Tíminn - 02.12.1973, Blaðsíða 29

Tíminn - 02.12.1973, Blaðsíða 29
Sunnudagur 2. desember 1973. TÍMINN 29 Gunnar Bjarnason ráðunautur: AÐ HUGSA DJÚPT Tilefni þess, aö ég legg nú orð i belg um hestaútflutningsskatt, eru eftirgreind ummæli borkels Bjarnasonar hrossaræktarráðu- nauts i grein hans „Til rang- æskra „hrossabænda”” i „Timanum” þriðjudaginn 27. nóvember s.l.: „Alþingismenn þeir (þ.e. Ingólfur Jónsson og Agúst bor- valdsson. Aths. G.Bj.), sem nú ganga fram i þvi að höggva af framlögum til stofnverndarsjóðs, hugsa ekki djúpt”.-----„beir kunna ekki að meta það, að til eru þegnar i þjóðfélaginu, sem vilja bjarga sér á eigin spýtur, en liggja ekki alltaf á betli við rikis- sjóð um alla hluti”. betta er i fyrsta skipti, sem ég sé þvi haldið fram af starfsmanni Búnaðarfélags íslands, að opin- berir styrkir til búfjárkynbóta sé betlipeningur úr rikissjóði. Vilji fulltrúar landbúnaðarins á Búnaðarþingi staðfesta þessa skoöun, þá væri rökrétt (djúpt hugsað) aö leggja niöur öll opin- ber framlög til þeirrar starfsemi i landinu og virða þannig þann heilaga rétt bændastéttarinnar aö „vilja bjarga sér á eigin spýtur”. Til hvers er stofnverndarsjóðurinn ætlaður? Honum er ætlaö það hlutverk aö hjálpa islenzkum aðilum aö nota forkaupsrétt til að glata ekki úr landinu beztu stóðhestunum, sem erlendir kaupendur bjóða verö i fram yfir kaupgetu islenzkra kynbótafélaga. Hér gæti verið um að ræða I mesta lagi tvo eða þrjá stóöhesta á ári, sem islenzkir aðilar legðu verulegt kapp á aö halda eftir. begar þannig stæði á, væri ekki ósanngjarnt að ætlast til, að kyn- bótafélögin greiddu sjálf helming verðsins, ef fé fengist á móti i hverju tilviki annars staðar frá. Nú ætlast þeir til þess, Agúst bor- valdsson og Ingólfur Jónsson, að það standi óbreytt, að innheimt sé I stofnverndarsjóðinn 20% gjald af seldum stóöhestum úr landi og 10% af 1. verðlauna hryssum, sem skráðar hafa veriö i ættbók Bfl. tsl. Ef eitthvert árið vantaöi fé i sjóðinn, væri ekki ósann- gjarnt, aö rikissjóður hlypi undir baggann, og væri æskilegt, að þetta fyrirkomulag væri gert að lögum og sett i skipulagsskrá stofnverndarsjóðs. Hver mun greiða gjaldið til stofnverndarsjóðs, ef „djúpt er hugsað” og málið skoðað niður i kjölinn? borkell Bjarnason segir i grein sinni „Höfuðatriði málsins er það, að kaupandi á að greiða gjaldið til stofnverndarsjóðs”, og enn fremur segir hann um sama efni: „en fyrir okkur sem unnum að þvi að koma sjóðnum á laggirnar, vakti fyrst og fremst það að vernda stofninn, missa ekki úr landinu úrvals stóðhesta vegna peningaleysis. Láta svo er- lenda kaupendur borgar brús- ann” (sic!) Ég vil nú sýna fram á, að það er mjög „djúpt hugsaður” misskiln- Fyrstir ó morgnana ingur hjá borkeli Bjarnasyni og öðrum málsvörum útflutnings- hrossaræktarráðunauturinn kemst aö orði um þennan útflutn- ingstoll og greiðendur hans. Fjöldi seldra hryssna 1973: um 410 Andvirði seldra hryssna: um 14,4 