Tíminn - 15.03.1974, Qupperneq 2
Föstudagur 15. marz 1974
Vatnsberinn: (20. jaa-18. febn)
Þu skalt gæta þess vandlega, hverja þú-
umgengst, svo að þú sért ekki að sölunda dýr-
m^etum tima þinum i fólk er skiptir þig ekki
qokkru minnsta máli, og þú hefur jafnvel frekar
ogagn af að vera i kunningsskap við.
Fiskarnir: (19. febr-20. marz)
Þú getur lent i erfiðleikum með að komast yfir
öll þau verkefni, sem á þig eru lögð þessa dag-
ana, svo að þú ættir að gera áætlun yfir starfið
og velja úr það, sem þér finnst mikilvægast og
leysa það fyrst af hendi.
Hrúturinn. (21. marz-19. april)
Það litur út fyrir, að þú eigir i einhverjum vand-
ræðum um þessar mundir, og þér er ráðlagt að
leggja til hliðar þau vandamál, sem þú getur
ekki leyst upp á eigin spýtur. Koma timar og
koma ráð, sem heppilegri reynast.
Nautið: (20. april-20. maí)
Það litur út fyrir að þú sért ekki sérlega
auðveldur i umgengni i dag, og þvi skaltu endi-
lega reyna að ráða bót á. Svona- fýluköst eiga
ekki við þig og fara þér heldur illa þvi satt að
segja verður þú þá hlægilegur.
Tviburamerkið: (21. mai-20. júni)
Þú skalt reyna að umgangast fleira fólk, eða að
minnsta kosti að reyna að skapa þér einhverja
tilbreytingu i kunningjavali. Vertu opinskár og
vingjarnlegur, og þá liður öðrum betur i návist
þinni. Þér liður lika betur.
Krabbinn: (21. júni-22. júli)
Það er engu likara en þú þarfnist hjálpar eða
aðstoðar að einhverju leyti, og að öllum likind-
um berst þér aðstoð i dag, en það verður úr al-
gjörlega óliklegri átt. Og nú er um að gera að
vera ekki of stoltur, mundu það.
Ljónið: (23. júli-23. ágúst)
Það er þetta með fjarmálin rétt einu sinni enn.
Það er hætt við því, að þúþurftiraðfarayfirþau
aftur, og vafasamt að það nægi til að sjá, hvað er
að, en þú verður að koma þeim i lag, og það áður
en langt um liður.
Jómfrúin: (23. ágúst-22. sept)
Þú ert of lausmáll og sérstaklega i dag verður
þetta alvarlegt upp á seinni timann að gera, ef
þú gætir ekki alveg sérstaklega að bér. Vertu
varkár, meira að segja gagnvart þeim, sem þú
heldur þina beztu vini.
Vogin: (23. sept-22. oktj
Þú rekur þig á það i dag, aö það er þó talsvert
mikils um vert að láta litið yfir sér og láta
umheiminn geta sér til um, hvað þú ertað bralla
með sjálfum þér, þetta gerir þig áhugaverðan og
þó talsvert spennandi.
Sproðdrekinn: (23. okt.-21. nóv.)
1 dag eru bréfaviðskipti og ritstörf yfirleitt
undir sérstaklega hagstæðu merki, en það er
eitt, sem þú þarft að athuga betur, og það er að
leita til vina þinna og þinna nánustu varðandi
aðstoð i einhverju stórmáli.
Bogmaðurinn: (22. nóv-21. des.)
Þú stendur þig bara vel, og það litur út fyrir, að
það hægist um allt hjá þér i dag. Þú hefur lokið
góðu verki, og ef þú færð ekki viðurkenninguna
strax, geturðu verið viss um, að hennar er ekki
langt að biða.
Steingeitin: (22. des.-19. janj.
Þú ert þrunginn af áhuga og einbeittni og engar
likur til annars en þér takist að vinna bug á
viðfangsefnunum og erfiðleikunum. Það er lika
allt annað lif að hafa yfirsýn yfir það, sem gera
þarf, og eftir ábendingum.
t 14444 «
munrn
V 25555
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
BORGARTUN
A I /■' /*
TÍMINN
Föstudagur 15. marz 1974.
Gengisjöfnunarsjóður
fyrir útflutningsiðnaðinn
FULLTKÚAR stærstu út-
flutningsiðngreina hérlendis og
framkvæmdastjóri útflutnings-
miðstöðvar iðnaðarins komu ný-
lega saman til fundar til þess að
ræða liugsanlegar leiðir til lausn-
ar þess vanda, sem íslenzkur
útflutningsiðnaður á við að glima
vegna þróunar gengismála liér-
lendis á s.l. ári. Fundarmenn
voru sammála um, að svo ólik
lögmál giltu um útflutning frystra
sjávarafuröa, aðalútflutnings-
vöru tslendinga, og um ýmsar
BÍ'LALEIGA
^Car rental
A-^£L660 &42902
aðrar útflutningsiðngreinar, sem
nú eru i örum vexti, aö nauðsyn-
legt sé að gripa til sérstakra ráð-
stafana þeirra vegna, þ.e. að
stofna verði gengisjöfnunarsjóð.
Fundarmenn voru sammála
um, að óhæfa væri af hálfu
fjármálavaldsins að taka ekki til-
liti til afkomu útflutningsiðnaðar-
ins við ákvörðun jafn mikilvægra
mála og skráningar á gengi is-
lenzku krónunnar. Iðnaðarráð-
herra var send ályktun sú, sem
hér fer á fetir, og var hún undir-
rituð af framkvæmdastjórum
S.L., Alafoss h.f. og Útflutnings-
miðstöðvar iðnaðarins.
