Tíminn - 07.09.1974, Page 3

Tíminn - 07.09.1974, Page 3
Laugardagur 7. september 19T4. TÍMINN 3 Líkan af sögualdarbænum, sem veriö er aö reisa á Skeljastööum. ÞJÓÐHÁTÍÐARKViKMYNDIN FRUMSÝND INNAN TÍÐAR — sögualdarbærinn brdtt fullbyggður — sögusýning í undir- búningi — ný Islandssaga og Ijósprentun Landndmu 1 I P Met Magnúsar Sem iönaðarráöherra flutti Magnús Kjartansson á Alþingi siöastliöinn vetur frum- varp um sérstakt verðjöfnunargjald, sem yrði notað til að styrkja fjárhag Rafmagnsveitna rikisins. Þetta var gert til þess að koma i veg fyrir, að enn þyrfti að hækka raforkuverö mest hjá þeim, sem nú búa við erfiðasta aðstöðu. Frumvarp þetta dagaði uppi vegna andspyrnu Sjálfstæðisflokksins. Magnús Kjartansson flutti þetta frumvarp aftur i byrjun aukaþingsins, en þá var hann enn iðnaðarráðherra Það gerðist svo i lok aukaþingsins, þegar Magnús var hættur aö vera ráðherra, að hann greiddi atkvæði gegn þessu frumvarpi sínu. Það mun vera einsdæmi i þingsögunni, að þingmaður greiði atkvæöi gegn eigin frumvarpi! ' En Magnús og flokksbræður hans i Alþýðubandalaginu gerðu meira en þetta. i lok aukaþingsins greiddu þeir atkvæði gegn mörgum öðrum málum, sem vinstri stjörnin hafði beitt sér fyrir.á vetrarþinginu og þeir stutt eindregið þá. Má i því sambandi nefna hækkun söluskattsins um tvö stig. hækkun bensinskattsins o.s.frv. Metið á samt Magnús Kjartansson fyrir að greiða atkvæði gegn eigin frumvarpi Á réttri leið Þegar borin er saman afstaða Sjálfstæðisflokksins á vetrar- þinginu annars vegar og aukaþinginu hins vegar, verður ekki annað sagt en að hann sé á réttri leið. Hann greiddi nú atkvæði með mörgum málum, sem hann hafði veriö á móti á vetrarþinginu. Haldi hann þannig áfram, má vænta góðs af samstarfinu við hann HJ-Reykjavik — Mörgum leikur vafalaust hugur á að vita, hvaö liður störfum þjóöhátiðarnefndar nú, að loknum vel heppnuðum þjóðhátiðarhöldum á Þingvöllum. Hefur hún lokið starfi sinu, eða hefur hún en sitthvað á sinni könnu? Til að fá vitneskju um þaö snérum við okkur til IndriðaG. Þorsteinssonar, framkvæmda- stjóra þjóðhátiðarnefndar. Indriði kvað verkefnum nefndarinnar fjarri þvi að vera lokið. Bygging sögualdar- bæjarins, sem verið er að reisa að Skeljastöðum er i fullum gangi, en Indriði er fulltrúi þjóðhátiðar- nefndar i hyggingarnefnd hans. Auk hans eiga sæti i nefndinni Jóhannes Nordal af hálfu Lands- virkjunar, Eirikur J. Eiriksson af hálfu þjóðhátiðarnefndar Arnes- sýslu, Steinþór Gestsson af hálfu Gnúpverjahrepps og Þór Magnússon þjóðminjavörður. Lokið er byggingu grunnsins, uppistöður hafa verið reistar, búið er að stinga allt torf, og er nú verið að þurrka það. Beðið er eftir timbri þvi, sem nota á I bæinn, en þess er von bráðlega. Vegur hefur verið lagður upp að Skeljastöðum, og er hann, greiðfær öllum bilum. Indriði kveðst aldrei hafa augum litið fegurri veg, en hann er allur úr hvitum vikri og alhvitur að sjá. I undirbúningi er sögusýning að Kjarvalsstöðum, og ber hún nafnið „Sambúð lands, og þjóðar”. Aætlað er, að sýningin verði opnuö i lok þessa mánaðar, en þeir sem aðallega hafa staðið að undirbúningi hennar eru Gils Guðmundsson alþingismaður og Egill Sigurgeirsson hrl. af hálfu Þjóðhátiðarnefndar, auk Einars Hákonarsonar listmálara sem þar hefur unnið mikið starf. Verið er að leggja siðustu hönd á þjóðhátiðarkvikmyndina svo- kölluðu i London nú og er hennar von til landsins innan tiðar. Kvik- myndatöku annaðist Vigfús Sigurgeirsson, og fjallar hún um lifnaðar- og búskaparhætti þjóðarinnar fyrr á timum. Kvik- myndin, sem er af venjulegri lengd og með tilheyrandi tónlist, verður frumsýnd samtimis á þremur stöðum á landinu þ.e. á Akureyri, Reykjavik og Selfossi. Jón Hermannsson frá sjón- varpinu vinnur nú að klippingu myndarinnar og lokafrágangi, og bað Indriði okkur að geta þess, að sjónvarpið hefði verið