Tíminn - 02.12.1973, Qupperneq 19

Tíminn - 02.12.1973, Qupperneq 19
Sunnudagur 2. desember 1973. TÍMINN 19 Otgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þór- arinn Þórarinsson (ábm.), Jón Helgason, Tómas Karlsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrif- stofur i Edduhúsinu við Lindargötu, simar 18300-18306. Skrif- stofur i Aðaistræti 7, simi 26500 — afgreiðslusimi 12323 — aug- lýsingasimi 19523. Askriftagjald 360 kr. á mánuði innan lands, i lausasölu 22 kr. eintakið. Blaðaprent h.f. ------------ j Heildarlöggjöf um umhverfismál 1 þessari viku lagði Heimir Hannesson, er nú á sæti á Alþingi i forföllum Stefáns Valgeirs- sonar, fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar; ásamt þeim Jónasi Jónssyni og Hannibal Valdimarssyni, um að rikisstjórnin láti semja frumvarp til heildarlöggjafar um umhverfis- mál. í greinargerð me8 tillögunni kemur fram, að mönnum sé nú að verða ljóst, að beita þurfi öll- um tiltækum ráðum til að hindra mengun og náttúruspjöll. En ekki þarf siður að hafa gætur á umhverfisvernd i byggð, hinu næsta um- hverfi mannsins við vinnustaði og heimili. Þessum málum hefur ekki verið sinnt sem skyldi. Of algengt sé, að við byggingafram- kvæmdir hér á landi sé ekki nægjanlega hirt um sjálfsögð umhverfissjónarmið, eins og frá- gang lóða, málun húsa og almenna, snyrtilega umgengni. Það sé einnig of algengt, að bæjar- og sveitarfélög láti undir höfuð leggjast að fylgja eftir ákvæðum byggingarsamþykkta um ýmiss konar frágang, er snertir umhverfismál. Með nýrri heildarlöggjöf um umhverfismál þurfi að ýta undir og örva áhuga og viðleitni opinberra aðila og einkaaðila til að láta um- hverfissjónarmið ráða meira en gert hefur verið i skipulagi og framkvæmdum. Flutningsmenn leggja sérstaka áherzlu á nauðsyn þess, að löggjafarvaldið flýti fyrir þessari jákvæðu þróun með lagasetningu. Slik lagasetning yrði að stefnumörkun til nátengd þeirri stefnu, er þegar kemur fram i náttúru- verndarlögunum, en næði mun lengra. Telja flutningsmenn aldrei of oft á það minnt, að landsmenn allir ættu með sameigin- legu átaki að varðveita og fegra þá náttúru- perlu, sem ísland er, og á mörgum sviðum þurfi aðeins litið átak, til að miklar breytingar verði. Jafnframt verði menn að hafa i huga, 'að ísland er fyrst og fremst matvælaframleiðslu- land, þar sem sýna verður fullkomið hreinlæti og góða umgengni úti sem inni — jafnt i hinum daglegu störfum i byggð sem i samskiptum við náttúruna. Flutningsmenn telja þó, að árang- urs sé ekki að vænta með valdboðum, heldur miklu frekar lagasetningu, er styddi að þvi, sem að framan er sagt, á margvislegan hátt i samvinnu hins opinbera aðila við alla þá, sem þessi viðtæku mál skipta, og með þeim reynt að styrkja það almenningsálit og þá umgengnis- hætti, er fegruðu landið. Hér er áreiðanlega þörf á stóraukinni fræðslustarfsemi i skólum og i fjölmiðlum. Núverandi löggjöf er ekki full- nægjandi sem heildarlöggjöf i þessu sambandi, og ný löggjöf þyrfti að marka hin nýju viðhorf, er rutt hafa sér til rúms á siðustu árum — að lifsgæðin væru ekki sizt i þvi fólgin að njóta ánægjulegra samskipta við umhverfið, hvort sem það er á vinnustað, við heimilin eða i ferðalögum um landið. Flutningsmenn telja, að samþykkt sliks frumvarps væri verðug afmælisgjöf til þjóðar- innar á 1100 ára afmæli byggðar i landinu, og leggja þvi á það áherzlu, að málið nái fram að ganga á árinu 1974. Loren Jenkins, Newsweek: Chou En-lai sætir gagn- rýni róttækra flokksbræðra Þegar deilt er d kenningar Konfúsíusar, er verið að rdðast gegn Chou En-lai Konfúsius KONFÚSIUS lézt fyrir 2400 árum, en þrátt fyrir það er hann eitt mesta deiluefni Kin- verja þessa stundina. Hug- myndafræðingar kommúnistaflokksins keppast látlaust við að lúskra hinum forna spekingi, bæði i útvarpi, blöðum og á stjórnmálafund- um hvarvetna um land. Undangengna tvo mánuði hefir Konfúsius virzt vera háskalegasti maðurinn i Kina nútimans. Enginn kemst i hálfkvisti við hann i þessu efni nema helzt Lin Piao, hinn látni varnamálaráðherra, sem beið bana i dularfullu flugslysi fyrir tveimur árum, en sagt er, að honum hafi skömmu áður mistekizt að steypa Mao Tse-tung formanni af stóli. EN hvað getur komið til, að minnig löngu látins manns verðurfyrir þvi ákafa aðkasti, sem raun ber vitni? Hér mun vera um þá gamal- kunnu aðferð Kinverja að ræða aö beita sögu sinni sem aðferð til þess að túlka sam- ttðina, og hafa áhrif á hana. Mörgum glöggum