Tíminn - 03.07.1974, Qupperneq 15

Tíminn - 03.07.1974, Qupperneq 15
Miðvikudagur 3. júll 1974. TÍMINN 15 Æpti xG og stökk í sjóinn Nýja Akraborgin fór fyrstu ferð sfna á laugardaginn. Farþegar, sem margir voru á leið upp á Akranes til þess að horfa á leik Skagamanna og KE (sem lyktaði 1-1), voru hinir ánægðustu með farkostinn. Ferðin gekk greiðlega aðundanskildu þvi að einn farþeganna, sem var nokkuð við skál, kastaði sér fy^rir borð rétt undan Akranesi. Maður þessi hafði verið hávaðasamur alla leiðina og talað mikið um stjorn- mál og fótbolta. Þegar Akraborgin var komin upp undir Akranes, klifraði sá drukkni skyndilega upp á borðstokkinn, æpti kjósum G-listann og kastaði sér I sjóinn, áður en til hans náðist. Skipinu var þegar snúið við og gúmbátur settur i sjóinn, þvi að fljótt dró af manninum, þannig að hann náði ekki taki á bjarghring, sem til hans var varpað. Hann var meðvitundarlaus, þegar hann . náðist um borð, en rank- aði við sér eftir að gripið hafði verið til hjartanudds og blástursaðferðarinnar. Þegar I land kom var hann fluttur á sjúkrahúsið á Akranesi en ekki mun honum hafa orðið meint af volkinu. Hins vegar missti hann af leiknum, sem ratinar seinkaði um hálftlma, þvi að dómarar voru um borð I Akraborginni. Myndin hér að ofan var tekin, þegar verið var að bjarga ofurhuganum upp I björgunabátinn, en báturinn var áður á gömlu Akraborginni. Ekki hafði verið gengið frá honum, heldur lá hann iaus á þilfarinu. Mun það hafa flýtt þvi mjög, að maðurinn náðist, en ekki iiðu nema sjö mlnútur frá þvl hann stökk, þar til hann var aftur kominn um borð. — Tímamynd: Jim Auglýsið í Tímanum Tilboð í Suðurlandaveg i gær voru opnuð tilboð I 14 klló- metra langan kafla Suðurlands- vegar austan Selfoss. Samkvaémt áætlun, sem Almenna verkfræði- stofan gerði fyrir Vegagerð rikis- ins var talið, að kostnaður við vegagerðina yrði rösklega 156.9 millj. Útboðið var miðað við að verk- inu yrði lokið i september 1975. Tilboð bárust frá fjórum aðiljum, Leiðrétting Prentvillupúkinn lék okkur grátt i blaðinu i gær, þar sem hann olli algerri merkinga- breytingu i niðurlagi greinar- innar um útvarpsviðtöl flokks- foringjanna. ólafur Jóhannesson sagði þar, að ekki ætti að veia svo erfitt að glima við vandamálin i dag, vegna almennrar hagsældar landsmanna. „Magnús Torfi Ólafsson tók I sama streng, og áleit að vandinn væri svo geig- vænlegur, að nauðsyn bæri til myndunar þjóðstjórnar” sagði svo i greininni. Þarna var að sjálfsögðu átti við það að MTO teldi vandann ekkiþað geigvæn- legan, aö nauðsyn væri á myndun þjóðstjórnar, en það kom m.a. til tals á umræddum fréttamanna- fundi, vegna þess, hve flokksfor- mennirnir voru allir sammála um það, að fyrst og fremst bæri að leysa efnahagsvandann, eftir að þing kæmi saman. Aðalbraut h/f, að upphæð 173.6 millj., ístak h.f. og Sveinbirni Runólfssyni s.f. 169.97 millj., Mið- felli h.f., Veli h.f. og Vörðufelli h.f. 198 millj. og loks tilboð frá Ýtutækni 175.4 millj. Fimm hátíðir um helgína Þegar hafa verið haldnar átta þjóðhátiðir i landinu á þessu sumri. Auk þess var 11 alda af- mælisins minnzt á ýmsum stöð- um hinn 17. júni sl. og má þar m.a. nefna Borgarnes og Vopna- fjörð. öll þessi hátiðahöld hafa farið fram með miklum ágætum eins og fréttir hafa borið með sér. Um næstu helgi verður efnt til þjóðhátiða á fimm stöðum á land- inu. Þjóðhátið Borgfirðinga verð- ur að Reykholti 6. júli Húnvetn- ingar efna til þjóðhátiðar i Kirkjuhvammi við Hvamms- tanga 6.-7. júli. Norður-Þing- eyingar halda þjóðhátið i Ásbyrgi hinn 7. júli og Austfirðingar efna til sameiginlegrar þjóðhátiðar að Eiðum 6.-7. júli. Þá halda Suður- nesjamenn þjóðhátið sina að Svartsengi um næstu helgi. Þjóðhátið á Akranesi stendur yfirdagana 4.-11. júli en Akurnes- ingar eru auk þess þátttakendur i Reykholtshátiðinni. Vörubifreið til sölu HANOMAG HENSCHEL F 221, — Burðar- magn 12-13 tonn. Keyptur nýr 1971, ekinn 120 þúsund km, vél 270 hestöfl, 12 gira kassi, mismunsdrifsíásar, sturtur St. Poul. Bifreiðin er i mjög góðu standi. Upplýsingar i sima 3-46-04. Frsfnsó ÞEIR, sem fengið hafa heim- senda miða, eru vinsamlega beðnir að gera skil á skrifstofu happdrættisins að Rauðarárstíg 18, sími 2-82-69, sem er opin f rá 9- 19 i dag — eða á afgreiðslu Tím- ans, Aðalstræti 7, frá kl. 9-17. EINNIG taka trúnaðarmenn happdrættisins úti á landi á móti uppgjöri og greiða má inn á póst- gíró-númer happdrættisins, NR. 34444, í pósthúsum og peninga- stofnunum um allt land. ins ito 1 Vinningar: 1. Hraðbátur með 40 ha. utanborðsvél . . . 2. Húsvagn Sprite Alpine...................... 3. Vatnabátur, Rana 14 fet með mótor . . . 4. Utanlandsferð.............................. 5. Kvikmyndavél .............................. 6. Tjald og viðleguútbúnaður frá Sportval . . 7. -15. Myndavélar, Yashica kr. 15 þús. hver v. 16.-25. Veiðivörur frá Sportval kr. 10 þús. hver v. 26.-50. Sportvörur frá Sportval kr. 5 þús. hver v. 280.000,00 270.000,00 120.000,00 50.000,00 40.000,00 25.000,00 135.000,00 100.000,00 125.000,00 Verðmæti vinninga alls kr. 1.145.000,00

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.