Tíminn - 28.09.1974, Qupperneq 4

Tíminn - 28.09.1974, Qupperneq 4
4 TÍMINN Laugardagur 28. september 1974, Forsetaekkjan ein og yfirgefin Claude Pompidou, ekkja fyrr- verandiFrakklandsforseta er 57 ára gömul. Hún hugleiðir nú aö flytjast á brott frá Frakklandi, leið og'Vonsvikin. — Er maöurinn minn lézt, segir hún, vildu allir allt fyrir mig gera. Til mln streymdu heimboð og alls konar aðstoð var mér veitt, en nú aðeins nokkrum mánuðum eftir dauða manns mins hafa allir vinir minir gleymt mér. Forsetafrúin fyrrverandi hef- ur verið I Sviss að leita sér aö hentugu húsnæði og hyggst setj- ast þar að og afla sér nýrra vina. Milljónum skipt Elizabeth Taylor er ein af rikustu konum I heimi. Eftir að hún skildi við mann sinn Richard Burton er auður hennar um fjórir milljarðar ísl. króna. Sjálf hefur hún unnið sér inn megnið af þessu fé, en einnig fékk hún mikil auðæfi eftir skilnaðinn. Auk demanta og ★ Kraftpilla fró Sovét gangandi Utanrlkisráðherra Bandarikj- anna, Henry Kissinger, virðist óþreytandi. Margir hafa velt vöngum yfir þvi, meö hvaða hætti hann heldur yfirnáttúr- legu starfsþreki slnu. Utanríkis ráðherrann þýtur heimshorn- anna á milli I stjórnarþotu og stendur I margra vikna mála- þrasi og samningaumleitunum, án þess að þreytumerki sjáist nokkru sinni á honum, þött aðstoðarmenn hans séu að niöurlotum komnir, svo og þeir sem hann er að þrasa við um heimsmálin hverju sinni En nú er komið upp um strákinn Tuma. Fram til þessa hefur skartgripa, sem virtir eru á nokkra tugi milljónir króna fékk Liz I sinn hlut lystisnekkju þeirra hjóna. „Kalizma”, höll I Sviss, búgarð i Mexikó og verð- mikla Ibúð I London. Hún þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af hvort henni bjóðast kvikmyndahlutverk, hún getur ★ heldur Kissinger c> Kissinger tekizt að varðveita það leyndarmál, hvernig hægt er að bregðast við svo' miklu vinnuálagi án þess að blða tjón á ltkama og sál. Upp er komið, að hann etur daglega litla pillu, sem framleidd er I Sovétrlkj- unum eftir fimm þúsund ára gamalli kínverskri uppskrift. Ekki hefur verið látið uppi úr hverju þessi karftpilla er búin til. Kissinger var spurðúr að þvl, hvernig stæði á að Rússar væru að gefa honum svona pillu, og hvaða akkur þeim væri að þvl að bæta starfsþrek bandariska ut anrlkisráöherrans. — Verið gæti, að þeir sæju sér hag I þvl að halda mér vakandi við samningaborðið I Moskvu. vel komizt af án þeirra. Burton þarf heldur ekki aö vera brauðbitur neins, þvi þrátt fyrir skilnaðarútgjöldin eru eftirstandandi eigur hans metnar á um tvo milljarða króna, svo að hann er hálf- drættingur á við fyrrverandi eiginkonu sína. — Er þetta á bókasafninu? Er nokkur leið að fá að hafa ,,A hverfanda hveli” eins og einn mánuð I viðbót? — Mér finnst svo gaman að hafa kynnzt þér, þvl að mér geðjast bezt að eldri mönnum. DENNI DÆMALAUSI „Nei mamma, ef strákarnir sæju mig á þessu mundu þeir gera mig útlægan.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.