Tíminn - 15.03.1974, Page 6
6
TÍMINN
Föstudagur 15. marz 1974.
Heiður
hausthiminn
Richard Beck: Undir
hauststirndum himni.
Ljóð. Rvik 1973. Leiftur gaf út.
1 haust leið kom út ljóðabók
eftir dr. Richard Beck, sem ber
ofanskráö nafn. Höf. segir i for-
mála, að öll ljóðin i bókinni séu
ort á siðastliðnum 14 árum, en
kvæðabókin Við ljóðalindir kom
út 1959.
í þessari nýju bók er þó ekki
prentað nema úrval úr ljóðum dr.
Richards Beck, og hann tileinkar
konusinni Margréti Beck ljóð sin.
Skáldið horfir yfir farinn veg,
og fyrsta ljóðiö er samnefnt
bókinni:
Undir hauststirndum himni
horfi ég yfir farna leið.
Mörg voru dægrin horfnu heið,
þótt harmaský stundum byrgðu
sólu i svörtum tjöldum.
Sé ég úr timans öldum
risa minninga fjöld:
margt aö þakka, er liður kvöld
undir hauststirndum himni.
Tvennt finnst mér einkenni á
ljóðum dr. Richards. Hann er
skáld gott: hitt, að Island er
honum efst i huga fyrst og siðast.
Og tiðast mun hugur skáldsins
leita til átthaganna austanlands:
Hug minn ávallt haf og fjöll
heilla töfrum sinum,
æskudaga himinhöll
hlær við sjónum minum.
(Arfur fjarða og fjalla).
Eitt fallegasta kvæðið er að
minni hyggju Atthagadraumur,
sem skáldið yrkir vestur I Denver
i Colorado. Og svo er það hafið,
sem seiðir huga skáldsins, enda
gamall sjómaður. Hann var
meira að segja formaður fyrir
austan um skeið, og hefði sjálf-
sagt orðið sómi sjómannastéttar-
innar sem frædur hans, hefði það
átt fyrir honum að liggja að róa
áfram á fiskimið. En æviferill
Richards Beck er ævintýri
likastur. Austfirski sjómaðurinn
leitar á önnur mið, mennta-
gyðjunnar, og ber mikinn hlut frá
borði. Þó gleymir hann aldrei
gömlu miðunum; yrkir um þau
ágætt kvæði:
En oft var á þeim slóðum
aflagjöfull sær,
þvi eru mér I minni
miðin gömlu kær
(Gömlu miðin).
Ég minni á annað ágætt ljóð I
sömu veru, Seglin hvitu.
Það hefst á þessa leið:
Seglin hvit við sjónarhring
seiða ennþá huga minn:
útþrá, sem i æsku brann,
aftur verma hjartað finn.
Fleiri ljóð eru i bókinni um
hafið og þess margbreytilegu
háttu, til að mynda Logndagur
við hafið, Mávar, Handan við
djúpin blá og Svörtusker, þar sem
brimið svarrar uggvekjandi;
boðar skipum og mönnum grand.
Svipmikið ljóð, sem leiðir hugann
að fallvaltleik lifsins.
Dr. Richard Beck hefur flutt
margar kærkomnar kveðjur
vestan lim haf á liðnum árum og
áratugum. Hinn nýja ljóðabók
hans er einnig kveðja að vestan
einlæg kveðja og góð, sem jafnan
fyrr,
Haraldur Guðnason
AAenntamálaráð íslands:
10 MILLJÓNIR
TIL MENNINGAR-
AAÁLA
— bækur, kvikmyndir, dvalarstyrkir
og hljómplötur
MENNTAM ALAR AÐ íslands
hefur skv. fjárlögum tæpar 10
milljónir króna til ráðstöfunar á
árinu 1974. Fjárhagsáætlun ráðs-
ins liggur nú fyrir.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs
fær 3 milljónir króna tii sinnar
starfsemi. Bókaútgáfunni er ætl-
að það hlutverk að gefa út ýmis
rit, sem nauðsynleg eru, en selj-
ast ef til vill ekki hratt, og nægir
til skýringar að benda á orðabæk-
ur og sérfræðirit. Útgáfustefna
Menningarsjóðs birtist i Árs-
skýrslu Menntamálaráðs hverju
sinni.
Til kvikmyndagerðar skal
verja 1 milljón króna. Þetta er i
þriðja sinn, sem auglýst er fé til
styrktar kvikmyndagerð: Fyrst
voru 500 þúsund krónur veittar i
þvi skyni, þá 650 þúsund krónur
og nú reyndist unnt að hækka
upphæðina i 1 milljón króna
vegna sérstakrar fjárveitingar
Alþingis i þvi skyni.
