Tíminn - 28.12.1973, Page 7

Tíminn - 28.12.1973, Page 7
Föstudagur 28. desember 1973. TÍMINN 7 Erlingur Þorsteinsson læknir: Hávaði og heyrnarvernd í þessari grein er rætt um há- vaða sem umhverfismengun, sem dregur úr velliðan, starfs- orku og afköstum fólks og veldur heyrnardeyfu.ef hann fer yfir 85 decibel til lengdar, um „áramótasprengingar”, sem hafa valdið óbætanlegu heyrnar- tapi og öðrum slysum hjá fjölmörgum og svipuð áhrif, sem skotvopn hafa á skyttur, einnig um hinar háværu hjlómsveitir skem mtistaðanna. heyrnar- mæiingar hjá þeim og öðrum sem vinna i hættulegum hávaða og hvaða ráðstafanir hafa verið gerðar, eða eru fyrirhugaðar til þess að minnka hávaða og af- leiðingar hans. Nú er mikið rætt um mengun á ýmsum sviðum. Til mengunar eða spillingar umhverfis okkar má hiklaust telja hávaðann, jafn- vel ekkert siðuren óloft eða ólykt, sem oft hefur knuið fólk til bú- staðaskipta. Fólk flýr miðsvæði stórborganna, sennilega mest vegna hávaða, þótt aðrar orsakir kunni einnig að liggja til þess. Stöðugt vex hávaðinn bæði við sjó og i sveit. Hver bill skellinaðra og vinnuvél, sem bætist i hópinn, á sinn þátt i þvi, og spillir einnig loftinu með reyk. Sumar tegundir hávaða skaða heyrnina, en há- vaði dregur yfirleitt úr velliðan og starfsorku og veldur tauga- veiklun hjá fjölda fólks.Tilraunir hafa sýnt og sannað að það borg- ar sig fjárhagslega að draga úr havaða á vinnustöðum. Afköst starfsfólks hafa aukist við það og er það þvi mjög til hagsbóta fyrir ýmsa vinnuveitendur að leggja fé i lagfæringar, sem minnka há- vaða i fyrirtækinu. Hávaða, sem skaðar heyrn.má skipta i tvo flokka. t öðrum eru sprengingar og önnur skammvinn en kröftug hljóð. 1 hinum mikill stöðugur eða siendurtekinn hávaði. Sprengingar eru stórhættulegar heyrninni ef þær eiga sér stað nærri eyranu. 1 starfi minu, m.a. sem læknir heyrnardeildar Heilsuverndar- stöðvar Reykjavikur, hef ég feng- ið marga til skoðunar, einkum börn og unglinga, sem misst hafa verulega heyrn við það að kin- verjar, púðurkerlingar o.a.þ.h. hefur sprungið nærri þeim. Oftast skeður það um áramót. Ég hefi þvi á undanförnum árum beðið blöð og útvarp um að vara fólk, einkum forráðamenn barna og unglinga við þessari hættu. Sem betur fer hefur þessum slysum farið nokkuð fækkandi, en samt er ennþá full ástæða til að vera vel á verði, þvi að sá skaði sem skeður er óbætanlegur. Ég man eftir litlum dreng, sem missti að mestu heyrnina á öðru eyra og að nokkru leyti á hinu lika, þegar heimatilbúin sprengja sprakk i höndum hans. Hann brenndist að auki. Nú er hann orðinn stór pilt- ur, og hefi ég prófað heyrn hans nokkrum sinnum siðan. Það er ekki alveg full heyrn á betra eyr- anu og aðeins hálf heyrn á hinu. Þetta rýrir atvinnumöguleika hans. Hann getur t.d. ekki orðið flugmaður, og er þetta eitt dæmi af fjölmörgum. Ég heyrði nýlega um drengi, sem gerðu sér að leik að skjóta úr „startbyssu” við eyru hvers ann- ars, en hún gefur mjög háan hvell. Þótti þá einkum gaman að þvi að lengi á eftir söng i eyra þess er fyrir hvellinum varð. Þessi sónn i eyra eftir sprengju- hvell eða annan hávaða er merki þess að skaði hefur skeð i vöi- undarhúsi eyrans, og getur sónn- inn eða suðan haldið áfram ævi- langt og orðið þungbær og þreyt- andi. Byssur, sem