Tíminn - 07.09.1974, Page 13
Laugardagur 7. september 1974.
ItMINN
13
Ernst Ekra, fulltrúi Rotary-samtakanna á Noröurlöndum, Jack Pride, sérstakur fulltrúi alþjóðasam-
taka Rotary-manna, Hjörtur Eiríksson, umdæmisstjóri Rotary á tslandi, og Valgarð Thoroddsen, sem
nú tekur við störfum umdæmisstjóra.
Umdæmisþing Rotary á íslandi
Dagana 28. og 29. júni s.l. var
haidið formót og umdæmisþing
Rotaryklúbbanna á islandi. Var
mótið haldið á Akureyri i húsa-
kynnum Menntaskólans, Möðru-
völlum. Þinginu stjórnaði um-
dæmisstjóri islenzka umdæmis-
ins, Hjörtur Eiriksson verk-
smiðjustjóri. Voru þar mættir um
160 fuiitrúar og gestir.
Guðmundur Sveinsson skóla-
stjóri flutti erindi, er hann nefndi
Heimili — skóli — þjóðfélag, og
Gissur Erlingsson, svæðisstjóri
sima á Austurlandi, sagði frá
námsskiptum á vegum Rotary.
Ársskýrslu umdæmisins flutti
umdæmisstjóri, og verðandi um-
dæmisstjóri, Valgarð Thoroddsen
rafmagnsveitustjóri,sagði frá ferð
sinni á allsherjarþing Rotary I
Minneapolis og umdæmisstjóra-
þing i Lake Placed. Einnig fluttu
erindi og kveðjur sérstakur full-
trúi forseta R.I. Jack Pride og
fulltrúi Rotary Norden, Ernst
Ekra.
A þinginu voru rædd ýmis
Rotary-málefni, en mest um
æskulýðsmál, sem verða efst á
stefnuskrá umdæmisins á næst-
unni.
Veittir voru 6 styrkir til ung-
menna á fræðslu- og kynningar-
mót erlendis, auk heilsársstyrk,
sem Rotary Foundation veitir ár-
lega.
Þá var einnig ákveðið að
styrkja starfsemi skáta með
kaupum á tjöldum fyrir
Jambere-hátið þeirra i Noregi
1975.
Þinginu var formlega slitið
laugardagskvöldið 29. júni með
hófiá Hótel KEA. Þar afhenti frá-
farandi umdæmisstjóri Hjörtur
Eiriksson eftirmanni sinum Val-
garð Thoroddsen Rotarykeðjuna.
Sunnudaginn 30. júnl hlýddu
þingfulltrúar messu I Akureyrar-
kirkju.
NÁMSKEIÐ j KÖNNUN
JARÐAR ÚR HÁLOFTUNUM
Dagana 9.—12. september n.k.
mun Verkfræði- og raunvisinda-
deild Háskóla Islands, Raunvís-
indastofnun Háskólans og Rann-
sóknaráð rikisins gangast fyrir
fræðsluráðstefnu I Norræna hús-
inu um fjarkönnun. Fjarkönnun
(fjarskynjun) er þýðing á ensku
orðunum remote sensing og tákn-
ar þá tækni, sem beita má við að
skoða yfirborð jarðarinnar frá
einhverjum stað hátt yfir jörðu,
annað hvort frá flugvél eða frá
geimflaug, og fá þannig upplýs-
ingar um náttúruauðlindir á yfir
borði jarðar landi eða sjó og
stundum nokkra metra undir
yfirborði jarðar. Myndirnar, sem
teknar eru I háloftunum eru tekn-
ar á innrauða filmu.
Ráðstefnunni er ætlað að kynna
þessa nýju tækni og munu fjórir
erlendir sérfræðingar, sem starf-
að hafa á þessu sviði flytja yf.r-
litserindi. Þeir munu einníg hafa
meðferðis myndir og veggspjöld
til skýringa. Sett verður upp sýn-
ing I Norræna húsinu I sambandi
við ráðstefnuna.
