Tíminn - 28.09.1974, Page 1
Stjórnventlar
Olíudælur
Olíudrif
Iti>\ &
^ r/ /#*
-t®
—II-i_
Landvélarhf
185. tölublað — Laugardagur 28. september—58. árgangur
Dömurl
Nýjung!
N
DRESSFORM fatnaður loks á
tslandi
Pantið bækling núna
33373
Sjálfvirkur simsvari allan
1 sólarhringinn.
Póstverzlunin
Heimaval, Kópavogi.
Málsvari frjálsrar
menningar borinn
til grafar í gær
SJ — Reykjavlk — Hann þekkti
fánýti allra þeirra fræða, sem
svipta menn hæfileikanum tii að
biðja guð eins og smælinginn.
Eitthvað þessu likt fórust sr.
Jakobi Jónssyni dr. theol. orð I
ræðu við útför Sigurðar Nordal
prófessors, sem gerð var frá
Dómkirkjunni i gær. Siðasta við-
fangsefni Sigurðar Nordais voru
isienzkar þjóðsögur og var honum
mjög hugstæð þjóðsagan um
gömlu kerlinguna, sem ekkert gat
lært nema faðirvorið. Loks tókst
að kenna henni eitthvað fleira
gott, en hún gleymdi öiiu jafn-
harðan og faðirvorinu líka. Þetta
var tilefni ummæla sr. Jakobs um
hinn mikla menntamann og hugs-
uð þjóðar okkar, sem svo vel
kunni að meta einfaldleikann.
í eftirmælum dagblaöanna i
gær um Sigurð Nordal minnast
margir á þennan einfaldleika,
sem hann hafði til að bera, enn-
fremur glettnina og alvöruna.
Ritningarorð sr. Jakobs við útför-
ina voru úr Matteusarguðspjalli
um húsráðandann, sem ber fram
nýtt og gamalt úr f jársjóði sínum,
sem hann sagði að sér heföu þeg-
ar komið I hug þegar honum var
falið að jarðsetja Sigurð Nordal
prófessor. Sigurði Nordal var ljós
nauðsyn samhengisins i andlegri
menningu. Maðurinn, lifsskoðun
hans og trúarlif voru honum
ævinlega ofarlega i huga. Sigurð-
ur Nordal var frægur á unga aldri
fyrir nýjan skilning sinn á Is-
lenzkum bókmenntum, en jafn-
framt á tengsl Islenzkrar menn-
ingar við heimsmenninguna að
fornu og nýju. Sr. Jakob minntist
þess elds, sem brann I ritdeilum
Nordals á fyrri hluta æviskeiðs og
stilltari strauma um hann á efri
árum. Hann var málsvari frjálsr-
ar menningar.
Samkvæmt ósk hins látna voru
öll erindin i sálminum Um dauð-
ans óvissa tlma eftir Hallgrim
Pétursson flutt við útförina, en
það var jafnframt vilji hans að ef
annað væri sungið skyldi það
einnig vera eftir sr. Hallgrim. Út-
förin var látlaus. Ragnar Björiis-
son lék Sálmaforleik. Nokkrir
söngvarar fluttu Allt eins og
blómstrið eina við undirleik
Ragnars. Kirkjan var fullskipuð
og fánar blöktu i hálfa stöng viða i
borginni. Guðlaugur Þorvaldsson
háskólarektor, Jakob Benedikts-
son dr. phil. Andrés Björnsson út-
varpsstjóri, Gylfi Þ. Glslason,
Gunnar Thoroddsen og ráðher-
arnir Vilhjálmur Hjálmarsson,
Geir Hallgrimsson og Ólafur Jó-
hannesson báru kistu hins látna
úr kirkju.
íbúðarhús á Akureyri springur í loft upp:
Brakið lá eins og
hráviði út um allt
íbúar hússins voru í Reykjavík, og það vildi þeim til
happs, að þeir höfðu ekki komizt heim vegna veðurs
GéBé—Reykjavik — Rétt fyrir
klukkan átta I gærmorgun, varð
ofsaleg sprenging i húsinu númer
20 við Löngumýri á Akureyri.
Hitavatnsgeymir, sem var I kjall-
ara undir miðju húsinu, sprakk
með feikilcgum gauragangi. Af-
leiðingar sprengingarinnar urðu
þær, að húsið er eyðilagt, og
stendur varla steinn yfir steini.
tbúar hússins voru til allrar ham-
ingju ekki heima, þannig að eng-
inn slasaðist.
Orsakir sprengingarinnar eru
enn ókunnar, en Bogi Nllsson iög-
fræðingur á skrifstofu bæjarfó-
geta sagði, að tveir menn hefðu
þegar verið dómkvaddir til aö
kanna þær, og aðrir tveir menn
dómkvaddir til að skoða og lýsa
skemmdum.
Skemmdir urðu einnig á nær-
------------------------------
liggjandi húsum, þegar múrbrot
og ýmsir hlutir flugu út I loftið við
sprenginguna. Skófla fór t.d. inn
um kjallaraglugga I nálægu húsi
og rúður I næstu húsum brotnuðu.