skyttur nota t.d. við fuglaveiðar eru heldur ekki meinlausar heyrninni. Það hefur mörg skyttan sannreynt. Rifflar og haglabyssur hafa skaðað heyrn fjölmargra, einkum þeirra, sem iðka þessa iþrótt árum sam- an. Þeir ættu að nota heyrnarhlif- ar. Lang algengust er heyrnar- skerðing af völdum mikils og langvarandi hávaða oftast nær á vinnustöðum. Einkum er hávaði mikill við ýmiskonar málmsmiðar og ýms- ar vélar eru einnig mjög hávær- ar, eins og t.d. diselvélar i skip- um. Einhver hávaðasamasti staður, sem ég hefi komi i er véla- salur i verksmiðju þar sem ofnir eru dúkar. Loftborar eru meðal verstu óvina heyrnarinnar, og ætti sami maður aðeins að vinna stutta stund i senn með þvi tæki. Það er mjög misjafnt hve fljótt fer að bera á heyrnartapi hjá fólki, sem vinnur i miklum há- vaöa (þ.e. yfir 86 dB, sjá siðar). Hjá sumum má mæla nokkurt heyrnartap eftir eitt ár en hjá flestum eftir fimm ár við slikar aðstæður. Hávaði er mældur i einingum sem nefnast decibel. Talið er að hávaði fari að verða skaðlegur heyrn manna ef hann fer yfir 85 dB til lengdar. Fyrst dregur úr næmi fyrir há- tiðni hljóðum. Þannig er það al- gengt að fólk veiti þvi fyrst at- hygli að þaðerhætt að heyra tifið i úrinu sinu, en það er einmitt há- tiðnihljóð. Smám saman fer einn- ig að draga úr næmi fyrir hljóðum með lægri tiðni, þ.e. dimmum hljóðum, og má þá búast við si- auknum erfiðleikum með að greina vel mælt mál. Hvað er hægt að gera til þess að koma i veg fyrir heyrnartap af völdum hávaða? A vegum hins opinbera starfar heilbrigðiseftirlitið, sem m.a. lætur mæla hávaða á vinnustðum og benda á leiðir til úrbóta, þar sem þess er þörf. En það er viða erfitt og kostnaðarsamt eða jafn- vel óframkvæmanlegt að draga úr hávaða. Þá er ekki um annað að ræða en að starfsfólkið sjálft reyni að verjast hávaðanum. Til þesshafa verið búnir til tappar úr plasti, gúmmmii, vaxi eða eins- konar glerull til þess að stinga i eyrun. Auk þess fást nú heyrnar- hlifar, til þess að leggja yfir eyr- un, og eiga þær að falla þétt að höfðinu. A heyrnardeildinni i Heilsu- verndarstöð Reykjavikur höfum við sýnishorn af ýmsum gerðum heyrnarhlifa og eyrnartappa og munum með ánægju leiðbeina fólki með val á þeim og notkun og benda á hvar hægt er að fá þessa hluti. Það er ein starfsgrein sem ég ætla að ræða hér um sérstaklega, en það eru hljómlistarmennirnir, nánar tiltekið starfsemi hljóm- sveita á skemmtistöðum. Þessar nýtizku hljómsveitir eru orðnar og hafa raunar all lengi verið alvarlegt og vaxandi vandamál. Þessar hljómsveitir nota flestar rafmögnuð hljóðfæri, sem geta framleitt ótrúlega mik- inn hávaða. Heyrnardeildin lét framkvæma heyrnarmælingar á meðlimum nokkurra hljómsveita nýlega og leiddu þær i íjós að um helmingur þessara manna, sem flestir eru á unga aldri, voru farnir að tapa heyrn. Það geigvænlegasta, sem þessi rannsókn sýndi var að i 20 til 28 ára aldursflokki þessara hljómlistarmanna, reyndust nokkrir með svipað heyrnartap og miðaldra járnsmiðir hafa að meðaltali. Ekki er mér kunnugt um hvort einhverjir hljómlistar- menn nota eyrnartappa eða heyrnarhlifar, en þeim veitti vist ekki af þvi. Mér hefur stundum dottið i hug á dansleikj- um þegar hljómsveitin ætlar bók- stafiega að æra mann, að rétt væri að