Ráðstefnunni hefur verið skipt I
nokkra meginþætti eftir sérsvið-
um: Undirstöðuatriði fjarkönn-
unartækni, jarðfræði og jarðeðlis-
fræði, vatnafræði, jöklafræði,
haffræði, veðurfræði, landbúnað-
ur og skógrækt, landmælingar,
landnýting, landgræðsla, nátt-
úruvernd og svæðaskipulag.
Vegna þess hve Island er fjöl-
breytilegt að náttúrufari og
vegna þeirra virku rannsókna,
sem hér eru stundaðar á sllkum
fyrirbærum, hefur vaknað áhugi
fyrir þvi aö þróa rannsóknaað-
ferðir með athugunum á Islenzku
náttúrufari úr gervihnöttum.
Gert er ráð fyrir að allir þátt-
takendur sitji ráðstefnuna fyrsta
daginn, en siðan aðeins þann eða
þá dagshluta, þegar sérsvið
þeirra er til umræðu.
Ráðstefnan er ætluð vlsinda- og
tæknimönnum, sem áhuga hafa á
f jarkönnunartækni.
Heimilis
ánægjan
eykst
með
Tímanum
Nemendur 0
stundkennarar. Þrjú kjörsvið eru
við skólann, og eru þau raun-
greinasvið, tónlistarsvið og mála-
og félagsfræðisvið. Það síðast-
nefnda er nýnæmi við skólann,
bætt inn I málasviðið félagsfræði.
Menntaskólinn á Isafirði verður
settur 14. september sem er
óvenjusnemma, en siðastliðið
haust var hann settur 20. septem-
ber og árið þar áður 1. október.
Rúmlega 150 nemendur stunda
nám við skólann i vetur, og þar af
verða um 60-70 I heimavistinni.
Fjórtán kennarar kenna við
skólann.
Menntaskólinn að Laugarvatni,
verður settur 1. október.
Nemendur við skólann I vetur
verða 185 að tölu, þar af er hægt
að koma 174 nemendum fyrir I
heimavistinni, en hinir eru
heimafólk og búa á staðnum. Niu
fastir kennarar. .stunda.. kennslu
við skólann, auk þriggja stunda-
kennara. Kennt er I þrem
deildum, máladeild, náttúrudeild
og eðlisdeild.
Að venju verður Menntaskólinn
á Akureyri settur þann 1. október.
Nemendur við skólann I vetur
verða um 520 talsins, þar af búa
150 I heimavist og má reikna með
að utanbæjarnemendur sem búa
úti I bæ séu um 100 talsins, þannig
að tæplega helmingur nemenda
er utanbæjarfólk. Fastráðnir
kennarar eru 29, en stundakenn-
arar 6. Nýnemar hafa aldrei verið
eins margir og þeir verða I vetur,
eða um tvö hundruð. Kennt er I 29
bekkjardeildum.
Sú nýjung verður tekin upp I
vetur, að nú verður tekin I notkun
sérstök tungumálakennslustofa,
en hún er I gamla skólahúsinu og
hefur verið sérstaklega innréttuð
fyrir tungumálakennslu. Þar er
einnig mjög fullkomið upptöku-
herbergi, og mun aðeins ein slik
stofa vera til á landinu, en það er
I Norræna húsinu I Reykjavik.
Þetta er þvl algjör nýung við
menntaskóla.
öll tæki til þessarar kennslu, en
þau eru norsk, gáfu stúdentar,
árgangur 1963, sinum gamla
skóla s.l. ár. Það eru tólf
nemendur sem geta verið við
nám i stofunni I einu, en henni er
skipt niður I hljóðeinangruð hólf.