mjög hjálplegt við alla gerð hennar. Indriði kvaðst binda miklar vonir við það, að hinn nýi menntamálaráðherra okkar rausnaðist til að taka fyrstu skóflustunguna að nýju þjóðarb- ókhlöðunni, sem á að reisa i tilefni þjóðhátiðar. Og vonandi yrði það fyrir árslok, þvi að það ættinú einu sinni að reisa hana i tilefni þjóðhátiðarinnar. Auk þess, sem hér hefur verið nefnt, hefur þjóðhátiðarnefnd hönd i bagga með útgáfu Islands- sögu, sem sérstaklega er gefin út i tilefni þjóðhátiðar, og annast Sigurður Lindal prófessor útgáfu hennar. Einnig hefur dr. Jónas Kristjánsson, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar, unnið að ljósprentun Landnámu, og er það gert i samvinnu við þjóðhátiðarnnefnd. Ljósritið er nú tilbúiö, og verður þaö mjög bráðléga fáanlegt til kaups hjá Árnastofnun og Menningarsjóði. Mörgum finnst vist, að hér hafi verið talin upp ærin verkefni, enda kvaðst Indriði ekki muna eftir fleira á sinni könnu i biii, utan fjármálauppgjörs, sem ljúka þyrfti fyrir áramót, en þá kvaðst hann myndi standa upp úr sinum stól og kveðja störf sin sem framkvæmdastjóri þjóðhátiðar- nefndar. Hvað vill Alþýðuflokkurinn? Alþýðublaðið gerir það að umtalsefni i gær, aö Sjálfstæöis- flokkurinn hafi lofaö að vinna að útfærslu fiskveiðilögsögunnar i 200 milur fyrir árslok 1974. Síðan segir blaðið: „Sjálfstæöisflokkurinn er nú kominn i rikisstjórn og formaður hans orðinn forsætisráðherra. Fyrsta verk hans i embætti forsætis- ráðherra var að lesa upp á Alþingi plagg, sem nefnt hefur veriö stefnuvfirlýsing rikisstjórnarinnar. Þar segir næsta fátt um raun- verulega stefnu hinnar nýju rikisstjórnar, en þar er þó vikiö aö laiulhelgismálinu. Vekur þar sérstaklega athygli, aö nú er ekki lengur stefnt að þvi að færa landhelgina út i 200 sjómilur fyrir árslok þessa árs eins og hátiðlega var lofað fyrir kosningar. Efnislega er breytingin kannski ekki ýkja mikil, þvi er aðeins slegið á frest um EITT ár að efna þetta mikilvæga kosningaloforð. Þegar hátíðleg kosningaloforð eru svikin með jafn augljósum hætti og Sjálfstæðis- flokkurinn gerir i þessu máli, skyldi engan undra að önnur loforð, sem minni áhersla var lögö á fyrir kosningar, gleymist og rykfalli i skrifborðsskúffum hinna nýju stjórnherra.” Fróðlegt væri að vita, i framhaldi af þessu, hvaða dagsetningu Alþýðuflokkurinn vill setja útfærslunni, eða hefur viljað. Það verðurekki ráðiö af þessari grein Alþýðublaðsins. Þ.Þ. OVIST HVAÐ OLLI DAUDA GAMLA MANNSINS — gesturinn í 30 daga gæzluvarðhaldi GB —Frumrannsókn á niöurstöð- um krufningarinnar á iíki gamla mannsins, sem lézt á miðviku- dagskvöldið að heimili sinu við Vesturgötu 26a, liggur nú fyrir, en hún leiddi ekki i ljós neina Nærri 4000 nemendur í menntaskólunum GB—Reykjavik — A landinu eru sjö menntaskólar, og eru þeir nú 338 hvalir á land fleiri langreyðar nú en í fyrra BH-Reykjavik — Þaö sem af er sumri hefur hvalvertiðin gengið svipaðog undanfarin sumur, eftir þeim upplýsingum, sem viö fengum i hvalveiðistööinni, i Hvalfirði í gær. Þá voru komnir á land 338 hvalir, en á sama tima i fyrra voru þeir orðnir 358. Vertið- inni lýkur upp úr 20 september. Veiðin skiptist þannig núna, að veiðzt hafa 281 langreyður, 48 búrhveli og 9 sandreyðar, en aflinn i fyrra skiptist þannig, að þá veiddust 257 langreyðar, 42 búrhveli og 52 sandreyðar. Er þvi langreyðaaflinn heldur betri i ár en hann var i fyrra, og kemur það betur út fyrir útgerðina, að þvi er okkur var tjáð. óðum að hefja vetrarstarfsemi sina. Lætur nærri, að tæplega fjögur þúsund nemendur stundi nám i menntaskóiunum I vetur Fyrsti skóiinn var settur 2. september, en þeir siöustu byrja kennslu 1. október. Menntaskólinn i Reykjavik var settur i gær og munu um 825 nemendur verða þar við nám i vetur. Kennsla hefst af fullum krafti n.k. mánudag. Fastráðnir kennara við skólann verða 39, en