Tíminn - 07.09.1974, Side 16
fyrirgódan nmt
^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
Morð i Súgandafirði
— í nýrri íslenzkri kvikmynd
Mikill
koníaks-
bruni
Reuter-Cognac — Koniak aö
jafnvirði 30 milljónir franka
(770 millj. Isl. kr.) varö eldi
aö bráð i gær i bænum Cogn-
ac i Frakklandi. Eldurinn
kom upp I kjöllurum
Martell-fyrirtækisins, þegar
neisti frá vélknúinni lyftu
hrökk i leka úr vinámu.
Skipti það engum togum, að
12.000 tunnur af gömlu finu
koniaki brunnu þarna upp.
Tunnurnar sprungu hver af
annarri I hitanum, og rann
logandi koniak út um allt.
______„_________)
Kólerutilfelli
í Danmörku
NTB—Kaupmannahöfn — Dönsk
kona sem nýlega kom heim frá
Portúgal, er með kóleru, og ligg-
ur á sjúkrahúsi. Læknar ráð-
leggja öllum, sem liður eitthvað
óvenjulega, að fara til læknis, ef
þeir hafa nýlega verið i Portúgal.
Engin hætta er á, að veikin breið-
ist út I Danmörku.
Lofa bót og
betrun
GB — Lögreglan á Seltjarnar-
nesi stefndi tii sin hópi ungra
pilta, sem eiga létt vélhjól og
Frh. á bls. 15
BH—Reykjavik — Það telst jafn-
an til viöburða, þegar ungir menn
taka sig til og ráðast í að gera
kvikmynd upp á eigin spýtur, án
nokkurra styrkja eða stuðnings,
vegna ánægjunnar einnar að
koma verkinu i kring. Á morgun
sunnudag verður nú mynd frum-
sýnd I Suðureyrarblói i Súganda-
firði, og er þessi mynd, að öllu
leyti súgfirzk, tekin þar á tima-
bilinu júnf-ágúst i sumar. Nefnist
mynd þessi „Kviksyndi” og
koma alls 11 leikarar fram i
henni. Sýningartiminn er 35
minútur, og hefst frumsýningin á
Suðureyri kl. 18.
Við höfðum i gær tal af einum
forsvarsmanni kvikmynda-
gerðarinnar, ungum Súgfirðingi
Sigurði Ólafssyni, en hann hefur
gert handrit hennar-, annaðist
leikstjórnina, klippinguna o.fl.
— Er þetta mikil mynd,
Sigurður?
— Já, svona á okkar visu. Ég er
vel ánægður með þetta, auglýsti
þetta á miðvikudagskvöld, og það
virðist anzi mikill áhugi i plássinu
fyrir að sjá þetta.
— Er myndin tekin i Súganda-
firði?
— Já, á Suðureyri, og um
Súgandafjörð allan, úti i Staðar-
dal. Þar er hraun og vatn, og það
er mikið notað
— Hvert er efni myndarinnar?
— Þetta er drama. Um mann,
sem lendir á villigötum. Það er
talsverður efnisþráður, það
byrjar þannig, að þau eru að
horfa á sjónvarpið, hjónin, en
maðurinn er að laumast i flösk-
una annað slagið. Siðan endar
meö þvi, að konan verður vör við
þetta, það verður uppsteitur, og
hann verðuraðfara út. Hannveit
um aðra flösku, og hann heldur
svona áfram og það endar með
þvi, að hann stelur bil og fer
hérna út I dal. Eiginlega— byrjar
sagan daginn eftir þegar menn
fara út i dal og þá hittist svo illa
á, að þegar sá drukkni vaknar
daginn eftir glorhungraður og
illa til hafður, hittir hann þá þar
sem þeir eru i veiðiferð. Hann
hittir einn þeirra, sem er að
éta, og hann heimtar mat,
en hinn er ekkert hrifinn af
svona vesaling, og vill bara ýta
honum frá sér, og hann er sterk-
ari, þessi sem var að drekka,
og það verður til þess, að það
fýkur i hinn, og hann gripur I
hnif, en þá snýst við leikurinn, og
það verður þarna úr morð að
óyfirlögðu ráði. Og upp úr þessu
spinnst efni myndarinnar.
— Þar koma fram 11 leikarar.
Hefur einhver af þeim komið á
svið áður?
—Já, ekki kannski verulega, ég
segi fyrir mig, að ég hef leikið
hérna I barnaskólanum, og svo
þegar ég var i Verzlunar-
skólanum.
