Tíminn - 02.12.1973, Blaðsíða 40
\
MERKIÐ.SEM GLEÐUR
HHtumst í kaupfélaghtu ,
fyrirgóúan mat
^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
-
„llaldiA vift”. scgir hann — „haldih viö!” Og hann veit, hvaö hann syngur, þvi aö hann er ekki neinn viövaningur á lestarbarminum.
Iliifnin og skipin eru hans heimur flesta daga, og meö bendingum slnum og handahreyfingum stjórnar hann straumi vöru, sem ýmist renn-
ur upp úr lestunum eöa niöur I þær. — Tlmamynd : Gunnar.
STENDUR í JÁRNUM,
AÐ NÆG ULL FÁIST
handa Akureyrarverksmiðjunum
— ÞAÐ stendur í járnum,
að við fáum næga ull, sagði
Hjörtur Eiriksson, verk-
smiðjustjóri á Akureyri, er
við ræddum við hann og
spuröum, nvernig verk-
smiðjunum á Gleráreyrum
gengi að afla hráefnis til
vinnslu. Þaö bjargar okk-
ur, að nú er hætt að senda
gærur óunnar úr landi. Þær
eru nú allar klipptar, og
þannig fáum við hundruð
lesta af ull.
Hjörtur sagði okkur, að fyrir
góðan ílokk af vetrarklipptri ull
væru nú greiddar rösklega hundr-
að krónur fyrir kilógrammið. En
þeirri aðferð verður ekki við
komið, nema féð fái góða meðferð
i góðum fiárhúsum. Fyrir vorull
uppogofan mun áætlað verð vera
um áttatiu krónur.
— Bezta ullin kemur úr Húna-
vatnssýslu, Skagafirði, Eyjafirði,
Hingeyjarsýslum og hluta af
Borgarfirði, sagði Hjörtur. En þvi
miður er ullin ekki svo góð sem
skyldi úr öllum landshlutum.
Akureyrarverksmiðjurnar fá
alla ull, sem Sambandskaup-
fólögin hafa ráð á, og má ekki
naumara vera, eins og fram hefur
komið, þótt það sé meiri hluti
allrar ullar, sem til fellur i land-
inu. Augljóst er, að fjáreigendur
geta viða bæði aukið tekjur sinar
með bættri meðferð á ull og stuðl-
að að grósku i mikilvægum iðn-
aði, sem veitir mikla atvinnu og
skilar þjóðinni allri útflutnings-
tekjum. —JII.
31 ií
3M*
3M*
3M2
3112
3M2
3M2
3M2
3M2
3M2
3M2
3M2
3M2
3M2
3M2
3M2
3M2
3M2
3M2
3M2
3M2
3M2
3M2
3M2
3M2
3M2
3M2
•3M2
3M2
3M2
3M2
3M2
3M2
3M2
3M2
3M2
3M2
3M2
3M2
3M2
Jóla$öf
TKMANS
l>HIDJI gripurinn, sem veröur jólagjöf Tfmans 1973 til
nýrra áskrifenda, er Ignis-isskápur — vænn gripur á
hverju heimili. Hvaö segöu til þess ung hjón, sem eru að
byrja búskap, um að vinna slikan grip?
Ráðið er að gerast áskrifandi að Timanum og freista
þess, hvar þessi vinningur kemur niður, þegar dregið
verður um hann. Og þó að vonin um hann bregðist, er um
miklu fleira að tefla, eins og þegar er búið að boða.
3M2
3M2
3M2
3M2
3M2
3M2
•3112
3M2
3M2
m
3M2
3M2
3M2
•3M2
Stóra
tölvan
tr
I
þjónustu
sjúkra
húsa
Borgarspítallnn
ríður d vaðið
i KKINGUM áramótin mun
komast i gagnið i Borgar-
spitalanum nýtt upplýsinga-
kerfi með fjarskiptabúnaöi,
er tengdur verður tölvu
Skýrsluvéla rikisins og
Reykjavikurborgar, þar sem
úrvinnsla upplýsinga fer
fram á skjótan og öruggan
liátt. i ráði mun, að fleiri
sjúkrahús fylgi á eftir, fyrst
og fremst Landspitalinn og
Landakotsspiiáli , og seinna
meir trúlega hin stærri
sjúkrahús annars staöar á
landinu.
— Ég hef verið að setja
hér upp nýtt upplýsingakerfi
fyrir rannsóknardeildina,
þvi að eldra kerfið var orðið
úrelt, sagði Halldór Frið-
geirsson, rekstrarverkfræð-
ingur, er við ræddum við-
hann. Til álita kom, hvort
kaupa ætti litla tölvu til
úrvinnslu handa sjúkrahús-
inu eða taka upp fjarvinnslu.
Siðari leiðin var valin, og
voru til þess margar ástæð-
ur. Með þessum hætti fær
Borgarspitalinn aðgang að
miklu stærri tölvu en ella, og
þar verða möguleikar á
miklu fjölþættari úrvinnslu
gagna en fengizt hefði með
litilli tölvu i stofnuninni
sjálfri. Þetta verður að visu
ekki ódýrara fyrst i stað, en
getur orðið það seinna meir,
auk þess sem öll gögn allra
sjúkrahúsa, er þannig kann
að verða unnið úr i framtið-
inni með þessum hætti,
verða stöðluð á sama hátt.
Slik framleiðsla vinnu-
gagna handa til dæmis
meinatæknum og öðru
starfsfólki á að létta vinnu og
veita öruggri upplýsingar.
Þetta á að gefa yfirmönnum
rannsóknardeilda nýtt
stjórntæki i hendur og veita
þeim fullkomnari vitneskju
en áður, og með tölvuskýrsl-
unum fá læknar i hendur
fullkomið, vélunnið yfirlit,
læsilegra og fyllra og fellt i
nákvæmara form en verið
hefur.
Helztu ágallarnir eru aftur
á móti. að persónulegir
tjáningarmöguleikar fólks á
rannsóknardeildum minnka.
Þegar þessi fjarskipta-
tækni verður tekin i notun,
mun Borgarspitalinn hafa á
leigu fasta simalinu, sem a 11-
ar upplýsingar verða sendar
i gegnum, og sama fyrir-
komulag verður eflaust haft,
þegar önnur sjukrahús fá
sams konar búnað.
Að þvi er timinn hefur
fregnað, getur það varla orð-
ið fyrr en að ári liðnu, að
Landspitalinn fær viðlika
búnað. og af sjúkrahúsum úti
á landi er trúlegt, að
Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri verði fyrst til þátt-
töku i þessu kerfi. Litil
sjúkrahús hafa lika mik-lu
minni þörf fyrir það, þar eð
þar er auðveldara að hafa
fullt yfirlit án vélunninna
skýrslna.