hafa með sér heyrnarhlif- ar eða tappa á slikar samkomur. Það er eins og að þessum ágætu hljómlistarmönnum sé ekki ljóst, hve mjög þessi hávaði dregur úr ánægju viðstaddra, a.m.k. þeirra, sem komnir eru af táningaaldri, auk þess, sem hann skaðar þeirra eigin heyrn og annarra. Hér er þörf skjótra úrbóta þvi hávaðinn frá þessum hljómsveit- um mælist yfirleitt langt fyrir of- an hættumörk. Starfsfólk veit- ingastaðanna má e.t.v. einnig bú ast við heyrnartapi er frá liður og jafnvel gestir lika. Borgarstjórn Reykjavikur samþykkti nýlega ályktun um að gera þyrfti ráðstafanir til þess að draga úr hávaða frá hljómsveit- um skemmtistaða og leitaði ráða i þvi sambandi hjá borgarlækni, heilbrigðismálaráði og heyrnar- deildinni og er það mál i undir- búningi. Heyrnardeild Heilsuverndar- stöðvar Reykjavikur hefur á und- anförnum áratug mælt heyrn starfsfólks frá ýmsum hávaða- sömum vinnustöðum, og hafa all- flestir fundist með skerta heyrn. Það hefur reynzt erfitt að fá fólk til að koma frá þessum stöð- um til heyrnarmælinga þótt þær séu ókeypis, ef það hefur misst kaup á meðan. Það ætti að vera föst regla hjá slikum fyrirtækjum að senda alla nýliða i heyrnar- mælingu og láta endurtaka hana árlega.Það er eina leiðin til þess að finna þá, sem eru að byrja að tapa heyrn. Ef einhverjir halda á- fram að missa heyrn þrátt fyrir allar varúðarráðstafanir, er eng- in önnur leið til fyrir þá en að skipta um starf, þó það sé oft erf- itt—ef þeir eiga ekki að verða heyrnarlausir eða þvi sem næst. Þar eð svoerfitthefurverið að fá starfsfólk hávaðasamra vinnu- staða til þess að koma til mælinga á heyrnardeildina höfum við nú i samvinnu við atvinnusjúkdóma- deildina og heilbrigðiseftirlitið hafið skipulagðar rannsóknir á heyrn fólksins á vinnustöðunum sjálfum. Um þessar mundir fara rannsóknir fram i fyrirtækjum málmiðnaðarins. Þetta virðist ætla að ganga vel og mæta skiln- ingi og áhuga vinnufölks og vinnuveitenda. t þessu sambandi má geta þess að heilbrigðisreglugerðin mælir svo fyrir að fyrirtækjum sé skylt að draga úr eða koma í veg fyrir heilsuspillandi hávaða og að lita beri á 85 decibel sem hámark leyfilegs hávaða á vinnustað. En þar sem ógerlegt er að draga nægilega úr hávaða skuli starfs- fólki skylt að nota heyrnarhlifar viðurkenndar af heilbrigðiseftir- litinu, en fyrirtækin láti þær ókeypis i té. Ahugi á notkun heyrnarhlifa er að aukast, en þó virðast of fáir nota þær enn, eða liklega aðeins um þriðjungur þeirra er þess þyrftu með, eftir þvi sem næst verður komist. Ef menn æskja vitneskju um hvort hávaði á vinnustað þeirra séhættulegur heyrninni geta þeir snúið sér til heilbrigðiseftirlitsins I Heilsuverndarstöð Reykjavikur, sem framkvæmir þá hávaðamæl- ingar á staðnum. Séu erfiðleikar á þvi sökum fjarlægðar frá Reykjavik, þá má fara nokkuð nærri um það hvernig þessu er varið, þannig að tveir menn með góða heyrn, reyni að tala saman með venjulegum tónstyrk i eins meters fjarlægð hver frá öðrum. Sé það erfitt eða ómögulegt er hætta á ferðum og nauðsynlegt að nota heyrnarhlifar eða eyrnar- tappa. Það er mjög gleðilegt að al- mennur áhugi virðist nú vera vaknaður um allan heim á þvi að vinna gegn hávaða og hvers kon- ar mengun i umhverfi manna. Ég hef t.d. frétt að Sviar undir- búi