Frúin I húsiu við hliöina,
Sólveig Jónsdóttir, sem er kona
Ingva Rafns Jóhannssonar, raf-
virkjameistari, sagði að sér hefði
fyrst dottið i hug að kominn væri
jarðskjálfti, þegar hún hrökk upp
við drunurnar og lætin. „Þetta
stóð stutt yfir” sagði Sólveig, ,,en
hávaðinn var geysilegur og af-
leiðingarnar miklar og slæmar.”
Sólveig sagði, að maður sinn
hefði verið nýfarinn að heiman til
vinnu sinnar, þegar sprengingin
varð. „Hefði hann veriö nokkrum
sekúndum seinna á ferðinni, hefði
hann án efa orðiö fyrir einhverj-
um af þeim múrbrotum og stein-
um, sem þutu út um allt við
sprenginguna.”
Það er kraftaverk, að enginn
skyldi hafa verið á ferli I nágrenni
hússins þegar sprengingin varð,
en hún var rétt fyrir klukkan átta
um morguninn, eins og fyrr segir.
Börn voru á leið I skóla og fólk á
leið til vinnu sinnar. Gatan varð
ófær vegna múrsteina og hluta úr
húsinu, sem lágu eins og hráviði
út um allt.
Húsiö að Löngumýri 20 er al-
gjörlega eyðilagt. Ekki mun
verða unnt að gera við það, held-
ur verður að reisa það allt frá
grunni. Austurhlið hússins mun
einna heillegust, en eins og Sól-
veig sagði, þá er ekki til einn ein-
asti hlutur heill úr húsinu, hvorki
af innanstokksmunum né öðru.
„Skemmdir urðu töluverðar á
okkar húsi” sagði Sólveig, „það
brotnuðu tvær rúður i stofu, og
teppi og húsgögn skemmdust af
glerbrotum, en skemmdirnar eru
ekki fullkannaðar enn. Við erum
að sjálfsögðu með góðar trygg-
ingar.”
Það var nýbúið að setja örygg-
isútbúnað á hitakerfið i húsinu
sem eyðilagðist. Hann virðist
auðsjáanlega hafa bilað meira en
litið.
Strax um hádegi á föstudag var
Frh. á bls. 15
Einar Agústsson.
„ANÆGÐUR EFT-
IR ATVIKUM"
„Ég er eftir atvikum ánægður með samkomulagið i Washington I
gær. Þetta er i samræmi við stjórnarsamninginn, og við fengum
fram þaðsem við óskuðum eftir i þessari lotu, og siðar verður
haldiðáfram sameiginlegum viðræðum um fvrirkomulaeið barna á
vellinum. Meira hef ég eiginlega ekki að segja, að svo stöddu.
Þannig svaraði Einar Agústsson utanrlkisráðherra, er Timinn
náði tali af honum i New York I gær.
Kista Sigurðar Nordal prófessors borin úr Dómkirkjunni. 1 dyrum sést
annar sona hans, Jóhannes Nordal seðlabankastjóri, og kona hans. —
Timamynd: Gunnar
FYRSTA HAUST-
HRETIÐ SNEMAA-
KOAAIÐ í ÁR
Óveður mikið gekk yfir landið á
föstudagsnóttina. Einna mestur
var veðurofsinn á Austfjörðum,
og hefur reyndar verið slæmt
veður þar undanfarna 2—3 sólar-
hringa.
Á ’Neskaupstað fengum við þó
þær upplýsingar, að ekki væri vit-
að um neinar skemmdir, hvorki á
bátum né húsum. Þar hefur geng-
iðá með slyddu-hrið og vegir allir
eru illfærir vegna snjóa.
A Seyðisfiröi er mjög hvasst, og
hefur verið bleytuhrið þar. Snjóað
hefur mikið til fjalla, og eru vegir
allir ófærir til Seyðisfjarðar. Veð-
urspáin er sú sama, áframhald-
andi hvassviðri. Um hádegi I gær-
dag voru 8—9 vindstig sagði Páll
Bergþórsson veðurfræðingur.
A Egilsstöðum hefur verið
mjög úrkomusamt undanfarið,
snjókoma hefur verið litil I byggð,
en þvi meiri til fjalla, og eru vegir
allir ófærir. Engar skemmdir
hafa orðið á mannvirkjum, en það
sem menn óttast mest, er að fé
hafi fennt til fjalla. Viðast hvar er
búið að smala einu sinni, og er þvi
án efa mikið fé enn á fjöllum.
1 Loðmundarfirði er sjö manna
gangnahópur, með um ellefu
hundruð fjár. Hefur hópurinn
þurft að halda kyrru fyrir undan-
farnar tvær nætur I Stakkahliö,
vegna þess að ekki er hægt að
koma fénu yfir ána, sem rennur
um fjarðarbotninn. Ætla gangna-
menn að koma fénu til Seyðis-
fjarðar. 1 Stakkahllð er rafmótor
svo að hópurinn getur haldið á sér
hita og haft ljós.
Mjög hvasst var norðanlands,
slydduhrið og kalt. A Vestfjörðum
var aftur á móti orðið eins stigs
hiti um miðjan dag I gær, og bjart
veður.
Sunnanlands var bjart og þurrt,
þó að hvasst hafi verið. —GéBé
í DAG
Tónlistar-
lækningar
á íslandi
— blaðamaður
Tímans á
námskeiði
— bls. 8-9
¥
Kvennaskólinn
100 ára
— bls. 6
★
íslendingaþættir