Tíminn - 20.03.1974, Qupperneq 4

Tíminn - 20.03.1974, Qupperneq 4
 4 TÍMINN Miövikudagur 20. marz 1974. I B JL Merkilegt hnattlikan Á siðastliðnu ári var viða um heim, og á margvislegan hátt, haldið hátiðlegt 500 afmæli hins fræga stjörnuf ræðings Copernicusar. 1 Vestur-Þýzka- landi var t.d. i minningu um þennan merka stjörnufræðing gert mjög merkilegt hnattlikan, sem sýnir sólarlag ájörðinni — bæði mun dags og nætur og einnig hallann á jarð- möndlinum og hvernig sumar og vetur færast yfir heims- hlutana. Tilbúningi þessa hnatt- likans stjórnaði prófessor, sem heitir W. Gleissberg og er yfir- maður stjörnufræðideildar við háskóla Frankfurtborgar. Einnig sést þarna alltaf, hvar hádegi er á hnettinum á hverjum tima, það er sýnt með litlum, sérstaklega björtum og upplýstum bletti, sem færist stöðugt til og sýnir hádegis- sólina Tom Jones ætlar að hætta Þótt Tom Jones sé ekki nema rúmlega þritugur, hefur hann verið heimsfrægur árum sam- an. Hann er nú saeður á hátindi frægðarinnar, og það kom þvi eins og þruma úr heiðskýru lofti, þegar hann lýsti þvi yfir fyrir nokkru, að nú hygðist hann hætta að koma fram opinber- lega, og ætlaði i staðinn að ger- ast bóndi. Hann hefur fest kaup á stórri jörð skammt frá Ponty- pridd i Wales, en þaðan er hann ættaður. — Ég á konu og þrjú börn, segir stjarnan, og það er mál til komið,að ég fari að sinna þeim sem raunverulegur heimilisfað- ir. Þetta hljómar fallega og er eflaust alveg rétt, svo langt sem það nær, en það ku þó ekki vera nema hálfur sannleikurinn. Samkvæmt alláreiðanlegum heimildum er Tom Jones búinn að missa röddina. Hann er sagð- ur hafa reynt allt of mikið á raddböndin, og þeir, sem einu sinni hafa heyrt hann syngja, eiga eflaust ekki erfitt með að trúa þvi. Samkvæmt læknisráði verður hann að steinhætta að syngja — að minnsta kosti fyrst um sinn. Vinátta út yfir landamæri Þessi mynd er tekin skammt frá Dusseldorf i Þýzkalandi, og i textanum, sem með henni fylgir, segir, að skilti svipuð þvi, sem hér sést, séu ekki lengur óvenjuleg i Þýzkalandi. Skiltið skýrir vegfarendum frá þvi, að þeir séu komnir til Neuss am Rein, en Chalons sur Marne er vinabær Neuss. Nokkuð á annað þúsund bæir og borgir i Þýzka- landi hafa eignazt vinabæi utan landamæranna frá þvi 1945, en vinabæjahugmyndin er meira enhálfrar aldar gömui i Evrópu og við þekkjum hana einnig hér á landi, þvi flestir bæir og þorp eiga vinabæi i öðrum löndum. Það var þó ekki fyrr en eftir siðari heimstyrjöldina, að fólk fór að vinna markvisst að þessum vinabæjatengslum i Þýzkalands, og fyrstu vinabæja- tengslin þar urðu til vegna nauðstaddra i hinum ýmsu borgum. Fólk i öðrum löndum vildi þá gjarna hjálpa fólkinu i einhverri ákveðinni borg, og þannig var komið á vinabæja- tengslunum. AAörg ný heilsuhæli reist við Bajkal-vatn Balneolgd, sú grein læknisfræði, sem fjallar um böð til heilsu- bótar, er veigamikill þáttur i starfsemi hressingarhæla i Sovétrikjunum. Jarðfræði- stofr.un Sibiriudeildar Visindakademiu Sovétrikjanna hefur nýlega látið fara fram athugun á steinefnarikum uppsprettum og heilsulindum við Bajkalvatn i Austur-Sibiriu. Gert hefur verið kort yfir þær 123 uppsprettur, sem mestur fengur er i fyrir iðnað og til lækninga. Alls hafa menn fundið þar um slóðir yfir 300 upp- sprettur með óvenju miklu af uppleystum steinefnum. Að áliti sérfróðra manna eru skilyrði til rekstrar heilsuhæla á Bajkalsvæðinu ekki siðri en i Kákasus, Karpatafjöllum og ölpunum. Þar er að finna hér um bil allar þekktar tegundir heilsulinda, sem i eru súlföt, brennisteinsvetni, kolsýru, köfnunarefni, metan, radon og fl. Nokkur heilsuhæli hafa þegar verið reist við Bajkalvatn, og áætlað er að reisa mörg til viðbótar. DENNI DÆMALAUSI Það er undarlegt, hvað maður verður einmana, þegar fer að skyggja.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.