Tíminn - 20.03.1974, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 20. marz 1974.
TÍMINN
13
Neita
að
baða
fé
sitt
Á þessum vetri á enn á ný að
lögskylda bændur til að fram-
kvæma svokallaðar þrifabaðanir
á sauðfé sinu.
Þar sem við undirritaðir
bændur i Suðurfjarða og
Ketildalahreppum teljum okkur
hafa náð þvi takmarki, sem lög
um sauðfjárbaðanir gera ráð
fyrir, það er að útrýma óþrifum
—-lús og kláða — úr sauðfé okkar,
viljum við hér með tilkynna hlut-
aðeigendum, að meðan ekki
ásannast annað við rannsókn
munum við ekki baða fé okkar
framvegis.
Um leið viljum við átelja harð-
lega, hvernig framkvæmdavaldið
vinnur að framgangi þessara
mála, þ.e. útrýmingu óþrifa i
sauðfé.og virðast aðgerðir frekar
miðast að viðhaldi þeirra.
1 fyrsta lagi má þar nefna til
leyfðan hömlulausan flutning
sauðfjár milli héraða án allra
varúðarráðstafana, sem er hið
ákjósanlegast dreifingarfyrir-
komulag á óþrifum sem hugsast
getur.
Annað atriði: Nú mun
kláðanum ekki nægja minna til
aldurtila en tvöföld böðun. Það
gefur þvi auga leið, að þrifaböðin,
sem er einföld böðun og er til
höfuðs lúsinni,vinnur ekki til fulls
á kláðanum, þar sem hann er til
staðar, heldur slær aðeins á hann
og leynir honum og kemur þannig
i veg fyrir, að á honum verði
unnið með viðeigandi aðgerðum.
Stuðla þvi þrifabaðanir hvað
dyggilegast að viðhaldi kláðans.
Eitt er enn, sem vinnur með
kláðanum i baráttu hans fyrir til-
veru sinni, það er vanþekking
böðunarstjóra, sem virðast ekki
þekkja þær reglur, sem fara ber
eftir við kláðabaðanir, t.d. um
það hvað halda skal kind lengi
niðri i baði og um sótthreinsun
húsa, sem er nauðsynlegur
öryggisþáttur, en alltaf van-
ræktur.
Eins og mál standa nú, virðist
allt benda til þess, að fram-
kvæmdavald baðana hafi ekki
það takmark i huga að útrýma
óþrifum i sauðfé, eins og lög þar
um þó bjóða, heldur aðeins að
etja mönnum út i Kleppsvinnu
annað hvert ár eða svo. Það
hefur margsinnis verið bent á úr-
ræði til þess að árangur náist i
baráttunni við óþrifin og til þess
að hægt sé að fylgjast með þvi
hvort árangur verður.
Eina leiðin til þess er að lög-
banna allar baðanir, en fylgjast
náið mefyhvort óþrifa verður vart,
og einbeita kröftum og fjármagni
til að útrýma þeim hvar sem þau i
ljós koma. Það mætti skattleggja
alla sauðfjárbændur um þá upp-
hæð sem böðunarkostnaði myndi
nema, ef baðað væri, og nota þá
fjármuni til að standa straum af
kostnaði viðskipulagða óþrifaleit
og til að reka smiðshögg á út-
rýmingu óþrifa á þeim fáu
stöðum, sem þau munu enn við-
loðandi.
Þetta er ekki einkamál hvers og
eins, heldur hagsmunamál allra
bænda jafnt.
Framkvæmdavald þessara
mála hefur haldið svo slælega á
spilum og ekki sinnt neinum
ábendingum um úrbætur, að við
teljum það nú þegar orðið skaða-
bótaskylt gagnvart bændum, sem
það hefur lögþvingað af fyrir-
hyggjuleysi æ ofan i æ út i til-
gangslausar, en dýrar og áhættu-
samar aðgerðir, þar sem baðanir
eru i núverandi mynd.
Arnarfirði, 15. febrúar 1974.
Ingi Bjarnason Feigsdal
Ólafur Gislason Neðra-Bæ
Sveinn B. Sigurjónsson Grænu-
hlið
Matthias Jónsson Fossi
Jón B. ólafsson Fifustöðum
Halldór E. Jónsson Hóli
Björn Ólafsson Dufansdal
Sigurður Guðmundsson Otradal
Veiðiár
Laxveiðiárnar Grishólsá og Bakká I
Helgafcllssveit á Snæfellsncsi eru til
leigu.