— A hvaða filmu takið þið
þetta?
• — Á Super Kodak 8. Litfilmu
— Og þið feilið tónlist þarna
inn?
— Já, við höfum tónlist eftir
súgfirzkan strák, sem er búinn að
vera i bransanum fyrir sunnan,
og á anzi mikið af góðum lögum.
Hann heitir Sveinbjörn Jónsson
— Býstu við, að myndin verði
sýnd utan Súgandafjarðar?
— Það er nú meiningin, alla
vega hérna á næstu fjörðum til að
byrja með. Það fer eftir aðsókn-
inni hér
— Er ekki óskaplegur kostn-
aður við þetta?
— Þetta er nú unnið algjörlega i
sjálfboðavinnu. Filmukostnaður
er ekki nema 10-15 þúsund kall.
Það tekur 35 minútur að sýna
þetta, og það er ekki nema svona
fimm jninútna kafli, sem við
höfum klippt úr henni
—Hafið þið einhvern klúbb
þarna á staðnum til að vinna að
þessu?
— Nei, það er enginn klúbbur.
Þetta er bara okkar frumkvæði.
Við erum aðallega tveir, sem
höfum staðið i þessu og talað við
fólk, og þá kemur þetta svona
saman, Það eru margir, sem
hafa haft áhuga á að vinna með
okkur.
Og þá er þess ógetið, að hann
heitir Snorri Sturluson, sem
leikur aðalhlutverkið I myndinni,
en væntanlega getum við birt
myndir úr kvikmyndinni og sagt
nánar frá henni strax eftir
helgina — að frumsýningu
lokinni.
Á Suðureyri I Súgandafiröi verður ný, islenzk kvikmynd frumsýnd um
helgina.
USAogKúba í
samband á ný
NTB—Washington — Bandarikin
og Kúba hafa tekið upp fullt
stjórnmálasamband á nýjan leik
og hyggjast nú bæta samband
rikjanna. Þessa dagana er utan-
rikisráðherra Kúbu, Paul Roa, i
Sviss, þar sem hann ræðir við
háttsettan, bandariskan dipló-
mat.
EINS OG kunnugt er hefur verð á
bensini nú verið hækkað upp i 48
krónur fyrir hvern litra.
Stefán Jónsson, sem á sæti i
Talsmaður bandariska utanrik-
isráðuneytisins sagði að frétt
þessi kæmi sér á óvart og
ambassadorinn I Sviss hefði ekki
fengið það verkefni að hafa sam-
band við Roa.
Þá hafa Costa Rica, Venezuela
og Comombia beðið samband
Frh. á bls. 15
verðlagsnefnd, gaf blaðinu eftir-
greindar upplýsingar um hvernig
verðið á bensinlitranum sundur-
liðast, miðað við það verð sem
ákveðið er frá 9. september 1974:
Kostaði
hann
milljón
GB-Reykjavik — Enn cin bil-
veltan varð á Keflavíkurveg-
inum i gærdag, er ökumaður
reyndi árangurslaust að forð-
ast að aka á kind, sem hljóp út
á veginn I veg fyrir bifreið
hans.
Bifreiðin, sem var af gerð-
inni Mercury Comet, árgerð
1974, fór margar veltur og er
talin gjörónýt — verð ein
milljón. ökumanninn sakaði
ekki, og þykir það ganga
kraftaverki næst. Kindin var
ekki eins heppin, þvi að hún
drapst samstundis.
Mjög mikið hefur verið um
bilveltur á Keflavikurvegin-
um i sumar.
__
ÞANNIG SKIPTIST
BENSÍNVERÐIÐ
Aðalfundur
Bílgreina-
sambands
Hundraðs- Verð'
hluti :• kr
1. Cif verð ásamt uppskipunarkostnaöi
og rirnun vegna leka............................ 24,77% 11,89
2. Verðtollur, vörugjald og sölu-
skattur til rikissjóðs.......................... 26,98% 12,95
3. Vegagjald til vegasjóðs......................... 33,33% 16,00
4. Verðjöfnunargjald vegna innlendrar
verðjöfnunar. Bankakostnaður og
opinber leyfisgjöld.............................. 1,67% 0,80
5. Dreifingarkostnaður innanlands,
rekstur birgðastöðva ofl. tilh.
samkv. mati verðlagsyfirvalda.................... 5,02% 2,41
6. Leyfð álagning oliufélaganna i
hundraðshlutum á verð ........................... 3,81% 1,83
7. Leyfð smásöluálagning, sem er ákveðin
magnálagning á litir............................. 3,65% 1,75
8. Tillag i „púliu” til veröjöfnunar
millifarma....................................... 0,77% 0,37
Framangreinda liði má draga
saman i þrjá heildarflokka, sem
eru þessir: Cif-verö 24,77%, eða
tæplega 1/4. af smásöluverði.
