Tíminn - 02.12.1973, Qupperneq 26
26
TÍMINN
Sunnudagur 2. desember 1973.
Umsjón: Alfreð Þorsteinsson^=
Það vakti mikla at-
hygli í apríl 1968, að
landsliðsnefndin í hand-
knattleik valdi kornung-
an pilt úr Fram til að
leika í síðari landsleik
gegn Dönum í Laugar-
dalshöllinni. Danska
landsliðið var þá hér á
ferð og lék tvo lands-
leiki, 6. og 7. april.
Danska liðið vann fyrri
landsleikinn 17:14 og
varð það til þess, að
landsliðsnef ndin gerði
fimm breytingar á ís-
lenzka liðinu fyrir síðari
leikinn. Þá kom mest á
óvart, að Björgvin
skyldi valinn. Hver er
Björgvin? spurðu menn,
þegar fréttist um valið.
Þetta var ofur eðlileg
spurning þá, því að
Björgvin hafði aðeins
um skamma hríð leikið
með Fram-liðinu og ekki
verið áberandi leikmað-
ur þar.
Hins vegar vakti hann
geysilega athygli . á
Norðurlandamóti pilta í
handknattleik, sem var
haldið nokkrum dögum
áður í Noregi. Þá létu
nokkrir af forustu-
mönnum af öðrum
Norðurlöndum þau orð
falla um Björgvin, að
hann væri efnilegasti
línumaður á Norður-
löndum.
Björgvin stóð sig eins
og hetja i síðari lands-
leiknum, gegn Oönum,
sem íslenzka liðið vann
15:10 — fyrsti sigur is-
lands yfir danska lands-
liðinu í handknattleik.
Þá mátti sjá þessar um-
sagnir um Björgvin í
dag-blöðunum:
Kins og fuglinn fljúgandi, gæti þessi mynd heitið. Björgvin svifur inn f teiginn og skorar.
Stærsta framlagið
kom frá yngsta og
minnsta leikmanninum
A þessari mynd sést Björgvin skora gegn júgóslavneska liðinu Dynamo, sem hér var á ferð fyrir
skemmstu.
Björgvin var mikið innú i
ieiknum og var dugandi mað-
ur, lck eins og sá, sem valdið
hefur, sýndi enga minnimátt-
arkennd”.... og einnig: „Og
initt i öllum látunum kom
stærsta framlagið frá minnsta
og yngsta leikmanninum i is-
lenzka liðinu. Hinn 18 ára
„Spútnik” i islenzkum hand-
knattleik, Björgvin Björgvins-
son, skoraði 14:9 af linu — með
þessu marki frá „spútnikn-
um” var islenzkur sigur i
höfn”.
Nú hefur Björgvin leikið 51
landsleik fyrir Island og hann
er tvimælalaust einn bezti
handknattleiksmaður sem
hefur komið fram i islenzkum
handknattleik fyrr og siðar.
Hann er búinn að skipa sér á
bekk með Gunnlaugi Hjálm-
arssyni, Hjalta Einarssyni,
Guðjóni Jónssyni, Ragnari
Jónssyni, Geir Hallsteinssyni,
Ingólfi Oskarssyni, Axel
Axelssyni og Ólafi H. Jóns-
syni, en þeir eru allir leik-
menn, sem hafa gert garðinn
frægann. Það eru ekki ófá
skiptin, sem Björgvin hefur
fengið áhorfendur til að risa
upp úr sætum sinum af spenn-
ingi og láta i ljós hrifningu
sina með hrópum og köllum.
Við náðum tali af Björgvini i
gær og lögðum fyrir hann tvær
spurningar:
— Hvaða landsleikir eru
það, sem eru þér eftirminni-
legastir?
— Að sjálfsögðu er það
fyrsti landsleikurinn minn,
gegn Dönum i Laugardalshöll-
inni. Það kom mér á óvart,
þegar ég var valinn i landslið-
ið. Ég fékk tilkynningu um það
kl. 20.00 á laugardagskvöldið,
en þá kom vinur minn með
skilaboð frá Hannesi Þ.
Sigurðssyni, formanni lands-
liðsnefndar, að ég ætti að
leika. Þá var ég að fara út að
skemmta mér með vinum
minum — en þegar ég fékk
boððin frá Hannesi, var ekkert
Rætt við
Björgvin Björgvinsson,
landsliðsmann
í handknattleik