Tíminn - 20.03.1974, Qupperneq 2

Tíminn - 20.03.1974, Qupperneq 2
2 TÍMINN Miövikudagur 20. marz 1974. Miðvikudagur 20. marz 1974 Vatnsberinn: (20. jaa-18. febc) Það-verða frjálsleg framkoma og sniðugheit, samfara heilbrigðri skynsemi, sem hjálpa þér yfir einhverja erfiðleika i dag, og það er hætt við þvi, að þú munir sjá aðra persónu I nýju ljósi vegna þessa. Getur orðið góður dagur. Fiskarnir: (19. febr-20. marz) Það er eitthvað í fari þinu, sem um langt skeið hefur alls ekki fengið að njóta sin, eða með öðr- um orðum blundað I sálu þinni. Nú litur út fyrir, að þetta spretti upp i dag, og það er um að gera að veita þvi útrás, og það strax. Hrúturinn. (21. marz-19. april) Raunverulegir vinir, sem maður getur trúað og treyst i bliðu og striðu, eru i raun og veru harla sjaldgæfir, og þeir eiga svo sannarlega skilið.að þeim sé réttarhönd, ef þeir eiga i einhverjum vandræðum. Mundu það i dag. Nautið: (20. april-20. mai) Þú litur tortryggnisaugum einhvern vin þinn eða vinkonu og býst við öllu þvi versta af viðkom- andi aðila. I þessu tilfelli er samt rétt að fara að öllu með gát og ræða málið við viðkomandi, þvi að hér er eitthvað saman við. Tviburamerkið: (21. mai-20. júní) Þetta verður mesti rólegheitadagur i dag, og þú þarft ekki að búast við neinum stórviðburðum, eða yfirleitt viðburðum, sem skipta einhverju máli til eða frá. Svona dagar koma við og við, og þá er um að gera að slappa af. Krabbinn: (21. júni-22. júli) Þú mátt búast við þvi, að þér gangi betur i ein- hverjum málum en þú hafðir reiknað með, og það eiginlega þeim, sem þú bjóst sizt við vel- gengni i. Þetta er svolitið skrýtinn dagur, en skemmtilegur samt að flestu leyti. Ljónið: (22. júli-23. ágúst) Það litur út fyrir, að þetta verði reglulega skemmtilegur dagur fyrir þig að ýmsu leyti. Meðal annars eru talsverðar likur á þvi, að gömul vinátta rifjist upp, eða ný myndist, sem verður þér til reglulegrar ánægju. Jómfrúin: (23. ágúst-22. sept) Þetta er svolitið undarlegur dagur hjá Jómfrún- um, en litur þó út fyrir að verða hinn skemmti- legasti. Hvað það er, sem fyrir kemur, er ekki gott að segja — það skyldi þó aldrei vera nýtt lifsviðhorf að einhverju leyti? Vogin: (23. sept-22. okt) Góður dagur. Það er rétt eins og f jármálin færist i betra horf, og það litur út fyrir, að eldri mann- eskja eigi með framkomu sinni þátt I þvi, að þú litur tilveruna bjartari augum en áður. Sproðdrekinn: (23. okt.-21. nóv.) Nú eru stjörnumerkin Sporðdrekunum hagstæð, og eigum viö ekki að segja, að það sé á öllum sviðum, i dag að minnsta kosti, og þvi sé óhætt ai. lofa þeim ástum, ánægjulegum samböndum og hamingju, jafnvel á viðskiptasviðinu. Bogmaðurinn: (22. nóv-21. des.) Nú skaltu gæta þess vel að hafa öll þin mál i lagi og vera við öllu búinn. Það litur nefnilega út fyrir breytingar, sem hafa sin áhrif á gang allra mála, óvist að þær skelli á, heldur liklegra, að þær komi hægt og hægt. Steingeitin: (22. des.-19. janj. Það litur út fyrir það, að i dag efnir þú til nýrra kynna, sem verða þér til ánægju. Hitt er annað mál, að þú verður fyrir einhverjum leiðindum á vinnustaðnum, og litur einna helzt út fyrir, að um einhvers konar þrætur sé að ræða. 1 14444 -9 muíiBm V 25555 BÍLALEIGA CAR RENTAL BORGARTUN Fdein orð um frímerki Fyrir nokkru birtist grein i lesendadálki Visis, undirrituð „Frimerkjasafnari”. Þar gerir greinarhöfundur að umtalsefni, að nú sé hætt að hafa kr. (krón- ur), aftan við verðgildistölu á is- lenzkum frimerkjum, og telur hann þetta útlenda eftiröpun, sem og rétt er. Með greininni var m.a. mynd af frimerkjum þeim, sem út voru gefin 23. mai 1973, i tilefni af 100 ára afmæli islenzka frimerkisins. Þessi afmælis- merki eru yfirleitt vel gerð að öðru leyti en þvi, að verðgildis- tölur eru svo flannastórar að það er mjög til lýta. Hefði verið ólikt smekklegra að hafa myndina af gömlu skildingamerkjunum efst i hægra horni merkjanna (þar sem verðgildistalan var sett), en setja svo verðg.töluna i rammann aft- an við ISLAND. „Frimerkjasafnari” vék