millj. kr. Stofnverndarsjóðsskattur, 10% af andvirðinu: um 1.440.000,- kr. Fjöldi seljenda: 156 Meðal-stofnverndarsjóðsskattur á seljanda: um kr. 9.250,- skattsins aö halda þvi fram, að skatturinn sé borgaður af útlend- ingum ööru visi en sem hluti af útflutningsverði hrossanna. Hér gildir sama regla og fyrir aðrar útflutningsvörur. Hún væri ný og góö þessi „djúphugsaða” hag- fræði b.Bj., til athugunar og eftir- breytni fyrir rikissjóö, aö hjálpa t.d. togaraútgeröinni i taprekstr- arvanda------sem sé: leggja út- flutningstoll á seldar togarafisk, sem nemur taprekstrinum, og „láta svo erlenda kaupendur borga brúsann”. Hvort sem um er að ræða gjald til stofnlánasjóðs, til búnaðar- málasjóðs, til eftirlaunasjóös bænda (nú er greitt hundraös- gjald til allra þessara sjóða) — eða þessi 10-20% til stofnverndar- sjóös hinna „djúpt hugsandi" ný- forystuliöa bændastéttarinnar, þá hlýtur það ætiö að koma inn i dæmið sem frádráttarliðir af C.I.F. verði hrossanna, á sama hátt og flutningskostnaður og önnur slik útgjöld. Hér á eftir vil ég sýna lesend- um, hversu hár þessi útflutnings- skattur hefði oröið fyrir allt áriö 1973, og hversu margir þeir eru „þegnar i þjóðfélaginu, sem vilja bjarga sér á eigin spýtur, en liggja ekki alltaf á betli við rikis- sjóð um alla hluti”, eins og Hæsti greiðandi þarf aö borga kr. 166.000,- Ef nokkuð er „djúpt hugsö” i sambandi viö lagagerð um aö leggja svona skatt á örfáa hrossa- framleiðendur, þá er það aöeins „djúpt hugsað” ranglæti. bað mætti lika kalla það grunnt hugs- aö réttlæti, sem ég held að sé nær sanni að vera. En hver vill taka að sér að inn- heimta slikan rangiætisskatt? ÞM Hreinlætið er fjöregg fiskiðnaðarins (og reyndar allrar matvæla- framleiðslu) B3/K-121S FV kerfið er þvottasamstæða frá verk- smiðjum Frederiksons í Svíþjóð, er hafa áratuga reynslu í gerð véla, sem m. a. eru notaðar til aö þvo fiskkassa. Úr þessu kerfi má velja sér samstæöur eftir þörfum, misjafnar aó nctagildi og mismun- andi dýrar. Þar á meöal er B3K-121 geröin á myndinni, sem forskolar, sápuþvær og hreinskolar lítil og stór ílát, sem notuö eru í fiskverkun, kjötiöju og mjólkurbúum. Frederiksons þvottavélarnar eru búnar hinu fullkomnasta úóakerfi, sem hreinsar hvern smá-kima ílátanna, og er auk þess sparneyt- iö eins og Skoti á heita vatniö, sem þaö kalda. Allir hlutar Frederiksons vélanna eru úr rvó- friu stáli eóa ryóvaróir. Findus og Melby Fiskeindustri sem eru meóal stærstu og þekktustu fiskiönfyrirtækja í Noregi fela Frederiksons vélum aö annast hreinlætið. Þessi stóru fyrirtæki treysta ekki hverjum sem er til þess trúnaðarstarfs, enda vita þau öörum betur, aö hreinlætiö er fjöregg mat- vælaiónaðarins. B3/12-64 SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA @ Sjávarafurðadeild SAMBANDSHÚSINU RVÍK, SÍMI 17080 VIÐGERÐARÞJÓNUSTA: VÉLAVERKSTÆÐIÐ VÉLTAK HF DUGGUVOGI 21, REYKJAVÍK

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.