stundakennarar 28. Menntaskólinn við Tjörnina verður settur 7. september, en það verður að gera i þrennu lagi, þvi nemendur eru orðnir svo fjöl- mennir, að þeir komast ekki allir undir þak skólans i einu. Verður skólinn þvi settur kl. 10 kl. 11 og kl. 2. n.k. laugardag. Nemendur munu verða um 760 talsins i vetur, kennarar sextiu og fimm auk skólastjóra. Fastráðnir kennarar 35, en stundakennarar 30. Menntaskólinn við Hamrahlið var settur 2. september en þar eru nemendur mjög fjölmennir, i yngri deild eru þeir um 830, en i öldungadeildinni verða rúmir 500 hundruð nemendur, og komust þar færri að en vildu. Það var ætlaö að um 100 manns, sem ekki komu á skráningardegi kæmust ekki að núna, vegna rúmleysis i skólanum. Það gengur ekki of vel að koma öllu þessu fólki fyrir, og verður skólinn margsetinn i vetur, kennt verður frá klukkan átta á morgnana til klukkan hálf ellefu á kvöldin. Kennarar i yngri deild eru 72 með stundakennurum, en i öldungadeild eru þeir 35. Náms- hópum við Hamrahliðarskólann hefur fjölgað i vetur, en við öld- ungadeildina eru kjörsviðin sex og þrjú þau vinsælustu eru? Félagssvið, nýmálasvið og náttúrusvið. Hin eru eðlissvið, fornmálasvið og tónlistarsvið, en sjöunda kjörsviðið er i undir- búningi, en það myndlistarsvið. Aðsókn að Menntaskólanum i Kópavogi er mjög mikil, mun meiri en búizt var við. Skólinn verður settur 14. september og þar munu 185 nemendur stunda nám i vetur i niu bekkjardeildum i þrem árgöngum. fastráðnir kennarar verða tiu. en fjórir Framhald á bls. 13 ákveðna dánarorsök. Nánari rannsókn niun taka nokkurn tima, en fyrr veröur ekki hægt að segja nokkuð ákveðið, sagði Egg- ert Bjarnason rannsóknarlög- reglumaður. Lögreglan var kvödd að húsinu númer 26a við Vesturgötu á mið- vikudagskvöldið klukkan 22:40. Þar kom hún að gamla mannin- um, sem hét Daniel Simonarsson, þar sem hann lá á gólfinu, og reyndist hann vera látinn. Við rannsókn kom i ljós, að maður nokkur, sem var ókunnug- ur Daniel heitnum, hafði komið i húsið i leit að öðrum manni. Maður þessi fór inn til Daniels, og settust þeir að drykkju. Þeim lenti siðar saman, og kom til handalögmáls á milli þeirra. Maðurinn batt hendur Daniels með hálsbindi, en þá kom þar að kona, sem býr i hinum enda húss- ins, og sá hún strax, að ekki var allt með felldu. Hún kallaði i mann, sem einnig býr i hinum enda hússins og voru hendur Daniels leystar og hringt á lög- regluna. Maöurinn, sem var gest- komandi hjá Daniel, er þvi einn til frásagnar um það, sem gerðist, en hann hefur verið úrskurðaður i þrjátiu daga varðhald. meðan rannsókn málsins fer fram. 310 milljónir úr Iðnþróunarsjóði það sem af er órinu FÖSTUDAGINN 30. ágúst hélt stjórn Iönþróunarsjóös fund i Reykjavik. 1 stjórninni eiga sæti fulltrúar frá Norðurlöndunum fim m. Fyrir fundinum lágu ni.a. tillögur framkvæmdastjórnar sjóðsins um lánveitingar til fyrirtækja að upphæð samtals 89,0 niillj. kr., og voru þær samþykktar. Það sem af er þessu ári hefur þvi sjóöurinn veitt lán samtals að uppliæð 310,0 millj. kr. Þá veitti stjórnin framkvæmda- stjórn sjóðsins heimild til að ráðstafa 60 niillj. kr. til almennra lána til vióbótar fyrri heimildnm. Einnig veitti stjórnin heimild til aö ráðstafa 10 millj. kr. til styrkia eða lána með sérstökum kjörum. Frá upphafi hefur Iðnþróunar- sjóður varið 25.3 millj. kr. til slikra lána eða styrkja. Hefur þeim aðallega verið" varið til út- tekta á ýmsum iðngreinum og til fjárhagslegs stuðnings við sam- starf fvrirtæja i þessum greinum um hagræðingarverkefni. Frá þvi að Iðnþróunarsjóður tók til starfa á árinu 1970 hafa stjórn og framkvæmdastjórn sjóðsins veitt lán til fyrirtækja og sjóða að upphæð samtals 1,344 millj. kr. Akveðið var, að næsti fundur stjórnar sjóðsins yrði haldinn i Helsingfors i íebrúar á næsta ári.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.