Tilboð sendist til Hauks Sigurðssonar,
Arnarstöðum, um Stykkishólm, fyrir 10.
april.
Jörð tii sölu
Jörðin Hóll i Önundarfirði er til sölu i
næstu fardögum.
Bústofn og vélar geta fylgt i kaupunum.
Hlunnindi: Silungsveiði og berjatekja.
Allar nánari upplýsingar gefur eigandinn,
Jón Jónatansson,
Hóli, Önundarfirði. Sími um Flateyri.
Vörubíll til sölu
Benz 1413, árgerð 1966. — Upplýsingar
gefur Jón Björgólfsson, Stöðvarfirði.
Iðnaðarráðuneytið
18. mars 1974.
Laus staða
Staða framkvæmdastjóra Lagmetisiðj-
unnar Siglósild, Siglufirði, er laus til um-
sóknar.
Laun skv. hinu almenna launakerfi opin-
berra starfsmanna.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um
menntun og starfsferil umsækjanda,
sendist ráðuneytinu fyrir 20. mars 1974.
I II llllll VERÐTRYGGT ...
HAPPDRÆTTISLÁN RÍKISSJÓÐS 1974
Skuldabrél þ«tu *r hlutl Nð hundruS og flmmliu milljón krón* •kuldabréfaláns rlkl»*|ó8» vogna
VcgatjóS* og *r g*IIS ul Mmkvaml htlmlld I fjérlðgum fyrlr érlB 1974,
•br. Iftg um skatUUgi nwBlarB vtrSbréfa o. II.. **m riklttjóBur _Mlur Innanlands, fré msrs
1974, um fjérðflun Ul vsgs- og brúsgsrBa é SksiBsrérMndl, sr opnl hrlngvsg um IsndlB.
RiklssjóBur sr skuldugur hsrrdhsls b*«M skuldsbréfs um tvft búsund krónur._____________
I II 'IIOII VERÐTRYGGT
HAPPDRÆTTISLÁN RlKISSJÓÐS 1974
Skuldabréf þsK* sr hluU Ivft hundruB og flmmtiu fnlllión kn
VsgasjóBt og sr gafiB út Mmkvtsml halmild I fj
----»h* Ufai iim «iisn«Ufla moBfarB vsrBbréfa o. fl., s*m rikli
_____________________Ul vsga- og brúagarBa é Skslf-uérMr
Islandt é vlsllftlu framfmrslukost
VERÐTRYGGT •■=
HAPPDRÆITISLÁN RlKISSJÓÐS 1974
Skuldabréf þatto ar hluU tvft hundruB og flmmtiu milljón króna skuldabréfaléns riklssjóBt vsgna
VsgasjóBs og ar gafiB út Mmkvmmt halmlid I fjérlftgum fyrlr árlB 1974,
sbr. Iftg um skattolaga maBfsrB vsrBbréfa o. IL, **m rikistjóSur Mlur Innanlands, frá mars
1974, um fjérftflun Ul tmga- og UúagsrSa é SktlBarérMndl, *r opnl hrlngvM um tondKL
RklMjóBur *r skuldugur handnafa þ*SM skuldabréfs um tvft þúsund krónur.
RklMjóBur andurgrslBtr tkuldlna maft Skuldabrét þatto fymM ft 10 ánMi Irft
vsrBbótum I hlutfalll vfB þé httkkun. ar 9 gjalddaga og vsrBur skkl bmtorsf aft
kann aft varBa é lénstlmanum é þalrri vlsÞ /I O þalm tfma UBnum.
rdðuneytisjljóri
fjdrmdlardðhem
FlérmélaréBunayUB, 20. mars 1974.
i Sým.Æ-. /£,
fjdrmdUrdðherra rdðuneytiutjári
■. w
brua
Framkvæmdir við vega- og brúagerð Beggja vegna Skeiðarár hefur lengi
á Skeiðarársandi vegna hringveg-
arins hafa gengið samkværpt áætl
un. Þessar framkvæmdir eru fjár-
magnaðar með fé, sem inn kemur Enn vantar nokkuð á, að bilið sé
fyrir happdrættisskuldabréf ríkis- brúað, þess vegna eru nú til sölu
sjóðs. hjá bönkum og sparisjóðum um land
__—___— ----------——-------------- allt verðtryggð happdrættisskulda-
Nú er unnið að gerð varnargarða og bréf ríkissjóðs, þau kosta 2000
brúar yfir Skeiðará, sem mun verða krónur.
lengsta brú landsins, 900 metra Brúum bilið.
er að verða að veruleika
0 SEÐLABANKI ISLANDS