Tíminn - 15.03.1974, Síða 21
Föstudagur 15. marz 1974.
TÍMINN
21
Bobby Moore
seldur til Fullham...
Hann hefur greinilega ekki viljað fara frá Lundúnum
BOBBY MOORE... fyrrum
fyrirliði West Ham og enska
landsliðsins, skrifaði undir
samning við Lundúnaliðið
Fulham i gær. Það er greini-
legt að Moore vill vera úfram i
Lundúnum, þar sem hann er
fæddur og uppalinn. Moore
rekur þar einnig verzlanir og
er þvi erfitt fyrir hann að slita
sig frá Lundúnum. Það er
öruggt, að hann mun koma til
með að gera mikið gagn hjá
Fulham, sem leikur I 2. deild
og nú siðustu árin hefur liðið
aðeins vantað hcrslumuninn á
að komast upp i 1. deiid.
Bobby Moore mun hitta
fyrrum félaga sinn i enska
iandsliðinu Alan Muilary,
fyrrum fyrirliða Tottenham
hjá Fulham. Mullary og
Moore iéku lengi saman i
enska landsliðinu og tók
RIVERA OG FÉL-
AGAR SIGRUÐU
:
Gianni ltivera og félagar hans
úr AC Milan léku gegn griska
liðinu PAOK Salonika i
Evrópubikarkeppninni á
miðvikudagskvöldið. Leikur-
innfór fram i Milan og lauk
honuin mcðsigri heimamanna
Mörk AC Milan skoruðu þeir
Bognon, Benetti og Chiarugi.
RIVERA...fyrirliði AC Milan.
DOYLE OG
MACARI
NEITUÐU AÐ
FARA ÚT AF
— þegar allt sauð uppúr á Maine Road
Það sauð heldur betur upp úr á
Maine Road i Manchester, þegar
City og United mættust þar á
miövikudagskvöldið. Það voru
ekki liðnar nema 30. min. af
leiknum, þegar mikil áflog
brutust út á leikvellinum og þeim
Michael Doyle (Manchester
City) og Skotanum Lou Macari
(Manchester United) var visað af
leikvclli. Þeir neituðu að yfirgefa
völlinn og lauk viðureign þeirra
þannig, að dómarinn kallaði bæði
liðin af leikvelli. Slðan komu þau
aftur inná eftir 10. min. og voru
þeir Doyle og Macari eftir inni i
búningsklefa. Framkvæmda-,
stjórarnir Ron Saunders (City) og
Tommy Docherty (United).
höfðu þá greinilega skorizt i
leikinn og talað þá til.
Leiknum lauk með þvi, að
hvorugu liðinu tókst að skora og
er nú Manchester United komið i
alvarlega fallhættu og getur fátt
bjargað liðinu frá falli. Þrir leik-
menn voru bókaðir i leiknum, þeir
Forsythog Holton hjá United og
Summerbee hjá City.
Staða neðstu liðanna i 1. deild
er nú þessi:
Birmingham 31 7 9 15 34:53 23
Man.Utd. 31 6 10 15 25:38 22
Norwich 32 4 12 16 27:49 20
Fjögur lið eru fyrir ofan þessi
lið með 29 stig, það eru
Southampton, Arsenaí, West
Ham og Stoke. Á þessu sést, að
það verður erfitt fyrir Birming-
ham, Man. Utd. og Norwich, að
bjarga sér frá falii.
Mullary fyrirliðastöðuna i þvi,
þegar Moore gat ekki leikið
meö.
Það veröur gaman aö f.vlgj-
ast með þessum gömlu félög-
um hjá Fulham. Tekst þeim
að koma Fulham upp i 1. deild
að ári. Moorc, sem Fulham
keypti á 25 þús. pund, fékk lil-
boö frá Svvindon-liöinu sem er
neðst i 2. deild — honum var
boðið að gerast framkvæmda-
stjóri félagsins. Moore hafði
ekki áhuga á þvi boði.
BOBBY MOORE.. .fer til
Fulham.
Það voru
fáir á
„Brúnni"
— aðeins 8 þús.
áhorfendur sáu
leik Chelsea
og Burnley
Aðeins 8 þús. áhorfendur voru
á Stemford Bridge i Lundún-
um á miðvikudagskvöldið
þegar Chelsea vann góðan
sigur yfir Burnley 3:0. Þeita
er lægsti áhorfendafjöldi, sem
hefur séð leik á „Brúnni” frá
striðslokum. Það voru þeir
Þeter Ilouseman (2 mörk) og
Stevc Kember, sem skoruðu
mörkin. Þcssir leikmen
skoruðu sitt hvort markið
fyrir Chelsea sl. laugardag,
þegar Chelsea gerði 2:2 jafn-
tefli gegn Norwich.
STUTT
A-Þjóðverjar sigurðu
Austur-Þýzkaland vann Belgiu
1:0 í vináttuleik i knattspyrnu á
miðvikudagskvöldið i Berlin.
Þessi tvö lönd leika með ís-
lendingum i riðli i Evrópukeppni
landsliða.
Kemst ekki til Sviþjóðar
Enska unglingalandsliðið i knatt-
spyrnu, sem hefur unnið Evrópu-
keppni unglingalandsliða i tvö
siðustu skiptin, verður ekki með i
úrslitakeppninni i Svíþjóð i
sumar. Liðið tapaði fyrir Wales
0:1 á miðvikudagskvöldið og mun
þvi Wales taka þátt i 16-liða úr-
slitakeppninni i Sviþjóð, en i úr-
slitakeppninni leikur islenzka
unglingalandsliðið.
Latchford skorar
Mick Mills, fyrirliði Ipswich og
Bob Latchford, Everton, voru á
skotskónum, þegar enska
landsliðið, skipað leikmönnum
23ja ára og yngri, vann góðan sig-
ur yfir Skotum 2:0 á miðviku-
dagskvöldið. Aðeins 4000 þús.
áhorfendur sáu leikinn, sem fór
fram á Ayresome Park i
Middlesbrough. Mills og Latch-
ford skoruðu mörk enska liðsins.
Villa vann
AstonVilla vann Carlisle 2:1 á
Villa Park i Birmingham á
miðvikudagskvöldiö, þegar liðin
mættust i 2. deildarkeppninni.
Læti á
Fir Park
— þegar Celtic
vann Motherwell
í skozku
bikarkeppninni
Mikil læti urðu á Fir Park i
Motherwell á miðvikudags-
kvöldið, þegar Motherwell lék
gegn Celtic í 8-liða úrslitum
skozka bikarsins. Stöðva þurfti
leikinn og lögreglulið með hunda
þurfti að skerast i leikinn. Celtic
vann leikinn. 1:0.
Ursiit i 8-liða úrslitum skozku
bikarkeppninnar, urðu þessi: Dundee Ut.-Dunfermline 4:0
Motherwell-Celtic 0:1
Ayr-Hearts 1:2
Hibernian-Dundee 3:3
1 undanúrslitum mætast þessi
lið: Hearts-Dundee Ut. Celtic-Ilibs eða Dundee