypt hefir
tvo bila i þessu skyni. Getur hvor
um sig flutt 7.500 litra i einu. i
vetur verður mjólk tekin tvisvar I
viku af um 60 bæjum á Svalbarðs-
strönd og i öngulsstaðahreppi,
svo fremi að færð leyfi, en annan
hvern dag á sumrin. Þennan
fyrsta dag tankflutninganna voru
fluttir rúml. 7.000 litrar frá 14
bæjum á Svalbarðsströnd, og
tókst það með ágætum.
A aðalfundi Mjólkursamlagsins
27/4 1971 var samþykkt, að unnið
skyldi að tankvæðingu samlags-
svæðisins i áföngum, og er nú
áformað, að næsti áfangi verði
Saurbæjar-, Hrafnagils- og
Grýtubakkahreppar og að honum
ljúki á næsta ári. Stefnt er að þvi,
að tankvæðingunni i heild ljúki
1977.
Allt frá stofnun Mjóíkursam-
lags KEA 1928 hafa bændur sjálfir
séð um flutning mjólkurinnar til
samlagsins, og i þessi 45 ár hefir
hún öll verið flutt i mjólkurbrús-
um. En með þeirri breytingu,
sem nú verður með tilkomu tank-
bilanna, mun Mjólkursamlagið
annast flutningana. — JG
OG FJAÐRIRNAR FJÓRAR“
frásöguþœttir eftir Guðmund Böðv-
arsson, skáld á Kirkjubóli. Bók fyrir
alla, sem njóta íslenzkra frásöguþátta.
I fyrra kom út í sama flokki bókin
KONAN SEM LÁ ÚTI.
HÖRPUÚTGÁFAN
REFSKINNA II - eftir Braga Jónsson frá
Hoftúnum á Snœfellsnesi (Ref bónda).
I þessari bók eru m.a. Bjarna þáttur
Finnbogasonar frá Búðum, Sagnir af
Benedikt í Krossholti, séra Jens Hjalta-
lín, Benedikt Bakkman ofl. af Snœfells-
nesi. Einnig eru í bókinni fjölmargir
landsþekktir bragir og skopkvœði. -
Þjóðleg gjafabók, sem veitir gleði.
HÖRPUÚTGÁFAN
•»
Tíminn er
peningar
f AuglýsiíT
I
i Tímanum
BRENNANDI ÁSTARÞRÁ er eftir BODIL
FORSBERG höfund bókanna Ég elska að-
eins þig, Vald ástarinnar, Hróp hjartans,
Ást og ótti. Hrífandi og spennandi bók
um ástir og örlagabaráttu.
FrancisClifford
Æðisgenginn
■ Eftir höfund
metsölubókarinnar
NJÓSNARI ÁYZTU NÖF
ÆÐISGENGINN FLÓTTI er enn ein snilld-
arbókin eftir FRANCIS CLIFFORD, höf-
und metsölubókanna Njósnari á yztu
nöf, Njósnari í neyð, í eldlínunni. Franc-
is Clifford hlaut 1. verðlaun Crime Writ-
ers’ Association 1969.
HÖRPUÚTGÁFAN
AUGU í SVARTAN HIMIN er nýja Ijóða-
bókin eftir Friðrik Guðna Þórleifsson.
HÖRPUÚTGÁFAN