Tíminn - 07.09.1974, Side 6
ó
TÍMINN
Laugardagur 7. september 1974.
Þetta er brúfta.sem er að gera þaö sem einginn þátttakendanna á nám-
skeiðinu má gera I framtíðinni: Reykja! A borðinu er tyggjugúmmf,
sem þátttakendum er ráðlagt að nota óspart.
Séð yfir salinn þar sem þátttakendur fylgjast með námskeiðinu.
Viltu hætta
að reykja?
— Námskeiði til hjálpar reykingafólki að Ijúka
GB- A íimmtudagskvöldið lauk
námskeiði, sem haldið var i
Arnagarði á vegum aðventista, til
hjálpar fólki sem hætta vill reyk-
ingum. Námskeið þetta var mjög
fjðlsótt, en það sóttu um tvö
hundruð manns og stóð i fimm
daga.
Danskur læknir, sem nú býr i
Bandarikjunum, J.D. Henriksen
að nafni, kom hingað til lands i
annað skipti til að halda
námskeið þetta.Henriksen læknir
kom hér fyrst fyrir einu og hálfu
ári siðan og hélt fyrirlestra á
námskeiði sem haldið var þá i
sama skyni.
Henriksen sagðist hafa
fimmtán ára reynslu i þessum
efnum og aö reynslan sýndi að
fólk sem sækti námskeið sem'
þessi, tækist mjög vel að hætta
reykingum, eða um 80% af þeim
sem sækja námskeiðin hætta
algjörlega. Þó væri þetta fólk sem
reykt hefði mikið f fjölda ára.
Hlutverk læknisins á námskeið-
unum, er að fræða fólk um
læknisíræðilega hlið málsins, hve
reykingar geta haft skaðleg áhrif
á heilsu manna og hvernig bezt er
að hætta viö þennan leiða löst.
Hann ráöleggur fólki að hreyfa
sig meira en það hefur hingað til
gert, slappa meira af, sofa mikið
og drekka mikið af vatni og juice.
Einnig ráðleggur læknirinn
léttari mat, og að forðast skuli að
drekka kaffi eða alkóhól. Fólk
sem reykir 25-30 sigarettur á dag I
nokkur ár, styttir llf sitt um allt
að tiu til ellefu árum, sagði hann.
Þegar námskeið þetta var
auglýst, var búizt við að um eitt
hundrað manns myndu sækja um
þátttöku, en raunin varð heldur
betur önnur, um tvö hundruð
manns sóttu um þátttöku og varö
þvl að skipta hópnum I tvo hluta,
þannig að fyrri hópurinn mætti
klukkan sex á kvöldin, en sá
seinni klukkan hálf nlu, þau fimm
kvöld sem námskeiðið stóð.
Námskeiðin eru byggð upp á
þvi, að tveir ræðumenn eru,
annar læknir, eins og áður hefur
komið fram, og hinn, sem i þessu
tilfelli var Jón Jónsson, starfs-
maður hjá aðventistum, reynir að
rekja hvers vegna fólk byrjaði að
reykja, venjuna sem þetta skapar
frá sálfræðilegu tilliti, svo og
auðvitað peningahlið málsins.
Kvikmyndir voru sýndar á
hverju kvöldi um skaðsemi
tóbaksreykinga, og sagði
Sigurður Bjarnason sem stendur
að námskeiðum þessum fyrir
hönd aðventista, að fólk hugsaði
langmestum læknisfræðilega hliö
málsins, þvi að peningaleysi er
alltaf hægt að bæta, en heilsuleysi
ekki. Sigurður sagði, að á hverju
kvöldi námskeiðsins, væru þátt-
takendur látnir fá spurningalista
sem þeir svo svöruðu.
Aðalspurningin á listum
þessum, er auðvitað hvort og þá
hvað mikið, þátttakendur
námskeiðsins hafi reykt mikið
þennan dag, einnig er spurt um
liðan fólks og fleira.
Þetta er i fjórða skipti sem er-
lendir læknar hafa verið fengnir
til að halda fyrirlestra á
námskeiðum sem þessum, en
einnig hafa verið haldin
námskeið i Keflavik og á Akur-
eyri. Fók virðist almennt kunna
vel að meta þessa þjónustu, og
þátttakan sýnir aö þaö eru
margir sem vilja hætta
reykingum en treysta sér ekki til
þess án hjálpar.
Okkur tókst að ná tali af
nokkrum þátttakendum
námskeiðsins:
Jóhanna Eyjólfsdóttir:
,,Ég hef reykt I mörg ár og um
tuttugu sigarettur á dag. Mér
likar mjög vel á námskeiðinu og
vonast svo sannarlega til að geta
hætt reykingum alveg”.
Pétur Kjerulf:
„Hef reykt i svona tiu til ellefu
ár um pakka á dag. Ég vona að ég
geti staðið mig og hætt alveg”
Guðrún Ester Árna-
dóttir, og sonur hennar
Baidvin Jónsson:
„Guðrún sagðist hafa reykt I 18
ár og hafa reynt að hætta, en ekki
tekizt hingaö til. „Það er mikið
aðhald að vera svona mörg
saman I hóp, öll með þeim
ásetningi og af vilja gerð að reyna
að hætta. Svo er bara að vita
hvort maður stendur sig”.
Baldvin fór með móður sinni eitt
kvöldið á námskeiðið, og sagöist
hann aldrei ætla að byrja aö
reykja.
Jóhann Þorvaldsson:
„Ég hef reykt i fimmtán ár, um
25-30 sigarettur á dag. Ég vona
að mér takist að hætta”. Jóhann
sagðist ekki hafa reykt neitt siðan
hann byrjaði á námskeiðinu.
„Þegar þvi er lokið er bara að
fara eftir þeim leiðbeiningum
sem maður hefur fengið hér. Eins
er verið að tala um að hafa fundi
með þessum hóp aftur seinna. Viö
fengum einnig öll slmanúmer hjá
sessunaut okkar á námskeiðinu
og höfum hringt i hvort annað á
daginn til að vita hvernig gengur.
Þetta mun einnig halda áfram
eftir að námskeiöini lýkur”.
Guðrún Ester Arnadóttir og sonur hennar Baldvin
Jóhann Þorvaldsson
Jóhanna Eyjólfsdóttir
Pétur Kjerulf