MA mun útskrifa I fyrsta skipti
næsta vor, 20 stúdenta úr félags-
fræðideild, sem tók til starfa árið
1972. Stúdentar munu sem áður,
verða útskrifaðir 17. júnl
Smjörsalan
jókst um 46%
SJ—Reykjavik — Smjörsalan hjá
Osta- og smjörsölunni i
Reykjavík var 46% meiri fyrstu
átta mánuði þessa árs en á sama
tima 1973. 1.048 tn hafa selzt af
osti hér frá áramótum til ágúst-
loka. 650 tn seldust af osti á sama
tima, og er það 5% meira en I jan-
ágúst 1973. Mesta söluaukningin
varð við stórauknar niður-
greiðslur á þessum vörum 20,
mai sl. Nokkuð hefur dregið úr
þessari miklu sölu eftir hækkun
búvöruverðs I ágúst, en þó er enn
góð sala i öllum vörutegundum,
sem Osta og smjörsalan hefur að
bjóða, að sögn framkvæmda-
stjórans Óskars H. Gunnars-
sonar.
Smjörverð hækkaði um 40 kr.
kflógrammið og kostar nú 245 kg.
45% ostur hækkaði I verði um 25
kr hvert kg, og kostar nú i bitum
351 kg. hvert kg. en 290 kr. í
heilum og hálfum ostum.
Sá ostur sem brytjaður er niður
hjá Osta og smjörsölunni hefur
um langt skeið verið vandlega
merktur. Veittar eru upplýsingar
um næringargildi: hitaeiningar,
eggjahvituefni fitu s.sv.frv. Og
tekið er fram hvort hann sé sterk-
ur eða mildur en það ákvarðast af
aldri ostsins. Fituinnihald er til-
greint á tvennan hátt. T.d. er 45%
ostur einnig merktur 26%-feitur.
45% er miðað við 100 gr af þurr-
efni. En 26% er miðað við 100 gr
af ostinum eins og hann kemur
fyrir 30% ostur hefur þannig 17%
fituinnihald viðað við 100 gr.
5 millj. atvinnu-
lausir í USA
Reuter—Washington — í Banda-
rlkjunum voru 4 milljónir og 900
þús. manns atvinnulausir I slð-
asta mánuði og er það litlu hærri
tala en mánuðinn áður. 1 skýrslu
frá vinnumálastofnuninni segir,
að I ágúst hafi 5.4% af
verkamönnum landsins verið at-
vinnulausir.
Mest var atvinnuleysis-
aukningin meðal fullorðinna karl-
manna.
Landsþinginu lokið
HJ—Reykjavík — Þriggja daga
landsþingi Sambar.ds Islenzkra
sveitarfélaga, sem haldið var I
Súlnasal Hótel Sögu, var slitið ár-
degis á fimmtudag. Mörg fróðleg
erindi voru flutt á þinginu og auk
þess urðu þar fjörugar, og oft á
rlðum allheitar umræður um
ýmis málefni.
Fjöldi ályktana var samþykkt-
ur, og var þeim tilmælum m.a.
beint til alþingis og rikisstjórnar,
að athugað yrði að taka upp
staðgreiðslukerfi opinberra
gjalda I áföngum, þannig að
byrjað yrði á útsvörum. Auk bess
skoraði landsþingið á alþingi og
rlkisstjórn, að Lánasjóður sveit-
arfélaga yrði efldur, svo að hann
yrði fær um að gegna sinu hlut-
verki I framtiðinni.
A fimmtudagskvöldið sátu
þingfulltrúar kvöldverðarboð
félagsmálaráðherra og borgar-
stjórnar Reykjavikur i Súlnasaln-
um. Að kvöldverði loknum héldu
þeir siðan upp á vel heppnað
landsþing, með þvi að fá sér
snúning, við undirleik hljómsveit-
ar Hauks Morthens
Heimilisiðnaðarfélag íslands —
Embroiderers Guild
Vefjum — Soumum
— Hnýtum
útsaums-sýning frá Embroiderers’
Guild i London opnar i dag kl. 3.
Sýningin verður opin daglega frá kl.
14 — 22.
ÍSLENZKUR HEIMILISIÐNAÐUR
Hafnarstræti 3
TIMINN
ER
TROMP