bann við þvi að hávaði frá hljóðfæraslætti fari yfir 90 dB á opinberum skemmtistöðum. Til samanburðar má geta þess að á skemmtistöðum hér i bænum hef- ur verið hrein undantekning að hávaðinn sé undir 100 dB i návist hljómsveita. Nefnd er starfandi á vegum Sameinuðu þjóðanna, sem sam- þykkt hefur tillögur um hámarks- hávaða, sem ökutæki megi gefa frá sér. Mótorhjól 82 dB. Einka- bilar 84 og stórir fólks- og vörubil- ar 85—92 dB allt mælt 7 metrum aftan við farartækið á 50 km hraða með benzingjöf i botni. Slik ákvæði munu ekki vera til hér, en fulltrúi lögreglustjórans i Reykjavik hefur tjáð mér að öku- tæki með bilaðan hljóðdeyfiút- búnað séu umsvifalaust stöðvuð og sektarákvæðum beitt. f fyrr- nefndri heilbrigðisreglugerð er á- kvæði um að heilbrigðisnefnd geti bannað mjög hávaðasömum far- artækjum umferð um ibúðar- hverfi hluta úr eða allan sólar- hringinn. Þó að hávaðinn frá þessum ökutækjum hafi máske ekki mjög skaðleg áhrif á heyrn manna þá veldur hann truflun og óþægind- um og gæti hæglega vakið fjölda fólks að næturlagi. Fuiltrúi lögreglustjórans las mér ýmis ákvæði lögreglusam- þykktar Reykjavikur, sem varða hávaða og sagði að oft væri mjög erfitt að meta hvenær þau væru brotin þar sem nákvæma viðmið- un vantaði. Það er þvi mikil þörf á þvi að ákvæði og reglur um þetta og önnur skyld efni verði tekin til endurskoðunar hið bráð- asta og nýjum bætt við eftir þörf- um. En það er ekki nóg að setja reglur, það verður lika að sjá um að þeim sé hlýtt. Að lokum ætla ég að endurtaka, að hávaði yfir 85 dB til langframa er hættulegur heyrn manna og geta þess að mælingar hafa sýnt að meðalhávaði i vélarrúmum skipa er um 105 dB, i prentsmiðj- um 80—85 dB og i návist hljóm- sveita i samkomuhúsum borgar- innar 100 dB að meðaltali. Þessar tölur fékk ég hjá heilbrigðiseftir- iiti Reykjavikurborgar og eru að- eins frá nokkrum hávaðasömustu starfsgreinunum, en margt fleira kemur til greina eins og t.d. ýmis- konar pappirsiðnaður, sem kvað vera mjög hávaðasamur. Full ástæða er til að vera vel á verði, og vinna ötullega að þvi að minnka hávaða hvarvetna og þegar ekki er unnt að minnka hann nægilega, að verja þá eyrun og heyrnina. Til þess að árangur náist i baráttunni við hávaðann þurfum við öll að vinna að þvi sameiginlega. Það mundi örugg- lega auka lifshamingju okkar tslendinga. SINE — SINE — SINE Fundur i Félagsheimili stúdenta við Hringbraut i kvöld, föstudaginn 28. desember, kl. 20,00. DAGSKRÁ: Starfshópar um námsaðstoð, þ.á.m. endurskoðun laga um námslán og náms- styrki. Komið i skrifstofuna i dag og sækið nauð- synleg gögn fyrir fundinn. Stjórnin. Xorseman vélsleðinn, 21 ha, tveggja strokka mótor. Lipur sleói með þrískiptu belti búnu stálspyrnum. Einkar vin- sæll sleði á viðráðanlegu verði. ArmúlaH ÞOR HF © 11 Skólavörðust.25 vélsleðinn, 30 hö, aflmikiil og duglegur ferðasleði með farangursgeymslu, breitt belti — mikið dráttarafl. Sjálfskipting með gíra afturábak jafnt sem áfram. Þetta er sleði þeirra vandlátu — meiri og vandaðri sleði, en áður hefur sézt hér á markaðnum. Amerísk framleiðsla. Þrátt fyrir stærð og glæsileik er verð ekki til fyrirstöðu fyrir sem eru að leita að góðu tæki til vetrarferða og f lutninga.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.