Tíminn - 20.03.1974, Síða 11
10
TÍMINN
Miðvikudagur 20. marz 1974.
Kjartan i Rafiðjunni sýnir brúðhjónunum IGNIS-þvottavélar.
ÞAU urðu heldur betur
hissa ungu hjónin, Lára
Sveinsdóttir og Arnar
Helgason, þegar þeim
barst til eyrna, að þau
væru orðin brúðhjón
mánaðarins á síðum Tím-
ans.
unni i Hafnarfiröi 24. nóvember.
Það var prófasturinn okkar Hafn-
firðinga, séra Garðar Þorsteins-
son, sem pússaði okkur saman.
— Höfðuð þið þekkzt lengi?
— Það var formælandi þeirra
hjóna, Lára, sem svaraði þvi, og
bætti svo við:
— Það var heima hjá bróður
Arnars.
Það skal tekið fram, að auðvit-
að hafði blaðamaöurinn ekki
taugar i sér til að spyrja, hvort
hér hefði verið um að ræða þessa
svokölluðu „ást við fyrstu sýn”,
hvað sem það nú er.
— Er búið að kaupa allt i búið?
— Við fengum flest sem okkur
vantaði i brúðkaupsgjöf, segir
Lára, og Arnar bætir við:
— Já, eiginlega allt utan
þvottavélina
Þvottavél. Já, það er nú það.
Þannig er málum nefnilega hátt-
að, að Timinn dregur mánaðar-
lega úr eina af þeim brúðkaups-
myndum, sem hann hefur birt, og
Lára er 19 ára gömul, en Arnar
27 ára, bæði Hafnfirðingar i húð
og hár, og þá auðvitað Flensborg-
arar lika.
— I Flensborg lauk minni
skólagöngu, sagði Lára, og nú
vinn ég hjá Sparisjóði Hafnar-
fjarðar.
— Og herrann?
— Ég hélt áfram að læra, og
gekk i iðnskóla Hafnarfjarðar,
þar sem ég lærði húsasmiði. Nú
vinn ég við þá iðn i norðurbænum
heima i Firðinum.
— Og byggir þá kannski yfir
ykkur i leiðinni?
— Nei, við keyptum okkur
gamalt tvilyft timburhús að
Merkurgötu 8. Það er svona u.þ.b.
70 fermetrar og svo kjallari.
Og þá er að snúa sér að þeim
málum, sem engum koma við
nema brúðhjónunum sjálfum.
Það liggur þá auðvitað beinast
við að spyrja fyrst um brúðkaupið
sjálft.
— Við giftum okkur i þjóðkirkj-
Brúðhjón mónaðarins:
Bæði Hafnfirðingar
í húð og hár,
og þá auðvitað
Flensborgarar líka
Þessar uröu fyrir valinu: Lára hjá Agnari og IGNIS-þvottavélin hjá Láru og Agnari.
Og rúsinan I pylsuendanum var forláta minútugrill
Miövikudagur 20. marz 1974.
TÍMINN
11
Vantar okkur eitthvaö, sem þarna er aö finna?
þannig eru brúðhjón mánaðarins
valin. 1 verðlaun fá þau svo vöru-
úttekt fyrir 25.000 krónur. Nú og
fyrst þau hjónin vantaði þvotta-
vél, lá auðvitað beinast við að
velja slikt tól.
Eftir miklar vangaveltur kom-
ust þau Lára og Arnar að þeirri
niðurstöðu, að IGNIS-þvottavél
væri sú eina rétta. Þessleg áhöld
fást hjá Raftorgi hf. Kirkjustræti
8. Þangað var svo haldið einn
góðviðrisdaginn i vikunni og
gægzt inn um búðarglugga á leið-
inni.
I verzluninni Raftorgi tók
Kjartan Stefánsson
framkvæmdastjóri á móti brúð-
hjónunum, og sýndi þeim ýmis
afbrigði IGNIS-þvottavéla.
Valið gekk fljótt fyrir sigen þeg
ar þau Lára og Arnar höfðu
þakkað fyrir sig og ætluðu að
kveðja, bað Kjartan þau að doka
aðeins við. Hann hafði lítilræði i
pokahorninu. Og sem hann stóð
þarna uppi við búðarborðiö, dró
hann upp forlátaapparat, sem
kallast minútugrill.
Og þar með gengu þau Lára
Sveinsdóttir og Arnar Helgason
út I vorið, getandi matreitt á
minútu og þvegið af sjálfum sér
og væntanlegum erfingjum á
mettima.
— PHL.
A gangi um Miöbæinn
Hugleiðingar
á sýningu
10. marz 1971
ERU matvæli Ijót? Þarf að búa
fæðutegundir dulargervi i mat-
reiðslunni til þess að gera þær
girnilegar? Þessar spurningar
vakna i hvert sinn, sem nem-
endur Matsveina- og veitinga-
þjóuaskólans sýna verk sín.
Góð matreiðsla hefur verið
skilgreind svo: Matreiðsla er i þvi
fólgin að breyta fæðutegundum,
svo að þær verði auðmeltar og
bragðgóðar, en varðveiti
jafnframt næringargildi sitt og
sérkenni.
Myndlistarmenn fyrri tima
gerðu oft myndir af matvælum,
fuglum, fiskum, ávöxtum og
öðrum formum úr náttúrunni,
sem vekja aðdáun flestra glöggra
sjáenda. Samstillingar af liku
tagi eru nú algengt viðfangsefni
ljósmyndara. Listrænn árangur
myndasmiðanna er oft harla
góður, ef vel hefur tekizt að raða
Amerísk
HRÍSGRJÓN
RIVER hrísgrjón þekkir húsmóöirin og veit hve hagkvæm
þau eru, sérstaklega í grauta. RIVIANA býöur nú einnig:
AUNT CAROLINE hrísgrjón, sem eru vítaminrík, drjúg, laus
í sér, einnig eftir suöu og sérstaklega falleg á boröi.
SUCCESS hrísgrjón koma hálfsoöin í poka, tilbúin
í pottinn. RIVER brún hýöishrísgrjón holl og góö.
fluffy white
$ KAUPFÉLAGIÐ
hlutunum saman og upprunaleg
form þeirra njóta sin. En þá
vaknar spurningin: Eru matvæli
heppilegur efniviður i annars
konar listaverk, svo sem iikön af
vita, bók eða ferlegu andliti dýrs?
Ásta Bang, dóttir danska rit-
höfundarins Editar Rode, segir i
bók sinni „Mors mad” eitthvað á
þessa leið: „Móðir min skreytti
ekki matinn, maturinn hennar
var fallegur i sjálfu sér”.
Margir örðugleikar voru á þvi
áður fyrr að geyma matvæli
óskemmd. Þurfti þá oft að gripa
til þess ráðs að breiða yfir galla,
t.d. með þvi að krydda réttina
óspart, hylja þá með bragð-
sterkum sósum, nota mikla feiti
og sterkan hita við matreiðsluna.
Voru fæðutegundirnar oft hart
leiknar og litt þekkjanlegar að
Framhald á bls. 19