rýnendum kemur saman um, að árásun- um á Konfúsius viröist i raun og veru stefnt að sjálfum for- sætisráðherranum, Chou En- lai. Þeir vekja athygli á þvi, að Konfúsius sé meöal annars borinn þeim sökum, að hann hafi stutt embættismenn, sem búið var að óvirða. Chou En- lai hefir einmitt kvatt til starfa að nýju marga fulltrúa skrifstofuvaldsins, sem vikið var frá, meðan menningarbyltingin stóð sem hæst. Sé þssi kenning rétt, má gera ráð fyrir, að herferðinni gegn Konfúsiusi, sem ég varð vitni að við komu mina til Canton um daginn, hafi aðeins veriðein af mörgum orrustum i langvinnri styrjöld, en ef til vill sú ákafasta til þessa. Þessi styrjöld stendur milli hinna gætnu og hyggnu afla, sem Chou En-lai veitir for- ustu, og hinna róttæku, sem fylkja sér að baki Chiang Shing, konu Maos. ÞEGAR ég kom til Kina fyrir sex mánuöum, vildu gestgjafar minir umfram allt forðast að ræða stjórnmál við útlendinga. En þegar ég kom til Kina um daginn, varð ég ekki var við neina slika tregðu, eða að minnsta kosti ekki, þegar talið barst aö Konfúsiusi. Dr. Yang Jung- kuo, sjötugur háskólakennari i sögu við Chungshan háskólann i Canton, reið á vaðið með á- rásir á Konfúsius, og þar við háskólann standa stjórnmála- deilur enn i fullum gangi. Fyrir þremur mánuðum réðst dr. Yang á Konfúsius sem afturhaldsmann, sem hafi reynt ,,að halda viö völd- um þrælaeigendastéttar- innar.” Dr. Yang var farinn til Peking-háskóla til að boða kenningar sinar þar, þegar ég kom til Canton, en tveir sam- starfsmenn hans fluttu mál hans viö mig, þegar ég lagði leið mina til Chungshanhá- skóla. „KENNINGUM Konfúsiusar,” sagði annar há- skólakennarinn, ,,má koma fyrir i eina setningu og hún er þessi: Arörán er réttlætanlegt og uppreisn er glæpur.” Há- skólakennarinn heldur enn fremur fram, að þeir Lin Piao og Liu Chao-chi, hinn fallni forseti, hafi byggt gegn- byltingarsamsæri sin á raka- grunni Konfúsiusar. „Konfúsius var forfaðir allra svikara,” sagði annar viðmælandi minna. Og ekki fór á milli mála, aö samtiðinni var ætlað þetta skeyti. Prófessorinn hélt áfram: „Baráttan um gagnrýnina á kenningar Konfúsiusar stend- ur milli umbótamanna annars vegar og þrjózkra stuðnings- manna hins gamla kerfis hins vegar.” VIST ber að geta þess, að „stuðningsmenn hins gamla .kerfis” voru ekki nefndir með nöfnum. En gestgjafar minir sýndu mjög greinilega, að þeir höfðu ákveöna menn i huga. „Viðleitni okkar er angi þeirrar hreyfingar,” sagði annar þeirra, „sem leitast við að fjarlægja þann hluta yfir- byggingarinnar, sem sam- -ræmist ekki sósialismanum. Gagnrýni á kenningar Konfúsiusar svipar til þess að fella tré, og við verðum að ráðast að rótunum.” Tiunda þing Kommúnista- flokks Kina var háð i skyndi i ágústlok i sumar. Álitið var, að þar hefðu veriö leyst sum þeirra mála, sem skipt hafa æðstu ráðamönn'um kommúnista i tvær striðandi fylkingar, A þinginu var helzt að sjá, aðlimt hefði verið yfir mörg helztu ágreiningsat- riöin milli hreintrúaðra byltingarsinna, sem dáðu rót- tækni menningarbyltingar- innar, og hinna hyggnari og hófsamari flokksleiötoga, sem vildu reyna að koma á eðli- legu ástandi og stöðugleika að nýju. Nú er helzt svo að sjá á hinni áköfu baráttu gegn kenningum Konlusiusar, að sundrungin i flokknum sé aö aukast óðfluga aö nýju. ER árásunum i raun og veru beint að Chou En-lai? Eða er aðeins verið að reyna að fá hann til að breyta stefnu sinni? Um þetta er ekki unnt að fullyröa að svo komnu, en engum getur dulizt liking Chous og Konfúsiusar. Tvö helztu ádeiluefnin á Konfúsius, eða forréttinda- uppruni hans og viðelitni hans til að verja hið gamla, getur hvort tveggja átt vel við Chou. Þó er erfitt að imynda sér, að til séu i Peking nema fáeinir menn sem vilja i raun og veru steypa virtasta leiðtoga Kin- verja af stóli. Einn þeirra manna, sem hafa hvaö lengst lagt stund á að kynna sér málefni kommúnista, sagöi viö mig um daginn: „Chou En-lai er þjóöinni afar dýrmætur, og Kinverjar þurfa mjög á hon- um að haldá, eins og nú horf- ir.” En hvað sem þessu liður, verður að minnast hins ugg- vænlega undanfara árásar- innar, sem nú er gerð á Konfúsius. Einn erlendu sendimannanna i Peking sagði við mig: „Þú mátt ekki gleyma einu. Siðast var stórárás gerð á Konfúsius sumarið 1971.” Það var einmitt rétt fyrir fall Lin Piaos, en hann hafði allt fram að þvi veriö hylltur, sem „traustasti vopnabróöir Maos formanns.” —TK

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.