Hlutur rikissjóðs og Vegasjóðs
Samtals..... 100% Kr. 48,00
60,31%, eða rúmlega 3/5. af
smásöluverðinu. Allur annar
kostnaður 14,92%, eða rúmlega
1/7. hluti af smásöluverðinu.
BILGREINASAMBANDIÐ
heldur fjórða aðalfund sinn i dag,
laugardag, og að þessu sinni á
Akureyri. Munu sækja hann um
120 manns. A fundinum verður
meðal annars sýnd sænsk mynd
um iðnfræðslukerfi, sem nú er
notað við menntun bifvélavirkja i
iðnskólanum I Reykjavik.
Tvö erindi verða flutt. Jón
Bergsson verkfræðingur talar um
samskipti bilaverkstæða við bila-
og varahlutainnflytjendur og
Bjarni Bragi Jónsson fram-
kvæmdastjóri um eflingu þjón-
ustuverkstæða i dreifbýli og hlut-
verk byggðasjóðs i þvi sambandi.
Starfsemi
frystihús
anna í
„Aukin fjárbinding frystihús-
anna á þessu ári er þvi 1300-1600
milljónir króna. Bankarnir hafa
hiaupið undir bagga eins og
kostur hefur verið á, en engu að
siður eru mörg hundruð milljónir
króna I hreinum vanskilum og
mjög viða er orðið um algert
greiðsluþrot að ræða. Við þetta
bætist svo það að tekjuskattar,
sem aldrei eru taldir með I
rekstrargrundvelli frystihús-
anna, eru nú þessa dagana sem
óðast að falla i gjalddaga, en þeir
nema sennilega um 200
milljónum króna”.
Þannig er komizt að orði i
greinargerð stjórnar Sambands-
fiskframleiðenda um stöðu hrað-
frystiiðnaðarins. Kemur hér til
verðfall frystra sjávarafurða og
fiskimjöls, sem hófst snemma árs
1974 og kjarasamningarnir frá I
hættu
fyrravetur, er höfðu i för með sér
stóraukinn kostnað. Af þessum
sökum er halli frystihúsanna
orðinn 500-600 milljónir i árslok,
og bætist þar við sölutregða, svo
að birgðir hlaðast upp.
Siðan segir:
„Sjávarútvegurinn er megin-
grundvöllur alls efnahagslifs á
Islandi. Þegar velgengni er i
sjávarútvegi er jafnframt vel-
gengni i þjóðfélaginu öllu. Þegar
afturkippur verður i sjávarút-
vegi. verður jafnan samdráttur I
öllu atvinnulifi innan skamms
tima og atvinnuleysi fylgir I kjöl-
farið. Stjórnmálamenn þessarar
þjóðar hafa á undanförnum
mánuðum mjög lýst þeirri ætlun
sinni að viðhalda fullri atvinnu i
landinu. Meginskilyrði þess að
hægt sé að viðhalda fullri atvinnu
Frh. á bls. 15
Chou alvar-
lega veikur
NTB—Peking— Chou En-lai, for-
sætisráðherra Kina, sem þjáðst
hefur af hjartameini i fjóra mán-
uði, hefur aftur verið lagður inn á
sjúkrahús og getur ekki tekið á
móti erlendum gestum.
Kinverskir embættismenn hafa
skýrt bandariskum og v-þýzkum
þingmönnum sem eru i heimsókn
i Kina, að Chou geti ekki hitt þá.
Hubert Humphrey fyrrum vara-
forseti Bandarikjanna sagði, aö
þeim hefði verið sagt, að Chou
hefði fengið slæmt kast. Llklega
hefði hann ofreynt sig við hátiða-
höldin á degi hersins 27. júli.
Menn velta þvi nú fyrir sér,
hvort Chou muni taka aftur við
störfum. Hann er nú 76 ára og
hefur verið driff jörðin i utanrikis-
stefnu Kina undanfarin ár.