Tíminn - 07.09.1974, Side 4
4
TÍMINN
Laugardagur 7. september 1974.
■■■■
Varðturn fró miðöldum verður nú að
leigulausri ibúð fyrir rithöfunda
Bad Wimpfen er miðaldaborg,
sem stendur við ána Neckar.
Þar stendur turn, Blái turninn,
750 ára gamall. Efst uppi er ibúö
I gömlum stil, og þangað liggja
168 stigaþrep. Inn i þá ibúð eru
nýlega flutt hjónin Heinz og
Vera Múnchow, ásamt þremur
börnum sinum. Hjónin eru rit-
höfundar, rita aðallega bækur
fyrir börn. Þau fá að búa þarna
leigulaust gegn þvi að hringja
bjöllu fjórum sinnum á dag og
gera viðvart ef eldur brýzt út.
Einnig þurfa þau að sinna
feröamönnum, sem koma til að
skoða turninn. Hjónin dreymir
um að koma á fót listasafni i
þessum sögufræga turni.
Nú á timum hvilir þó ekki
lengur sú skylda á turnbúum, að
gera viðvart, ef óvinir nálgast,
eins og varðmennirnir á miðöld-
um þurftu að gera.
Kdta ekkjan
Dewi Sukarno, hinn 34 ára
gamla ekkja Súkarnós, fyrrver-
andi Indónesiuforseta, hefur nú
eignazt nýjan ,,vin”. Sá heitir
Guy Burgos og er 36 ára glaum-
gosi frá Chile. A stóru myndinni
sést parið I innkaupaleiðangri á
götum Saint -Tropez, en þar
voru þau á höttunum eftir
einhverjum klæðum til að skýla
nekt hins fögnulega pipar-
sveins.
Á litlu myndinni sjást þau svo,
þegar þau hafa lokið innkaup-
unum, og það sýnir sig, að for-
setafrúin fyrrverandi hefur ekki
getað stillt sig um að kaupa
klæöi i stil við þau, sem vinur-
inn keypti. Óneitanlega eru þau
sérstætt og glæsilegt par, þar
sem þau leiöast um götur Saint -
Tropez i nýjum, austrænum
klæðum.
Hæfileikana skortir ekki, en....
Liza Todd, dóttir Elisabetar
Taylor, er nú orðin sextán ára.
Hún segist engan áhuga hafa á
leiklist, og þess vegna hafi hún
siztaf öllu i hyggju að feta i fót-
spor móður sinnar. Hún hefur
nú ákveðið að hætta námi við
Heathfield kvennaskólann og
láta innritast i listaakademin-
una I London. An þess að spyrja
kóng eða prest sótti hún um
inngöngu þar siðastliðið vor,
ásamt tvö þúsund öðrum og ekki
alls fyrir löngu, var henni
tilkynnt, að hún hefði verið i
hópi 42 útvaldra. Hennar
heitasta ósk er að gerast
hönnuður og fá friö til að lifa
sinu eigin lifi, án ihlutunar
sinnar frægu móður.
— Ég hef gleðilegar fréttir aö
færa þér, Jón! Það var miklu
meira á bankabókinni en þú
hélzt!
Ég veit ekki, hvort mamma er
búin að tala við þig, en ég ætla
aö segja þér hvernig mér finnst
þetta hafa gerzt.
DENNI
DÆMALAUSI