aðeins að væntanlegri frimerkjaútgáfu i tilefni af 1100 ára byggð i land- inu, en ráðgert er að gefa út 11 þjóðhátiðarmerki með mynd- um af listaverkum. Það virð- ist hafa læðzt sá grunur að grein- arhöfundi, að brugðizt gæti til beggja vona um smekklegt val- mynda á þessi merki. Nokkru eftir að þessi grein var skrifuð, sendi póststjórnin út plagg með myndum af 4 fyrstu merkjun- um i hátiðarsettinu. Og þá kemur i i lljós að grunur „Frimerkjasafnara” er ekki ástæðulaus. Oll merkin (að 10 kr. rherkinu undanskildu) eru með myndum af klessuverkum. Einnig þarer um útlenda eftiröp- un að ræða, þvi nokkuð hefur bor- ið á klessverkum á siðari ára fri- merkjaútgáfum ýmsra landa, þó skylt sé að taka fram um leið, að mörg lönd hafa enn sem komið er útilokað þennan ófögnuð af frimerkjaútgáfum sinum. Hvers vegna má isl. frimerkja- útgáfa ekki halda þeirri fegurð og smekkvisi, sem hefur einkennt hana áratugum saman, og gert islenzk frlmerki svo eftirsótt innanlands og utan sem raun ber vitni? Til hvers er verið að apa eftir útlendan ljótleika? Það er furðuleg árátta alltof margra Is- lendinga að geia ekki með nokkru móti staðið uppréttir, þegar er- lend áhrif eru annars vegar. Að siðustu ætla ég að geta stutt- lega um tvær frímerkjaútgáfur ársins 1973, sem eru sérlega lif- vana og hugmyndasnauðar. 1 tilefni frimerkjasýningarinnar tslandia ’73 komu út tvö merki. „Myndirnar” á þessum merkjum eru strik og krúsidúllur þvérs og kruss, sem sennilega eiga að takna frimerkjatakka. Þvilik hugmyndaauðgi! Hin útgáfan er frá 14. nóv. s.l. Þá kom út eitt 50 kr. merki i tilefni 100 ára afmælis Alþjóðaveðurfræði- stofnunarinnar. Þetta merki er ein litlaus flatneskja að allri gerð. Fremst á merkinu trónir mynd af höggmynd, drumbur ,sem mun eiga að tákna mann. En það virðist svo, að sá sem þessa höggmynd gerði, hafi algerlega gefizt upp við að koma viðhlitandi mannsmynd á þetta afkvæmi sitt. 1 baksýn er svo sitthvað, sem maður gæti haldið,að ætti að tákna skýflóka, en er að sjálfsögðu ekki neinu skýi likt. SKIPAÚTGERÐ RÍKISINS M/s Esja fer frá Reykjavik miðvikudaginn 27. þ.m. austur um land i hringferð. Vörumóttaka fimmtudag og föstudag til Austfjarðahafna, Þórs- hafnar, Raufarhafnar, Húsavikur og Akureyrar. Fyrir um það bil tveim árum mun hafa verið sett á laggirnar einhver nefnd, sem átti að vera póststjórninni til ráðuneytis um frimerkjaútgáfu. Það eitt er vist, að hafi nefnd þessi eitthvað starf- að, þá virðist isl. frimerkjaút- gáfa ekki hafa breytzt til batnað- ar fyrir hennar tilverknað. Frimerkjasafnarar verða að vera vel á verði gegn þeirri óheillaþróun, sem nú virðist vera farið að brydda á i islenzkri frimerkjagerð. Safnari. Uppboð Opinbert uppboð verður haldið i dómsal bæjarfógetaembættisins að Strandgötu 31, Hafnarfirði, i dag, miðvikudaginn 20. marz kl. 13,30. Seldar verða ýmsar eignir dánarbús Gústafs A. Sveinssonar hrl., m.a. handrit að skrá yfir dóma Landsyfirréttar 1875-1919, hlutabréf, útistandandi skuldir, bækur, skrifstofutæki o.fl. Hafnarfirði, 19. marz 1974 Már Pétursson, héraðsdómari. Verzlunarmannafélag Hafnarf jarðar heldur aðalfund laugardaginn 23. marz n.k. i Skiphóli. Fundurinn hefst kl. 13,30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Önnur mál Stjórnin. Verzlunarmaður Kaupfélag á Vestfjörðum óskar eftir unguiii manni i verzlun nú þegar. Húsnæði fylgir. Þeir, sem áhuga hafa, leggi nöfn sin, með upplýsingum um aldur og fyrri störf, inn á afgreiðslu blaðsins fyrir 31. marz, merkt Atvinna 1697. Starf fulltrúa i starfsmannadeild er laust til umsóknar. Laun samkvæmt kjarasamningum rikis- starfsmanna. Umsóknarfrestur til 13. april 1974 Rafmagnsveitur rikisins Laugavegur 116, Reykjavik. Orðsending frá Hótel Húsavík Getum enn tekið að okkur fundi og ráð- stefnur. Nokkrir dagar lausir fyrripartinn i júni. Einnig i april og mai. Kynnið ykkur okkar glæsilegu aðstöðu. Hringið i sima 96-4-12-20, Hótel Húsavik býður yður vel- komin. Hótel Húsavik.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.