Ilvalarstyrkir listamanna
verða 10 talsins, hver að upphæð
96 þúsund krónur. Þessir styrkir
hafa verið mjög eftirsóttir, og
komið að góðum notum fyrir
listamenn, sem fara tii útlanda að
efla sig i andanum.
Til „Listar um landið” skal
verja 700 þúsund krónum. Trú-
lega er það þó of lágt áætlað
samanborið við síðasta ár en þá
var varið i samvinnu við félags-
heimilasjóð u.þ.b. 1400 þúsund
krónum. Von er til þess á þessu
ári, að ,,List um landið” standi
undir sér að verulegu leyti vegna
fenginnar reynslu. Tónlistar-
menn hafa sýnt þeirri
menningarstarfsemi aukinn
áhuga undanfarið. Er nú unnið að
ýmiss konar hljómleikahaldi viðs
vegar um landið.
Tónlist með plötuútgáfu að
markmiði tekur til sin 400 þúsund
krónur þetta árið. Það verður þá
þriðja platan i hljómplötuútgáfu
Menningarsjóðs. Þvi fé verður út-
hlutað seinna á árinu.
Samkvæmt lögum ber Mennta-
málaráði að úthluta fé til fræði-
manna og náttúruvlsindamanna.
A f járlögum er nú um að ræða 800
þúsund króna fjárveitingu. Til
amiarrar menningarstarfsemi er
ætlað að verja 800 þúsund krón-
um, og koma þar til ýmsar ófyrir-
sjáanlegar fjárþarfir einstakl-
inga og/eða hópa.
Bókamarkaður Menningar-
sjóðs fer þessa dagana út um land
og verður á Ráðhústorginu á
Akureyri dagana 16.-17. marz.
Helgina þar á eftir verður bóka-
markaður á Egilsstöðum, Höfn i
Hornafirði og Neskaupstað. Um
mánaðamótin er fyrirhugaður
markaðurá Isafirði, Sauðárkróki
og Blönduósi. Þar verða mættir
forsvarmenn útgáfunnar til þess
aðkynna starfsemi fyrirtækisins.
Sumar eldri bækur eru nú senn á
þrotum. t vor kemur Ársskýrsla
ráðsins fyrir árið 1973 út, en þar
verður gerð itarleg grein fyrir
starfsemi Menntamálaráðs ís-
lands það árið, og sagt frá hug-
myndum, sem eru i deiglunni.
GAMLAR MYNDIR
úr
kortasafni
Jóns
Halldórs-
sonar
Að þessu sinni, eins og oftast
áður, er það erindi þáttarins til
lesenda að leita hjá þeim upp-
lýsinga. Það skal þó tekið fram,
að við teljum okkur ekki þurfa að
spyrja um fullorðna manninn,
sem stendur með fiðlu sina og
boga i höndum. Þetta mun vera
hinn góðkunni tónlistarmaður
Theódór Arnason. En auk þess
hve myndin sjálf er góð, er
gaman að virða fyrir sér bakhlið
hennar. Þar eru skrifuð með
blýanti nöfnátólf tónverkum, og
eru sum all-læsileg: ennþá, þótt
kortið hafi hlotið heldur illa
meðferð, það hefur verið limt
aftan á það. Þó má lesa nöfn eins
og Lifsgleði njóttu, Ave Maria, Ó,
þá náð að eiga Jesú, og ennfrem-
ur er þar nefnd einhver aria eftir
Bach, en ekki verður meira lesið
af þeirri linu. Það skyldu þó ekki
hafa verið þessi lög, sem hann
hafði nýlokið við að leika, þegar
myndin var tekin?
Þá kemur annar fiðluleikari,
ungur að árum. Hann þekkjum
við ekki, en væntum upplýsinga
frá þeim, sem fróðari eru.
Að lokum er mynd af tveim sjó-
mönnum, algölluðum, með sjó-
hatta og tviþumlaða vettlinga,
eins og vera ber. Þessa heiðurs-
menn þekkjum við alls ekki, en
vildum mjög gjarna fá að vita
nöfn þeirra. Það eitt er hægt að
segja til stuðnings, að aftan á
kortinu er dagsetningin 25/11.
1914. Myndin er með öðrum árum
orðin nálega sextiu ára.
Og enn skulu ágætir lesendur og
velunnarar þessa þáttar minntir
á að láta það ekki undir höfuð
leggjast aðgefa sig fram,efþeir
vita það, sem hér er spurt um.
Það er sannast að segja, að enn
hefur ekki borizt eitt einasta svar
við spurningum siðasta þáttar,
þeim, sem birtist hér iblaöinu 2.
marz siðast liðinn. En vonandi
raknar úr þvi fyrr en siðar, það er
ekki öll nótt úti enn. Þangað til
biðum við og sjáum hvað setur.
Alklæddir sjónienn.
Góðkunnur tónlistarmaöur
Ungur hljóðfæraleikari