1. Komið verði á fót gengis-
jöfnunarsjóði fyrir útflutnings-
iðnaðinn, sem taki mið af dollara-
genginu 102,58 (kaupgengi).
Sérfræðingar kveði nánar á um
þetta gengi eftir að athugun hefur
farið fram.
2. Mismunur á almennu gengi
og iðnaðargengi verði greiddur úr
eða i gengisjöfnunarsjóð
útflutningsiðnaöarins. Lækki al-
mennt gengi islenzku krónunnar,
minnka útgreiðslur úr sjóðnum
eða breytast i inngreiðslur.
3. Gengisjöfnunarsjóður út-
flutningsiðnaðarins verði sér
reikningur i vörzlu Seðlabanka
tslands.
4. Iðnaðargengi veröi ákveðið
einu sinni á ári, nema sérstakar
ytri aðstæður kalli á breytingar.
Ákvörðun þessi er tekin af nefnd
skipaðri fulltrúum iðnaðarráðu-
neytis, fjármálaráðuneytis, við-
skiptaráðuneytis, Seðlabanka ts-
lands og fulltrúa útflytjenda.
5. Þar sem gera má ráð fyrir,
að fyrst um sinn verði ejngöngu
um útgreiðslur úr sjóðnum að
ræða, hefur sjóðurinn lántöku-
heimild hjá Seðlabanka Islands.
6. Iðnaðarráðuneytið beiti sér
fyrir bráðabirgðalausn máls
þessa á meðan rikisstjórn og
Alþingi fjalla um málið.
(Fréttabréf Sölumiðstöðvar
lagmetisiðnaðarins).
Æbílaleigan
felEYSIR
CAR RENTAL
V24460
í HVERJUM BÍL
PIONEER
ÚTVARP OG STEREO
CASETTUTÆKI
OPID
Virka daga Kl.C-tOe.h.
Laugardaga kl. 10-4 e.h.
.tBÍLLINN BÍLASALA
HVERFISGÖTU 18-simi 14411
LOFTLEIÐIR
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
21190 21188
LOFTLEIÐIR
HLUTAFE
cargolux
margfaldað
Aukaaðalfundur vöruflutninga-
félagsins Cargolux var haldinn i
Luxemborg hinn 6. þ.m., en hinn
4. sama mánaðar voru fjögur ár
liðin frá stofnun þess. Stofnendur,
auk Loftleiða, voru sænska skipa-
félagið Salenia og flugfélagið
Luxair, auk nokkurra einstak-
linga og fyrirtækja i Luxemborg.
A fundinum var ákveðið að
auka hlutafé félagsins úr 9
milljónum islenzkra króna i 60
milljónir. Þá var og ákveðið að
fjölga stjórnarmeðlimum úr 9 i
13. Hinir nýju stjórnarmeðlimir
eru Halldór Guðmundsson,
deildarstjóri hjá Loftleiðum,
Steen Grotenfelt, fulltrúi frá
Salénia, Constant Franssens,
framkvæmdastjóri Credit-bank-
ans i Luxemborg, og Armand De-
lvaux, bankastjóri i Luxemborg. 1
stjórninni eiga þvi sæti fjórir full-
trúar frá Loftleiöum, fjórir frá
Salénia og fimm frá Luxemborg.
Framkvæmdastjórn félagsins
helzt óbreytt, en i henni eiga sæti
Jóhannes Einarsson frá Loftleið-
um, Roger Sietzen frá Luxair, Ar-
mand Delvaux frá Luxemborg og
Steen Grotenfelt frá Salénia.
t hlutdeild Luxembörgara i
félaginu bættust fjórir nýir hlut-
hafar. Þeir eru Credit-bankinn,
Banzue Generale, Banzue
Internationale og rikissparisjóð-
ur Luxemborgar Caisse
d’Espargne de l’Etat du Grand-
Duche de Luxembourg.
Miklar byggingaframkvæmdir
standa nú yfir á vegum Cargolux
á Luxemborgarflugvelli. Má þar
m.a. nefna flugskýli, sem verður
9,405 fermetrar að stærð og
áætlað að kosta muni allt að 129
milljónum islenzkra króna.
Hafizt var handa um byggingu
flugskýlisins i byrjun febrúar s.l.
og gert ráð fyrir að henni verði
lokið i byrjun nóvember n.k.
Loks kom það fram á aukaaðal-
fundi Cargolux að heildarvelta
félagsins s.l. ár var 1.2 milljarðar
Islenzkra króna, en var kringum
900 milljónir 1972. Aðalfundur
félagsins verður haldinn i
Luxemborg i lok næsta mánaðar.
Framkvæmdastjóri Cargolux
er Einar Ólafsson, fyrrum
stöðvarstjóri Loftleiða á Luxem-
borgarflugvelli. Starfsmenn
félagsins eru nú kringum 200, en
voru 5 á stofndegi, hinn 4. marz
1970. Flugfloti félagsins eru fimm
CL-44 vélar og ein þota af gerð-
inni DC-8-61 og fljúga þær með
vörur til svo aö segja allra heims-
horna. Undirstaðan I flugrekstri
Cargolux er reglubundið flug með
vörur milli Evrópulanda og Hong
Kong. Er félagið nú stærsta frakt-
leiguflugfélag á meginlandi
Evrópu og rúmlega 67.5% af
vöruflutningum um Luxem-
borgarflugvöll eru á vegum
Cargolux.
Auglýsið i Tímanum